Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 17
_______LISTIR_____
Mozart, flautan
og klarinettan
TÓNLIST
Illjómdiskar
CAMERARCTICA
LEIKUR MOZART
Armaiin Helgason klarinettuleikari,
Hallfríöur Ólafsdóttir flautuleikari,
Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleik-
ari, Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðlu-
leikarí, Guðmundur Kristmundsson
víóluleikarí, Sigurður Halldórsson
sellóleikari. W.A. Mozart: kvartettar
fyrir flautu og strengi Kv 285 og
285B. Kvintett fyrir klarinettu og
strengi kv 581. Upptökur fóru fram
í Digraneskirkju í Kópavogi haustið
1995. Stjórn Upptöku: Halldór Vik-
ingsson. íslenskir tónlistarmenn
SKREP007.
EINHVER þjóðsaga er til um það
að Mozart hafi verið í nöp við flaut-
una, en því verður nú vart trúað
þegar maður hlustar á þessa flautu-
kvartetta - jafnvel þó að hann hafi
skrifað föður sínum að hann hafi
fengið pöntun frá manni um verk
fyrir flautu, sem honum sé mjög á
móti skapi. Kannski geðjaðist hinum
rúmlega tvítuga snillingi ekki að
manninum, sem var líka læknir og
vísindamaður. En hvað um það, þetta
eru unaðsleg verk - einsog öll kam-
mertónlist Mozarts, meira eða minna.
Það er einsog maður hafi heyrt
hljóma eða stefbrot úr „adagio-inu“
í fyrri kvartettinum einhversstaðar
annarsstaðar, en það er jafnfallegt
fyrir því. Seinna verkið er í tveimur
þáttum, sá seinni er þema með til-
brigðum. Hallfríður Ólafsdóttir leikur
mjög fallega á flautuna, og leikur
strengjanna skínandi góður.
Ekki „versnar í því“ þegar kemur
að síðasta verkinu, sem raunar er
ein af perlum tónskáldsins - hinn
undurfagri A-dúr Kvintett fyrir
klarinettu og strengi Kv. 581. Kvint-
ettinn er, ásamt Klarinettukonsert-
inum - sem er í sömu tóntegund,
meðal seinni verka tónskáldsins. Hér
er klarinettan ekki eingöngu í ein-
leikshlutverki, hún blandast strengj-
unum fagurlega og tónlistin ein-
kennist af ytra sem innra jafnvægi.
Leikur Ármanns Helgasonar á klari-
nettu er mjúkur og hljómfagur.
Strengirnir eru fínir, hver og einn
kemur stundum fallega út úr hljóm-
vefnum, td. fiðlan, eins og til að
minna á að þeir hafi líka „sitthvað
fallegt að segja“.
Camerarctica er hópur ungs fólks
sem hefur lagt sig fram um að kynna
minna þekkt verk og tónskáld jafn-
framt hinum þekktari. Hópurinn
hefur frumflutt mörg verk hér á
landi, en þeir hafa einnig vakið at-
hygli fyrir flutning sinn á verkum
Mozarts. Og skyldi engan undra!
Hljóðritun mjög góð, en innihaldið
best.
Oddur Björnsson
FONIX AUGLYSIR
OPIÐ SUNNUDAG
22. DES. KL. 13-17
Velkomin í Fönix,
sérverslun með vönduð raftæki
og fyrsta flokks þjónustu.
jFOnix
Hátúni 6a, sími 552-4420
Jól 96
Öðruvísi
j ólaskreytingar
Full búð af nýjum gjafavörum,
m.a. Gammeístad lamparnir.
Sjón er sögu ríkari
Ath. Opið aðfangaðag til kl. 15.
Næg bílastæði (bílastæðishúsið Bergstaðir)
Ekkert stöðumælagjald um helgar
u 'firiwki bíóm/ibúf)
blómaverkstæði
INNA^
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12, BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN, SÍMI 551 9090
$£*■*•-*■* 1 sTpTNÁI) i»» »ntimináia i» ...blabib - kjarni málsins!