Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 16

Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 16
16 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÚR VERIIMU Yfirmaður Merc- edes segir af sér íkjölfar deilna Frankfurt. Rcuter. Morgunblaðið/ Amór HÚSNÆÐIÐ við hafnarbakkan í Sandgerði mun hýsa bæði starfsemi Fiskmarkaðs Suðurnesja og Sandgerðishafnar. Fiskmarkaði Suðurnesja synjað um rekstur hafnarinnar í Sandgerði YFIRMAÐUR Mercedes-Benz, Helmut Werner, höfundur mestu stefnubreytingar í sögu fyrirtækis- ins, hefur sagt af sér eftir harðar deilur um endurskipulagningu móðurfyrirtækisins Daimler-Benz. Wemer var andvígur breyting- um, sem eiga að gera Mercedes að hluta Daimler, og bauðst til að segja af sér á fundi fjögurra æðstu manna Daimlers þegar þeir ræddu endurskipulagninguna í smáatrið- um. Vonazt hafði verið til að Werner héldi áfram störfum í hinu endur- skipulagða fyrirtæki. Sagt er að hann hafi samþykkt áætlanir um breytingarnar, en ekki séð hvernig nýja fyrirtækið gæti nýtt sér reynslu hans. „Tilboð um ný ábyrgðarstörf innan stjórnar Daimler-Benz full- nægðu ekki skilyrðum, sem hann setti fram,“ sagði í yfirlýsingu frá Daimler. Ekki lengur sjálfstæðir Samkvæmt áætlunum um endurskipulagninguna verður Mercedes ekki lengur sjálfstætt fyrirtæki, heldur hluti af Daimler- Benz með þijá fulltrúa í stjóm, fulltrúa fólksbifreiða, flutningabíla og markaðsmála. Eftirlitsstjórn Daimlers á að koma til fundar 23. janúar til að samþykkja endurskipulagninguna formlega. Þýzkir fjölmiðlar hafa fjallað ít- arlega um valdabaráttu stjómar- formanns Daimler-Benz, Júrgens Schrempps, og Werners í marga mánuði, þótt þeir hafi borið slíkar fréttir til baka. FORD hefur ákveðið að leggja niður 1300 störf í verksmiðju sinni í Halewood skammt frá Liverpool á Norðvestur-Englandi og segja þar með upp þriðja hveijum starfs- manni. Að sögn Fords verður ný út- gáfa Escort-bíla ekki smíðuð í verksmiðjunni í Halewood þegar framleiðslan hefst 1999. Smíði nýja Escortsins mun líklega fara fram í verksmiðjum Fords í Va- lencia á Spáni og Saarlouis í Þýzkalandi. Hins vegar heldur Ford opnum þeim möguleika að Halewood verði Evrópumiðstöð framleiðslu á nýjum bíl, sem í ráði er að smíða þótt endanleg ákvörðun hafi ekki verið tekin. Auk þess verður haldið áfram Mestallur hagnaður Daimlers og 70% sölunnar eru Mercedes að þakka og hefur Werner verið ein- dregið þeirrar skoðunar að fyrir- tækið eigi að vera að öllu leyti sjálf- stætt eins og hingað til. Hann var einnig sagður reiðast afskiptum móðurfyrirtækisins. Talið er að með endurskipulagn- ingunni verði Daimler-Benz Ae- rospace AG (DASA) og Debis AG sjálfstæð fyrirtæki. Með hagræð- ingunni á að flýta fyrir ákvörðun- um og fækka millistjómendum. Daimler fór að íhuga endur- skipulagninguna fyrir ári þegar í ljós kom að skipulag eignar- haldsfélagsins frá 1988 hentaði ekki lengur fyrirtæki, sem hafði orðið sífellt háðara Mercedes. Umdeildar breytingar Werner varð stjórnarformaður Mercedes í maí 1993 og stóð fyrir umdeildum breytingum á bílateg- undum fyrirtækisins. Mercedes hafði löngum verið þekkt fyrir glæsibíla sína, en fyrir atbeina Werners var hafin smíði smærri bíla, svo sem tveggja sæta A-línu og SLK sportbíla. Á þeim sex árum sem Werner var við stjórnvölinn sneri hann 800 milljóna marka tapi upp í 2.275 milljarða marka nettóhagnað þannig að Mercedes varð einhver arðbærasti bílaframleiðandi heims. Ýmsir töldu Werner stofna ímynd Mercedes í hættu með því að rýra gæði bifreiða frá fyrirtæk- inu, en aðrir héldu því fram að breytingarnar væru nauðsynlegar til að auka söluna, sem hafði lítið aukizt á helztu mörkuðum. að framleiða núverandi gerð Esc- ort í Halewood til ársins 2000. Eftir fyrirhugaðar uppsagnir verða starfsmenn verksmiðjunnar í Halewood rúmlega 3000 og hefur þeim fækkað úrn 14.000 á 30 árum. Verkamenn létu í ljós gremju þegar þeir mættu til vinnu og skelltu skuldinni á „sveigjanlega" vinnulöggjöf í Bretlandi og þá ákvörðun stjórnvalda að hætta aðild að félagsmálasamþykkt Evr- ópusambandsins, þar sem kveðið er á um vinnuskilyrði i aðildarlönd- unum. Einn leiðtoga þeirra sagði að auðveldara væri að segja upp fólki í Bretlandi en í öðrum löndum. „Við beijumst fyrir framtíð Halewood,“ sagði hann. SANDGERÐISBÆR hefur hafnað tilboði Fiskmarkaðs Suðurnesja um yfirtöku á rekstri Sandgerðishafnar. Fiskistofa telur að sveitarfélagið megi ekki framselja viktunarskyldur sínar til þriðja aðila auk þess sem bæjarstjórn Sandgerðis telur tilboð Fiskmarkaðarins vera óhagstætt. Málinu er þó ekki iokið og telja tals- menn bæjarstjómarinnar að hag- ræðing geti skapast ef Fiskmark- aðnum yrði falinn rekstur hafnar- innar. Fiskmarkaður Suðurnesja hf. og Sandgerðisbær gerðu með sér sam- komulag um að lagt yrði fram tilboð um yfírtöku á sérstökum verkþátt- um í rekstri Sandgerðishafnar þegar Sandgerðisbær hefði gert úttekt á hagkvæmni fyrirkomulagsins. Átti hér að vera um tilraunaverkefni að ræða til tveggja ára með endurskoð- unarákvæði eftir eitt ár. Tilboðið var lagt fram í desember sl. og sendu þá rekstrarráðgjafar Sandgerðisbæjar Fiskistofu tilboð Fiskmarkaðarins til álits. Fiskistofa telur að höfnin geti ekki vikið sér undan þeim skyldum sem á hana eru lagðar í lögum og viktunarreglu- gerð. í lögum um umgengni við nytjastofna sjávar segir að allur afli skuli veginn af starfsmönnum hafnarinnar og á ábyrgð þeirra sem hlotið hafa til þess löggildingu og telur Fiskistofa að vigtunarmenn sem komi upplýsingum áleiðis til Fiskistofu verði að vera starfsmenn sveitarfélagsins og því ekki megi framselja starfíð til þriðja aðila. Ennfremur telur Fiskistofa að ekki sé hægt að veita heimaviktunarleyfi í þessu tilviki. Með húsnæði í smíðum Nú er í byggingu húsnæði við höfnina í Sandgerði og standa Fisk- markaður Suðurnesja og Sandgerð- isbær í sameiningu að byggingu þess. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins felst í tilboði Fisk- markaðarins að hann yfirtæki eign- Stangast á við lög að mati Fiskistofu arhlut bæjarins í húsinu ef af samn- ingum verður, með fyrirvara um að bærinn gæti keypt hlutann á ný ef samningurinn yrði dreginn til baka. Þannig kemur höfnin til með að hafa aðstöðu sína í húsinu hvort sem Fiskmarkaðurinn kemur til með að yfirtaka rekstur hennar eða ekki. Of há þóknun Pétur Brynjarsson, forseti bæjar- stjórnar Sandgerðisbæjar, segir að tilboðinu hafi verið hafnað á ýmsum forsendum. í fyrsta lagi hafí Fisk- markaðurinn farið fram á ákveðna þóknun sem hafi þótt of há auk þess sem Fiskistofa hafi talið að viktunarþáttur yfirtökunnar stang- aðist á við lög. Pétur segir ennfrem- ur að ef af tilboðinu yrði gengið féllu biðlaunagreiðslur núverandi starfsmanna hafnarinnar á sveitar- félagið þó að þeim yrði boðin sam- bærileg staða hjá Fiskmarkaðnum. Auk þess geri lífeyrissjóðsskuld- bindingar ásamt öðru, málið mjög flókið. Spennandi kostur Pétur telur úrskurð Fiskistofu þó ekki endanlegan í málinu og segir að hugsanlega muni Sandgerðisbær leita til sjávarútvegsráðuneytisins eftir frekara áliti. „Þessu máli er að minnsta kosti ekki lokið af okkar hálfu. Eins og staðan er í dag teljum við þetta tilboð ekki vera hagstætt. Hins vegar teljum við þetta spenn- andi kost í framtíðinni. Það leiðir til hagkvæmni að bjóða þessa þjón- ustu út og fá aðila til að taka hana að sér í verktöku," segir Pétur. Sandgerðisbær hefur ekki gert Fiskmarkaði Suðurnesja gagntilboð né farið fram á viðræður vegna málsins. Pétur segir að næsta skref sveitarfélagsins verði að athuga hvort ráðuneytið sé á sama máli og Fiskistofa. Til að þetta samstarf sé möglegt þurfi væntanlega að breyta lögunum eða setja reglugerð. „En við höfum áhuga á að skoða þetta nánar því við teljum að þetta sé spennandi kostur," segir Pétur. Sparar þrjár milljónir Logi Þormóðsson, stjórnarfor- maður Fiskmarkaðs Suðurnesja, segir að samkvæmt mati sérfræð- ings sem undirbjó tilboðið að hálfu Fiskmarkaðarins, spari bæjarfélagið um þijár milljónir króna á ári með því að fela fyrirtækinu reksturinn. „Við vonumst til að geta veitt sveit- arfélaginu frjálsari fjárráð með til- boði okkar. Við höfum hins vegar ekkert gagntilboð fengið en erum að sjálfsögðu tilbúnir til að setjast niður og ræða málin.“ Logi telur að veita megi starfs- mönnum Fiskmarkaðarins undan- þágu til að vigta afla og bendir á að allir stærstu fískkaupendur landsins vikti sjálfír allan sinn físk. Mörg frystihús sem vinni físk úr eigin skipum hafi svokallað heima- viktunarleyfi. „í okkar tilboði felst auk þess aukið þjónustustig. í því felst meðal annars að vakta höfnina allan sólarhringinn sem hlýtur að vera vænn kostur fyrir bæði bátana og Fiskistofu," segir Logi. Þarf hugrekki Logi segir ekkert því til fyrirstöðu að færa reksturinn í hendur Fisk- markaðarins. Hér sé vissulega um nýja hugmynd að ræða, þetta hafi ekki verið gert áður og hugrekki þurfí til að taka ákvarðanir um slíkt. „Ef að þessu yrði væri hægt að setja upp fiskmarkaði við hveija höfn á landinu þar sem sameinuð væri starfsemi hafnarinnar og fisk- markaðar. Þetta væri hægt að gera með litlum tilkostnaði og því hag- kvæmt. Það er sorglegt ef þessi til- laga rennur út í sandinn," segir Logi. Mj ög góð loðnuveiði í nót Gremja vegna fækkana hjá Ford Halewood, Englandi. Reuter. Námskeið um skatta- lagabreytingar hjá HI ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands gengst hinn 23. jan- úar nk. kl. 16.00 fyrir námskeiði um skattalagabreytingar. Námskeiðið er einvörðungu ætlað þeim sem hafa með skatta- og fjármál fyrirtækja að gera. Kynntar verða nýlegar breytingar á lögum um tekju- og eignaskatt. Auk þess verður farið yfír helstu breytingar á öðrum lögum sem varða skatta og nokkur atriði sem tengjast framtalsgerð vegna tekjuársins 1996. Leiðbeinandi verður Ámi Tómas- son viðskiptafræðingur, löggiltur endurskoðandi hjá Löggiltum end- urskoðendum hf. og stundakennari við HÍ. Upplýsingar og skráning í símum 525 4923 og 525 4924, myndsíma 525 4080 og tölvupósti endurmr.rhi.hi.is LOÐNUVEIÐI í nót gekk mjög vel í fyrrinótt og voru loðnuskipin flest á leiðnni í land í gær með fullfermi. Loðnan fékkst á miðunum um 60 mílum austur af Hvalbak, í kantinum austur af svokölluðum Fæti. Loðnu- veiði í nót hefst nú tæpum þremur vikum fyrr en í fyrra. „Við erum á leiðinni á Neskaups- stað með rúm 1.000 tonn af loðnu,“ sagði Birgir Sigurðsson, stýrimaður á Berki NK, þegar Morgunblaðið hafði samband um borð í gær. Birg- ir sagði að aflinn hefði fengist í þremur köstum, loðnan væri stór og falleg og færi líklega öll til frysting- ar. „Það má segja að þetta sé fljúg- andi start á loðnuvertíðinni hjá okk- ur því við höfum verið á síld undnaf- Hefst þremur vik- um fyrr en í fyrra arnar vikur og settum loðnunótina um borð fyrir þennan túr. Þetta gefur góð fyrirheit um vertíðina því nótaveiðin byijaði ekki fyrr en um mánaðarmót janúar og febrúar í fyrra. Vonandi helst þessi veiði áfram en það var stór torfa á þessu svæði og reyndar voru skip að veið- um nokkru sunnar en við vorum. En það er erfitt að segja til um hvernig þetta fer því það eru mörg skip að hræra í torfunni og allir að fá góðan afla. En ég hef samt trú á að loðnan gangi upp á landgrunn- ið og fari síðan gamla rúntinn og veiðin haldist svona út febrúar," sagði Birgir. Kurteis hvalur Birgir sagði mikið af hval vera á miðunum og þeir hafi fengið einn í nótina nú í túrnum. „Þetta var stór og mikill hnúfubakur en ótta- lega kurteis greyið. Hann svamlaði í nótinni skamma stund en skellti sér síðan yfir korkinn og kvaddi með virktum án þess að valda nokkrum skaða. Hvalir geta hins- vegar valdið stórtjóni á nótinni ef bægslin festast í henni,“ sagði Birgir. Nú hafa langflest nótaskipin hafið loðnuveiðar og síldveiðin liggur því niðri í bili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.