Morgunblaðið - 18.01.1997, Side 32

Morgunblaðið - 18.01.1997, Side 32
32 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ 4- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VERÐBOLGA OG SAMKEPPNISSTAÐA VERÐI gerðir hér óraunhæfir kjarasamningar, með meiri kauphækkunum en fyrirtækin geta staðið und- ir, mun það leiða til verðbólgu - um það er í raun ekki deilt. Nái verðbólgan sér aftur á strik mun það hafa víð- tækari áhrif en aðeins á verðskyn almennings og þróun verðlags hér á landi. Verðbólgustigið er mikilvægur þáttur í samkeppnisstöðu ríkja á heimsmarkaðnum. Ástæða þess að t.d. ríki Evrópu- sambandsins leggja mikla áherzlu á verðstöðugleika og bera sig sífellt saman í þeim efnum, jafnt innbyrðis sem við helztu keppinauta ESB, er sú að stöðugleikinn býr atvinnulífinu hagstætt samkeppnisumhverfi. Stöðugleikinn, sem ríkt hefur í íslenzku efnahagslífi undanfarin ár, hefur gert fyrirtækjum kleift að meta með nákvæmari hætti en áður hvað aðföng framleiðslunnar kosta og hvernig tekst að nýta þau. Forsendur til að gera áætlanir fram í tímann og vinna skipulega að því að nýta framleiðsluþættina sífellt betur eru því allt aðrar en fyrr. Þetta er forsenda þess að hægt sé að auka framleiðni í fyrirtækjunum og stuðla þannig að hærri launum fyrir styttri vinnutíma, en það er markmið sem bæði verkalýðs- hreyfing og vinnuveitendur hafa lýst stuðningi við, enda um hagsmuni beggja að ræða. í Morgunblaðinu á fimmtudag kom fram að verðbólga á íslandi væri lítið eitt meiri en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins, sem eru á meðal helztu samkeppnis- landa okkar. Þrátt fyrir ágætan árangur hér á landi var verðbólga meiri en á íslandi í aðeins fjórum ríkjum Evr- ópska efnahagssvæðisins á síðastliðnu ári. ísland þarf að stefna að því að verðbólgan verði minni en hjá þessum keppinautum - það væri glapræði að sleppa af henni böndunum og skaða þar með samkeppnisstöðu íslenzks atvinnulífs og kjör íslenzkra launþega. ATVINNU- OG FÉLAGAFRELSI BREYTING á rekstrarformi Pósts og síma leiðir til þess að fyrirtækið færist úr opinberum geira yfir á almennan markað. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og fleiri launþegafélög gera kröfur til þess að nýir starfs- menn Pósts og síma verði aðilar að félögum innan ASÍ, m.a. með tilvísun í forgangsréttarákvæði til vinnu í kjara- samningum. Á sama tíma standa félög póstmanna og síma- manna á kröfum um forgang eigin félagsmanna til vinnu hjá fyrirtækinu. Þessi skoðanaágreiningur vekur upp spurningu um, hvort þessi einkaréttur tiltekinna verka- lýðsfélaga á vinnumarkaði stríði ekki gegn ákvæðum laga og nútíma viðhorfum um atvinnu- og félagafrelsi. Er það réttlætanlegt að hægt sé að útiloka þjóðfélags- þegn, sem kýs af einhverjum ástæðum að standa utan tiltekinna félaga, frá vinnu sem hann hefur hæfni og menntun til að sinna? Eiga ekki allir þjóðfélagsþegnar að hafa sama rétt til þess að sjá sér og sínum farborða í íslenzku samfélagi? Öll rök hníga að því að tryggja í lög- um að ekki sé hægt að semja einstaklinga út af vinnumark- aði með þeim hætti sem úrelt en gildandi samningsá- kvæði gera ráð fyrir. LÓÐ Á VOGARSKÁL UMHVERFISVERNDAR SORPA og Mjólkursamsalan hafa nú tekið höndum sam- an um endurvinnslu pappaferna undan mjólk, safa og graut, en hingað til hefur ekki verið tekið við fernum til endurvinnslu, þótt þær séu fyrirferðarmiklar í sorpi flestra íslenzkra heimila. Nú verður hægt að nota plastið úr fernunum til orkuframleiðslu og nýta álið og pappírinn að nýju. Enginn aukakostnaður á að fyigja þessari endur- vinnslu. íslendingar eru orðnir vanir að flokka sorp heimilisins og koma t.d. drykkjarílátum og dagblöðum í endur- vinnslu. Full ástæða er til að hvetja öll heimili á landinu til að leggja sitt lóð á vogarskálar umhverfisverndar og stuðla að betri nýtingu auðlinda jarðar með því að skila pappafernunum samvizkusamlega til endurvinnslu. Sjálfvirkni og mikil afköst ráða úrslitum í nýjasta frystihúsi landsmanna, sem nú er verið að taka í notkun í Neskaupstað „Erum að fjárfesta til framtíðar“ STOLT, ánægja og þreyta skein út úr andlitum þeirra manna, sem lagst hafa á eitt undan- farna þijá mánuði við að koma einni fullkomnustu vinnslustöð í loðnu og síld upp á Neskaupstað, þegar forsvarsmenn Síldarvinnslunn- ar hf. blésu til reisugillis í tilefni af verklokum. Fyrsti loðnufarmurinn var keyrður í gegnum nýju verksmiðjuna til prufu sl. fimmtudag með ágætum árangri. Næstu dagar fara í ýmsar minniháttar lagfæringar og fínstill- ingar tækja og tóla, en þess er vænst að loðnufrysting í húsinu verði komin á fullan skrið um mánaðamótin. „Mér líður mjög vel á þessum tíma- mótum, enda hef ég sofið vært þrátt fyrir allt þetta umstang. Hingað til hafa öll þau vandamál, sem upp hafa komið, verið leysanleg og stefnt er að því að 30. janúar nk. verði prófun- arferlinu að fullu lokið og þá verði formleg afhending á verkinu. Miðað við hversu vel allt annað hefur stað- ist, trúi ég að það standist Iíka. Með þessu erum við að fjárfesta til framtíð- ar. Nú erum við að byggja upp á hafnarsvæðinu, þar sem við höfum hugsað okkur að vera næstu áratug- ina, enda var ljóst að ráðast hefði þurft í gífurlega fjárfestingu til að koma gamla frystihúsinu, sem orðið er 50 ára, í viðunandi horf,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. Áætlað er að heildarkostnaðurinn við framkvæmdirnar nemi 640 millj- ónum króna, sem fjármagnað er með í Mönnum ber saman um að sá fjölmenni hópur manná, sem komið hefur að byggingu nýs frystihúss fyrir Síldár- vinnsluna hf. á Neskaupstað, sem eykur frystigetuna sexfalt, úr 60 tonnum á sólarhring í 360 tonn, hafí j unnið þrekvirki á mettíma. Húsið er búið þeim nýjastá tækjabúnaði og sjálfvirkni sem hugsast getur í vinnslu loðnu o g síldar og er flestur hugbúnaður þar innan dyra alíslenskur. Jóhanna Ingvarsdóttir fór austur, skoðaði nýja frystihúsið og fylgdist með prufukeyrslu. 360 milljóna króna láni til sextán ára og 280 milljóna króna eigin fé, þar af 200 milljóna kr. söluhagnaði af hlutabréfum í Hraðfrystihúsi Eski- fjarðar, en að sögn Finnboga keypti Síldarvinnslan bréf í HE fyrir fimmtán mánuðum fyrir 90 milljónir króna sem í dag eru orðnar 340 milljónir. „Við vorum á þessum tíma með peninga milli handanna sem við ætl- uðum að ávaxta, jafnvel fram í tim- ann, og þar sem að Hraðfrystihús Eskifjarðar er nálægt okkur og við höfum álit á því fyrirtæki, ákváðum við að fjárfesta í því. Það sýndi sig að við veðjuðum rétt.“ Allt tilbúið á þremur mánuðum Bygging frystihúss Síldarvinnsl- unnar, sem telur alls um fimm þús- und fermetra, þykir nokkrum tíðind- um sæta, þar sem að hérlendis hefur ekki verið byggt nýtt frystihús í hálf- an annan áratug. Hjá Síldarvinnsl- unni var formlega tekin ákvörðun um bygginguna í byrjun ágúst sl. Hafist var handa við grunninn í byijun októ- ber og byggingarframkvæmdir hó- fust 10. október sl. Húsið telur um fimm þúsund fermetra og er aðallega hugsað sem vinnslustöð fyrir loðnu og síld, en i húsinu er einnig vinns- lusalur fyrir bolfisk þar sem áætlað er að hefja starfsemi innan tveggja ára. Síldarvinnslan bauð verkið ekki út, heldur ákvað að fara þá leið að semja sérstaklega við hvern og einn verk- taka, sem komið hafa að verkinp, en alls eru verktakarnir um þrjátíu ;tals- ins, en aðalverktakinn er Istak. Sjálft húsið var flutt í einingum inn frá Bretlandi, en allur tæknibúnaðurinn, sem felur í sér mikla sjálfvirkni, er að mestu leyti íslenskur. Tveggja vikna seinkun vegna efnistafa Þorvaldur Ámason, verkefnisstjóri í Neskaupstað fyrir hönd Istaks, segir verkið hafa gengið hreint ótrúlega vel þrátt fyrir tveggja vikna seinkun á afhendingu efnis frá Bretlandi sem fara átti í húsið sjálft. Menn hafí hins- vegar unnið upp þá seinkun með glæsibrag. „Við höfum alltaf trú á því að þau verkefni, sem við tökum að okkur, standist. Annars værum við ekkert í þessu. Mitt hlutverk er að stjórna verkinu, sjá til þess að allar áætlanir standist og allir undirverk- takar komi inn á réttum tímurn." Þegar Þorvaldur er spurður hvernig standi á því að hægt sé að vinna því- líkt verk á slíkum mettíma, svarar hann því til að fyrst og fremst hafí góðir starfsmenn og góður starfsandi ráðið ríkjum svo og góð samvinna milli verkkaupa og verktaka og verk- taka á milli. „Allir á svæðinu hafa gert sitt ýtrasta til að allt megi ganga upp og það held ég að sé lykillinn í þessu. Það hefur hinsvegar verið mjög erfíð tíð, stöðugt frost nánast frá því í október, sem er ekki heppilegt á byggingartíma. Þrátt fyrir það hafa allir gert sitt ýtrasta til að þetta gengi upp.“ Nauðsynlegur stuðningur við framþróun í iðnaði Að mati Finnboga eru íslensk fyr- Morgunblaðið/Golli HAFIST var handa við byggingu nýja frystihússins í Neskaupstað 10. október sl. Stefnt er að þvi að full vinnsla hefjist um mánaðamótin. eyringur, hefur verið framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar í tíu ár og á þeim tíma hafa orðið mikil stakka- skipti hjá fyrirtækinu til hins betra. Síldarvinnslan í Neskaupstað á 40 ára starfsafmæli á þessu ári. Fyrirtækið var sett á Opna tilboðsmarkaðinn árið 1990 og á Verðbréfaþingið 1993. Tæplega 500 hluthafar eru í Síldar- vinnslunni og er núverandi gengi hlutabréfa um 12. Fyrirtækið hefur um tólf þúsund þorskígildi og gerir út fimm skip: rækjufrystiskipið Blæng, ísfisktog- arann Bjart, frystitogarann Barða, fjölveiðiskipið Beiti, sem gerður er út á loðnu um þessar mundir og síldar- og loðnuskipið Börk. Eins og gefur að skilja er fyrirtækið langstærsti vinnuveitandinn í Neskaupstað, með um 360 starfsmenn.„Ég þakka fyrst og fremst mjög hæfu starfsfólki til lands og sjávar velgengnina á undan- förnum árum og í öðru lagi höfum við hitt á réttar ákvarðanir í því sem við erum að gera hveiju sinni.“ „VIÐ hefðum aldrei farið út í þessar framkvæmdir ef hér væri bullandi verðbólga," segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Síld- arvinnslunnar hf. í Neskaupstað. irtæki mjög vel samkeppnishæf í verði og gæðum og í reynd gæti svona hópur innt af hendi hliðstæð verkefni hvar sem er í heiminum. „Ef íslenskur sjávarútvegur reynir ekki að nýta sér það mikla íslenska hugvit, sem til er í landinu, verður engin framþróun. Það segir sig sjálft. Við viljum því reyna að nota íslensk iðnfyrirtæki, eins og við mögulega getum, ef þau geta boðið lausnir á samkeppnishæfu verði, því þá verða þau ennþá sterk- ari og samkeppnisfærari í framtíð- inni. Þar með erum við að byggja upp aðra atvinnustarfsemi í landinu og sköpum ný störf í kringum hana. Ég hafði auðvitað mikla trú á því að þetta myndi ganga upp fyrir samningagerð- ina, en eftir að hafa séð þetta rísa og orðið vitni að náinni samvinnu allra þessara sérfræðinga, hef ég fengið enn meiri trú á íslensku atvinnulífi, íslensk- um iðnaðarmönnum og hugviti sem þama hefur verið saman komið.“ Höfum hitt á réttar ákvarðanir Finnbogi, sem sjálfur er Akur- Hátt í 50% af tekjum Loðnuveiðar og -vinnsla vega mjög þungt í starfsemi Síldarvinnslunnar og hefur verið að aukast upp á síðkast- ið fremur en hitt, en að sögn Finn- boga eru loðnuveiðar, framleiðsla á mjöli og lýsi og loðnufrysting hátt í 50% af tekjum Síldarvinnslunnar. Aðrar tekjur eru af bolfiskveiðum og vinnslu og rækjuvinnslu á sjó. ,< „Það var toppár i loðnunni fyrra, bæði í magni og verði, og við getum gert ráð fyrir að það verði toppár í magni í ár og vonandi í verði, en það er ekkert gefíð. I þessu eru miklar sveiflur, en í okkar áætlunum fyrir nýja frystihúsið höfum við gert ráð fyrir umtalsverðri verðlækkun á Jap- ansmarkaði. Eftir því sem magnið eykst, er það vitað að verðið lækkar, enda erum við að hluta til að búa okkur undir lækkandi verð með þeirri sjálfvirkni, sem hér er gert ráð fyrir, svo við getum verið betur samkeppnis- færir í framleiðslu á loðnuafurðum é» Japan og aðra markaði, sem greiða miklu lægra verð fyrir loðnu en Japan- ir hafa gert á undanförnum árurn." Fjórðungiir árstekna loðnusjómanna í febrúar Finnbogi segir að hugsanleg verk- föll yrðu mjög slæm fyrir byggðarlög, sem byggja mikið á loðnuveiðum og vinnslu. „Það yrði auðvitað mjög slæmt ef til verkfalla kæmi, ekki bara fyrir fyrirtækið, heldur líka fyrir fólk- ið, sem vinnur í landi og úti á sjó. Loðnusjómenn eru kannski að taka um fjórðung af sínum árstekjum í febrúarmánuði, sem þýðir að mánað- arlangt verkfall hjá þeim væri á við þriggja mánaða verkfall fyrir aðra vinnandi menn. Ég trúi því ekki að til verkfalla muni koma. Menn verða að skynja það að það verður að leysa málin án þeirra, enda má ekki raska því efna- hagsjafnvægi, sem hér hefur ríkt und- anfarin ár. Ég vona að flest allir geri sér grein fyrir því hversu mikilvægt það er að hér sé stöðugt efnahagslíf og lítil verðbólga. Við hefðum aldrei farið út í þessar framkvæmdir ef hér hefði verið bullandi verðbólga á und- anfömum árum. Þetta er eitthvað, sem hefur gildi fyrir framtíðina getur skapað grunn fyrir hærri laun- um í framtíðinni, en það verður ekki tekið fyrirfram. Það verður að taka þetta í þrepum." Morgunblaðið/Golli JÓHANNES Pálsson, framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Hönnunar og ráðgjafar á Reyðar- firði, og Svanbjörn Stefánsson, framleiðslusljóri Síldarvinnslunnar hf. BJARNI Sigurðsson, framleiðslustjóri Formax, Þorvaldur Árnason, verkefnisstjóri ístaks, og Þorvaldur Pétursson, verkefnisstjóri MEKA. JÓNATAN S. Svavarsson, framkvæmdastjóri kælismiðjunnar Frosts. UM 150-200 manns hafa unnið við byggingu og uppsetningu tækjabún- aðar í nýju frystihúsi Sildarvinnslunnar hf. í Neskaup- stað síðustu daga, vikur og mán- uði. Langflestir eru aðkomumenn frá fjölmörgum fyrirtækjum vítt og breitt um landið sem unnið hafa eins og einn maður við að koma stöðinni upp svo hún geti orðið klár í slaginn fyrir Japanstímann svo- kallaða, sem er um þriggja vikna timabil í febrúar og byijun mars. Eftir miklu er að slægjast þar sem að Síldarvinnslan eygir nú von i allt að 30 milljóna króna verðmæti á sólarhring þá fáu daga á ári sem fryst er á Japansmarkað og það á fullum afköstum. Grípa hefur þurft til töluverðrar skipulagshæfni til að koma öllum mannskapnum fyrir i plássinu þá þijá mánuði sem framkvæmdir hafa staðið yfir enda hótelrými af skornum skammti, en með góðra manna hjálp, hefur það tekist far- sællega. I samtali Morgunblaðsins við nokkra starfsmenn, kváðust þeir engan tíma hafa haft til þess að líta upp frá vinnunni. Hálfgert vertíðarástand haf i ríkt og þar af leiðandi hafi menn ekkert getað málað bæinn rauðan enda varla þörf á þar sem að hann væri nokk- uð rauðleitur fyrir. Helstu undirverktakar Istaks sem sjá um vélahlutann eru fjórir. Kælismiðjan Frost sér um allt frystikerfið. Formax sér um hleðslukerfi fyrir frysta. Verk- fræðistofan MEKA sér um hráefn- istanka, löndunar- og skotkerfi, pökkunar- og rúllubrautakerfi og Samey sér um allt rafmagn og stýr- ingar. Að auki er fjöldi smærri undirverktaka sem komið hafa að húsbyggingunni sjálfri. Marel hf. og Þorgeir og Ellert hf. eru saman með ákveðinn vél- og tæknibúnað sem lýtur að pökkunarlínum og frá Style í Kópavogi voru keyptir ís- lenskir síldar- og loðnuflokkarar sem getið hafa sér gott orð víða. Aldrei unnið svo flókið verk „Okkar hlutverk hefur verið að hanna burðarvirki hússins og að- stoða við áætlana- og samninga- gerð. Auk þess höfum við haft með höndum verkumsjón fyrir hönd Síldarvinnslunnar og eftirlit á verktíma," segir Jóhannes Pálsson, framkvæmdastjóri verkfræðistof- unnar Hönnunar og ráðgjafar hf. á Reyðarfirði. Það fyrirtæki er sjö ára gamalt, reyndar stofnað á Enginn tími til að mála bæinn rauðan gönilum grunni frá Verkfræðistof- unni Hönnun í Reykjavík og eru starfsmenn um sextán talsins, þar af hafa sjö þeirra unnið beint við nýbygginguna í Neskaupstað. „Verkið hefur gengið mjög vel enda hefur þetta verið mikil vinna, en það má segja að á tímum hafi þurft að taka verulega á til þess að veita mönnum aðhald, bæði verktökum og öðrum þeim, sem að verkinu hafa komið. Það hefur auðvitað, eins og gefur að skilja í svo miklu risaverkefni sem raun ber vitni, fullt af vandamálum ver- ið að koma upp, en þau hafa bara verið leyst jafnóðum og það hefur verið mjög gott kerfi á því og hef- ur upplýsingaflæðið gengið mjög vel milli aðila. Ég held að aldrei hafi verið unnið svona flókið verk- efni áður á svo skömmum tima. Aftur á móti voru menn alveg harðákveðnir í því að vinna mark- visst að því að þetta skyldi klárast um miðjan janúar. Þetta sýnir okk- ur að það er lítið mál að byggja stóriðju á borð við þessa hér á landi. ÖIl kerfishönnunin, uppbygging verksmiðjunnar og vinnslulínurnar er islenskt, en dælukerfið, sem er neðanjarðar og dælir hráefninu frá skipi inn í tankana og þaðan inn í verksmiðjuna, er norskt. Hins veg- ar er það íslenskt hugvit, sem still- ir þessu upp,“ segir Jóhannes. Ævintýri Hkast Á vegum Kælismiðjunnar Frosts hafa verið 25-30 manns í Neskaup- stað þegar mest hefur verið og var hægt að kveikja á frystikerfinu degi fyrir áætlaðan tíma þó ýmis frágangur sé eftir. Jónatan S. Sva- varsson framkvæmdastjóri segir þennan tíma hafa verið ævintýri líkastan. „Þegar við byrjuðum vissu menn að það væri mjög skammur tími til stefnu. Þeir einsettu sér að láta hlutina ganga upp og það hefur allt gengið samkvæmt því hjá þess- um samstarfshópi, sem leiddur hef- ur verið af Istaki. Þessi hópur er orðinn nokkuð samfléttaður þar sem að hluti af honum vann saman þjá Eimskip í Sundafrost. Við höfum trú á því sem við erum að gera. Finnbogi trúði okkur og með það traust, sem okkur var sýnt, fórum við að stað,“ segir Jónatan aðspurður um ástæður þess að ís- lensk fyrirtæki ráði við það risa- verkefni, sem nú sé orðið að veru- leika í Neskaupstað. Jónatan segir að töluvert mikið af þeim tækjabúnaði, sem Frost leggur af mörkum, sé íslensk smíði, en hluti sé frá frysti- og kælifyrir- tækinu Sabro í Danmörku og plötu- frystar hafi verið hannaðir i sam- vinnu við ABB á Ítalíu. ísvélar eru á hinn bóginn eigin framleiðsla Frosts svo og þrýstikútar, en röku- og skömmtunarkerfi er frá Banda- ríkjunum. Hjá Frost hf., sem stofn- að var fyrir þremur árum, starfa um 60 starfsmenn og eru hluthafar jafnframt um 60. „Það er greinilegt að fylgst er vel með málum hér fyrir austan, bæði innanlands og utan, og ég trúi því að þegar reynsla verður komin á þetta, þá muni eftirspurnin enn eiga eftir að aukast ," segir Jónatan, en er- lendis hefur Frost m.a. verið að setja upp frystikerfi í Chile og Namibíu. „Tækifærin eru alls stað- ar. Menn þurfa bara að læra að ganga áður en þeir fara að hlaupa í stað þess að gösla af stað út í heim og fara svo á hausinn með glans.“ Sjálfvirkt innmötunarkerfi „Okkar hlutverk var að smíða innmötunarbúnaðinn, sem er hleðslukerfi fyrir frysta og færi- bönd, sem flytja pönnurnar í hrin- grás frá áfyllingunni að innmötun- arbúnaðinum. Þetta er mjög flók- inn, tölvukeyrður búnaður sem hleður í frystana. Við smíðuðum búnaðinn og prófuðum hann fyrir sunnan, fluttum hann síðan austur og settum saman á staðnum, en það hefur verið mikil vinna í samsetn- ingu og uppstillingu," segir Bjarni Sigurðsson, framleiðslustjóri og einn eigenda Formax. Bjarni segir þetta vera 85-90% nýja hönnun sem ekki hafi verið gerð áður. „Okkar hluti var að hanna kerfi, sem hleður pönnunum inn í tæki og þessi búnaður, sem við erum að selja Síldarvinnslunni, var aðeins á hugmyndastigi þegar komið var að máli við okkur. Þessi hönnun hefur tekið ótrúlega stutt- an tíma. Við byijuðum að hugsa um þetta á miðju síðasta sumri enda búið að vinna í hönnuninni sólarhringunum saman. Þetta er búið að vera mjög spennandi verk- efni og ekki hægt nema fyrir til- stilli toppiðnaðarmanna. Menn eru búnir að fórna öllum sínum helg- arfríum og mega nú vera stoltir af því að hafa hannað svona alís- lenska vöru. Við erum forsvars- mönnum Síldarvinnslunnar mjög þakklátir fyrir að hafa veðjað á okkur og gefið okkur tækifæri á að framleiða svona græju. Þetta hefur verið okkur geysileg lyfti- stöng.“ ís dælt beint upp í löndunartanka „Við höfum séð um að setja upp löndunarkerfi frá höfninni og upp í þar til gerðra löndunartanka, en það er nýjung að loðnunni sé dælt beint upp i kælda löndunartanka. Is er dælt í þá frá nýrri ísstöð, sem verið er að reisa, hann síðan bland- aður vatni. Um er að ræða hráefn- istanka fyrir vinnsluna og síðan er dælt úr þeim beint inn á loðnu- flokkarana," segir Þorvaidur Pét- ursson, verkefnisstjóri hjá MEKA. Auk löndunarkerfisins, sér MEKA um uppsetningu bretta- kerfis, sem staflar afurðunum á bretti og færir inn í frystiklefann. Einnig hefur fyrirtækið haft um- sjón með uppsetningu svokallaðs hleypikerfis, sem safnar úrgang- inum saman af gólfunum, hleypir honum eftir rennum, skilur vatnið að og skýtur úrkastinu í gegnum 160 millímetra loftlögn um fjögur hundruð metra leið út í bræðsl- una. Um þetta skotkerfi er hægt að flytja allt að eitt tonn á mínútu af úrkasti eða um 1.200 tonnum á sólarhring þegar mest er um að vera. Þorvaldur segir að svipuð kerfi hafi verið sett upp hjá Granda og Árnesi og séu þau mjög sparandi til lengdar. „Ég er viss um það að það hefði verið erfitt að koma þessu verk- efni heim og saman ef ekki hefðu verið íslensk fyrirtæki, sem staðið hefðu fyrir þessu. Það hefði verið ansi erfitt að halda utan um þetta ef þeirra hefði ekki notið við. Is- tak hefur verið mjög gott fyrir- tæki að vinna með enda bæti öflugt fyrirtæki og góður stjórn- andi. Það hefur haldið vel utan um þetta enda reynt í verkefna- stjórnun af ýmsu tagi,“ segir Þor- valdur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.