Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 58
58 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Silli
SVIPMYND frá keppni hjá Bridsfélagi Húsavíkur.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Húsavíkur
Nýlega er lokið hraðsveitakeppni
hjá félaginu með sigri sveitar Sveins
Aðalgeirssonar. Auk Sveins spiluðu
í sveitinni Guðmundur Halldórsson,
Gunnar Bóasson og Hermann Jón-
asson.
Sveit Óla Kristinssonar varð í
öðru sæti og sveit Friðriks Jónas-
sonar í þriðja sæti.
/Silli
Vanir og óvanir
spila á Suðurnesjum
milli jóla og nýárs
Að venju verður eitt spilakvöld
hjá Bridsfélagi Suðurnesja milli
jóla og nýárs. Þetta er árlegt eins
kvölds mót þar sem spila saman
vanur og óvanur keppnisspilari.
Spilaður verður Mitchell-tvímenn-
ingur og veitt verðlaun í báðar
áttir. Spilað verður á mánudags-
kvöldið 30. desember og eru þátt-
takendur beðnir að vera tímanlega
í því þannig að hægt sé að byrja
spilamennskuna kl. 19.45. því fyrr
sem byrjað er því fleiri spil eru
spiluð.
Spilaður var jólatvímenningur sl.
mánudagskvöld og spiluðu 16 pör.
Þeirra á meðal voru 3 pör yngri
spilara, sem eflaust eiga eftir að
iáta frá sér heyra í framtíðinni.
Spilaður var Howell tvímenningur
og urðu úrslit þessi:
Kristján Kristjánss. - Pétur Júlíusson 253
Sigríður Eyjólfsdóttir - Grethe íversen 252
GarðarGarðarsson-ArnórRagnarsson 247
Þijú efstu pörin fengu konfekt í
verðlaun.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Mánudaginn 16. desember lauk
5 kvölda tvímenningi, spilað var á
10 borðum. Úrslit urðu þessi:
N/S-riðill
Siprður Bjömss. - Sveinbjöm Axelss. 1201
Ómar Óskarsson - Skúli Sigurðsson 1180
Bragi Sveinsson - Sigrún Pálsdóttir 1156
A/V-riðill
SævarHauksson-HelgiJónsson 1316
Halldór Aðalsteinss. - Kristján Albertss. 1206
Páliyermundsson - Þorvaldur Axelsson 1200
Óskum öllum spilurum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári. Eftir
áramót hefst spilamennskan mánu-
daginn 13. janúar.
Við kynnum Elizabeth Arden
í dag frá kl. 14—18.
Jólagjafatilboð.
Snyitistofa Sigríðar Guðjóns, ^
Eiðistorgi 13, sími 561 1161. *
Alþjóðamálastofnun Háskólans
• / °s / •
Félag stjórnmálafræðinga
IDAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Sjötta umferð á mótinu
hefst í dag kl. 17. Jóla-
gjafamót Taflfélags Kópa-
vogs fer fram í kvöld og
hefst kl. 20 í félagsheimili
TK í Hamraborg 5, 3. hæð.
Tefldar verða fimm mín-
útna skákir. Mótið dregur
nafn sitt af því að glæsileg-
ar jólagjafir eru í verðlaun
fyrir þijú efstu sætin.
STAÐAN kom upp á al-
þjóðlega Guðmundar Ara-
sonar mótinu í Iþróttahús-
inu við Strandgötu í Hafn-
arfirði. Sænski alþjóða-
meistarinn
Thomas
Engquist
(2.375) var með
hvítt og átti
leik, en Bragi
Þorfinnsson
(2.155) hafði
svart.
Engquist
hafði fórnað
manni fyrir
hættulega sókn
og nú kom loka-
hnykkurinn:
28. Hxe6+! og
svartur gafst
upp því hann er
óveijandi mát. HVITUR mátar í fjórða leik.
Með morgunkaffinu
Ást er...
aÖ kenna þeim aö vera
góð við dýr.
TM Rog. U.S. P*l Otl — all righls rasarvad
(c) 1996 Los Angeles Times Syndicale
SIGURÐUR málar loftið
og ég sker meðfram
gólflistum.
COSPER
HÉR sé ég konuna þína. Ef ég á að segja eins og er
finnst mér hún taka sig ansi vel út í baðkarinu.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Skilá
jólabókum í
Hagkaupi
VEGNA skrifa í Velvak-
anda um jólabækumar í
Hagkaupi langar mig að
leiðrétta misskilning
sem þar kom fram.
Fram að jólum má
skila jólabókunum gegn
kassakvittun og má þá
taka hvaða vöru sem er
út. Eftir jól má skila
bókunum, en þá þarf að
taka bækur á móti, þ.e.
bók gegn bók. Það er
því ekkert vandamál að
gefa bækur í jólagjöf
sem keyptar eru í Hag-
kaupi því ef viðkomandi
hefur ekki áhuga á bók-
inni eða á hana fyrir,
getur hann skipt út og
fengið aðra.
Þorbjörn Stefánsson,
innkaupastjóri sér-
vöruinnkaupadeildar
Hagkaups.
Til
umhugsunar
OKKUR finnst sjálfsagt
að ungir menn og konur,
sem valda öðrum áverka
með bareflum eða hnefa-
höggum, séu sótt til
saka.
En eiginmenn og eig-
inkonur, sem særa maka
sína djúpum hjartasár-
um með framhjáhaldi,
geta gengið um hnar-
reist og jafnvel gortað
af afrekum sínum. Al-
menningur hlær að sög-
unum og þær eru notað-
ar sem skemmtiefni.
Er þetta það sem við
viljum?
Sagan hjá Hemma
Gunn. laugardaginn 6.
desember sl. benti dálítið
til þess að þetta þyki
ekki tiltökumál og bara
nokkuð hlægilegt. Hefur
þú hugleitt hvað þú vilt?
Vilt þú ótrúan maka?
Hvers vegna ætli svo
mörg hjónabönd séu í
upplausn?
Senn líður að jólum.
Gætum þess að særa
ekki saklaust fólk með
vanhugsuðum athöfnum
og sjálfselsku. Sýnum
öðrum tillitssemi. Ekki
láta undan augnabliks-
ástríðum og skaða með
því líf annarra. Já, jafn-
vel okkar eigið líf líka.
Gleðiieg jól.
Lillý
Gæludýr
Læða og
kettlingar
MJÖG ljúf og góð, svört
og hvít eins og hálfs árs
læða, og fjórir kettling-
ar, sem verða tilbúnir að
fara á nýtt heimili milli
jóla og nýárs, fást gefins
á gott heimili vegna
flutninga. Upplýsingar í
síma 554-2453.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót o.fl. lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynning-
um og eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329 eða
sent á netfangið:
giista@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Dagbók
Morgpinblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
halda fiind vegna útgáfu bókarinnar:
Afangi á Evrópufór,
EES og íslensk stjórnmál
Olafur Þ. Stephensen höfundur bókarinnar mun kynna
efni bókarinnar og Arni Bergmann ritstjóri mun ræða
um EES málið og Island.
Fundarstaður: Oddi, Háskóla íslands, stofa 101.
Tími: í dag miðvikudag 18. des. kl. 17:15.
Allir velkomnir
Víkveiji skrifar...
VAFALÍTIÐ hefur umræða í
Alþingi um sjálfræðisaldur
íslenskra ungmenna snert meira
og minna flest ef ekki öll heimili
í landinu. Víkveiji fylgdist með
þessari umræðu eins og hann átti
kost á og að umræðu lokinni og
fréttaflutningi af henni, var hann
litlu nær. Víkverji er í grundvall-
aratriðum sammála þeim rök-
semdum sem fram komu í máli
málshefjanda, Rannveigar Guð-
mundsdóttur, að óeðlilegt sé að
tvískipta þessum tímamótum í
ævi íslenskra ungmenna, að þau
verði sjálfráða við sextán ára aid-
ur, en lögráða við 18 ára aidur.
Slík skipting getur kaliað á
margskonar innri togstreitu og
jafnvel þversagnir í uppeldi ung-
mennanna.
xxx
AÐ sem á hinn bóginn fór
eiginlega fyrir bijóstið á Vík-
verja, þegar hann fylgdist með
málatilbúningi þingheims, um
þetta viðkvæma mál, sem snertir
mörgþúsund fjölskyldur í landinu,
var málflutningur forsætisráð-
herrans, Dvavíðs Oddssonar. Ráð-
herrann sagði eitthvað á þá leið,
að það væri hart, ef á milli 50 og
100 ungmenni (þ.e.a.s. vandræða-
unglingar - innskot Víkveija)
ættu að koma í veg fyrir sjálfræði
yfir tíu þúsund íslenskra ung-
menna. Hann beitti jafnframt
þeirri röksemdafærslu, að sjálf-
ræðisaldur við 16 ár, gæti gert
ungmennum sem byggju við heim-
ilisböl, kleift að komast að heiman
og flýja bölið. Þetta telur Víkveiji
að séu afar vanhugsuð orð úr
munni forsætisráðherra. Víkveiji
er þess fullviss, að ungmenni sem
búa við slíkt heimilisböl, að þau
væru betur komin ein og á eigin
ábyrgð á þeim aldri sem forsætis-
ráðherra vísaði til, þurfi ekki á
lágum sjálfræðisaldri að halda til
þess að geta komist að heiman.
Því miður er það staðreynd, að
foreldrar þessara ólánsömu ung-
menna láta það sig litlu skipta,
hvort þau eru eða búa heima eða
annars staðar.
XXX
TVI'iKLU fremur er ástæða til
þess að hafa áhyggjur af
þeim þúsundum ungmenna, sem
um stund missa áttir, einfaldlega
vegna ungæðisháttar, áhrifagirni
og ístöðuleysis. Þessi sömu ung-
menni munu reynast þjóðfélaginu,
oftast, nýtir þegnar þegar fram í
sækir - en til þess að svo megi
verða, þurfa þau á styrkri hönd
og leiðsögn að halda, frá þeim sem
mestu láta sig varða um framtíð
þeirra - foreldrunum. Til þess að
slíkt sé framkvæmanlegt, verða
foreldrar að hafa það vald, að
þeir hafi yfir börnum sínum að
segja, bæði að því er sjálfræði og
lögræði varðar.