Morgunblaðið - 22.12.1996, Side 21
I
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 21
Bylting í gremmgu
og meðferð melt-
ingarsjúkdóma
ÁSGEIR Theodórs læknir gerði _
aðgerðina á Kristjáni Ólafssyni. í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins sagði hann að aðgerðin
sem hér um ræðir hafi verið gerð
vegna þess að neðst í gallgangi
Kristjáns voru þrengsli sem
hindruðu flæði á galli frá lifur
og niður í skeifugörn. „Önnur leið
til þess að lagfæra þetta er að
gera skurðaðgerð og skera burtu
þrengslasvæðið, hin er að fara
með speglunartæki í gegnum
munn og niður í skeifugörn og
vikka út þrengslin í gallganginum
með sérstakri blöðru sem sett er
í gegn um speglunartækið. Einnig
er hægt að setja rör í gegnum
þrengslin til þess að auðvelda
flæði gallsins með því að Iialda
gallgöngunum opnum,“ sagði Ás-
geir.
Aðgerðir sem þessar eru orðn-
ar all algengar. Þær eru tækni-
lega flóknar og þær krefjast nyög
sérþjálfaðs starfsfólks og flókins
tækjabúnaðar. „Annars vegar eru
þessar rannsóknaraðferðir notað-
ar til þess að greina sjúkdóma í
gallvegum og briskirtli. Hins veg-
ar er þessi tækni svo notuð til
þess að meðhöndla ýmsa sjúk-
dóma í briskirtli og gallvegum.
Öll þessi tækni hvað varðar spegl-
anir á meltingarfærum hefur
valdið byltingu í greiningu og
meðferð meltingarsjúkdóma og í
mörgum tilvikum leyst af hólmi
umfangsmiklar skurðaðgerðir og
langa sjúkrahúslegu. Sé mögulegt
að beita þessari tækni hlífir það
sjúklingum og ætla má að það
spari þjóðfélaginum töluverðar
peningaupphæðir.
Þess má geta að sama dag og
umrædd aðgerð var gerð á Krist-
jáni Ólafssyni var einnig gerð
aðgerð á ungum manni sem fyrir
tveimur árum greindist með
bandvefsþrengsli í gallvegum.
Þau voru það alvarleg að íhuguð
voru lifrarskipti. En með því að
setja rör i gegnum þrengslin, eins
og gert var við Kristján, hafa
gallvegir í unga manninum hald-
ist opnir og það hefur gjörbreytt
batahorfum hans til hins betra
hvað þennan sjúkdóm áhrærir,“
sagði Ásgeir ennfremur.
A Sjúkrahúsi Reykjavíkur voru
síðastliðið ár gerðar rannsóknir
og ýmsar aðgerðir með fyrr-
nefndri tækni á 120 sjúklingum.
„Oft má gera þessar rannsóknir
og aðgerðir án þess að leggja
sjúklinginn inn á sjúkrahús," bæt-
ir Ásgeir við. „Aðgerðir þessar
eru dæmi um hátækni læknis-
fræði sem hefur þróast á síðast-
liðnum árum og þær eru miklu
minna „inngrip“ fyrir sjúklingana
en t.d. skurðaðgerðir. Samsvar-
andi aðgerðum er hægt að beita
til þess að losa steina úr megin-
gallgangi, en slík vandamál eru
algengust hjá eldra fólki þar sem
stærri skurðaðgerðir eru áhætt-
usamar. Með þessum lækningaað-
ferðum er hins vegar hægt að
fjarlægja steinana með miklu
minni áhættu og jafnvel án inn-
lagna á spítala eins og fyrr sagði.
Með þessari tækni má einnig
greina þrengsli í brisgangi en þar
getur verið ýmis t um að ræða
góðkyiýa eða illkynja þrengsli.
Jafnframt geta illkynja æxli stífl-
að gallganga og valdið stíflugulu
og er þessari aðgerð oft beitt til
að greina þessi vandamál og opna
æxlin til þess að hleypa gallinu í
gegn.
Engar aðgerðir eru án nokk-
urrar áhættu eða fylgikvilla.
Rannsóknir okkar sem hér störf-
um hafa sýnt að alvarlegir fylg-
ikvillar með þessum aðgerðum
eru t.d. briskirtilsbólga, blæðing-
ar frá aðgerðarsvæði og gallvega-
sýkingar. Alvarlegir aukakvillar
í fyrrgreindri rannsókn koma
aðeins fyrir hjá um einu prósenti
sjúklinga," sagði Ásgeir Theodórs
læknir að iokum.
Saga sjúklingsins
í JANÚAR á fyrra ári fór Krist-
ján Ólafsson frá Dalvík að finna
fyrir verkjum innvortis og fór á
sjúkrahús á Akureyri til rann-
sókna. Þar kom í þ'ós að hann var
með gallsteina. „Um miðjan apríl
tók ég svo eftir því að ég var
farinn að gulna í framan. Ég fór
og leitaði mér lækninga á Akur-
eyri og það kom i ljós að steinn
hafði farið úr gallbiöðrunni, stífl-
að gallganginn þannig að gallið
fór út í líkamann," sagði Krist-
ján. „Ákveðið var að sækja stein-
inn en því miður náðist hann
ekki þannig að það varð að skera
mig upp og taka gallblöðruna.
Nú átti allt að vera í góðu lagi.
En málið var ekki svo einfalt.
Nokkrum dögum seinna þegar
teknar voru af mér röntgen-
myndir kom í Ijós að fjórir stein-
ar voru eftir í gallganginum.
Yfirlæknirinn ræddi þetta við
mig og niðurstaðan varð sú að
ég var sendur á Landspítalann
til þess að láta sprengja þessa
fjóra steina. Það var gert með
svokölluðum steinbrjót í þremur
atrennum þvi innyflin í fólki þola
ekki slíkar hremmingar nema
með viku millibili.
Svo fór ég heim og allt átti að
vera í góðu lagi og sandurinn úr
steinunum að ganga niður. En
málið var ekki búið. Hálfum mán-
uði eftir heimkomuna fann ég að
eitthvað var öðruvísi en það átti
að vera, sandurinn gekk ekki nið-
ur af því að slanga sem var í
gallganginum stiflaði hann, það
var lagað og þá gekk sandurinn
niður. Ekki var þó allt búið enn
því nú fór gallgangurinn að lok-
ast. í framhaldi af því var ákveð-
ið að ég færi á Sjúkrahús Reykja-
víkur til þess að fara í aðgerð
þjá Jóni Guðmundssyni og Ás-
geiri Theodórs til þess að víkka
gallganginn. Það var talin miklu
heppilegri leið en að ég færi i
uppskurð, slíkur skurður er mik-
ið mál fyrir sjúklinginn og gefur
auk þess ekki alltaf nógu góða
raun.
Égfór svo suður og í mig var
settur plastkubbur sem nú á að
fara að taka úr og setja annan i
staðinn, þann síðasta að mér
skilst. Tæknin sem notuð er til
þess að gera þetta er ótrúleg.
Mér finnst þessi aðgerð „hið besta
mál“ eins og sagt er, og hreinn
barnaleikur miðað við það sem á
undan er gengið.
Ég hafði aldrei orðið veikur
sem heitið gat áður en þetta gall-
vandamál kom upp og hafði aldr-
ei farið á sjúkrahús þar til á þessu
ári, þá hef ég verið þar í níu
skipti. Ég hef lært að bíða og
vera þolinmóður, það er nauðsyn-
legt þegar svona lagað kemur
upp á. Allt það fólk sem hefur
sinnt mér í veikindum mínum
hefur verið frábært og ég hef
fengið góða þjónustu. Annað hef
ég lært af þessu, mér hefur skil-
ist hve mikilvæg góð heilsa er
og hve nauðsynlegt það er að
reyna að halda henni. Ég ætla
þvf að láta fylgjast vel með mér
í framtíðinni, það er mín niður-
staða.“
Ávaxta- og V
* grænmetispressa
f 0 KEN WOODl*
-4*. Hárblásari
**KENWOOD%*
Rafmagnshnífur
jfi *w
**l ENWOOCKT,
Rafmagnspanna 4^
*
*
*
ÚLPUR - SKÍÐAGALLAR
SKÍÐASAMFESTINGAR
SNJÓBRETTAFATNAÐUR
STAKAR BUXUR
Á UNGA SEM ALDNA
GÆÐA FATNAÐUR
Opiö ídag 13-22
» hummél
SPORTBÚÐIN
Nóatúni 17 • Sími 511 3553