Morgunblaðið - 18.12.1996, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
FRÁ kraftakeppni Vitans.
Félagsmiðstöðin Vit-
inn og útivistarreglur
Islensk tónlist á Rás 2
Frá Geir Bjarnasyni:
FÁIR hafa haft áhuga á að fram-
fylgja settum útivistarreglum fram á
síðustu ár. Nú er svo komið að foreldr-
ar, lögregla og þeir sem koma að
uppeldismálum á einhvern hátt hafa
fullan hug á að framfylgja þessum
reglum. Unglingar ættu ekki að eiga
erindi út seint á kvöldin því ljóst er
að slys og ofbeldisverk virðast vera
að ágerast með degi hveijum. Skapa
þarf þannig aðstæður að fátt kalli
unglinginn út og gera þarf foreldrum
grein fyrir því að bömin þeirra verði
í stórhættu seint á kvöldin um helg-
ar. Hér verður gerð grein fyrir áhersl-
um félagsmiðstöðvarinnar Vitans í
Hafnarfirði varðandi útivist unglinga.
í félagsmiðstöðinni Vitanum er
opið alla daga fyrir unglinga milli kl.
15.30 og 18 og vinsældir dagstarfsins
hafa aukist ár frá ári og sá tími lengd-
ur, sem haft er opið. Unglingar eiga
oft frítíma að loknum skóladegi og
oft er enginn heimavið. Því er full
ástæða til að bjóða upp á öflugt tóm-
stundastarf á daginn.
Á mánudags- og miðvikudags-
kvöldum er opið frá kl. 20 til 22 og
þá fer ýmislegt spennandi fram og
er lögð áhersla á að unglingamir sjái
sem mest um framkvæmd dagskrár-
innar. Á föstudögum er hins vegar
opið til kl. 23 enda enginn skóli dag-
inn eftir.
Til að kynna foreldrum næturlífið
þegar það var sem verst, fyrir um
þremur ámm, og hvetja fólk til að
virða útivistarreglur stóðu foreldrafé-
lögin í Hafnarfirði og Vitinn fyrir
svokölluðu foreldrarölti. Hefur röltið
starfað með hléum í þrjú ár og um
árangurinn þarf ekki að spyija.
Æskulýðsráð Hafnarfjarðar og
Vitinn hafa rekið útideild í átta ár
og meginmarkmiðið hefur verið leit-
arstarf. Reynt hefur verið að finna
unglinga sem standa höllum fæti og
koma til móts við þarfír þeirra. Auk
þess hefur útideildin bent á margt sem
betur má fara s.s. varðandi aðgengi
unglinga að veitingastöðum. Þær
upplýsingar sem hafa safnast saman
í gegnum þetta starf hafa verið
sendar til þeirra sem að unglingamál-
um koma s.s. foreldra, lögreglu og
félagsmálastofnunar. Síðan hafa
þessir aðilar unnið saman við að
bæta það sem miður fer.
Félagsmiðstöðin Vitinn er frum-
kvöðull félagsmiðstöðva á höfuðborg-
arsvæðinu í því að hafa opið á kvöld-
in í takt við útivistarreglur. Ungling-
arnir hafa tekið þessu ágætlega og
foreldrar afar vel. Starfsfólk Vitans
skoðaði þessi mál afar vel og fundust
fá góð rök fyrir því að hafa opið leng-
ur en til kl. 22. Við byijum einfald-
lega fyrr á dagskránni og unglingam-
ir fara fyrr heim og eiga vonandi
ánægjuleg samskipti við fjölskyldu
sína og sofna fyrr.
Nú er svo komið að mun færri
bijóta útivistarreglur í Hafnarfírði en
betur má ef duga skal. Það er orðin
regla að æskulýðsstarf í Hafnarfírði
sé unnið og skipulagt með foreldrum,
unglingum og þeim sem tengjast upp-
eldis- og forvamarstarfí. Samvinna
og samráð er af hinu góða, aukið
upplýsingastreymi eyðir tortryggni í
garð þess sem er framandi.
Síðustu misseri hefur átt sér stað
hugarfarsbreyting hjá foreldmm
varðandi útivist unglinga. Ljóst er að
klukkuktími til eða frá er ekki aðalatr-
iðið heldur það að vera samstiga og
virða þær reglur sem settar em sem
hafa velferð unglingsins að leiðar-
ljósi. Allt uppeldisstarf þarf að vera
í stöðugri mótun og þróun. Breyting-
ar á uppeldisviðhorfum samfélagsins
em nauðsynlegar til þess að hægt sé
að bjóða æsku landsins upp á já-
kvæða framtíð.
GEIR BJARNASON,
forstöðumaður
félagsmiðstöðvarinnar Vitans.
Frá Magnúsi Einarssyni:
FÖSTUDAGINN 13. desember sl.
birtist í í Morgunblaðinu opið bréf
frá Tónlistarráði íslands, þar sem
endurtekin er sama firran og birst
hefur áður í skrifum formanna fjög-
urra hagsmunasamtaka í tónlistar-
iðnaðinum. Þessi fjarstæða eða
meinloka er sú að spilun íslenskrar
tónlistar hafi minnkað á Rás 2.
Þetta er rangt. Þetta eiga formenn-
irnir og þar með Tónlistarráð ís-
lands að vita vegna þess að ársfjórð-
ungslega er send skýrsla um spilun
íslenskrar tónlistar á Rás 1 og 2
til Shf (Samtök hljómplötuframleið-
enda). Nú er ekki um nema tvennt
að ræða, annaðhvort hefur formað-
ur Shf ekki kynnt sér þessar skýrsl-
ur, eða þá að hann skilur þær ekki,
sem í ljósi yfirlýsinga hans verður
að teljast sennilegra. Þessi formað-
ur Shf hefur haldið því fram opin-
berlega að spilun íslenskrar tónlist-
ar hafi minnkað um 30%. Hann
hefur einnig úthrópað Rás 2 sem
skaðvænlega tónlistarrás. Síðan
súpa taglhnýtingamir vilsuna úr
hóffari hans og vaða í villu og svíma
eftir þann óholla drukk.
Það er ástæða til að birta þessar
skýrslur, 3 ár aftur í tímann svo
menn sjái í eitt skipti fyrir öll hver
þróunin hefur verið í spilun íslenskr-
ar tónlistar á Rás 1 og 2. Tölurnar
eru samanlagður mínútufjöldi af
íslenskri tónlist á hverju tímabili.
Tímabil Rás 1 Rás 2
01.01. -31.03.94 4.873 14.401
01.04. -30.06.94 5.252 14.608
01.07. -30.09.94 4.560 12.265
01.10. -31.12.94 6.654 16.194
01.01. -31.03.95 6.667 11.519
01.04. ,-30.06.95 6.944 11.022
01.07. ,-30.09.95 7.098 11.321
01.10, ,-31.12.95 9.060 21.556
01.01. .-31.03.96 7.429 19.874
01.04. ,-30.06.96 8.694 19.918
01.07, .-30.09.96 8.424 25.403
Þessar tölur eru úr opinberum
skýrslum Ríkisútvarpsins. Þetta eru
þær skýrslur sem formaður Shf fær
sendar ársfjóðungslega. Þetta eru
sömuleiðis skýrslur sem formenn
Stefs, Ftt og Fíh hafa aðgang að.
Þetta eru þær tölur og staðreyndir
sem formennirnir hefðu átt að
kynna Tónlistarráði íslands áður
en lagst var í bréfaskriftir. Ef for-
mannakvartettinum tekst að lesa
sig í gegnum þessar skýrslur og sjá
það sem allir aðrir sjá, gríðarlega
aukningu á spilun íslenskrar tónlist-
ar á Rás 2, ætti þeim að verða ljóst
að þeir hafa verið að beina spjótum
sínum að sínum besta vini, Rás 2.
Það er ekki fallega gert. Nú er mál
fyrir þessa formenn að hysja upp
um sig brækur, viðurkenna ósigur
að hætti góðra drengja. Ráð okkar
á Rás 2 til þeirra er í allri vinsemd
það að stunda sitt heimanám sam-
viskusamlega áður en þeir halda
næst galvaskir útí baráttuna fyrir
framgangi íslensks tónlistariðnað-
ar.
Það má segja að Rás 2 þurfi
ekki að svara þeim spurningum sem
koma fram í opnu bréfí Tónlistar-
ráðs Islands, þar sem forsendan
sem ráðið gefur sér vegna spurn-
ingalistans stenst ekki hvað Rás 2
varðar. Hins vegar hefur það alltaf
verið ljóst að stefna Rásar 2 hefur
verið sú að kynna íslenska tónlist
sérstaklega, vinsa það úr sem afleit-
ast þykir og leggja áherslu á það
skársta í íslensku tónlistarlífi með
sérstökum þáttum og umfjöllun.
Þetta heyra þeir sem hlusta.
Rás 2 hefur alltaf leikið miklu
meira af íslenskri tónlist en nokkur
önnur útvarpsstöð, hefur algera
sérstöðu hvað það varðar. Rás 2
hefur nú um langt árabil verið lang-
vinsælust útvarpsstöðva samkvæmt
hlustendakönnunum. Við á Rás 2
erum ekki í vafa um að þær vin-
sældir eru meðal annars til komnar
vegna áherslu okkar á íslenska tón-
list í dagskránni. Rás 2 mun halda
Frá Ólafi Ólafssyni:
ÁGÆTI Hallgrímur.
í rökstuðningi þínum fyrir óholl-
ustu gerilsneyddrar kúamjólkur
vitnar þú í greinar sem allflestar
eru ritaðar á árunum 1945-1975.
Flestar eru ritaðar í blöð og tímarit
sem mér vitanlega eru ekki háð
vísindalegri gagnrýni (peer re-
viewed) og hafa því takmarkað
gildi. Eftirfarandi greinar eru þó
ritaðar í viðurkennd vísindarit.
1. Lancet (1978): í þeirri grein
er lýst 19 börnum 18 mæðra er
þjáðust af krampa í þörmum (intest-
inal colic). Er mæðurnar voru tekn-
ar af kúamjólkinni hurfu óþægindi
meðal 13 bama. Tekið var fram að
sumar mæður voru miklir mjólk-
urneytendur. í niðurstöðu greinar-
innar er rætt um að framangreind
áhrif geti eins stafað af sálfræðileg-
um viðbrögðum eða ofnæmisvið-
brögðum. Alþekkt er að slíkir
krampar hverfa oftast er börnin
vaxa úr grasi.
þeirri stefnu áfram algerlega óháð
hagsmunum aðila plötuiðnaðarins.
Það er ástæða til að staldra við
og hugleiða eitt splunkunýtt hugtak
í bréfi Tónlistarráðs íslands. Það
er hugtakið „fjölþjóðleg engilamer-
ísk tónlist". Ráðið teflir þessu skýr-
lega fram sem andstæðu við ís-
lenska menningu í bréfí sínu. Nú
væri forvitnilegt að fá skilmerkilega
útlistan hjá ráðinu á þessu nýja
hugtaki, „fjölþjóðleg engilamerísk
tónlist", því hún liggur ekki alveg
á ljósu en skiptir samt máli vegna
umræðunnar. Svo tekið sé dæmi
af handahófi, þá hefur núverandi
formaður Stefs ort eina 42 söng-
texta við dægurlög sín og annarra
eftir því sem sjá má í spjaldskrá
Safnadeildar Ríkisútvarpsins. Þar
af eru 23 á tungumáli sem Tónlist-
arráð íslands myndi sennilega kalla
„engilamerísku", afgangurinn er
samansetningur á móðurmálinu yl-
hýra. Nú er spurt: Falla þessir 23
söngtextar formanns Stefs undir
skilgreininguna „fjölþjóðlegt engil-
amerískt"? Og restin undir hugtak-
ið íslensk menning?
2. I JAMA (1974) er bréf til rit-
stjóra um að kúamjólk geti valdið
hægðatregðu í börnum, unglingum
og fullorðnum og þykja ekki ný tíð-
indi.
3. í grein í Lancet (1996) er ég
fann er í bréfi til ritstjóra rætt um
krossviðbrögð T-fruma líkamans
gegn E-caseini í mjólk meðal nokk-
urra ungbarna með sykursýki. Syk-
ursýki meðal ungbarna er mjög
sjaldgæfur sjúkdómur. Tekið er
fram að hér sé um ósannaða tilgátu
að ræða.
Niðurstaða:
Alþekkt er að mikil mjólkur-
drykkja getur valdið hægðateppu en
annað er ekki sannað varðandi óþol
og óhollustu mjólkur. Ofnæmi gegn
mjólk er sjaldgæft fyrirbrigði.
Hallgrímur!
Staðhæfingar þínar um að allflest
ungböm líði fyrir óhollustu geril-
sneyddrar kúamjólkur standast ekki.
ÓLAFUR ÓLAFSSON,
landlæknir.
MAGNUS EINARSSON,
tónlistarritstjóri Rásar 2.
Ofnæmi fyrir mjólk
er sjaldgæft
Svar til Hallgríms Magnússonar
Til hamingju með brúna.
/ Nú erum við og Kringlan komin í brúarsamband.
m
RCWELLS
Stórverslun, full af fatnaði
Verslanir í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7
S
Tilboð:
Jólahandklæði
2 stk. í pakka á kr. 298.-
LEIKBÆR
LANDSINS MESTA
ÚRVAL
LEIKFANGA
Sími: 588 0711
Allt fyrir dýrin.
15% afsláttur af öllum dýrabúrum.
Mikið úrval af fiskum - fuglum og nagdýrum.
Góðar vörur á góðu verði.