Morgunblaðið - 22.12.1996, Side 40
40 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Borðstofu-
borð
Stakir
stólar
Öðruvísi jólagjafír
Antik munir, Klapparstíg 40, sími 552 7977
Fallegar og vandaðar gjafavörur
á frábæru verði
Listhúsinu (gengt Hótel Esju), sími 568 3750.
Tónleikar
í íslensku óperunni
30. des. 1996 kl. 20.00.
Magnús Baldvinsson
bassasöngvari og
Ólafur Vignir Albertsson
píanóleikari flytja lög eftir
ýmsa höfunda.
Miðar seldir í
Eymundson/Pennanum,
Austurstræti.
V_______________________
Vorum að taka upp
fullt afSPES
drögtum ogpeysum.
Aðeins ein af
hverri gerð.
EINNIG: SPES SAMFELLUR,
TÖSKUR OG SKART.
MIKIÐ L'RVAL AF
GLÆSILEGUM
SAMKVÆMISTÖSKUM.
MUNIÐ
JÓLAGLAÐNINGINN
Á ÞORLÁKSMESSU.
Háaleitisbraut 58-60.
NilfisH
Silver
Jubilee
1906-1996 JUBILEE
afmælisverð
AFMÆLIS-
MÓDEL I
LÚXUS-
ÚTFÆRSLU,
FRAMLEIDD í
AFMÆLIS
NILFISK
Afmælisútgáfa
í takmörkuðu
upplagi,
aðeins 100 stk.
í boði
5 #000,- króna
afmælisafsláttur
Nilfisk
Silver
/FQnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Nilfisk
Silver
I DAG
BRIDS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ÞRÁTT fyrir opnun austurs
á sterku grandi, komast
NS í gott geim - fimm
tígla. Vestur spilar út
spaðaás og meiri spaða:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♦ G5
♦ 1062
♦ DI04
♦ Á10853
Vestur Austur
♦ Á97632 ... ♦ KD108
V854 VK73
♦ 5 ♦ KG6
♦ 974 + DG6
Suður
♦ 4
V ÁDG9
♦ Á98732
♦ K2
Vestur Norður Austur Suður
1 grar.d* 2 tíglar
2 spaðar 3 tíglar 3 spaðar 4 hjörtu
Pass 5 tíglar Allir pass
* 15-17 pimktar.
Hvernig á að spila?
Eitt er víst: Opnarinn á
hvert einasta málspil, sem
úti er. Vandinn er að ná
trompunum af austri ef
hann á KG þriðja og svína
fyrir hjartakóng. Innkomur
blinds eru af skornum
skammti, svo ekki dugir að
fara inn í borð á laufás og
spila út tíguldrottningu.
Austur leggur kónginn á
og getur síðan tryggt að
tían verði ekki innkoma.
Sagnhafi verður að búa
til aukainnkomu. Hann ger-
ir það með því að spila tíg-
ulníu að heiman:
G5
1062
D104
Á10853
Austur verður að drepa
með gosa og spila lauf-
drottningu. Sagnhafi tekur
slaginn í borði og spilar tíg-
uldrottningu. Leggi austur
á er innkoma á tromptíu til
að svína í hjartanu. Og ef
austur dúkkar, notar sagn-
hafí tækifærið og spilar
hjartatíu næst.
Með morgunkaffinu
10-23
heilsusamlegt matarϚi.
TM Reg U.S. Pat. Oft — an rights reserved
(c) 1996 Los Angeies Times Syndicate
ÉG er að bíða eftir vini
mínum. Reyndar ert þú
agalega vinalegur.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
STAÐAN kom upp á Guð-
mundar Arasonar mótinu í
Hafnarfirði sem lauk í gær.
Björgvin Víglundsson
(2.280) hafði hvítt og átti
leik, en Krislján Eðvarðs-
son (2.200) var með svart.
og var að leika afar óheppi-
legum leik, 29. - Rb5-d6??
Betra var 29. - Rc7 og
hvítur stendur ívið betur.
30. Bh3! og svartur gafst
upp. Eftir 30. - Dxh3 31.
Dxd5+ tapar hann ekki
bara hróknum á a8, heldur
verður hann mát í leiðinni.
Jólapakkamót Heliis fer
fram í dag kl. 14 i nýju hús-
næði Hellis, Þönglabakka 1,
efstu hæð í Mjóddinni í
Breiðholti. Sami inngangur
er þar og hjá Bridgesam-
bandinu og Keilu í Mjódd.
Mótið er fyrir árganga 1981
og yngri og er keppt í íjórum
aldursflokkum.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Dansað við
dauðann
MIG langar til að benda
foreldrum á bókina Dans-
að við dauðann, sem
Ragnhildur Sverrisdóttir
hefur skrifað til unglinga
og foreldra um eiturlyfja-
vandann. Mér finnst
þessi bók hreint út sagt
frábær en líka skelfileg.
Unglingarnir mínir
gleyptu hana í sig og ég
líka. Við ræddum þessi
mál á eftir og ég er viss
um að bókin hjálpaði okk-
ur mikið til að ræða
hreinskilnislega út um
þessi mál. Ég vildi bara
óska að þessi bók væri
til á hverju heimili og að
hún drukknaði ekki í
bókaflóðinu fyrir þessi
jól.
Ragnhildur, hafðu
kæra þökk fyrir þitt frá-
bæra framtak.
Faðir í Breiðholti.
Barnabætur í
desember
HAFLIÐI Helgason
hriiagdi til að koma á
framfæri tillögu um að
bamabætur verði fram-
vegis borgaðar í desem-
ber fremur en í nóvem-
ber.
„Það er sorglegt að sjá
hversu mikið álag er á
t.d. mæðrastyrksnefnd í
desembermánuði. Róður-
inn er þungur hjá mörg-
um og ekki síst barnafjöl-
skyldum og það hlýtur
að vera erfitt fyrir fólk
að þurfa að þiggja að-
stoð. Því tel ég að það
myndi létta róðurinn ef
barnabæturnar væru
greiddar í desember
fremur en í nóvember."
Þakklæti til
Heiðrúnar
KNÚTUR Ármann sagð-
ist hafa lagt bíl sínum á
bílastæði meðan hann
brá sér inn í verslun ný-
lega. Er hann kom út
stóð við bílinn hans kona
er heitir Heiðrún Jens-
dóttir. Hún var að skrifa
á miða til að setja undir
þurrkublaðið á bíl hans
til að vekja athygli hans
á því að hún hefði rekið
bíl sinn utan í hans bíl
farþegamegin, en laun-
hált var á þessu bíla-
stæði.
Knútur þurfti að fá
nýja framhurð og vill
þakka Heiðrúnu fyrir
heiðarleika hennar.
Tapað/fundið
Gleraugu töpuðust
KVENGLERAUGU
töpuðust laugardaginn
14. desember sl. Líklegir
staðir eða nágrenni
þeirra eru Hans Petersen
í Bankastræti, Bónus í
Súðarvogi eða við Dun-
haga 11. Sá sem kannast
við þetta er beðinn að
hafa samband í síma
551-9093.
HVÍTUR
leikur og
vinnur.
Víkveiji skrifar...
NÚ ERU vetrarsólstöður, sól-
hvörf að vetri, sá tími árs
þegar sólargangur er stytztur og
myrkrið er mest. Þá lyftist heldur
betur brúnin á okkur Islendingum,
yzt í veraldarútsæ. Frá þessum tíma
liggja nefnilega allar leiðir til vorsins
og gróandans! Við eigum að vísu
vetrarbrekku eftir, sem reynt getur
á þolrifm. En handan þorra og góu
bíður okkar nýtt vor, nýtt krafta-
verk, þegar gróðurríkið í umhverfi
okkar rís upp til nýs lífs af vetrar-
svefni.
Allt frá því að land byggðist hafa
íslendingar fagnað þessum áfanga
á hringferð ársins, sólhvörfum á
vetri, af heilum huga. Heiðnir forfeð-
ur okkar stóðu fyrir veglegum jóla-
eða miðsvetrarblótum um vetrarsól-
stöður. Ástæðan var ærin. Vissan
um um komandi vor og sumar,
bjargræðistíma til lands og sjávar,
hélt í þeim lífinu dimma, kalda og
Ianga vetur. Án sumarkomunnar,
birtu og betri tíðar með blóm í haga,
var landið óbyggilegt. Og er trúlega
enn, þrátt fyrir allar tækniframfarir.
XXX
KRISTIN jól eiga sér einnig
langa sögu í landinu. Papar,
írskir einsetumenn, sem hingað
lögðu leið sína fyrir tíð norrænna
landnámsmanna, voru kristnir.
Nokkrir landnámsmenn, sem við
þekkjum úr elztu heimildum okkar,
voru og kristnir og reistu kirkjur á
bæjum sínum. Nefna má Ásólf al-
skikk, Auði djúpúðgu, Ketil í
Kirkjubæ og Örlyg gamla á Esju-
bergi, rétt utan núverandi höfuð-
borgarmarka. Norrænir landnáms-
menn höfðu og gjarnan viðdvöl á
Bretlandseyjum og tóku með sér út
hingað fólk þaðan, sem var kristið.
Fyrsta kristniboðsferðin til íslands,
sem vitað er um, var farin um eða
upp úr 980. Þar voru á ferð Þorvald-
ur víðförli Konráðsson frá Stóru-Gilja
í Þingi og Friðrik trúboðsbiskup af
Saxlandi. Fleiri fylgdu í kjölfarið.
íslendingar tóku síðan kristinn sið
sem þjóð á Alþingi við Öxará árið
1000. Þorgeir Ljósvetningagoði kvað
upp þá þjóðarsátt á Lögbergi, sem
landsmenn hafa haldið í heiðri síðan
- langleiðina í þúsund ár: „Að allir
menn skyldu kristnir vera og skírn
taka.“ Farsælla spor hefur ekki ver-
ið stigið á löggjafarsamkomu okkar.
XXX
HEILÖG JÓL, hátíð ljóssins fer
í hönd, mitt í myrkri skamm-
degis. Það fer vel á því að birta ljóss-
ins setji mark sitt á byggðir landsins
þegar við við fögnum komu hans,
sem sagði: Ég er ljós heimsins. Hver
sem fylgir mér mun ekki ganga í
myrkri, heldur hafa ljós lífsins. Jafn-
vel í myrkri dauðans skín okkur lífs-
ljósið, samkvæmt kristnum boðskap.
En hver er munurinn á miðsvetr-
arblótum heiðinna forfeðra okkar
og jólum samtímans? Hann er að
sjálfsögðu mikill. En sitt hvað skar-
ast. Samsvörun má sjá. Heiðnir
forfeður okkar fögnuðu hækkandi
sól, vaxandi birtu, komandi vori og
bjargræðistíð til lands og sjávar.
Það gerum við enn í dag. Og hugum
að því hvað lesa má út úr táknmáli
þessa árvissa kraftaverks í náttúr-
unnar ríki, þegar gróðurríkið rís upp
af klakans helsvefni til nýs lífs, lita
og angans. Getum við ekki lesið út
úr þessu táknmáli fagnaðarboð-
skapinn um sigur lífsins yfir dauð-
anum?
Sól kristindómsins skín hið innra
með okkur. Hún sezt aldrei í hugum
þeirra sem trúarvissan er gefin. Og
sunna bláhimins okkar, sem vísar
okkur veginn til vorsins og forfeður
okkar mærðu á miðsvetrarblótum,
er í raun og sannleika hluti af tákn-
máli sköpunarverksins; veruleika,
sem vitnar um almættið að baki alls
sem er.