Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 2

Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 2
2 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MAT VSÍ á kröfugerð Dagsbrúnar/Framsóknar Skuldir tvöfald- ast og kaup- máttur minnkar Siðanefnd Blaðamannafélagsins Morgunblaðið braut ekki siðareglur VINNUVEITENDASAMBAND ís- lands hefur sent frá sér greinargerð þar sem lagt er mat á afleiðingar þess á kjör meðalfjölskyldu ef geng- ið yrði að kröfugerð verkalýðsfélag- anna Dagsbrúnar og Framsóknar. VSÍ telur kröfur félaganna fela í sér 41,3% hækkun á öllum töxtum þeirra og viðbótarhækkun á ýmsum sérsviðum auk vísitölubindingar launa. Nafnvextir færu að jafnaði yfir 50% Tekið er dæmi af meðalfjölskyldu með 230 þús. í mánaðarlaun sem skuidar 5 milljónir kr. í greinar- gerðinni segir að verði Dagsbrúnar- leiðin fyrir valinu aukist kaupmátt- ur mikið fyrstu mánuðina en hann falli síðan hratt með vaxandi verð- bólgu. Kaupmáttur verði 3% lakari en hann yrði ef valin yrði sú leið sem VSÍ hefur boðið upp á. „í stað þess að lækka myndu skuldir fjölskyldunnar nær tvöfald- ast og nafnvextir færu að jafnaði yfir 50% og enn hærra á styttri tímabilum. Dæmið sýnir að þegar tekið er tillit til skatta skilar Dags- brúnarleiðin 0,2% lækkun kaup: máttar á meðan stöðugleikaleið VSÍ eykur kaupmátt ráðstöfunartekna um 2,9%. Dagsbrúnarleiðinni fylgir að mikilvægustu ávinningnum af stöðugleika síðustu ára er varpað á glæ. Verðvitund og aðhald neyt- enda slævist sem dregur úr sam- keppni á markaði," segir m.a. í greinargerð VSÍ, en hún verður birt í heild sinni í Morgunblaðinu á morgun. Islensk bar- dagalist æfð af kappi UNDIRBÚNIN GUR fyrir Vík- ingahátíð er í fullum gangi og að undanförnu hefur tiu manna bardagasveit i Hafnarfirði æft stift undir leiðsögn bresks þjálf- ara. Bardagamennirnir smiða sjálfir sverð sin, skildi og axir og einnig hyggjast þeir gera sér búninga að hætti víkinga. Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Víkingahátíð- arinnar, kveðst gera ráð fyrir um 300-400 vikingum á hátíðina, sem haldin verður dagana 9.-13. júli. í tengslum við hátíðina er einnig von á 1.000-1.500 manns á hundrað bátum frá Vestur-Nor- egi og hefur sú sigling verið í undirbúningi i eitt og hálft ár. Þema hátíðarinnar að þessu sinni verður handverk úr ull, skinni, hör og beini og segist Rögnvaldur hafa mikinn áhuga á að virkja islenskt handverks- fólk til þátttöku. Jaðarhópar eins og Samar, Grænlendingar og indíánar verða einnig boðnir sér- staklega velkomnir á hátíðina og til stendur að reisa stórt Sama- tjald á Víðistaðatúni. SIÐANEFND Blaðamannafélags íslands úrskurðaði í gær að ritstjór- ar Morgunblaðsins hefðu ekki gerzt brotlegir við siðareglur blaðamanna með birtingu athugasemdar við bréf Bjöms V. Olasonar til blaðsins hinn 28. ágúst á síðasta ári. Björn hafði viku áður ritað les- endabréf í Morgunblaðið, þar sem hann fór hörðum orðum um tvo bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, þá Ellert B. Þorvalds- son og Jóhann G. Bergþórsson. Hinn 28. ágúst baðst Bjöm hins vegar afsökunar á ýmsum ummæl- um í fyrri greininni og sagðist aukinheldur ekki hafa samið hana, heldur Sverrir Ólafsson. Hann hefði hins vegar haft vitneskju um efni hennar og lánað Sverri nafn sitt undir greinina. í athugasemd við seinna bréf Björns sögðu ritstjórar Morgun- blaðsins m.a. að Bjöm og Sverrir hefðu notað aðferðir við greinar- skrif, sem telja mætti til nýmæla og væru í raun siðlausar. Blaðið hefði hvorki varað sig á rangfærsl- um í grein Sverris undir nafni Bjöms né „dulnefninu". Sverrir Ólafsson kærði athuga- semdina til siðanefndar Blaða- mannafélagsins og fór fram á að ritstjóramir færðu sönnur á að hann hefði skrifað greinina eða bæðu hann afsökunar á að hafa kennt honum hana og kallað at- hæfí þeirra Björns siðlaust. Siðanefnd segist ekki taka af- stöðu til þeirra atriða í kæru Sverr- is, sem eigi að sýna að hann eigi enga hlutdeild í greininni. Kjami málsins sé sá, hvort ritstjórar Morgunblaðsins hafi haft ástæðu til að taka orð Björns gild, án þess að leita eftir viðhorfi Sverris til málsins. Úrskurður siðanefndar er svo- hljóðandi: „Matthías Johannessen og Styrmir Gunnarsson teljast ekki hafa brotið siðareglur Blaða- mannafélags íslands.“ ■ Úrskurður siðanefndar/12 Ofnæmislyf getur valdið hjartatruflun Rætt um að banna lyfið LYFJAMÁLASTOFNANIR Banda- ríkjanna og Svíþjóðar íhuga að banna sölu ofnæmislyfsins Teldanex vegna hættulegra aukaverkana. Lyf- ið getur valdið hjartatruflunum og í stöku tilfellum dauða sé það tekið í of stórum skömmtum. Það er einn- ig varasamt fyrir hjarta- og lifrar- sjúklinga og sé það tekið með ákveðnum sýkla-, sveppa- og hjarta- lyfjum. Teldanex, og íslenska sam- heitalyfið Terex, eru mikið notuð hér á landi og meðal annars seld í litlum skömmtum án lyfseðils í apótekum. Lyfjanefnd rikisins hefur nýlega fengið upplýsingar frá sænska fram- leiðandanum vegna umræðna í Bandaríkjunum. Rannveig Gunnars- dóttir, skrifstofustjóri hjá Lyfjanefnd- inni, segir málið í skoðun og að senni- lega verði fjallað um það fljótlega hjá Lyfjanefnd. „Lyfjaframleiðandinn er skyldugur til að láta okkur vita þegar svona umræða er í gangi og við fáum margar slíkar tilkynningar vegna aukaverkana lyfja á ári. Hér er málið ekki komið svo langt að rætt sé um að banna það.“ -----» ♦ ♦ Vesturbyggð 1 (W — L._ VÍKINGARNIR Snorri Hrafnkelsson og Ágúst Pedersen æfðu bardagalist af rniklu kappi og einbeitni í Hafnarfirði i gær. Morgunblaðið/Ásdís Morgun- blaðið í 52.178 ein- tökum VIÐ skoðun á upplagi Morg- unblaðsins seinni helming síð- asta árs, júlí - desember 1996, í samræmi við reglur Upplags- eftirlits Verslunarráðs Islands, var staðfest að meðaltalssala blaðsins á dag var 52.178 ein- tök. Sama tima árið 1995 var meðaltalssalan 52.482 eintök á dag. Upplagseftirlit Verslunar- ráðsins annast einnig eftirlit og staðfestingu upplags prentmiðla fyrir útgefendur, sem óska eftir því og gangast undir eftirlitsskilmála. Trún- aðarmaður eftirlitsins er lög- giltur endurskoðandi. Morgunblaðið er eina dag- blaðið sem nýtir sér þessa þjónustu nú. Fullur vilji Atlantsálshópsins á að kanna hagkvæmni álvers á Keilisnesi Norsk Hydro sýnir aukinn áhuga á byggja hér stórt álver Jón Gauti bæjarsljóri í 3 mánuði SAMKOMULAG hefur náðst innan bæjarstjórnar Vesturbyggðar um að Gísli Ólafsson bæjarstjóri taki sér þriggja mánaða leyfi og hefur Jón Gauti Jónsson, rekstrarráðgjafí, ver- ið ráðinn bæjarstjóri í fjarveru Gísla, að sögn Ólafs Amar Ólafssonar, formanns bæjarráðs. Hörð átök hafa verið innan bæj- arstjórnar Vesturbyggðar og slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi sjálf- stæðismanna og alþýðuflokksmanna í nóvember sl. Nú mynda sjálfstæðis- menn meirihluta ásamt einum full- trúa F-lista óháðra í bæjarstjóm. Gísli verður áfram forseti bæjar- stjórnar, að sögn Ólafs Arnar. Ólaf- ur sagði að Gísli hefði á sínum tíma ætlað að láta af störfum sem bæjar- stjóri en niðurstaðan hefði orðið sú að hann tæki sér leyfí i þrjá mánuði. GARÐAR Ingvarsson, forstöðu- maður Markaðsskrifstofu iðnaðar- ráðuneytisins og Landsvirkjunar, segir Atlantsálshópinn enn hafa fullan vilja á að kanna hagkvæmni þess að byggja álver á Keilisnesi, en þörf sé á frekari vinnu í málinu bæði af þeirra hálfu og íslenskra stjómvalda. Þá hefur orðið vart aukins áhuga Norsk Hydro á að byggja hér á landi stórt álver og hafa fulltrúar fyrirtækisins verið hér á landi í viðræðum við stjórn- völd, en Garðar segir ekkert hand- fast í þeim efnum. Fulltrúar íslenskra stjórnvalda og Landsvirkjunar hittu fulltrúa Alumax, Gránges og Hoogovens, sem saman mynda Atlantsálshóp- inn svokallaða, á fundi í New York síðastliðinn fimmtudag og var þar gerð grein fyrir þeirri aukningu sem átt hefur sér stað í sölu á raforku til stóriðju á íslandi frá því áformum Atlantsáls um byggingu álvers á Keilisnesi var frestað árið 1991. Ákveðið var að aðilar hittist aftur innan nokkurra mánaða þegar fyrir liggur hvort verði af áformum Col- umbia Ventures Corporation um byggingu álvers og stækkun járn- blendiverksmiðjunnar á Grundar- tanga og á þeim fundi verða kynnt- ir möguleikar á orkuöflun fyrir mis- munandi stór álver sem til greina kemur að byggja á Keilisnesi. Mikill áhugi erlendra stóriðjufyrirtækja Garðar Ingvarsson, sem var á fundinum í New York, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að orðið hefði vart við aukinn áhuga erlendra stór- iðjufyrirtækja á að byggja hér á landi og meðal þeirra væri Norsk Hydro sem reyndar hefði verið í sambandi öðru hvoru í rúmiega 20 ár og skoðað hér aðstæður. „Það er engin spuming að það er mikil hreyfing í áliðnaðinum, en það virðist vera að verðið sé að hækka núna og tiltölulega mikil bjartsýni hjá ráðgjöfum. Það hefur auðvitað áhrif, en aðstæður eru á vissan hátt svolítið breyttar frá því sem var, þegar við hófum að semja við Atlantsál og höfðum Blöndu- virkjun nánast ónotaða. Tímasetn- ingar og það hvenær við getum komið með orkuna og á hvaða verði eru allt saman hlutir sem spila mjög stíft inn í,“ sagði Garðar. Álfyrirtæki hafa lýst áhuga á samstarfi við Columbia Hann sagði að ef gengið væri út frá því að af byggingu álvers Columbia Ventures yrði þá væri á þeim sex árum frá því Atlantsáli var frestað komin ný álframleiðsla hér á landi upp á um 135 þúsund tonn, en Atlantsál átti að vera 200 þúsund tonn í upphafi þótt síðar hafi verið rætt um 330 þúsund tonna álver. „Okkur hefur tekist að gera þetta án þess að það hafi skapað neina sérstaka þenslu í þjóðfélaginu," sagði Garðar. Hann sagði þetta hins vegar breyta samkeppnisstöðu Is- lendinga nokkuð og lengja fresti á orkuafhendingu og það gæti haft áhrif á verð. Garðar sagði að í áliðnaðinum kæmu fj'árfestingar alltaf í bylgjum og þegar einn færi af stað fseru allir af stað. Hann sagði að þannig hefði komið í ljós að að nokkur ál- fyrirtæki, bæði stór og smá, hefðu sýnt áhuga á að verða meðeigendur Columbia Ventures að fyrirhuguðu álveri á Grundartanga og gert tii- boð þar að lútandi, en Columbia vildi hins vegar sitja eitt að verk- smiðjunni. I I I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.