Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
JOLAMYND 1996
Ob)N WÍLLÍAMS
KLIKKAÐI PRÓFESSORINN
Sýnd kl. 2.30, 4.45, 6.50, 9 og 11.10.
Jólamyndir Háskólabíós
GOSI
Talsett á íslensku.
Leikstjórn: Ágúst Guömundsson
FRUMSÝND ANNAN í JÓLUM.
Einnig sýnd í Nýja Bíói Keflavík
HAMSLJN
Mynd um rithöfundinn Knut Hamsun.
Max Von Sydow Ghita Nörby
FRUMSÝND ANNAN í JÓLUM.
Nýársmyndin: SLEEPERS
Brad Pitt, Robert Deniro, Dustin Hoffman,
Jason Patric og Kevin Bacon.
FRUMSÝND 1. JANÚAR.
GCeðiCeq \óí -HASKOLABIÖ - GOTT BIÖ- GCeðiCeq ]óC
STJORIMUFANGARINN
Stjörnufangarinn er
frábær ítölsk
kvikmynd eftir
1 Óskarsverð-
launaleikstjórann
Giuseppe Tornatore
(Cinema Paradiso).
Þetta er mynd sem
hvarvetna hefur
hlotið frábæra dóma
Sýndkl. 4.45, 6.50 9 og 11.15.
"I ^’®*"'***®. ™r •ycfy'**
HASKOLABIO
SÍMI552 2140
Háskólabíó
BRIMBROT
★ ★★ ÁS Bylgjan ★★★ ÁÞ Dagsljós
„Brimbrot er ómissandi" ★ ★★V2 GBDV
„Heldur manni hugföngnum"
★ ★★1/jSVMBL
Sýnd kl. 3, 6 og 9.
THE
NUTTY
PROFESSOR
Sýndkl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Háskófabíó gefur starfsfólki sínu frí á Þorláksmessu vegna jólaundirbúnings
[UTJ]
FRUMSYNING: JOLAMYND 1996
Drag
mgital
Dragonheart er frábær aevintýramynd fyrir alla fjölskylduna
um baráttu góðs og ills. Spenna, grín og tæknibrellur.
Dragonheart er ekta jólamyncL
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.10. B. i. 12 ára
Komdu og
sjáöu Robin
Williams fara á
| kostum sem
stærsti 6.
bekkingur i heimi.
' trúlegt grín og
aman i frábærri
mynd fyrir alla
fjölskylduna.
Gefur 200.000 króna
verðlaunagrip
Cox og
Barrymore
gáfu grímu
► VINKONURNAR Drew Barry-
more (t.h.) og Courtney Cox voru
!glaðar í bragði þegar þær mættu
færandi hendi á veitingastaðinn
Planet Hollywood nýlega. Þær
komu með grímu sem notuð var
í nýjustu mynd þeirra sem frum-
sýnd var í vikunni. Gríman fór
umsvifalaust upp á vegg en sem
kunnugt er eru Planet Holly-
wood-staðirnir skreyttir með
> minjagripum úr kvikmyndum.
ÞÓTT um þessar mundir sé mesti
erill ársins hjá gullsmiðum vítt
og breitt, þá leyfir Sigurður G.
Steinþórsson hjá Gulli & silfri sér
að hugsa aðeins lengra fram í
tímann. Strax upp úr áramótum
sest hann nefnilega niður og
hannar einn glæsilegasta verð-
launagrip sem gefinn er afreks-
manni hér á landi og þótt víðar
væri leitað. Gripurinn er veittur
til stangaveiðimanns og heitir
Gull & Silfur flugan. Gripurinn
er afhentur á árshátíð Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur þeim
veiðimanni í félaginu sem veiðir
stærsta laxinn á flugu á veiði-
svæðum félagsins. Sigurður og
fyrirtæki hans áttu frumkvæðið
að því að gripurinn var gefinn
fyrst árið 1981.
„Tilefnið var lítið, þetta var
svona í gamni gert. Hugmyndin
kom upp á einhveiju kaffihúsi.
Það var fastsett að gripurinn yrði
gefin í þijú ár, alltaf nýr gripur
til eignar. Þegar fyrstu þijú árin
voru liðin dó pabbi og ég ákvað
að gefa gripinn í tvö ár í viðbót
í minningu hans, ná fimm árum.
Síðan rak hvert tilefnið annað til
að halda þessu áfram. Nú er svo
komið að Gull & Silfur flugan
verður sennilega gefin á meðan
báðir lifa, þ.e.a.s. ég og Stanga-
veiðifélagið,“ segir Sigurður.
Er það tilfellið að gripurinn sé
200.000 króna virði?
„Ég hugsa að þegar allt er tek-
ið saman þá sé það ekki fjarri lagi.
Efnið í fluguna er dýrt og það fer
alveg vika í að hanna og smíða
fluguna. Þá fer ég oft á vettvang
og finn til sérstaka steina til að
setja fluguna á, ef metlaxinn er
t.d. veiddur í Soginu eða Stóru-
Laxá, þá þykir mér við hæfí að
hafa fluguna á steini úr farvegum
þeirra. Þetta er þó ekki einhlýtt,
síðast var ég t.d. sem skorinn og
slípaðan kvars frá Suður-Ameríku.
Hann minnir á foss og það fannst
mér koma vel út í þetta sinn.
Vinnan við fluguna er líka
kúnstug. Það má segja að hún sé
smíðuð að mörgu leyti á sama
hátt og fluga er hnýtt. Ég þarf
að búa til hvert hár og það eru
kannski tugir hára, jafnvel hundr-
uð. Svo vef ég og hnýti og þetta
er svo mikið nákvæmnisverk, að
ef ég hita efnið aðeins of mikið
þá er hætta á að ég eyðileggi
margra klukkustunda vinnu. Þá
blanda ég saman ýmsum efnum,
s.s. hvítagulli, rauðagulli, gula-
gulli og jafnvel silfri, til að ná fram
þeim litablæ sem ég sækist eftir.“
Morgunblaðið/Ásdís
SIGURÐUR G. Steinþórsson
er byrjaður á flugunni.
Er þetta nú ekki einum of mikil
fyrirhöfn?
„Ekki finnst mér það. Ég hef
bara gaman af þessu. Það er ein-
mitt aðall okkar fyrirtækis að
smiða hluti bæði eftir pöntun og
eigin höfði. Það er alltof lítið um
slíkt í greininni nú orðið. Þeir sem
nenntu að standa í því eru flestir
Iöngu dánir. Þetta eru glæsileg
verðlaun og hvetja menn til að
veiða á flugu. Mér þykir gaman
að skapa eitthvað sem hefur sér-
stöðu. Það hafa erlendir auðmenn
komið hingað í búðina og boðið
mér stórfé fyrir að smíða fyrir sig
gripi í anda Gull & Silfur flugunn-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GULL & Silfur-flugan 1995.
ar, en ég hef alltaf neitað. Þá væm
verðlaunin ekki sérstæð lengur.
Er eitthvad um að þið séu beðn-
ir um að sérsmíða?
„Já, það er alltaf talsvert um
það og við tökum allar slíkar
beiðnir til athugunar. Eitt af okk-
ar mottóum er að ekkert sé
ómögulegt. Það er gaman að svona
vinnu, það fer saman hugverk og
handverk. Ég er alltaf að rekast
á það að þetta sé metið. Ég nefni
sem dæmi, að ef við hjónin förum
út að skemmta okkur, þá sé ég
oft handverk mín á fingrum eða
í hálsmálum annarra gesta. Það
kitlar óneitanlega.“