Morgunblaðið - 18.01.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Landsmót hestamanna
á Melgerðismelum
Merki
hannað
^rðis^
FRAMKVÆMDANEFND Lands-
móts hestamanna, sem haldið verður
á Melgerðismelum í Eyjafírði dagana
8. til 12. júlí 1998, hefur látið hanna
merki fyrir
. væntanlegt
landsmót
Leitað var til
þriggja grafí-
skra hönnuða
sem beðnir
voru að skila
inn tillögum.
Stjómin valdi úr merki Ágústu Ragn-
arsdóttur, Reykjavik, en merki hennar
þótti álitlegast. Er það að hluta byggt
á merki Landssambands hestamanna
en inn í það er fléttað sólarlagsmynd
sem gæti jafnframt verið táknræn
fyrir hið rómaða norðlenska sólsetur.
Merkið er unnið bæði í ferkantaðri
útgáfu og í hring. Merkið verður sett
á verðlaun, veifur og fána mótsins
jafnframt því sem það mun prýða
alla þá prentgripi sem tengjast mótinu
á einhvem hátt.
Málum fjölgaði hjá Rannsóknarlögreglunni á Akureyri milli ára
Alvarlegri mál en áður
komu til kasta lögreglu
MÁLUM er komu til kasta rann-
sóknardeildar lögreglunnar á
Akureyri fjölgaði um tæplega 200
á árinu 1996, miðað við árið á
undan. Alls komu 1.468 mál til
rannsóknardeildarinnar á síðasta
ári en 1.286 árið 1995. Daníel
Snorrason, lögreglufulltrúi, segir
að síðasta ár hafi einkennst af
alvarlegri málum en áður.
Þrír menn létust af slysförum
á síðasta ári, upp kom mál á
Steinstöðum í Öxnadal þar sem
maður varð systur sinni að bana,
kynferðismál þar sem stúlkubörn
voru áreitt, svo og stór bruna-
mál. Um verslunarmannahelgina
kom upp hnífstungumál á Akur-
eyri og í kjölfarið var ungur mað-
ur ákærður fyrir tilraun til mann-
dráps. Málflutningi þess máis er
nýlokið og er beðið eftir dómi.
Veruleg fjölgun fíkniefnamála
Fíkniefnamálum fjölgaði veru-
lega og í þeim málaflokki hefur
orðið afgerandi breyting frá árinu
1994. Það ár komu upp 10 fíkni-
efnamál, árið 1995 voru þau 20
og í fyrra komu 37 fíkniefnamál
til kasta lögreglunnar. Daníel seg-
ir að aldur fíkniefnaneytenda hafí
lækkað og fíkniefnin séu komin í
grunnskólana. „Við höfum verið
að taka 14 ára nemendur fyrir
fíkniefnabrot."
Þá kom í fyrsta sinn upp mál í
umdæmi lögreglunnar sem tengist
innflutningi á hassi. Skipveijar á
togaranum Björgúlfi frá Dalvík
sem voru að koma úr siglingu frá
Þýskalandi í byijun nóvember sl.
fundu pakka um borð sem við
skoðun reyndist innihalda um 1
kg af hassi. Ekki er enn vitað
hver átti umræddan pakka.
Daníel segir að kynferðismálum
hafi ijölgað, en á síðasta ári komu
14 slík mál til lögreglunnar, þar
af 3 nauðgunarkærur. Þjófnaðar-,
innbrots- og minni háttar líkams-
árásarmálum fjölgaði einnig milli
áranna 1995 og ’96 og eins hefur
tékkafals færst í aukana á ný.
„Eftir að debetkortin komu til
sögunnar dró úr tékkafalsi en á
síðasta ári fjölgaði slíkum málum
aftur,“ segir Daníel.
Á síðasta ári komu upp 99 ölv-
unarakstursmál, en 87 ^slík mál
komu upp árið áður. í skýrslu
rannsóknarlögregiunnar _er mála-
flokkur sem ber heitið Ymis mál
og í þeim flokki fjölgaði málum
mjög mikið, eða um 100 milli ára.
Verkefninu „Akureyri - naglalaus bær“ hleypt af stokkunum
Engir naglar
vorið 1999
„AKUREYRI - naglalaus bær“
er yfirskrift átaks sem Gúmmí-
vinnslan hf. í samstarfi við fimm
fyrirtæki, Dreka, Flutningamið-
stöð Norðurlands, Gámaþjón-
ustu Norðurlands, Skeljung og
Veitingahúsið Greifann, hefur
hleypt af stokkunum.
Þórarinn Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Gúmmívinnslunn-
ar segir að um raunhæfan
möguleika sé að ræða vegna
nýrra hjólbarða sem komnir eru
á markað hér á landi, Bridges-
tone hjólbarða sem fyrirtækið
hefur umboð fyrir. Mun minni
umhverfismengun verði ef öku-
menn aki án nagla og þá spari
það ríki og sveitarfélögum
mikla fjármuni.
Margvíslegur
ávinningur
Árni Laugdal markaðsstjóri
Gúmmívinnslunnar segir að
breyta þurfi viðhorfi bæjarbúa
í þessum efnum en stefnt sé að
því að ná markmiði átaksins
vorið 1999. Ör þróun í gerð
naglalausra dekkja geri þetta
mögulegt. Ávinningurinn væri
margvíslegur, fyrst og fremst
kæmi hann fram í mun minna
sliti á malbiki, minni mengun,
minni eldsneytiskostnaði og
lengri líftíma hjólbarða, þá væri
hávaðamengun mun minni.
Um 73 hlutar slitbana hjól-
barðanna eru alsettir litlum
loftbólum, sem sjúga til sín
vatnsfilmu sem myndast milli
dekks og vegar þegar ekið er á
snjó, ís og svelli. Snertiflötur
þeirra er því ávallt stamur.
Loftbólurnar mynda einnig
hvassar brúnir sem grípa í ís-
inn. Þessi dekk eru mjúk og
elta veginn vel og gefa þétt
grip. Viðnám dekkjanna er ekki
eins mikið og nýrra nagla-
dekkja þegar ekið er á svelli í
rigningu.
Fyrirtækin, sem þátt taka í
verkefninu, hafa sett slíka hjól-
barða undir hluta af bílaflota
sinum og voru forsvarsmenn
þeirra sammála um að reynslan
væri góð, en þeir hefðu í fyrstu
haft efasemdir um að þau kæmu
að eins góðum notum og nagla-
dekk.
Minna slit
Guðmundur Guðlaugsson yfir-
verkfræðingur Akureyrarbæjar
segir að á síðasta ári hafi á milli
17 og 18 milljónir króna farið í
að bæta slitlag á malbiki á götum
bæjarins. Það væri því mikið
hagsmunamál fyrir bæinn ef
tækist að minnka eða losna alveg
við notkun nagladekkja. „Eg
hefði viljað sjá markið sett veru-
lega hátt, „naglalaust ísland"
væri verðugt verkefni," segir
Guðmundur.
Barþjónn viðurkenndi
vínþynningu
Styrkleikinn
minnkaður
um 10%
BARÞJÓNN á veitingastað á
Akureyri viðurkenndi við yfir-
heyrslu hjá rannsóknarlögregl-
unni, að hafa þynnt vín sem
hann seldi á bar staðarins. Sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins starfaði barþjónninn á
veitingastaðnum Kjallaranum,
sem rekinn er í Sjallanum, en
hann hefur látið af störfum.
Rannsóknarlögreglan mældi
styrkleika víns í nokkrum flösk-
um hjá umræddum barþjóni og
þá kom í ljós að vín sem átti
að vera 40% að styrkleika var
aðeins 30% að styrkleika. Málið
komst upp er sýslumannsemb-
ættið kannaði vínbirgðir allra
veitingastaða í bænum. í kjölfar
þeirrar athugunar var ákveðið
að senda áfengi frá öðru veit-
ingahúsi til rannsóknar.
Níu innbrot
upplýst
RANNSÓKNARDEILD lög-
reglunnar á Akureyri hafði í
gær upplýst 9 innbrot, í kjölfar
handtöku á ijórum ungum
mönnum í vikunni. Oilum mönn-
unum hefur verið sleppt en þrír
þeirra höfðu verið úrskurðaðir
í gæsluvarðhald, einn þeirra til
dagsins í dag og tveir til nk.
mánudags.
Einn mannanna hefur viður-
kennt aðild að 7 af þessum 9
innbrotum og hinir tveir menn-
irnir tepgjast málunum á víxl.
Þjófarnir höfðu yfirleitt frekar
lítið upp úr krafsinu en um er
að ræða innbrot í skrifstofuhús-
næði, veitingastaði, verslun,
vinnuskúr og bifreið.
Sviptingar í verslunarmálum á Akureyri
Amarohúsið til
sölu eða leigu
VERSLUNARHÚSNÆÐI Amaro í
Hafnarstræti á Akureyri hefur verið
auglýst til sölu eða leigu. Um er að
ræða um 900 m2 á 1. hæð, 560 m2
á 2. hæð, 140 m2 geymslurými og
rými í kjallara. Sigurður Steingríms-
son, framkvæmdastjóri Amaro, seg-
ist hafa orðið var við töluverðan
áhuga manna fyrir húsnæðinu enda
er það vel staðsett í göngugötunni.
„Menn eru að kanna möguleikana í
stöðunni og í kjölfar þess verða tekn-
ar frekari ákvarðanir."
Heildsala rekin áfram í
óbreyttri mynd
Sigurður segir að nú stefni í að
smásöluverslun Amaro leggist af í
núverandi mynd en heildsala Amaro
verður rekin áfram í óbreyttri mynd.
Öllu fastráðnu starfsfólki smásölu-
verslunar Amaro, alls 10 manns, var
sagt upp þann 1. desember sl. Upp-
sagnarfrestur er mislangur en allt
upp í 6 mánuðir.
„Það er einnig inni í myndinni að
skipta húsnæðinu upp í smærri ein-
ingar og leigja út. Nú og ef fram
kemur góður kaupandi sem þarf að
fá húsnæðið fljótt, munum við rýma
það fljótt. Við eigum hins vegar tölu-
vert mikið af vörum sem við erum
að selja,“ segir Sigurður.
í Amarohúsinu er rekin mjög fjöl-
breytt deildaskipt verslun, með bús-
áhalda-, gjafavöru-, vefnaðarvöru-,
barnafata-, dömu-, snyrtivöru-, und-
irfata- og herradeild.
Varaslökkvi-
liðsstjóri
Birgir
Finnsson
ráðinn
BIRGIR Finnsson hefur
verið ráðinn varaslökkvil-
iðsstjóri Slökkviliðs Akur-
eyrar.
Hann er fæddur árið
1967, hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum
á ísafirði árið 1988. Hann
útskrifaðist sem bruna-
tæknifræðingur frá Tekn-
iska högskolan í Lundi í
Svíþjóð árið 1996 og stund-
aði framhaldsnám við
Ráddningsskolan í Revinge.
Birgir hefur starfað í
Slökkviliði_ ísafjarðar og í
Lögreglu Ísafjarðar. Hann
hefur verið í starfsþjálfun
hjá slökkviliðinu í Malmö.
Síðasta sumar starfaði
hann við eldvarnaeftirlit,
þjálfun og fræðslu auk al-
mennra slökkviliðsstarfa
hjá Slökkviliði Akureyrar.
Sambýliskona hans er
Ólöf Björnsdóttir frá
ísafirði og eiga þau eina
dóttur.
Sýningu
lýkur
NÚ UM helgina er síðasta
sýningarhelgi Jóns Laxdals
Halldórssonar í Gallerí
Brekkugötu 35 á Akureyri.
Sýningin er innsetning og
nefnist Hugsun manns.
Gelleríið er opið frá kl.
14 til 18 laugardag og
sunnudag.
Messur
AKUREYRARKIRKJA:
Sunnudagaskóli í kirkjunni
kl. 11 á morgun. Guðsþjón-
usta kl. 14 og æskulýðs-
fundur kl. 17. Biblíulestur
í safnaðarheimili kl. 20.30.
á mánudagskvöld. Mömmu-
morgunn frá 10 til 12 á
miðvikudag.
GLERÁRKIRKJ A:
Barnasamvera í kirkjunni
kl. 11 á morgun. Guðsþjón-
usta kl. 14. Fundur æsku-
lýðsfélagsins kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHER-
INN: Sunnudagaskóli kl. 11
á morgun. Unglingaklúbbur
kl. 16 og almenn samkoma
kl. 20. Gideon kynning.
H VÍTASUNNUKIRKJ -
AN: Brauðsbrotning kl. 11
á morgun. Vakningasam-
koma kl. 14. Vonarlínan,
sími 462-1210, símsvari all-
an sólarhringinn með orð
úr ritningunni.
KAÞÓSLKA KIRKJAN:
Messa í dag, laugardag kl.
18 og á morgun kl. 11.
Herra Jóhannes Gijsen
biskup syngur messu.
ÓLAFSFJARÐAR-
KIRKJA: Guðsþjónusta á
Dvalarheimilinu Horn-
brekku kl. 11 á morgun.
Guðsþjónusta kl. 14 í kirkj-
unni. Mömmumorgunn á
miðvikudag frá kl. 10 til 12.
SJÓNARHÆÐ:
Sunnudagaskóli á morgun,
sunnudag kl. 13.30 í Lund-
arskóla. Almenn samkoma
á Sjónarhæð kl. 17.
Ástjarnarfundur á mánu-
dag kl. 18 á Sjónarhæð.
unglingafundur á föstudag
kl. 20.30 á Sjónarhæð.