Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur tekið til sýninga myndina Dragonheart sem er rómantísk
ævintýra- og spennumynd sem gerist á riddaratímanum. Sjónrænar tæknibrellur eru í
hávegum hafðar og Dennis Quaid og Sean Connery eru í aðalhlutverkum.
AÐALLEIKENDUR myndarinnar eru Dennis Quaid, sem leik-
ur Bowen, og Sean Connery ljær drekanum Drago rödd sína.
Drekinn,
riddarinn o g
kóngnrinn
DRAGONHEART fjallar um hug-
rakkan riddara, Bowen (Dennis
Quaid) og félaga hans, 6 metra
háan og 13 metra langan dreka
(Sean Connery), þann síðasta
sinnar tegundar. Riddarinn og
drekinn sameina krafta sína í
hetjulegri baráttu til þess að losa
landið þar sem þeir búa undan
jámhæl Einon, kóngsins grimma
(David Thewlis).
Sagan gerist á tíundu öld og
hefst þegar fjórtán ára gamall
prins verður vitni að því á vígvell-
inum að faðir hans, grimmur og
harðráður kóngur, fellur { orustu
við bændur sem gert hafa upp-
reisn gegn ofríki hans.
Konungssonurinn ungi, Einon,
hefur hlotið gott uppeldi í íþrótt-
um og bardagalistum hjá fóstra
sínum, Bowen (Quaid), hugdjörf-
um riddara sem hefur vakað yfir
prinsinum og innrætt honum göf-
ugar hugsjónir í anda Artúrs kon-
ungs. En þótt Bowen sé nær-
staddur á vígvellinum getur hann
ekki komið í veg fyrir að Einon
hinn ungi hljóti svo alvarlegt sár
fyrir hendi uppreisnarmanna að
honum er vart hugað líf.
Dauðvona prinsinn er borinn í
dimman helli þar sem örvænting-
arfull móðir hans (Julie Christie)
særir fram yfímáttúrulega krafta
hins eldspúandi dreka sem hún
biður að gera son sinn heilan.
Þegar Einon sver þess eið að mis-
kunnsemi muni einkenna ríki hans
og að harðstjórn og blóðsúthell-
ingar heyri til liðinni tíð kemur
drekinn fram, særir sjálfan sig
holundarsári og gefur prinsinum
hálfan lífskraftinn úr eigin hjarta.
En Einon reynist hálfu verri
harðstjóri en faðir hans sálugi.
Fóstri hans Bowen tekur það
nærri sér og telur að það hafí
verið hjartablóð drekans sem
brynjaði hjarta piltsins. Bowen
sver þes eið að útrýma drekum
úr landinu.
Næstu tólf árin flakkar hann
landshornanna á milli og verður
smám saman kaldhæðinn og bitur
maður, altekinn því að drepa drek-
ana. Sú eymd og þjáning sem
hinn miskunnarlausi Einon kon-
ungur veldur í ríki sínu hreyfír
ekki við hjarta riddarans.
Hann, sem var holdgervingur
hinna göfugu riddarahugsjóna,
BOWEN þarf að beijast við fóstra sinn, Einon konung hinn
grimma.
hefur nú snúið baki við þeim.
Bowen er orðinn málaliði og drep-
ur dreka fyrir peninga eins og
hver annar meindýraeyðir, og
ferðast landshoma á milli í fylgd
munksins Gilberts (Pete Postlet-
hwaite).
Svo vel gengur þessi útrýming-
arherferð að sá dagur rennur upp
að það er ekki nema einn dreki
sem Bowen á eftir að drepa. Sá
reynist verðugur andstæðingur og
eftir langa viðureign tekst hvor-
ugum að vinna á hinum, þeir
semja þá jafntefli og gera félag
í þágu sameiginlegra hagsmuna.
Síðan ferðast þeir um landið
saman og þegar drekinn ógurlegi
gerir sig líklegan til að ráðast á
varnarlaus smáþorp ríður riddar-
inn í hlað og býðst til að reka
óværuna af höndum fólksins -
gegn þóknun. Drekinn heldur lífí
með því að þykjast vera dauður
og Bowen getur haft í sig og á
með að gera það sem hann kann
best.
Þannig láta þessir fóstbræður
sér nú nægja að skrimta án mark-
miða og stefnu í lífinu. En þá
verður á vegi þeirra ung kona,
Kara (Diana Meyer) dóttir for-
ingja bændauppreisnarinnar, fög-
ur og ákveðin stúlka sem er stað-
ráðin í því að koma Einon hinum
grimma og ógnarstjóm hans á
kné.
Kara hreyfir við Bowen og
Drago - eins og drekinn er
nefndur - og gömlu, góðu dag-
arnir rifjast upp fyrir þeim; þegar
dyggðir á borð við sannleiksást
og heiður voru í hávegum hafð-
ar. Þeir slást í lið með henni gegn
ofurefli Einons konungs og kom-
ast þá að því að þeir geta ekki
unnið fullnaðarsigur á kónginum
grimma án þess að gjalda fyrir
dýru verði því að bæði drekinn
og riddarinn tengjast Einon
óijúfandi böndum.
Leikstjóri Dragonheart er Rob
Cohen, sem leikstýrði myndinni
um ævi Bruce Lee, Dragon, og
er einnig höfundur myndarinnar
Daylight, með Sylvester Stallone,
en hún er einmitt frumsýnd nú
um jólin vestanhafs. Handrit
Dragonheart skrifaði Charles
Edward Pogue og byggði á sögu
eftir hann sjálfan og Patrick
Read Johnson. Framleiðandi
PETE Postlethwaite leik-
ur Gilbert, fylgdarmann
Bowens (Dennis Quaid) og
Dina Meyer leikur Kara,
sem blæs í gamlar glæður
í hjarta riddarans.
myndarinnar er Rafaella De
Laurentis.
Hún ákvað að ráðast í gerð
Dragonheart eftir að hafa séð
Jurassic Park. Þá sannfærðist hún
um að Hollywood réði yfir tækni
til þess að gera drekann trúverð-
ugan á hvíta tjaldinu.
Dennis Quaid tók að sér hlut-
verk Bowens og sagðist bæði hafa
hrifist af því leikaraliði sem Cohen
og De Laurentis höfðu náð sam-
an, - þarna eru stórleikarar á
borð við Connery, Postlethwaite,
David Thewlis (Naked) og Julie
Christie og ekki síður af því að
„þarna var saga um ferð
klassískrar hetju á vit sálardjúp-
anna“.
Drekinn var frá upphafí hann-
aður með það í huga að andlit
hans líktist Connery sem mest
mátti verða en Connery féllst á
að vera með þegar hann vissi að
það væru galdramennirnir í ILM
sem ættu að fá það verkefni að
hanna drekann. Þeirra verk þekkti
hann úr Jurassic Park, Forrest
Gump og af eigin reynslu úr Indi-
ana Jones myndunum. ILM tók
gerð drekans sem sérstaka áskor-
un og leit á verkefnið sem fram-
hald og frekari útfærslu á risaeðl-
unum í Jurassic Park. Arangurinn
er tækniafrek í kvikmyndabrellu-
sögunni.
Reyndar er allt svið þessarar
myndar hið stórbrotnasta en tökur
hennar fóru fram í Slóvakíu, á
bökkum Dónár í grennd við borg-
ina Bratislava. Þar fundu kvik-
myndagerðarmennirnir kastala
frá 10. öld og það sögusvið sem
þeir voru að leita að.
Hann er einn af
þessum stóru
DENNIS Quaid er einn af eftir-
sóttustu aðalleikendunum í
Hollywood og hefur leikið í
meira en 30 kvikmyndum með
mörgum helstu hæfileikamönn-
um í bandarískum kvikmynda-
iðnaði.
Dennis Quaid er fæddur í
Houston í Texas og lærði leik-
list í háskólanum sem kenndur
er við þá borg áður en hann
hélt til New York og fór að
vinna á sviði. Þar tróð hann
m.a. upp á móti Randy, eldri
bróður sínum. Dennis hefur
verið giftur kvikmyndaleikkon-
unni góðkunnu Meg Ryan og
hefur leikið með henni í mynd-
unum Innerspace, D.O.A. og
Flesh and Bones.
Hjónaband þeirra hefur verið
í uppnámi og ekki er langt síðan
fullyrt var að skilnaður væri á
næsta leiti. Áfengis- og eitur-
lyfjafíkn Quaids átti þar mestan
hlut að máli en hann hefur leit-
að sér meðferðar og var á góð-
um batavegi, síðastþegar frétt-
ist.
Fyrir Dragonheart var síð-
asta myndin sem Quaid lék í
Something to Talk About. Þar
lék hann undir stjórn Lasse
Hállström með Julia Roberts og
Robert Duvall. Þar áður kom
hlutverk Doc Holiday í Wyatt
Earp eftir Lawrence Kasdan.
Dennis Quaid sló fyrst í gegn
í myndinni Breaking Away eftir
Peter Yates árið 1979 en þá
DENNIS Quaid ásamt Julie Christie í Dragonheart.
voru 2 ár síðan hann lék í sinni
fyrstu kvikmynd. Sú hét Sept-
ember 30,1955. Næstu ár lék
hann í myndum á borð við The
Long Riders eftir Walter Hill,
með Randy bróður; All Night
Long með Gene Hackman og
Barbra Streisand; Caveman,
The Night The Lights Went Out
In Georgia, Tough Enough,
Enemy Mine, eftir Wolfgang
Petersen og Óskarsverðlauna-
mynd Phillip Kaufmans, The
Right Stuff.
Arið 1987 fékk Quaid frá-
bæra dóma fyrir leik sinn í
myndinni The Big Easy og árið
eftir fyrir Suspect eftir Peter
Yates, þar sem mótleikari hans
var Cher. Þá lék hann í
Everybody’s All-American á
móti Jessica Lange, í Great
Balls of Fire með Winona Ryder
og ásamt Meryl Streep í Postc-
ards from the Edge eftir Mike
Nichols. Þá gat að líta hann í
Come See The Paradise eftir
Allan Parker og Undercover
Blues og Wilder Napalm.