Morgunblaðið - 18.01.1997, Blaðsíða 60
. 60 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBOND/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJONVARP
SPAUGAÐÁ
STÖÐINNI
Stöðin hefur hafíð göngu sína enn eitt árið
og virðist í fullu fjöri þrátt fyrir væringar á
sjónvarpsmarkaðnum. Pétur Blöndal heils-
aði upp á Spaugstofubræður og fylgdist
með upptökum á glænýju efni.
MÁBJÓÐA þér kaffi," spyr
Örn Árnason og brosir
vinalega með hárið upp
í loftið. Hann er augljós-
lega nývaknaður og sama má segja
um félaga hans í Spaugstofunni,
Pálma Gestsson, Sigurð Sigurjóns-
son og Randver Þorláksson.
Karl Ágúst Úlfsson reynir hins
vegar að bera sig mannalega, kveður
hópinn og segir: „Ég er farinn að
skrifa."
„Hann þarf þá að hafa hraðan á,“
hugsar blaðamaður með sér. „Tökur
eiga að hefjast eftir hálftíma!" „Má
bjóða þér kaffí?“ spyr Öm aftur og
heldur enn á kaffíkönnunni. „Ha,
já,“ svarar blaðamaður, rankar við
sér og réttir honum bollann.
Jón Viðar í framhaldsatriði
Það er föstudagsmorgunn og tök-
ur eru að hefjast á atriðum fyrir
Spaugstofuþáttinn sem er á dagskrá
Sjónvarpsins í kvöld. „Sáuð þið grein
Stefáns [Baldurssonar] um Jón Við-
ar [Jónsson] í Mogganum í morg-
un,“ spyr Randver glaðhlakkalegur.
„Náðir þú að lesa hana?“ spyr
Sigurður Snæberg, upptökustjóri.
„Nei, Guðrún las hana fyrir mig,“
svarar Randver. „Átt þú svona konu
sem les upphátt fyrir þig á morgn-
ana?“ spyr þá Sigurður fullur lotn-
ingar. „Ég reyni að vekja mína í tvo
klukkutíma," segir hann armæðu-
lega, „og gefst svo upp.“
Þannig líður stundin framan af
morgni með þeim félögum, notalegar
samræður yfír ijúkandi kaffíbolla
um allt og ekkert. Og Jón Viðar.
Sitt sýnist hveijum um gagnrýnand-
ann og er slegið á létta strengi.
„Þetta er framhaldsatriði sem við
tökum á morgnana - að ræða um
Jón Viðar,“ hvíslar Sigurður Snæ-
berg að blaðamanni. „Þannig hefur
þetta verið lengi - alveg síðan hann
byijaði."
Aldrei alveg hugmyndasnauðir
Eftir hálftíma kaffiþamb er lagt af
stað á tökubílnum frá Sjónvarpshús-
inu. Fyrsta atriðið er tekið upp í
Hagkaupi í Skeifunni. Á leið þangað
segir Sigurður Siguijónsson blaða-
manni frá vinnutilhögun Spaug-
stofubræðra. „Við hittumst allir á
þriðjudögum og miðvikudögum og
hendum inn því Sem okkur dettur í
hug. Síðan minnkum við hópinn og
ég, Örn og Karl Ágúst komum sam-
an á fimmtudögum. Að lokum tekur
Karl Ágúst við þessu og færir inn í
handrit.“
„Verðið þið aldrei hugmynda-
snauðir?" spyr blaðamaður.
„Nei, en auðvitað þurfum við að
hafa mismikið fyrir þessu," segir
Sigurður. „Við reynum að taka mið
af fréttum í fjölmiðlum og auðvitað
getur komið gúrkutíð hjá okkur eins
og þar. Þá höfum við ýmislegt upp
á að hlaupa, nokkurs konar heils-
ársgrín sem getur verið þægilegt.“
„ .. . og hlægilegt," hugsar blaða-
maður með sér.
Saman til sólarlags
„Hvað er Spaugstofan orðin göm-
ul, “ skýtur Ragna Fossberg, förðun-
armeistari, inn í samræðurnar. „Hún
er orðin sjö ára,“ svarar Sigurður.
„Ég var að reikna það út um daginn
að við gætum sýnt Spaugstofuna í
tvo sólarhringa samfleytt og rúm-
lega það.“
Að þessum orðum töluðum stað-
næmist bíllinn fyrir utan Hagkaup
og Sigurður segir einbeittur: „Við
verðum að vera rosalega snögg.“
Örn Árnason, sem leikur fyrsta at-
riðið, sest í förðunarstólinn. „Ég sá
þig snemma dags, í sumar seint í
ágúst," byijar hann að raula fyrir
munni sér og Pálmi tekur undir:
„Saman til sólarlags, við ein sátum
á þúst.“
Skilur ekki þessa pólitík
Eftir að tökum lýkur þarf Örn að
drífa sig annað. Hann er að vinna
að leikritinu Litli Kláus og Stóri Kláus
sem verður frumsýnt á fímmtudaginn
kemur. Karl Ágúst sest í förðunar-
stólinn og innan skamms stendur nýr
maður upp úr stólnum, nirfíllinn. Áð
þessu sinni ætlar hann að skila skíð-
um í Útilíf vegna snjóleysis. „Ekkert
smávegis pirraður gæi,“ segir einn
tökumaðurinn og virðist sjálfur orð-
inn svolítið pirraður.
Pálmi Gestsson leikur búðarklerk-
inn og sest næst í stólinn. „Gerðu
mig bara sætan,“ segir hann. „Það
er að vísu erfítt, en ég treysti þér til
þess.“ Nirfillinn er byijaður að leita
að einhveiju í rútunni og bölvar með
sjálfum sér: „Hvað er málið? Ég skil
þetta ekki, skil ekki þessa pólitík.“
„Mér fínnst nú að álverið eigi
heima á Keilisnesi," segir þá Stein-
grímur Hermannsson og er engu lík-
ara en að hann sé kominn í bílinn.
Karl Ágúst hlær og Pálmi heldur
áfram: „Hvers vegna eiga þeir í Kjó-
sinni að sitja einir að umhverfisspjöll-
um. “
Morgunblaðið/Halldór
SPAUGSTOFUMENN hefja
daginn á því að leggja á ráðin
og svo hrista þeir fullmóta
spéfugla fram úr erminni.
holds og
sálar
► KVIKMYND um banda-
ríska ljóðskáldið Walt Whit-
man verður sýnd á Stöð 3 í
kvöld.
► Whitman fæddist árið
1819 og gaf út ljóðasafnið
Leaves of Grass árið 1855.
Hann hélt áfram að auka
við það í mörgum seinni út-
gáfum. Þar er m.a. að finna
þekktasta ljóð hans, Song
of Myself eða Söngur um
sjálfan mig.
Jfe- Einar Benediktsson
þýddi kafla úr Leaves of
Grass og kallaði Úrgras-
blöðum. Siðar hafa bæði Sig-
urður A. Magnússon og Ingi-
mar Erlendur Sigurðsson
þýtt ljóð úr Leaves of Grass.
|> Þýðing Einars birtist i
Útsýn árið 1892 ásamt um-
fjöllun eftir dr. Jón Stefáns-
son. Þar er Whitman m.a.
þannig lýst: „Hann liggur
oft úti og bakast í sólinni."
► Sama ár lést Whitman.
► Brot úr þýðingu Einars
Benediktssonar á ljóðinu
Söngur um sjálfan mig úr
ljóðabókinni Úr grasblöðum:
„Eg er skáld holdsins;
og ég er skáld sálarinnar.
Með mér er himnanna gleði, og með
mér er helvítis kvöl;
gleðina sái ég og græði út á sjálfum
mér, - kvölinni vík ég við á aðra
tungu.
Ég er konu skáld jafnt og karls; og
að kona sé manni ei minni, eru orð
mín;
og að ekkert sé manna móður fremra,
eru orð mín.
Ég flyt brag þroskunar eða sjálfs-
þótta;
nú er nóg, að ég ætla, orðið af bæn-
umogbeygingum;
ég sýni, að stærðin er vöxtur og við-
gangur."
z/ian
Björn Freyr Ingólfsson,
skiptinemi í Little Rock,
Arkansas í Bandaríkjunum
1995 -1996
Körfuboltaliðið í J.T. Robinson
Highschool. Við kepptum að meðaltali
einu sinni í viku.
Phil bróöir minn og ég
ásamt vinum okkar í
sumarhúsi við Lake Mowell.
• Vilt þú öðlast dýrmæta reynslu
sem endist ævilangt?
• Erum að taka á móti umsóknum
með brottför næsta sumar.
Nrínari upplýsingar rí skrifstofu
AFS rí íslandi, Laugavegi 26,
súni 552 - 5450.
Fjölskyldan mín. Frá vinstri: Ég, pabbi
(Don), rr
(Í3on)f mamma (Debby), Phil og'litla
systir mín, Rachel.
AfS Á ÍSL4NPI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
■1