Morgunblaðið - 18.01.1997, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
BILL og Camille Cosby yfirgefa heimili sitt í New York á
fimmtudagskvöld. Þau héldu til Los Angeles þar sem sonur
þeirra var myrtur.
Sonur Cosbys myrt-
ur í vopnuðu ráni
Los Angeles. Reuter.
LÖGREGLAN í Los Angeles leitar
enn morðingja sonar leikarans og
þáttahöfundarins Bills Cosbys en
hann fannst látinn við hraðbraut í
Bel Air, aðfararnótt fimmtudags.
Cosby og eiginkona hans héldu á
fimmtudag til Los Angeles og féll
niður vinna við sjónvarpsþátt Cosbys
vegna þessa. Að sögn lögreglu er
talið að um vopnað rán hafí verið
að ræða. Fjöldi þekktra manna hefur
lýst hryggð sinni og skelfmgu vegna
morðsins og sá blökkumannaleiðtog-
inn Jesse Jackson ástæðu til að
hvetja tjölmiðla til að fjaila um mál-
ið af „virðingu".
Lík Ennis Williams Cosby, sem var
27 ára, fannst við hlið Mercedes-bif-
reiðar hans en bíllinn stóð við San
Diego-hraðbrautina sem er að jafn-
aði fjölfarin. Talið er að kona sem
kom að morðstaðnum, hafi orðið vitni
að morðinu en lögregla hefur ekki
staðfest það. í The Los Angeles Ti-
mes er fullyrt að konan hafi verið
vinkona Ennis og að hann hafi beðið
hana um að koma til móts við sig.
Sprungið hafí á bíl hans, hann þurft
að skipta um dekk og þurft að fá
einhvem til að lýsa upp bílinn fyrir
sig. Er konan hafi komið að, hafi
hún séð hvítan mann skjóta Ennis.
Að sögn lögreglunnar í Los Ang-
eies er talið fullvíst að morðinginn
hafí ætlað að ræna son Cosbys. Lög-
reglan er undir miklum þrýstingi að
leysa málið en hún hefur legið undir
ámæli vegna rannsóknar og meðferð-
ar á mörgum málum, og er þá
skemmst að minnast morðsins á fyrr-
verandi eiginkonu O.J. Simpsons og
vini hennar.
Ennis Willam var eitt fímm bama
Cosby-hjónanna en auk hans eiga
þau Qórar dætur. Þau hafa dvalið í
New York að undanfömu þar sem
upptökur hafa staðið yfír á þættinum
„Cosby“. Hélt fjölskyldan til Los
Angeles á fímmtudag en ekki hefur
enn verið ákveðið hvar Ennis verður
borinn til grafar.
Ennis William var lesblindur sem
barn en tókst að yfírvinna það. Hann
lagði stund á sérkennslu við Columb-
ia-háskólann, hafði lokið meistara-
prófí og vann að doktorsritgerð sinni
er hann lést.
„Hann var hetjan mín,“ var það
eina sem Cosby sagði við fréttamenn
eftir að tilkynnt var um lát sonarins.
í yfirlýsingu sem hann sendi síðar
frá sér sagði hann fjölskylduna fínna
til af öllu hjarta með þeim fjöiskyld-
um sem hefðu upplifað það sama og
hún nú. „Þetta er lífsreynsla sem er
svo sannarlega erfítt að deiia með
öðrum,“ sagði í yfirlýsingu leikarans.
Honum og fjölskyldunni bárust
samúðarkveðjur frá fjöida frægra
leikara í Hollywood en Cosby er einn
þekktasti sjónvarps- og kvikmynda-
leikari Bandaríkjanna.
Mexíkó
205 manns deyja
af völdum kulda
Mexíkóborg. Reuter.
205 manns hafa látist af völdum
óvenju mikiila kuida í norðurhluta
Mexíkó síðustu tvo mánuði, að sögn
mexíkósku fréttastofunnar Notimex
í gær.
Þetta eru mestu kuldar á svæðinu
á þessum árstíma í þijá áratugi.
Kaldast hefur verið í þremur ríkjum
í norðurhlutanum, Chihuahua, Coa-
huila og Nuevo Leon. I Chihuahua-
ríki einu hafa 87 manns látið lífið
undanfarna tvo mánuði og 32 á síð-
astu tveimur vikum. Sumstaðar hef-
ur snjóað, sem er sjaldgæft á þessum
slóðum, og mælst hefur ailt að 20
stiga frost.
„Flestir hafa dáið af völdum of-
kælingar, en vitað er um mörg tilvik
þar sem fólk hefur dáið eftir að hafa
andað að sér koleinoxíði frá kyndi-
tækjum," sagði Oscar Martin Nacif,
yfírmaður almannavamastofnunar
Mexíkó. Koleinoxíð er baneitruð og
lyktarlaus lofttegund sem myndast
þegar kolefni brennur í ónógu súr-
efni.
Jeltsín heim eftir helgi?
Moskvu. Reuter.
VONAST er til að Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti geti haldið heim af
sjúkrahúsi í Moskvu fljótlega eftir
helgi en hann var lagður inn fyrir
hálfri annarri viku með lungnabólgu.
Að sögn Sergei Jastrzhembskí, tals-
manns forsetans er ljóst að Jeltsín
verður að vera á sjúkrahúsi um heig-
ina en hann sagði lækna hans engu
að síður bjartsýna. Viktor Tsjemo-
myrdín, forsætisráðherra Rússlands,
fullvissaði ráðamenn á Vesturlöndum
í gær um að ekki yrði horfíð frá
umbótastefnunni þótt forsetinn væri
á sjúkrasæng.
Læknar hafa ekki viljað nefna
ákveðna dagsetningu varðandi
heimferð Jeltsíns. Minna þeir á að
lungnabólga sé alvarlegs eðlis og
að sé ekki varlega farið, kunni hún
að leiða til frekari veikinda. í nýj-
ustu yfirlýsingum læknanna þykir
þó gæta aukinnar bjartsýni og þeir
segja ástand forsetans stöðugt.
Sagði Jastrzhembskí enga ástæðu
til að ætla að yfirlýsing læknanna
væri ekki á rökum reist. „Forsetinn
leggur allt kapp á að ná heilsu sem
fyrst. En ég held að það sé eðlilegt
að vonast til þess að hann sýni þolin-
mæði og gefi sjálfum sér tíma tii
að ná fullri heilsu.“.
NEYTEIMDUR
Soðningin
Þorskur og karfi ekki á
vinsældalistanum
Yerðið hefur ekki
hækkað lengi
FISKSÖLUM ber öllum saman um
að fískverð hafí staðið í stað í lang-
an tíma. Hnoðmör hefur þó hækkað
nokkuð að undanfömu. Ýsuflökin
reyndust ódýrust á Húsavík og sömu
sögu er að segja um hrognin. Fisk-
búð Siglufjarðar fylgdi fast á eftir
fískbúðinni á Húsavík.
Það er mikið að gera hjá físksölum
um þessar mundir, eftir áramótin
eru margir að breyta mataræðinu,
minnka kjötát og auka fískneyslu.
Ólafur Þór Jóhannsson hjá Fisk-
markaði Suðurnesja segir talsverða
lækkun hafa orðið á ýsu milli áranna
1994-95. Verðið hefur síðan haldist
svipað,“ segir hann. Ólafur bendir á
að línuýsan sé eftirsóttust af físksöl-
um og hún er ætíð yfír meðalverði.
Þessa dagna er slagur um línuýsu,
bæði er sóst eftir henni á Banda-
ríkjamarkað og fyrir fiskbúðimar.
„Verðið er því óvenjulega hátt um
þessar mundir.“
Ýsa í 80% tilvika
En gengur illa að selja einhveija
fisktegund?
Ragnar segist eiga erfiðast með
að skilja hversvegna fólk borði ekki
meira af þorski. „Ég held að fólk
sé hrætt við orma í honum en þorsk-
urinn fer t.d. miklu betur en ýsa í
magaveika." Þá eru físksalarnir
hissa á því hve lítil sala er í karfa
sem þeir segja herramannsmat.
Þeir segja að hann hafi verið aug-
lýstur fyrir nokkmm árum en sú
herferð hafí ekki borið árangur.
Þegar fisksalarnir eru spurðir
hvernig fólk vilji borða ýsuna sína
segir Þórður að steikt ýsa og ýsa
í tilbúnum sósum sé vinsæl. „Fólk
hefur minnkað að borða soðna ýsu
þó þeir séu auðvitað margir sem
enn borða hana svoleiðis." Hann
segir áberandi að unga fólkið vilji
fá fiskinn tilbúinn í sósum eða raspi
eða þá ýsuflakið roðdregið og bein-
laust. Þeir sem eru orðnir rosknir
vilja ýsuna sína jafnvel heila og
hausaða og biðja síður um að hún
sé roðdregin og beinhreinsuð.
Steiktar fiskbollur
og tilbúnir réttir
Ingólfur Guðjónsson hjá Fiskbúð-
inni Arnarbakka, Þórður Ólason hjá
Fiskbúðinni Sundlaugavegi og
Ragnar Hauksson hjá Fiskbúð Haf-
liða em allir sammála um að meira
sé að gera á þessum tíma árs en
alla jafna. Þeir em sammála um
að ýsan seljist best og Ragnar seg-
ir að í það minnsta 80% viðskipta-
vina sinna kaupi ýsu í matinn. Ann-
ars eru hrogn og lifur vinsæl um
þessar mundir.
Ingólfur bendir viðskiptavinum
sínum á að vefja hrognin alltaf í
plast eða álpappír svo þau springi
ekki en salta þau áður.
Fisksalar hafa í auknum mæli
komið til móts við þessar óskir ungu
viðskiptavinanna og margar físk-
búðir bjóða upp á steiktar fiskiboll-
ur, fiskfars, ýsubita í raspi, ýsu-
rétti ýmiskonar þar sem fískurinn
er í tilbúnum sósum og svo fram-
vegis. Roskna fólkið hrífst á hinn
bóginn af saltaðri grásleppu og
signum fiski þegar það hvílir sig á
venjulegu ýsunni.
IImA V n r 1 r111 rl T flrl iTT) 11 rrl
J U/J UJÁLMJJJÁJJJ il J JL/J^JJÚJDÓJJJJ , Höfuðborgarsvæðið: Ýsufiok Hrogn Lifur Saltaðar gellur Hnoð- mör
Fiskbúð Einars, Háteigsvegi 2, R 530 530 70 580 460
Fiskbúð Hafliða, Hverfisgötu 123, R 5001 500 fylgir hrognum 550 450
Fiskbúð Hallgríms Steingrímss., Rvk.vegi 3, Hf Fiskbúðin, Arnarbakka 4-6, R 515^ 520 515 520 fylgir hrognum fylgir hrognum 545 520 595 ekki til
Fiskbúðin, Freyjugötu 1, R 550 550 100 580 450/590
Fiskbúðin, Nethyl 2, R 545 545 150 590 680
Fiskbúðin, Sundlaugavegi 12, R 540 540 fylgir hrognum’ 550 600
Fiskbúðin Árbjörg, Hringbraut 119A, R 550 550 100 590 540
Fiskbúðin Hafberg, Gnoðarvogi 44, R 540 540 180 580 620
Fiskbúðin Hafrún, Skipholti 70, R 550 550 fylgir hrognum 570 650
Fiskbúðin Norðurbæ, Miðvangi 41, Hf. 495 495 200 550 ekki til
Fiskbúðin okkar, Smiðjuvegi 6, Kópavogi 480 550 fylgir hrognum 530 ekki til
Stjörnufiskbúðin, Þverholti 9, Mosfellsbæ *480 480 fylgir hrognum 510 590
Fiskbúðin Stjörnufiskur, Háaleitisbraut 58-60, R Fiskbúðin Vör, Höfðabakka 1, R 530 530 530 540 fylgir hrognum 90 550 560 640 560
Landsbyggðin: * 2 kg á 550 krónur á tilboði
Fiskbúðin, Strandgötu 11B, Akureyri 495 450 150 530 485
Fiskbúð Húsavíkur, Garðarsbraut 4A, Húsavík 345 380 150 ekki til ekki til
Fiskbúð Siglufjarðar, Aðalgötu 27, Siglufirði 380 400 fylgir hrognum ekki til 390
Fiskbúð Suðurlands, Eyrarvegi 5A, Selfossi 485 495 95 465 ekki til
Fiskbær, Hrinqbraut 94, Reykjanesbæ 510 490 100 490 500
Meðalverð: 504 508 126 547 550
Morgunblaðið/Ásdis
handleiðslu fransks ilmefnasérfræð-
ings og er fyrirtækið einn stærsti
reykelsisútflytjandi landsins. Öllum
ágóða fyrirtækisins á Indlandi er
varið til uppbyggingar í þorpinu
Edayanchavadi en íbúarnir eru um
2.500 talsins. Fyrirtækið hefur séð
um byggingu vatnsbóls, rekur heilsu-
gæslu fyrir þorpsbúa og skóla fyrir
börn. Ilmkertin, sem nú eru fáanleg
hér á landi í blóma- og gjafavöru-
verslunum, eru til í mismunandi
stærðum og með mismunandi ilmi.
Það er R. Sigurðsson og Gröndal
heildverzlun sem sér um innflutning
og dreifingu.
Gott að vita
Ilmkerti með
þurrkuðum
jurtum
Indverska fyrirtækið Auroshikha á
Suður-Indlandi hefur sérhæft sig í
sölu reykelsis og ilmkerta með þurrk-
uðum jurtum. Um sjö hundruð Ind-
veijar vinna við framleiðsluna undir
• EGG á að geyma þannig í ísskáp að mjói
endinn snúi upp. Þannig helst rauðan í miðju
egginu.
• EF hveiti og aðrar injöltegundir eru
geymdar í ísskáp tvöfaldast geymslutími
þeirra. Hvítt hveiti geymist t.d. í um eitt ár
í ísskáp, en heilhveiti og mjöl sem unnið er
úr flturíku kími geymist skemur.
• ÁSTÆÐA þess að mikilvægt er að taka
smákökur strax af bökunarplötu og setja á
grind er sú að heit bökunarplata leiðir hita
gegnum kökurnar og heldur því áfram að
baka þær þótt búið sé að taka þær úr ofnin-
um.
• ÞEGAR vandamál koma upp í bakstri er
oft auðvelt að átta sig á ástæðunum, því
einkennin eru oft hin sömu. Ef kaka verður
of þétt eða seig getur verið að deigið hafí
ekki verið nógu vel hrært, eða jafnvel að
það hafí verið of mikið hrært. Ennfremur
getur þetta stafað af því að ekki hafi verið
notuð næg lyftiefni eða nógur sykur. Ef
miðja kökunnar fellur má vera að ofn hafí
ekki verið nógu heitur, að dragsúgur hafí
komist að deiginu áður en það náði að lyfta
sér, eða að kakan hafí ekki verið bökuð
nógoi lengi, en það sést ef klesst lag er í
miðj’unni. Ef yfírborð er nyög dökkt og
miðjan klesst eru allar líkur á að of mikill
sykur hafi verið notaður, en ef klesst lag
er ofan við botnskorpuna hefur að öllum
líkindum verið notaður of mikill vökvi. Kaka
getur einnig klesst ef of mikið af lyftiefnum
eru notuð. Ef yfirborð köku er kúpt getur
verið að hrært hafi verið of lengi eða hveit-
ið hafi verið of hart og bæta þurfi glútein-
litlu eða glúteinlausu hveiti saman við það.
Of hár hiti ofnsins getur einnig valdið því
að kakan blæs upp í miðju og verður of kúpt.
• VÍN og Iíkjörar eru fyrirtaks bragðgjafar
í ís og frómas, en ekki má nota of mikið
af guðaveigunum, því frostmark vínanda er
lægra en vatns.
• BKKI þykir fínt að hafa ísnálar í ís, en
þeir sem ekki eiga ísvél þurfa að hræra
reglulega upp í ísnum sínum meðan hann
er að fijósa, til að koma í veg fyrir myndun
ísnála. Því meira vatn sem er í uppskrift-
inni, þeim mun meiri Iíkur eru á að ísnálar
myndist og því þarf að hræra oftar upp í
ís sem í er mikið af vatni.
>
í
I