Morgunblaðið - 18.01.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.01.1997, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Ný skýrsla um Thule-málið lögð fram í Danmörku Krag laug um kjarna- vopnin á Grænlandi Bandaríkjamenn o g Rússar takast á um friðhelgi sendiráðsstarfsmanna Vörn gegn stöðu- mælasektum og ölvunarakstri? í NÝRRI skýrslu, sem lögð var fram í Danmörku í gær, kemur fram að Jens Otto Krag, þáverandi forsætis- ráðherra Danmerkur, sagði dönsku þjóðinni ósatt þegar hann neitaði því á sjöunda áratugnum að kjamavopn hefðu verið geymd í bandarísku her- stöðinni í Thule á Norður-Grænlandi. Skýrsluhöfundamir segja að hann hafi vitað um kjamavopnin í mörg ár. Þetta kemur fram í frétt danska dagblaðsins Fyens Stiftstidende, sem segir að skýrslan sýni að stefna dan- skra stjórnvalda hvað varðar kjama- vopn á Grænlandi hafi verið byggð á lygum og blekkingum í fjóra ára- tugi. Þótt hinar ýmsu ríkisstjómir á sjötta og sjöunda áratugnum hafi alltaf haldið því fram að engin kjarnavopn væm á dönsku landsvæði hafi Bandaríkjamenn flutt að minnsta kosti 52 kjarnorkusprengjur eða sprengihleðslur í Thule-stöðina með samþykki danskra stjómvalda. Áður hafði komið fram að H.C. Hansen, forsætisráðherra stjórnar Jafnaðarmannaflokksins, vissi um kjarnavopnin í Thule-stöðinni og lát- ið var að því liggja að hann einn hefði hart vitneskju um þau. í nýrri skýrslu frá Dönsku utanríkismála- stofnuninni, „Grænland í kalda stríð- inu,“ kemur hins vegar fram að Jens Otto Krag hafí einnig vitað um þau. í skýrslunni er vísað til athugasemd- ar, sem Krag skrifaði í dagbók sína 25. ágúst 1959. Hann var þá utanrík- isráðherra og hafði komist að því að H.C. Hansen og þáverandi ráðuneyt- isstjóri utanríkisráðuneytisins, H.C. Svenningsen, hefðu samþykkt í nóv- ember 1957 að kjarnavopn yrðu flutt í Thule-stöðina. í dagbókinni kemur fram að þetta hefði ekki verið borið undir ríkisstjórnina eða utanríkis- málanefnd þingsins. Krag segist hafa sagt við Hansen að skýra þyrfti stjóminni og utanríkismálanefndinni frá þessu máli og Hansen hefði viljað íhuga það. Það var þó aldrei gert. Níu árum síðar, í janúar 1968, hrapaði bandarísk sprengjuflugvél með kjarnavopn á jöklinum nálægt Thule. Krag var þá orðinn forsætis- ráðherra og neyddist til að útskýra stefnu danskra stjórnvalda hvað varðar kjarnavopn á Grænlandi. Hann þagði þá um vitneskju sína og sagði það stefnu dönsku sjtórnar- innar að engin kjarnavopn mættu vera á dönsku landsvæði. „Það gild- ir einnig um Grænland og flugvélar mega ekki fljúga með kjarnavopn yfir Grænland," sagði hann. Skýrsluhöfundarnir komast að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið kjarnavopn í Thuie-stöðinni fyrir árið 1958. Ennfremur bendi ekkert til þess að slík vopn hafi verið geymd á Grænlandi eftir árið 1965. Hins vegar sé vitað að bandarískar her- flugvélagár hafi flogið með kjarna- vopn yfir Grænland frá miðju ári 1957 og þar til flugslysið varð árið 1968. YFIRVÖLD í New York hafa ákveðið að ganga fram af fullri hörku gegn rússneskum sendiráðs- starfsmönnum, vegna umferðar- lagabrota þeirra. Starfsmennirnir njóta friðhelgi og hafa nýtt sér það óspart að mati lögreglunnar í New York, sem er búin að fá sig fullsadda af ógreiddum stöðu- mælasektum og umferðarlaga- brotum sendiráðsstarfsmannanna. Sendiherra Rússa hefur brugðist hinn versti við og mótmælt fram- göngu lögreglunnar, sem hann lík- ir við ofsóknir. Yfirvöld í Georgíu hafa hins vegar ákveðið að svipta einn sendiráðsstarfsmanna sinna friðhelgi eftir að hann varð stúlku að bana með ógætilegum akstri. Hefur sú ákvörðun vakið mikla athygli í Bandat íkjunum og lof verið borið á Georgíumenn fyrir vikið. Nýjasta atvikið sem hefur vak- ið reiði Rússa voru þrjár stöðu- mælasektir sem settar voru á bif- reið sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) á mánudag en bílstjóri hans beið þá fyrir utan höfuðstöðvar SÞ eftir sendiherranum. í lok síðasta árs kom til harka- legra orðaskipta á milli lögreglu og tveggja rússneskra sendiráðs- starfsmanna vegna stöðumæla- sektar sem þeir fengu fyrir að hafa lagt of nálægt brunahana, auk þess sem þeir voru grunaðir um að ætla að setjast ölvaðir undir stýri. Sendiráðið mótmælti framgöngu lögreglumanna sem það sagði hafa sýnt sendiráðs- starfsmönnunum svo grófa fram- komu að við slíkt yrði ekki unað. Ráðist hefði verið á mennina að ástæðulausu, annar þeirra hand- leggsbrotinn, gleraugu brotin og föt þeirra rifin. Borgarsljórinn í New York, Rudolph W. Giuliani, tók upp hanskann fyrir Iögreglumennina, sagði Rússana hafa verið drukkna og dónalega og hafa streist á móti er lögreglumenn ætluðu að koma í veg fyrir að þeir settust undir stýri í því ásig- komulagi. Krafðist Giuliani þess að mönnunum yrði vísað úr landi auk þess sem Rússar mættu gjarna greiða yfir 40.000 dala, 2,7 milljóna kr. stöðumælasektir sem þeir hefðu safnað upp í borg- inni. Deilur Rússa við lögregluna í New York eiga sér langa sögu, ná allt aftur til ársins 1962, frá því að rússneska sendinefndin flutti aðsetur sitt í núverandi húsnæði við 67. stræti. Verða að hlíta lögum Öllu alvarlegra mál, sem tengdist friðhelgi sendiráðs- starfsmanna, kom upp í byrjun árs er georgískur sendiráðs- starfsmaður ók á unglingsstúlku og varð henni að bana. Slysið átti sér stað í Washington í upp- hafi ársins og hefur Georgíumað- urinn verið sakaður um að hafa ekki virt stöðvunarskyldu auk þess sem grunur leikur á Bð hann hafi verið ölvaður. Annað dæmi átti sér stað í Frakklandi í lok síðasta árs, en þá varð sendiherra Zaire í Frakk- landi tveimur drengjum að bana með ofsaakstri. Þrátt fyrir hávær mótmæli var manninum Ieyft að yfirgefa Frakkland án þess að hann væri látinn svara til saka fyrir málið. Eins og áður segir verða sendi- ráðsstarfsmenn að hlíta lögum þess lands sem þeir dvelja í. Ger- ist þeir brotlegir geta stjórnvöld í landinu beðið valdhafa í heima- landi starfsmannsins að svipta þá friðhelgi. Sé ekki orðið við því er yfirleitt gripið til þess ráðs að vísa þeim úr landi. Það vakti því athygli í Banda- ríkjunum er Eduard She- vardnadze, forseti Georgíu, ákvað að svipta sendiráðsmanninn frið- helgi. Sagði forsetinn ástæðurnar siðferðislegar, hann gæti ekki hugsað sér sljóramál og utanríkis- þjónustu sem ekki ætti sér siðgæð- isreglur. Hafa bandarísk sljóra- völd borið lof á ákvörðun She- vardnadzes og sagt hana bera vott um mikið hugrekki. Byggt á The Washington Post. Reuter Ráðgera bann við fuglafóðrun á Trafalgartorgi FERÐAMENN fóðra dúfur á Trafalgartorgi í London völd hyggjast banna fuglafóðrun þar sem tilvist dúfna- í gær. Fer nú hver að verða síðastur að geta látið gersins er talin heilsuspillandi og hafa þær valdið stór- fuglana borða úr lófa sínum á torginu því borgaryfir- skemmdum á sögulegum byggingum umhverfis torgið. Fyrirhuguð vopnasala Suður-Afríkumanna til Sýrlendinga talin ógna friðarlíkum Bandaríkjamenn hóta að hætta fjárhagsaðstoð SAMSKIPTI Bandaríkjanna og Suður-Afr- íku eru með versta móti og ganga skeytin á milli stjórnvalda í Washington og Pretoríu. Ástæðan er fyrirhuguð vopnasala Suður- Afríkumanna til Sýrlands en Bandaríkja- stjóm hefur hótað að hætta fjárstuðningi við Suður-Afríku, verði ekki hætt við hana. Suður-Afríkumenn hafa brugðist æfír við því sem þeir kalla afskiptasemi Bandaríkja- manna og á þriðjudag lýsti Nelson Mandela, forseti Suður-Afríku, því yfír að Saður-Afr- íkumenn myndu gera samninga við hvaða land sem þeim sýndist, hvort sem það nyti vinsælda á Vesturlöndum eður ei. Bandaríkjamenn lýstu á mánudag yfír áhyggjum sínum vegna frétta af því að Suður-Afríkumenn hygðust selja Sýrlend- ingum vopn fýrir 641 milljónir dala, um 43 milljarða ísl. kr. Um er að ræða miðunarbún- að í byssur á skriðdrekum sem á að auka nákvæmni þeirra, sérstaklega í næturbar- dögum. Að sögn Suður-Afríkustjórnar tengj- ast þrjú ónefnd Evrópuríki vopnasölunni til Sýrlendinga. Bandaríkjastjórn hótaði á mánudag að hætta þegar í stað allri aðstoð við landið ef af viðskiptunum yrði en á þessu ári nemur hún um 120 milljónum dala, um átta milljörðum ísl. kr. S-Afríkumenn draga í land Á þriðjudag virtist sem suður-afríska ut- anríkisráðuneytið ætlaði að hætta við samn- inginn, talsmenn ráðuneytisins sögðu engan samning hafa verið undirritaðan og engir samningar um það sem kallað var „hugbún- aður“ yrðu gerðir fyrr en árið 1999. Taka á vopnasölusamninginn fyrir á ríkisstjómar- fundi 22. janúar nk. en varaforseti Suður- Afríku, Thabo Mbeki, hefur það nú til skoð- unar. Afríski þjóðarflokkurinn hefur skorað á Mbeki að beita neitunarvaldi gegn samn- ingnum. Mandela hefur hins vegar látið hörð orð falla í garð Bandaríkjamanna. „Við munum aldrei láta neinn stuðning eða aðstoð frá nokkru landi, sama hversu valdamikið það er, stjórna utanríkisstefnu okkar eða leyfa nokkru landi að ráðast gegn fullveldi okkar og grafa undan þjóðarstolti okkar," sagði forsetinn og þvertók fyrir að í áðurnefndri yfírlýsingu utanríkisráðuneytisins fælist uppgjöf. Parks Makahlana, talsmaður Mandela hefur verið enn stóryrtari en forsetinn. Hann sagði stjómvöld „fyrirlíta svona hegðun: „Það sem okkur fínnst sérstaklega móðg- andi er að byssu skuli haldið upp að höfði okkar og okkur sagt hvað eigi að gera.“ Nicholas Burns, talsmaður Bandaríkja- stjórnar svaraði því til að „enginn hefði hald- ið byssu upp að höfði nokkurs manns“ og að stjórnvöld vonuðust til þess að eiga áfram eins góð samskipti við Suður-Afríku og hing- að til. Til að draga enn frekar úr þeirri spennu sem einkenndi samskiptin, lýsti Bandaríkja- stjóm því yfír að hún myndi ekki taka neina ákvörðun um að draga úr aðstoð við Suður- Afríku fyrr en málið hefði verið kannað frekar. ísraelar mótmæla Ástæða þess að Bandaríkjastjórn brást svo hart við fyrirætlunum Suður-Afríku- manna er sú að samkvæmt bandarískum lögum er bannað að veita ýmis konar fjár- hagsaðstoð til ríkja sem selja vopn til landa sem Bandaríkjamenn telja að styðji hryðju- verkamenn. Sjö lönd eru á þeim lista, þeirra á meðal Sýrland og íran. Þá hafa ísraelsk stjórnvöld brugðist hart við fréttum af vopnasölu til Sýrlendinga, segja hana ógna friði í Mið-Austurlöndum. Sýrlendingar og ísraelar háðu stríð 1967 og 1973 og börðust einnig er ísraelar réð- ust inn í Líbanon árið 1982. Friðarviðræður landanna, sem hófust í kjölfar friðarsamn- inga ísraela og Palestínumanna, hafa legið niðri í tæpt ár og óttast margir að til átaka kunni að koma á milli þjóðanna vegna helsta deilumáls þeirra, Gólanhæða, sem ísraelar náðu af Sýrlendingum 1967. Talsmaður Mandela sagði stjórn Suður- Afríku styðja friðarferlið í Mið-Austurlönd- um heilshugar en að hún teldi ekki að vopna- salan myndi ógna því, ef af henni yrði. Byggt á: The Washington Post, The Johannesburg Star og Reuter.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.