Morgunblaðið - 22.12.1996, Side 6
6 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEINIT
A
Astralir stríða við tilvistarvanda
• •
Orlögum deilt með
Asíu eða Vesturlöndum?
Þorri Ástrala á ættir
að rekja til Evrópu en
efnahagslegir hags-
munir þeirra í Asíu
vega nú þungt og þar
eru framtíðarmarkaðir
þeirra. Stjórnmála-
menn eru á báðum átt-
um, sumir vilja stór-
auka tengslin við
grannþjóðir í norðri en
meðal almennings
virðist gæta vaxandi
andúðar á innfiytjend-
um frá Asíu
FÁ ríki í heiminum ráða yfír jafn
miklum ónýttum náttúruauðlind-
um og Ástralía. Efnahagslegur
uppgangur hefur verið þar undan-
farin ár en margir hafa áhyggjur
af öryggisleysi vegna hraðra um-
skipta i atvinnuháttum og menn-
ingu, viðvarandi atvinnuleysis og
lágra launa ófaglærðra, vandamál
sem nær allar auðugar þjóðir
kljást við. Landið er gjöfult og
stórt, litlu minna en Bandaríkin,
íbúarnir. um 18 milljónir. Krókó-
díla-Dundee og aðrar ævintýra-
hetjur geta geta unað sér í miklum
frumskógum og víðáttumiklum
eyðimörkum, skíðalönd eru góð í
fjöllunum og flestir Ástralir búa í
stórborgum með greiðan aðgang
að sólríkum baðstrendum. Lífskjör
eru óvíða betri í heiminum og íbú-
amir hafa lengi kallað Ástralíu
„Hamingjulandið".
Nú virðist sem Ástralir séu á
tímamótum og þurfi að taka mikil-
vægar ákvarðanir um framtíðina,
samtímis heyrast efasemdir um
ýmsa grundvailarþætti í samfélag-
inu sem ekki hefur verið deilt um
að ráði.
Kröfur eru uppi um að hætt
verði að stunda svonefnda já-
kvæða mismunum gagnvart svört-
um frumbyggjum en stjórnvöld
hafa með ýmsum aðferðum reynt
að bæta kjör þeirra síðustu ára-
Reuter
UM 20.000 manns tóku þátt í fjöldagöngu í Melboume fyrr í mánuðinum til að láta í ljós andúð
á kynþáttafordómum og andmæla kröfum um að innflytjendalög verði hert.
tugina. Einnig vilja
margir að spornað
verði við innflutningi
fólks af öðrum litar-
hætti en hvítum, þ.e.
frá Asíu en tæp 5%
af Áströlum eru
fæddir í Asíu.
Viíja slíta tengsl
við Bretland
Jafnframt eru
Ástralir ósammála
um stefnuna gagn-
vart hefðbundnum
bandamönnum sín-
um á Vesturlöndum.
Samkvæmt könn-
unum vill rúmlega helmingur
landsmanna slíta síðustu stjórnar-
farslegu tengslin við Bretland og
stofna lýðveldi.
Asíumarkaður er nú orðinn mik-
ilvægari fyrir áströlsk fyrirtæki
en samanlagður markaður í Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Það tog-
ast því á í mörgum annars vegar
vanafesta og tryggðin við vest-
ræna menningu, hins vegar við-
skiptahagsmunir í ríkjum hag-
vaxtarundranna síðustu áratugina
í Asíu þar sem spáð er að þungam-
iðja framleiðslu og valda í heimin-
um verði á næstu öld.
Ný bók bandaríska prófessors-
ins Samuels Huntington, Árekstur
menningarheima og nýskipan
heimsmála, hefur víða valdið mikl-
um umræðum um menningarlegan
tilvistargrundvöll og forsendur
þjóða fyrir samkennd
með öðrum. Hann tel-
ur að ríkisstjóm
Verkamannaflokksins
ástralska undir for-
ystu Paul Keatings, er
missti völdin í mars,
hafi gert söguleg mi-
stök með því að
ákveða að Ástralir
skyldu „flýja frá Vest-
urlöndum og skil-
greina sig á ný sem
samfélag í Asíu“.
Þessi ákvörðun var
dæmd til að mistakast
og valda „óleysanleg-
um deilum“ í landinu,
að sögn Huntingtons. Keating
lagði mikla áherslu á að efla
tengslin við Asíuríkin og tillögur
hans um að stofna lýðveldi njóta
vaxandi stuðnings. Bretadrotting
er nú þjóðhöfðingi Ástrala en nær
valdalaust embætti landstjóri fer
með umboð hennar í landinu. Tel-
ur Keating að slitin yrðu skýr
skilaboð um að Ástralir hygðust
móta eigin stefnu í alþjóða-
samkiptum auk þess sem kon-
ungssambandið sé í andstöðu við
lýðræðis- og jafnréttishugmyndir
landsmanna.
Þótt John Howard, leiðtogi hins
hægrisinnaða Frjálslynda flokks
og forsætisráðherra, sé andvígur
lýðveldishugmyndinni er sennilegt
að hann skipti um skoðun ef hann
sér fram á að hugmyndin muni
verða ofan á hjá þjóðinni. Stjórn
hans hefur haldið áfram að treysta
viðskiptatengslin við Asíulöndin,
af augljósum ástæðum; viðskipta-
jöfnuður Ástralíu gagnvart Asíu-
löndum er mjög hagstæður, mun-
urinn er nær 1.000 milljarðar
króna árlega. Einnig hafa þeir
miklar tekjur af ferðamönnum frá
Asíu, einkum Japan og hafa nú
samstarf í varnarmálum við Indó-
nesíu.
Flestir Ástralir vísa hrakspá
Huntingtons á bug og Keating
sakar hann um að kynda undir
frumstæða ættbálkahyggju. Sjálf-
ur segist Keating aldrei hafa full-
yrt að Ástralía væri Asíuland í
öðrum skilningi en landfræðileg-
um.
Strengir ótta
og fordóma
Óháður þingmaður frá héraðinu
Queensland, Pauline Hanson, hef-
ur valdið miklum deilum með and-
stöðu sinni við asíska innflytjendur
sem hún segir að muni að lokum
verða allsráðandi í Ástralíu ef ekk-
ert verði gert til að draga úr
straumnum. Um 80.000 manns
flytja til landsins árlega og þar
af eru um 40% frá Asíulöndum.
Eru því engar tölulegar líkur á
að spáin rætist en samkvæmt nýrri
könnun taka 66% Ástrala undir
hugmyndir Hanson um að stöðva
innflutninginn í bili. 51% telja rétt
að frumbyggjar hafi ekki réttindi
umfram hvíta.
Hanson rekur veitingastað í
Pauline Hanson
heimahéraði sínu, selur þar fisk
og franskar. Stuðningsmenn
hennar búa flestir utan við stór-
borgasvæðið er markast af Sydn-
ey, Melbourne og höfuðborginni
Canberra.
Hún þykir afleitur ræðumaður
og fer oft rangt með staðreyndir,
sagði eitt sinn í ræðu að íbúar
Malasíu væru 300 milljónir, rétta
talan er 20 milljónir. Ráðandi öfl
og helstu fjölmiðlar fordæma yfir-
leitt skoðanir hennar sem öfgar
en margt lágtekjufólk óttast sam-
keppni frá duglegum og nægju-
sömum innflytjendum. Einnig er
margt gamalt fólk enn andvígt
Japönum sem gerðu loftárásir á
norðurhluta Ástralíu í stríðinu.
Sérfræðingar telja að Hanson
sé ekki líkleg til að gefast upp og
nýleg könnun gaf til kynna að 18%
þjóðarinnar myndu geta hugsað
sér að kjósa flokk undir hennar
stjórn. Hún gerir fólk af öðrum
kynþáttum að blóraböggli allra
meinsemda sem þjaka fátækt og
ómenntað lágstéttarfólk er þekkir
vel langtíma atvinnuleysi og fínnst
frumbyggjum hampað um of á
þess kostnað. Hanson túlkar að
sögn fræðimanna oft sjónarmið
þeirra sem hvorki hafi uppburði
eða tækifæri til að segja hvað þeim
fínnst um ýmis þjóðmál. Þeim finn-
ist að hún sé ein af þeim og skilji
ótta þeir við breytingar sem séu
óskiljanlegar og því ógnvekjandi.
Howard hefur neitað tjá sig
sjálfur um mál Hanson en hefur,
án þess að láta mikið á því bera,
lagt niður tvær ríkisstofnanir sem
andstæðingar óhefts innflutnings
börðust hart gegn og sögðu reka
áróður fyrir fjölþjóðasamfélagi í
landinu og auknum innflutningi.
Einnig hefur stjórnin reynt að setja
strangari kröfur um enskukunn-
áttu innflytjenda og andmælt sum-
um landakröfum frumbyggja.
Grannþjóðir lýsa óánægju
Síðustu takmarkanir á innflutn-
ingi fólks frá Asíu voru afnumdar
í Astralíu á áttunda áratugnum.
Mikið hefur borið á gagnrýni í
ýmsum Asíuríkjum vegna um-
ræðnanna í Ástralíu um innflytj-
endamálin núna og dæmi rakin
um fordóma hvítra. Fyrir skömmu
hætti japönsk sendinefnd við að
fara til landsins í mótmælaskyni
við andúð sem sagt er að æ fleiri
Ástralir sýni fólki af asískum upp-
runa. Hefur verið bent á að við-
skipti Ástrala við umrædd lönd
geti verið í hættu ef málið fari
úr böndunum.
Neðri deild þingsins í Canberra
samþykkti fyrir skömmu ályktun
þar sem kynþáttamisrétti var for-
dæmt og stuðningur við frjálsan
innflutning ítrekaður; allir helstu
stjórnmálaflokkar tóku höndum
saman í málinu. Pólitískir and-
stæðingar Howards gagnrýna
hann að vísu fýrir að taka ekki
afdráttarlausa afstöðu gegn Han-
son en fáir þeirra ganga svo langt
að segja að hann hyggist umbylta
stefnunni í þessum málum. Þegar
öllu er á botninn hvolft er líklegt
að innflytjendalöggjöfm verði sem
fyrr mun frjálslegri í Ástralíu en
flestum Asíulöndum.
Heimildir: The Economist, Int-
ernational Herald Tribune.
SILFURBÚÐIN
Kringiunni 8-12 *Sími 568 9066
- Þarfœrðu gjöfina -
Sprenging í
fjölbýlishúsi
AÐ MINNSTA kosti tíu manns
fórust og sex manna er enn
saknað eftir sprengingu í fjöl-
býlishúsi í Priozersk í norð-
vesturhluta Rússlands. Er ótt-
ast að þeir sem kunni að hafa
lifað sprenginguna af, muni
deyja úr kulda en miklar frost-
hörkur eru á þessum slóðum.
Sprengingin varð vegna gas-
leka en fjölskylda sem lokað
hafði verið fyrir gasið hjá,
hafði gert gat á gasleiðslu
hússins til að verða sér úti um
ódýra orku.
Reuter
Skaut mann-
ræningja
Peking. Reuter.
KÍNVERSK lögreglukona, dul-
búin sem leikskólakennari,
skaut í gær mann sem hafði
28 börn og tvo leikskólakennara
í haldi í leikskóla í borginni
Zhengzhou.
Maðurinn hafði haft hópinn
í gíslingu frá því á miðvikudag
og krafðist hann sem svarar til
fögurra milljóna kr. lausnar-
gjalds, ella myndi hann
sprengja sjálfan sig og leikskól-
ann í loft upp.