Morgunblaðið - 22.12.1996, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
MÐ EK FDU-T
STAKFAV HALRO
séfcSVONA
SÆTUM, þU ^
veisr
Ljóska
Rauði baróninn var að hringja og segja að hann ... Bleika baróninn!
geti ekki komið í dag til að gera út af við þig ...
en hann sendir aðstoðarmann sinn ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
Ákall um hjálp
Haítí — Faðir
Jean-Marie Yincent
Frá Amnesty International:
ENGINN hefur verið ákærður fyrir
morðið á kaþólska prestinum fóður
Jean-Marie Vincent, sem var skotinn
til bana 28. ágúst 1994 í valdatíð
herstjómar Raoul Cédras herfor-
ingja. Hann var skotinn af óþekktum
mönnum þar sem hann var að ganga
inn í aðsetur Montfort-prestanna í
Port-au-Prince. Því er fast haldið
fram að Vincent hafí verið drepinn
af öryggissveitum vegna þess að
hann var náinn vinur og stuðnings-
maður Jean-Bertrand Aristide for-
seta sem þá var í útlegð. Faðir Vinc-
ent, sem hafði unnið í mörg ár með
smábændum á Jean-Rabel svæðinu,
var stofnandi félags trúboða sem
skipulögðu smábændahreyfíngu sem
ber nafnið Tet Ansanm. Þetta mál
er í rannsókn hjá nefnd erlendra
lögfræðinga á vegum ríkisstjómar-
innar í Haítí. Þó svo að einhveijum
árangri hafí verið náð í öðmm mál-
um sem hafa hlotið mikla athygli,
hefur enginn verið handtekinn fyrir
morðið á föður Vincent.
í september 1991 var Aristide
forseta, fyrsta lýðræðislega kosna
forsetanum á Haítí, steypt af stóli
með hervaldi. Næstu þijú ár ein-
kenndust af stórvægilegum og kerf-
isbundnum mannréttindabrotum
sem framin voru af öryggissveitum.
í október árið 1994 komst Aristide
forseti aftur til valda á Haítí. Frá
því í október 1994 hefur dregið veru-
lega mikið úr þeim grófu mannrétt-
indabrotum sem einkenndu her-
stjómartíð Raoul Cédras herfor-
ingja. Þrátt fyrir það hefur mjög litl-
um árangri verið náð í að færa til
saka þá aðila sem frömdu hroðaleg
mannréttindabrot í stjómartíð fyrri
ríkisstjóma. Þetta orsakast af
nokkrum þáttum, meðal annars er
réttarkerfið á Haítí ófullnægjandi,
vegna ótta dómara við að beita refsi-
aðgerðum og einnig er augljóst að
lögregluna skortir vilja til að bæta
ástandið.
Vinsamlegast skrifið kurteislega
orðuð bréf og farið fram á að allt
verði gert til þess að þeir sem myrtu
föður Jean-Marie Vincent verði
sóttir til saka. „I urge you to take
every necessary step to ensure that
those responsible for the killing of
Father Jean-Marie Vincent will be
brought to justice.“
Heimilisfang: M. René Préval,
Président de la République de Haiti.
Présidence de la Republique de
Haiti.
Palais National.
Port-au-Prince.
Haiti.
AMNESTYINTERNATIONAL,
íslandsdeild,
Hafnarstræti 15, Reykjavík.
Alsír - Abdelkader
Hadj Benaámane
Frá Amnesty International:
ABDELKADER Hadj Benaámane,
þrjátíu og átta ára gamall fjölskyl-
dufaðir og fréttamaður hjá alsírsku
fréttastofunni APS, er nú að af-
plána þriggja ára fangelsisdóm.
Amnesty Intemational telur að
hann sé samviskufangi og biður um
að hann verði látinn laus tafarlaust
og án skilyrða.
Abdelkader Hadj Benaámane var
handtekinn 27. febrúar 1995 fyrir
að gefa upplýsingar, innan afmark-
aðs hóps APS fréttastofunnar, um
það hvar leiðtogi íslömsku frelsis-
hreyfíngarinnar (FIS), Ali Belhadj
væri í haldi en staðsetningunni er
haldið leyndri. Upplýsingar voru
ekki gefnar almenningi. Hann kom
fyrir herrétt 25. júli 1995 í Ouragla,
ákærður fyrir að bijóta lög sem
kveða á um að birting á upplýsing-
um sem taldar eru stefna ríkisör-
yggi eða þjóðareiningu í hættu sé
með öllu bönnuð, en refsingin er
allt að 10 ára fangelsisvist. Síðustu
fjögur ár, og sérstaklega eftir að
leynilegt innanríkisráðuneyti, sem
sér um dómsuppkvaðningar, hóf
störf í júní 1994, hafa auknar höml-
ur og aðgerðir varðandi ritskoðun
verið lagðar á fjölmiðla í Alsír.
Starfsemi fréttablaða hefur hvað
eftir annað verið lögð niður og
fréttamenn hafa verið handteknir
og þeim haldið í varðhaldi fyrir að
skrifa og birta upplýsingar sem
yfírvöld telja að grafi undan ríkisör-
yggi. Svona hömlur auka þrýsting
á alsírska fréttamenn sem lifa nú
þegar í stöðugum ótta um líf sitt.
Frá því í maí árið 1993 hafa fleiri
en 50 fréttamenn verið drepnir í
árásum sem taldar eru vera af völd-
um vopnaðra andstöðuhópa sem
kalla sig íslamska hópa.
Vinsamlega skrifið kurteislega
orðuð bréf og biðjið um að Abd-
elkader Hadj Benaámane verði taf-
arlaust og án skilyrða leystur úr
haldi.
„I am calling for the immediate
and unconditional release of Abd-
elkader Hadj Benaámane.“
Heimilisfang:
M. Mohamed ADAMI
Ministre de la Justice.
Ministére de la Justice
8 Place Bir Hakem El-Biar.
Alger
Algérie.
AMNESTYINTERNATIONAL,
íslandsdeild,
Hafnarstræti 15, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.