Morgunblaðið - 18.01.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLABIÐ 1/IKII LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 25
VIIIU m
L\ m
v-^WÉIh^l^WwS'-éPW&kWí -
í bandaríska tímaritinu First er birtur
eftirfarandi listi af lögum, sem
mönnum var bent á að hlusta á til
að létta lundina:
I Will Survive
Gloria Gaynor
Respect
Aretha Franklin
All I Wanna Do
Sheryl Crow
Hold My Hand
Hootie and the Blowfish
You Learn
Alanis Morisette
Closer To Free
The BoDeans
Take It Easy
The Eagles
Girls Just Wanna Have Fun
Cyndi Lauper
Lausleg vettvangskönnun leiddi í
Ijós að fjölmörg íslensk dægurlög
virðast vel til þess fallin að gleðja
geðið þegar svo ber undir og voru
eftirtalin lög meðal þeirra sem til-
nefnd voru. Lagalisti þessi er að
sjálfsögðu birtur án ábyrgðar og
eingöngu til gamans:
Því ekki að taka lífið létt
Lúdó og Stefán
Nú er ég léttur
Geirmundur Valtýsson
Kveiktu Ijós
Snörurnar
Taktu til við að tvista
Stuðmenn
The Lucky One
Kristján Kristjánsson - KK
Hamingjan
Rúnar Júlíusson
Frelsi ég finn
Borgardætur
Fráskilin að vestan
Anna Vilhjálms
Litla flugan
Sigfús Halldórsson
Sveitaball
Ómar Ragnarsson
Tónlist getur haft mikil áhrif á líðan manna að áliti margra sérfræðinga á sviði
geðlækninga, sálarfræði og tónmennta. Sveinn Guðjónsson kynnti sér rannsóknir
á þessu sviði og virðist þar allt bera að sama brunni.
FLESTIR menn eiga sínar góðu og
slæmu stundir og sjálfsagt er eins
misjafnt og mennimir eru margir
hvernig brugðist er við hinum síðar-
nefndu. Tónlist getur þar haft mikil áhrif og
þótt undarlegt megi virðast grípa sumir til
þess ráðs að setja tregafulla tónlist á fóninn
þegar þeir eru daprir, með þeim afleiðingum
að þeir verða enn daprari. „Sad songs say so
much“ eða sorgleg lög segja svo margt, söng
Elton John á sínum tíma og eru það vissulega
orð að sönnu.
Nýlega birtist frétt í Morgunblaðinu þess
efnis að rannsóknir sýndu að bandarísk
sveitatónlist gæti leitt til þunglyndis og ör-
væntingar, samkvæmt niðurstöðum tveggja
breskra sálfræðinga. I fréttinni segir meðal
annars: „Fjölmargar rarmsóknir, sem kynnt-
ar voru á árlegri vísindaráðstefnu í Birming-
ham á Englandi sýna, að tónlist getur haft
talsverð áhrif á hegðan fólks. t einni rann-
sókn kom fram bein svörun milli sjálfsmorða
hvítra karlmanna í nokkrum bandarískum
borgum og spilunar sveitatónlistar í útvarpi.
„línudansinn" svokallaði, sem nýlega hefur
rutt sér til rúms hér á landi.
Að rífia sig upp úr
þunglgndinu- "
í nýlegu hefti bandariska tímaritsins First
er fjallað um þessi mál, þar sem sérfræðingar
hvetja menn eindregið til að hlusta fremur á
ljúf lög með jákvæðum textum til að rífa sig
upp úr þunglyndinu. í þeirri umfjöllun er að
vísu aðallega tekið mið af dægurtónlist, en þó
áréttað að sígild tónlist sé ekki síður vel til
þess fallin að láta fólki líða vel og létta lund-
ina. Fer það vitaskuld eftir tónlistarsmekk
manna og lífsViðhorfum. Sérfræðingamir
voru á einu máli um að af sígildum tónskáld-
um virðist tónlist Mozarts hafa jákvæðust
áhrif á hugafar fólks, og vitnuðu í rannsóknir
máli sínu til stuðnings.
Ef við'höldum okkur við dægurtóhlistina
benda bandarísku sérfræðingamir á þann
reginmun á hughrifum sem menn verðá fyrir
þegar hlustað er á Whitney Houston syngja
í þeim dæmum sem hér hafa verið tilgreind
er einkum gengið út frá dægurlagatextum
sem hvata jákvæðrar eða neikvæðrar hugsun-
ar. Hins vegar er það einnig staðreynd að sí-
gild tónlist, djass og aðrar textalausar tón-
smíðar hreyfa við tiiflnningum fólks með ýms-
um hætti. Sumir sérfræðingar halda því fram
að það sé einmitt laglínan, fremur en skilaboð
textanna eða minningar, sem skipti sköpum.
Því hefur einnig verið haldið fram að töfrar
suðrænnar tónlistar, svo sem í sömbu og
salza liggi í því að trumbuslátturinn sé í takt
við hjartsláttinn og því hellist yfir fólk ómót-
'stæðileg þörf til að dansa í hvert sinn er slík
tónlist heyrist. Hér skal ekkert fullyrt í þess-
um efnum en víst er að tónlist getur gagntek-
ið líkama og sál með þeim hætti að viðkom-
andi fellur í einskonar leiðslu eða dá. Og gild-
ir þá einu hvort um er að ræða tregafulla
blústónlist, sem dregur menn niður, eða
hressilega slagara sem virka sem vítamín-
sprauta frá hártoppi niður í tær. Hins vegar
er það ekki svo fráleit hugmynd að hafa ætíð
við hendina nokkrar útgáfur af lögum sem
Þessi tegund tónlistar fjallar oftar
en ekki um missi ástvina og slit
ástarsambanda."
Svo mörg voru þau
orð, en þó má benda á
að fjörug sveitatón-
list getur líka ver-
ið bráðskemmti-
leg og upp-
örvandi, ekki
síst þegar
stiginn er
„I Will Always Love You“ annars vegar og
hið hressilega lag Sheryl Crow, „All I Wanna
Do (Is Have Some Fun)“ hins vegar. I fyrr-
nefnda laginu er höfðað til þeirra þjáninga
sem óendurgoldin ást veldur, en hið síðar-
nefnda er þrungið lífsþrótti og hvatningu til
að fara út og skemmta sér ærlega. „Menn
geta rétt ímyndað sér hvort lagið sé heppi-
legra til að rífa sig upp úr eymdinni," segja
bandarísku sérfræðingarnir. Og þeir skora á
fólk að hlusta á lagið „I Will Survive" með
Gloriu Gaynor ef það finnur hjá sér hinn
minnstavott af öryggisleysi eða minnimáttar-
kennd.
Tónlist er oft tengd ákveðnum minningum
eða atburðum. Lagið sem þú vangaðir fyrst
við tilvonandi maka þinn verður alltaf „lagið
ykkar“. Lög sem mamma og pabbi, afi eða
amma, rauluðu fyrir munni sér þegar þú
varst barn geta á augabragði vakið upp sömu
tilfinningar og þá, þótt mprg ár séu liðin.
létta lundina, svona til öryggis ef svartsýnin
fer að verða of fyrirferðarmikil í sálartetr-
inu.
Vísindalegar rannsúKnir
Þótt greinin í bandaríska tímaritinu, sem
hér er vísað til, kunni að virðast yfirborðs-
kennd, enda skrifuð fyrir hinn almenna les-
anda, er hún studd vísindalegum rannsókn-
um. Og umfjöllun um slíkar rannsóknir er
víða að finna í ritum um geðlæknis- og sálar-
fræði. Má í því sambandi benda á grein í
tímaritinu Geðhjálp eftir Valgerði Jónsdótt-
ur músíkþerapista, sem útdráttur er birtur
úr hér á síðunni. I þeirri grein bendir Val-
gerður meðal annars á að mannkynssagan sé
full af forvitnilegum frásögnum og heimild-
um um lækningamátt tónlistar, sem varpa
ljósi á hugmyndir manna um tónlist og fjöl-
þætt „þerapautískt" hlutverk hennar í gegn-
um tíðina.
öðruvísi ■
m
OPIÐ í DAG LAUGARDAG FRÁ KL. 11
Stórlækkað verð á öllum
OPIÐ VIRKA DAGA
FRÁ 13:00 18:00
DALBREKKU 16. KÓPAVOGt Sfmi 5S4 6020