Morgunblaðið - 18.01.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 18.01.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 41 ' SVEINN VIGFÚSSON + Sveinn Vigfús- son fæddist á Þverá í Skíðadal 30. mars 1917. Hann lést 30. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Vigfús Björnsson, d. 1938, og Soffía Jónsdótt- ir, d. 1965. Systkini Sveins voru fimm, Ólöf, Sumarrós, Jónína, Björn og Ari. Þau eru öll lát- in nema Jónína. Sveinn ólst upp á Þverá og tók við búinu að föð- ur sínum látnum, ásamt Birni, bróður sínum. Hinn 28. maí árið 1950 gift- ist hann eftirlifandi konu sinni, Þórdísi Rögnvaldsdóttur, f. 5. maí 1920, og bjuggu þau á Þverá til ársins 1975 er þau fluttu til Dalvíkur að Skíðabraut 13 og hafa þau búið þar síðan. Sveinn starf- aði hjá Dalvíkurbæ frá árinu 1975 og allt til ársins 1988 er hann lét af störf- um sökum aldurs. Auk þess var hann húsvörður við Ráð- hús Dalvíkur um tíu ára skeið. Börn Sveins og Þórdísar eru: Ingvi Eiríks- son, f. 1946, Vignir, f. 1950, Soffía, f. 1955 og Ragna, f. 1956. Barnabörnin eru fimmtán og barnabarnabömin fjögur. Utför Sveins fór fram frá Dalvíkurkirkju 4. janúar. Um hver áramót lítum við gjam- an yfír farinn veg og rifjum upp hvað liðið ár gaf, þroskaði og tók. Árið 1996 gaf okkur hér á þessu heimili þá reynslu að fylgjast með og taka þátt í baráttu Sveins Vig- fússonar tengdaföður míns við þann sjúkdóm, sem hann fékk staðfestingu á að hann væn með fyrir tæpum þremur árum. Á vor- dögum gekk hann í gegn um mjög erfiðan sjúkdómskafla en eftir að- gerð, frábæra umönnun lækna og hjúkrunarfólks og ekki síst hans eigin jákvæðni og þrautseigju komst hann til þeirrar heilsu að við fengum að hafa hann hjá okk- ur það sem eftir lifði árs. Hann tókst á við þennan erfíða tíma með ótrúlegu jafnaðargeði þótt honum væri fullljóst að ekki mundu mán- uðirnir verða margir, sem hann ætti eftir að njóta jarðvistar og fæstir dagar voru honum þrauta- lausir. Það bar hann hins vegar ekki á torg fyrir okkur hin og reyndi af fremsta megni að láta sem minnst á því bera. Áttum við í fjölskyldu hans margar góðar samverustundir með honum, enda gerði hann allt sem í hans valdi stóð til að lifa sem eðlilegustu lífi, og með aðstoð hans einstöku konu, Þórdísar, tókst okkur að njóta þessara mánaða eins og frekast var unnt. í nóvember veiktist hann aftur og dvaldist á FSA í nokkrar vikur en síðan komst hann heim. Þá var heilsan orðin slík, að eingöngu með aðstoð heimahlynningar hér á Ak- ureyri og heimahjúkrunar á Dalvík var honum gert kleift að dveljast heima. Soffía dóttir hans kom heim frá Danmörku og dvaldi með for- eldrum sínum um þriggja vikna skeið. Sá tími var þeim ómetanleg- ur. Eftir að Soffía fór aftur, skipt- ist hans nánasta fólk á um að vera hjá þeim hjónum á Dalvík þar til um miðjan desember, er hann kom hingað og var hér á heimili okkar þar til hann lést að morgni 30. desember. Við hér, svo og öll fjöl- skyldan, erum þakklát fyrir þann tíma sem gafst og varð lengri en við þorðum að vona og var okkur svo dýrmætur og þroskandi. Sérstakar þakkir eru til hjúkrun- arfræðinganna við heimahlynn- ingu hér á Akureyri, heimahjúkr- unar á Dalvík, lækna og alls starfs- fólks á FSA er annaðist hann af sérstakri natni og hlýju. Einstakur maður hefur nú lokið sínu æviári, hann á eins táknrænan hátt og tvö önnur systkina hans, sem kvöddu einnig á síðustu dög- um ársins, er þau létust. Dagur var að kvöldi kominn og tímabært að búa sig undir hinn langa svefn. Ég minnist þess, hér fyrir mörg- um árum, þegar við Vignir höfðum tekið þá ákvörðun að ganga lífs- leiðina saman, spurði hann mig, áður en ég var búin að hitta for- eidra hans, hvaða hugmynd ég væri búin að gera mér um þau. Ég svaraði spurningu hans þá, en það var ekki fyrr en mörgum árum seinna, sem ég gerði mér grein fyrir að ég hafði lýst óskatengda- foreldrum. En af hveiju? Jú, ég var búin að skynja þá miklu og djúpu væntumþykju og virðingu sem hann bar til foreldra sinna. Aldrei hefur sú mynd máðst í gegn um árin. Það mikla og nána sam- band milli þeirra feðga hélst ætíð og styrktist enn frekar er á leið. í raun var ég alltaf að sjá betur og betur hvaða mann hann Sveinn hafði að geyma og ekki síst þenn- an síðasta tíma sem hann varð mér hvað nánastur. Meðfædd kurt- eisi, hógværð, snyrtimennska, hjálpsemi, samviskusemi og ekki síst hans einlæga trú á hið góða í lífinu og manneskjunni einkenndi hann. Hann gat oft verið mjög gamansamur og alveg fram að síð- ustu dögunum gat hann séð spaugilegu hlutina við tilveruna. Sveinn var mjög vinnusamur og vandvirkur maður og hef ég á tii- finningunni að sjaldan hafi verið geymt til morguns það sem hægt var að gera í dag. Sérhlífni var hugtak sem Sveinn þekkti ekki og oft hef ég í huga mér álitið að athafnir hans hafi mótast mjög af því umhverfi sem hann ólst upp í. Sá sem elst upp á milli hárra fjalla velur ekki alltaf auðveldustu leið- ina, oft ekki síður þá stystu, þótt hún sé mun erfíðari, ef hún er fljót- farnari og skilar betri árangri. Þau hjónin voru mjög samhent í þessum mikla dugnaði og tileink- uðu böm þeirra sér öll sama vinnu- lag. Fá verkefni virtust mér Sveini fínnast óleysanleg og átti hann með verklagni sinni og áræði yfir- leitt lausn á málum. Smiður var hann einstakur þótt ólærður væri til slíkra verka og eru margir fal- legir munir til eftir hann og eigum við hér á þessu heimili ómetanlega hluti sem hann smíðaði. Eitt af því sem Sveinn hafði mikla ánægju af var að ferðast og sú ánægja var svo einlæg, að það eitt að ferðast með honum og upp- lifa þessa ánægju gaf hverri ferð sérstakt gildi. Hann var vel að sér í landafræði, bæði innanlands og utan. Fannst okkur stundum að hann þekkti staðina áður en hann kom á þá og var síðan sérstaklega minnugur á þá staði, þar sem hann hafði komið. Ein þeirra ferða er við Vignir fórum með honum er mér afar minnisstæð. Þá bjuggum við á Selfossi og hann kom í heim- sókn að hausti til. Við fórum í ein- staklega fallegu veðri í ökuferð austur í Rangárvallasýslu. Þegar við stóðum á hlaðinu á Hlíðarenda í Fljótshlíð og hann horfði yfír vellina, var eins og hann þekkti þetta umhverfi þvi sem næst eins vel og heimahagana, svo vel var hann með á sögu staðarins. Sú mikla gleði og ánægja yfír að fá að upplifa þessa stund var eitthvað sem hann naut lengi. Hann Sveinn var ekki bara ein- stakur faðir og tengdafaðir, hann var ekki síðri afí. Það eru forrétt- indi hvers barns að fá að kynnast og njóta samskipta við afa og ömmur. Börnin okkar hafa verið svo lánsöm að vaxa upp í nánu sambandi við afa sinn og ömmu á Dalvík. Ófáar hafa heimsóknimar verið til þeirra og oft dvöl um tíma, ef þannig hefur staðið á. Eiga þau góðar minningar um mann sem gat ekki verið betri afi en hann var. Umburðarlyndur, mildur og hugmyndaríkur við að stytta stundir. Eitt lýsandi dæmi langar mig til að nefna um hans mikla skilning á bamssálinni. Yngsta dóttir okkar þjáðist mjög af feimni um tíma og var það yfirleitt svo að ef einhveij- ir komu, lét hún sig hverfa inn í herbergi jafnvel þótt um kunnuga væri að ræða. Þegar þau komu hér, Sveinn og Þórdís, í heimsókn- ir vantaði hana yfírleitt í hópinn. Fljótlega hvarf Sveinn af vettvangi en undantekningarlaust, eftir dá- góða stund, komu þau saman fram hönd í hönd og vora ekki höfð nein orð þar um. Það væri hægt að segja svo margt fleira um Svein, en ég vona að þessi orð gefí öðrum sem hann þekktu aukið innsæi í þann mann sem hann hafði að geyma. Auðvit- að er tómið stórt og söknuðurinn sár þegar þessi góði maður er ekki lengur á meðal okkar, en við höfum líka svo óendanlega mikið fyrir að þakka. Minningamar tekur enginn frá okkur og þær er gott að eiga. Elsku Þórdís og þið öll, sem erað honum skyld eða tengd, megi góð- ur Guð styrkja ykkur á komandi tímum. Söknuður og sorg hverfa aldrei, en það lærist að lifa með því. Þakklæti og dýrmætar minn- ingar verða efst í huga þegar frá líður. Valdís Gunnlaugsdóttir. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Um leið og við kveðjum elsku- legan afa okkar, viljum við þakka honum fyrir allar þær ánægjulegu stundir, sem við systkinin áttum með honum. Endalaus þolinmæði, góðsemi og lífsgleði einkenndi afa okkar. Betri afa hefðum við ekki getað hugsað okkur. Hugur hans og gerðir einkenndust af kærleika og reyndi hann ávallt að draga fram það besta í hveijum manni. Hann var alltaf tilbúinn að hlusta og var ávallt áhugasamur um hagi okkar og skólagöngu. Það var í raun alltaf gaman að segja honum frá einkunnum, hversu vel eða illa hafði gengið, maður gerði alltaf sitt besta að hans mati. Létt klapp á öxlina frá afa var alitaf gott veganesti til að takast á við það sem framundan var. Við systkinin áttum margar ógleymanlegar stundir með afa og ömmu á Dalvík. Marga daga og stundir dvöldum við hjá þeim og voru þau ávallt reiðubúin til að gera dvöl okkar skemmtilega með ýmsu móti. Afi var vanur að fara með okkur í göngu- og fjöraferðir en amma beið heima tilbúin með mjólk og brauð þegar við birtumst í dyragættinni með vasana fuila af skeljum og smásteinum. Það var mikið tilhlökkunarefni að fylgjast með afa þegar hann var að smíða. Hann var einstaklega vandvirkur við allt sem hann tók sér fyrir hendur og þótti honum gaman að eyða stundum sínum niðri í kjallara, þar sem hann hafði vinnuaðstöðu. Jafnan var hann fús að leiðbeina okkur við gerð spýtu- karla og fleiri byijendaverk, þótt við værum ung að áram. Mikil eftirvænting var á jólunum hvað kæmi úr pakkanum frá afa og ömmu. Oftar en ekki var það eitt- hvert meistaraverkið úr kjallaran- um s.s. askur, skál eða eitthvað slíkt. Ein jólin era sérstaklega minnisstæð hvað þetta varðar og kom pakki til okkar eldri systkina sem við enn í dag höldum mikið upp á. Við höfðum farið með pabba og mömmu einn sunnudaginn rétt fyrir jól f heimsókn til afa og ömmu. Eins og svo oft áður báðum við afa að fara niður í kjallara með okkur og lét hann okkur hafa sinn vasahnífinn hvort og spýtukubb til að tálga úr. Úr þessu áttu að verða tveir spýtukarlar. Við kepptumst við að tálga til að verða búin áður en pabbi og mamma færu aftur heim, en við náðum ekki að klára verkið og þurftum við þvi að skilja hálfmótaða spýtukarlana eftir, döpur í bragði. Fáeinum vikum síð- ai komu jólin og tilhlökkunin að taka upp pakkana var mikil. Pakk- amir til okkar systkinanna frá afa og ömmu komu mjög skemmtilega á óvart, því að þar vora spýtukarl- amir komnir alveg fullmótaðir og málaðir. Þetta var besta jólagjöfin sem við fengum. Afi var mikill náttúra- og úti- vistarannandi og lengi áttu þau amma hjólhýsi í litlum skógarreit í Skíðadalnum. Reyndu þau að dvelja þar eins oft og þau gátu og lögðum við stundum leið okkar til þeirra í heimsókn. Afi fór þá gjarn- an með okkur í gönguferð um reit- inn til að sýna okkur eitthvað spennandi. Afi var alveg einstakur þegar þurfti að ná sáttum og fá okkur bamabömin til að hugsa um eitt- hvað annað þegar mikið gekk á. Þegar haldin vora jóla- og fjöl- skylduboð var oft mikill hávaði í okkur og rákust skoðanir okkar stundum á, eins og vill verða í hópi barna. Kom þá afi, spjallaði við okkur og eftir smátíma var allt fallið í ljúfa löð og allir orðnir vinir aftur. Síðustu ævida.ga afa þótti okkur ómetanlegt að hafa hann hjá okkur og eiga með honum síðustu jólin hans. Okkur þótti hann sýna ótrú- lega þrautseigju og baráttuvilja í langvarandi veikindum sínum og alltaf var stutt í kímni hjá honum. Okkur öllum þótti mjög vænt um afa okkar og era stór sár í hjörtum okkar nú. Elsku afi, takk fyrir allt. Með fáum orðum ætla ég nú að minnast ömmu minnar. Sem lítill drengur sat ég oft í kjöltu hennar og hlustaði á hana segja sögur. Hún bjó yfir mikilli kímnigáfu og gat haldið athygli ungs drengs óskertri en þá var ég iítill fjörkálfur. Hún kenndi mér m.a. að reikna og spila. Hún spil- aði mikið síðustu æviár sín á elli- heimilinu og sagði mér ávallt nýjar spilasögur þegar ég kom í heim- sókn á elliheimilið. Þótt hún væri orðin heymasljó og veikburða var ávallt stutt í hlýlegt brosið og gerði hún einatt grin að mannlífinu í heimatilbúnum ljóðum. Fólkið á elliheimilinu á eftir að sakna henn- ar eins og ég. Elsku amma og fjölskyldur, megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Birnir, Bryrya, Hiidur og Þórdís. Fyrstu kynni mín af afa vora strax eftir að ég kom í heiminn og bjó ég á heimili hans þar til ég varð þriggja ára. Afi var alltaf svo ljúfur og glaðvær og vildi allt fyrir mann gera. Átti hann engan sinn líka í þeim efnum. Sé til eitthvað sem heitir heiðarleiki þá á það við þig, afi, því heiðarlegri og reglu- samari mann veit ég að verður erfitt að fínna. Afí gerði ekki mikl- ar kröfur fyrir sig, en hugsaði meira um að gleðja aðra. \ ’ Hann var alltaf til í að hjálpa öllum sem leituðu aðstoðar hjá honum, ef eitthvað bjátaði á, og fann hann-alltaf lausn allra mála. Afi var með eindæmum laginn í höndunum og era þeir ófáir hlut- imir sem hann skar út eða renndi í bekknum niðri í kjallara. Hann vildi þó ekki gera mikið úr þeim fallegu og vel gerðu hlutum sem eftir hann liggja. Afi lét alltaf lítið fyrir sér fara og kvartaði aldrei þó eitthvað amaði að, því hann sá alltaf ljós f myrkrinu og það breytt- ist ekkert þó færi að bera á veik- indum. Hann hélt alltaf sínu striki þótt hann vissi í hvað stefndi. Afi fylgdist vel með íþróttum og af miklum áhuga mætti hann á nánast alla þá leiki sem ég spil- aði. Það hvatti mig áfram og á ég honum því mikið að þakka. Hann var mikill og góður afi í sér og sinnti okkur afabömunum vel og gaf svo mikið af sér. Það var allt- af stutt í húmorinn hjá honum og hann hafði gaman af því, þegar hann gat komið öðram til að hlæja. Að hafa átt þig sem svo góðan og mikinn afa, eins og þú varst, jpr, ekki öllum gefið. Þú gafst mér svo mikla hlýju og umhyggju. Það situr fast í sterkri og góðri minningu um þig, afi. Þá staðreynd að ekki er lengur hægt að fara í heimsókn til þín f Skíðabrautina er sárt að hugsa um. En minningin um góðan og elskulegan afa mun lifa í hjarta mér um ókomna tíð. Guð blessi þig, afi, og veiti þér hvíld og frið á góðum stað. Jóhann Jónsson. Ég og bróðir minn fengum alltaf kökur þegar við komum í heimsókn sem litlir strákar. Súkkulaðikakan með hvíta kreminu var í miklu uppáhaldi. Nokkram áram eftir að afi dó flutti hún á elliheimilið og var al- sæl að eignast svona marga nýja vini. Fyrir hana var lífið á elliheim- ilinu góður tími. Amma sagði mér stuttu áður en hún dó að hún tryði á Jesú Krist og nú er hún þar sem engin jarðnesk kvöl fær þrifíst, í faðmi Guðs og engla hans á himnum. Ég er þakklátur fyrir þær stund- ir sem við áttum saman og hvílir minning hennar í hjarta mínu. - Njáll, elsta barnabarn Dóru. DORA BJARNADÓTTIR + Dóra Bjarna- dóttir fæddist í Bæjarstað á Akra- nesi 27. desember 1912. Hún lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 11. janúar síð- astliðinn. Foreldrar Dóru voru fyónin Hallfríður S. Sig- tryggsdóttir og Bjami Brynjólfsson. Hinn 4. desember 1949 giftist Dóra Hirti Líndal Sig- urðssyni, f. 15. febrúar 1905, d. 15. júní 1988. Kjördóttir þeirra er Dóra Líndal Hjartardóttir, f. 9. ágúst 1953, eigin- maður hennar er Marteinn Njálsson, f. 4. október 1949. Börn þeirra eru: 1) Njáll Líndal, f. 15. janáur 1971, ejgin- kona hans er Ásdís Margrét Rafnsdótt- ir. 2) Ómar Líndal, f. 3. desember 1973, eiginkona hans er Ingibjörg Maria Halldórsdóttir. 3) Karen Lindal, f. 2.- mars 1983. Útför Dóru Bjarnadóttur fór fram frá Akraneskirkju 17. janúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.