Morgunblaðið - 18.01.1997, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 18.01.1997, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ + Þuríður Guð- mundsdóttir fæddist á Ketils- stöðum í Mýrdal 15. júni 1910. Hún lést á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík, 4. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Rann- veig Guðmunds- dóttir, f. 2.10. 1872, " * d. 30.7. 1956, og Guðmundur Guð- mundsson, f. 18.8. 1867, d. 10.3. 1964. Systkini Þuríðar voru: Friðbjartur Matthías, f. 1895, látinn, Þórarinn, f. 1896, Iátinn, Kjartan, f. 1898, látinn, Jón, f. 1899, látinn, Siglín, f. 1901, látin, Snorri, f. 1902, lát- inn, Kristín Filippía, f. 1903, látin, Sigurfinnur, f. 1906, lát- inn, Guðbjörg María, f. 1908, látin, Bergþóra, f. 1912, búsett í Vestri-Pétursey í Mýrdal, og Ólöf Sóley, f. 1912, látin. Þuríð- ur ólst upp hjá foreldrum sín- um, fyrst á Ketilsstöðum og síð- ar á Brekkum í sömu sveit, fyr- ir utan að á árunum 1914-1916 var hún tökubarn hjá Þuríði „Kvölda tekur, sest er sól.“ Nú er Þura dáin, síðust af fjöl- skyldunni sem flutti í kjallarann til okkar vorið 1959. Þau höfðu búið á Brekkum í Mýrdal og var Þura bú- stýra þeirra bræðra, Kjartans og Matthíasar. Þeir höfðu ákveðið að bregða búi sökum aldurs og lasleika og flytjast á mölina. Með þeim flutti “innig faðir þeirra, Guðmundur, kominn á tíræðisaldur. Þama eignuðumst við trygga og góða nágranna. Þær eru ljúfar bem- skuminningar okkar systkinanna, að hafa fengið að alast upp með þessu fólki, sem auðvitað týndi tölunni, eftir því sem árin liðu. Þau tóku okkur bömunum vel og vildu allt fyrir okkur gera. Guðmundur gamli Jónsdóttur og Gísla Þórarinssyni á Ket- ilsstöðum. A yngri árum réð Þuríður sig öðru hvoru tíma- bundið i vist á heim- ilum, bæði í Vest- mannaeyjum og í Reykjavík. Frá því um 1930 til 1959 var hún bústýra á Brekkum, hjá Kjart- ani bróður sinum. Vorið 1959 brugðu þau búi og fluttust til Víkur í Mýrdal, ásamt Matthiasi bróður sínum og Guðmundi, föður þeirra systkina. Upp frá því hélt hún heimili með þeim, meðan þeir lifðu. Eftir að hún kom til Víkur, vann hún í slát- urtiðinni á haustin í mörg ár. Einnig starfaði hún í nokkur ár á pijóna- og saumastofunni Kötlu. Þegar dvalarheimilið Hjallatún í Vík hóf starfsemi árið 1989, varð hún einn af fyrstu vistmönnum þess. Útför Þuríðar verður gerð frá Skeiðflatarkirkju í Mýrdal í dag og hefst athöfnin klukkan 14. tálgaði karla og hesta úr tré og gaf okkur. Það voru hin fágætustu gull. Matti keypti leikföng, sem við mátt- um leika okkur að, þó með því skil- yrði, að við gengjum frá öllu á sinn stað að leik loknum. Reykjalund- arkubbamir hans voru framúrstefnu- leikföng og uppspretta margra hug- mynda. Þura var okkur ævinlega eins og amma. Alltaf gátum við leitað til hennar og fyrir kom, að við vorum hjá henni í vist, ef foreldrar okkar fóru burt. Hún var okkur sem besti uppalandi og var þó aldrei hækkaður rómurinn. Allt var sagt af sömu blíð- unni en þó fylgt eftir. Það fór heldur ekki mikið fyrir henni Þuru. Hún var frekar til baka MINNINGAR við fyrstu kynni og hleypti ekki of nærri sér, tók sinn tíma til að kynn- ast fólki og mynda sér skoðanir á þvi. En raungóð var hún og trygg þeim sem hún tók. Þura var vel verki farin, hvort heldur var til sauma- eða pijónaskap- ar eða annarra heimilisverka. Oft nutum við þess í nýjum flíkum, sem hún rétti að okkur. Eins tók hún oft að sér viðgerðir á fötum fyrir fólk úti í bæ. Fyrir kom, á þeim árum þegar faðir okkar var með sauðfé sér til ánægju, að hann leitaði aðstoðar Þuru, einkum ef ær áttu erfitt með burð. Hún kunni réttu handtökin og framkomu við málleysingjana. Þá þótti henni sjálfsagt að leggja lið í fýlavertíðinni og sá hún alfarið um innanþrifin. Það var venjan, að fjölskyldan úr kjallaranum væri með okkur á að- fangadagskvöld. Síðan á gamlárs- kvöld endurguldu þau boðið og eru hlaðborðin hjá Þuru þá með því myndarlegasta og þjóðlegasta sem við höfum upplifað. Á sínum yngri árum réð Þura sig stundum sem vinnukonu í Reykjavík. Var það oft á heimilum, þar sem mannmargt var og kynntist hún því mörgu fólki, sem hélt við hana tryggð æ síðan. Hafði hún gaman af að segja okkur frá þessu tímabili í lífí sínu og því fólki, sem hún umgekkst á þessum árum. Margt af því var vel kunnugt úr þjóðlífinu á þeim tíma, en annað var eitt af þessum kynlegu kvistum. Ekki er okkur grunlaust um, að hugur hennar hafi staðið til þess að flytjast til Reykjavíkur, þegar þau fluttu úr sveitinni. En vafalítið hefur henni þótt það standa skyldu sinni nær að fylgja þeim feðgum þangað, sem þeir vildu eyða sínu ævikveldi, enda annaðist hún þá alla af stakri umhyggju, þegar kraftar þeirra tóku að þverra og dvaldi m.a. lengi í Reykjavík við dánarbeð Matta bróður síns. Eftir því sem Þura eltist, fór að bera meira á kvíða hjá henni fyrir ýmsum hlutum, sem hún áður ekki vílaði fyrir sér að takast á við. Henni lét illa að vera ein heima og sérstak- lega ef veður voru slæm. Því var það, að þegar dvalarheimilið Hjalla- tún í Vík var opnað árið 1989, varð hún einn af fyrstu vistmönnum þess. Þetta var hennar ósk, þó í sjálfu sér hafí hún enn verið fær um að sjá um sig sjálf. Henni líkaði vel dvölin þar og létti oft undir við eldhússtörf- in. Að leiðarlokum viljum við systk- inin þakka Þuru og hennar fjölskyldu allri fyrir allt sem þau gáfu okkur. Flest af því hefur komið okkur að góðum notum í lífinu. Brynja, Hafsteinn, Brandur og Margrét Steinunn. Heyr himnasmiður, hvers skáldið biður. Komi mjúk til mín miskunnin þín. (Kolbeinn Tumason.) Með örfáum orðum vil ég minnast Þuríðar Guðmundsdóttur þó ég viti fullvel að lofræður voru henni ekki að skapi. Þuríður giftist ekki og átti ekki börn en alla ævi hlúði hún að annarra börnum sem óvíða áttu betra atlæti. Aldraða foreldra sína og bræður annaðist hún og hjúkraði til þeirra hinstu stundar. Þetta er í hnotskurn lífsstarf Þuríðar eins og svo margra alþýðukvenna bæði fyrr og síðar. Eg kynnist Þuríði fyrir meira en fjörtíu árum. Þá stóð hún fyrir búi foreldra sinna á Brekkum í Mýrdal ásamt bræðrum sínum, Kjartani og Matthíasi. Ekki mun búið hafa verið stórt en vel var fyr- ir öllu séð. Þar átti hver hlutur sinn stað og ákaflega vel var um allt gengið. Þuríður var afburða vel verki farin og hreinlát svo eftir var tekið. Hvergi hef ég séð eins vel verkuð svið né þvegnar kartöflur og á Brekkum. Bræðurnir voru líka mikil snyrtimenni og sérstaklega var Kjartan natinn við skepnur og átti góða reiðhesta. Guðmundur faðir þeirra, sem börnin mín kölluðu afa með skeggið, var mikill hagleiks- maður. Hann smíðaði og gerði við búshluti og amboð heimilisins og nágranna. Á Brekkum var tvílyft steinhús, byggt á stríðsárunum, að mestu leyti heimagert, ef svo má að orði komast. Þar kom verklagni bræðranna og dugnaður sum- arstrákanna sér vel. Bærinn stendur hátt í brekku og er útsýni afar fag- urt, í norðri gnæfir Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull fjær en í suðri er Dyrhólaey, sú náttúruperla. Þeg- ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR ar systkinin brugðu búi fluttu þau til Víkur þar sem bræðurnir stund- uðu vegavinnu og fleiri störf en Þuríður sá um heimilið sem fyrr. Þar hjúkraði hún föður sínum, eins og fyrr segir, þar til yfir lauk en hann andaðist í hárri elli, varð 97 ára. Bræðurna annaðist hún eins og kraftar leyfðu. Eftir lát Kjartans flutti hún á Dvalarheimili aldraðra í Vík og þar andaðist hún 4. janúar s.l. Það er lán að eiga góða granna og lánsöm var Þuríður og fjölskylda hennar þegar þau fluttu til Víkur. Á Ránarbraut 5, í húsi hjónanna Hrannar Brandsdóttur og Guðjóns Þorsteinssonar og fjölskyldu þeirra, átti Þuríður öruggt skjól, og eftir að heilsu hennar tók að hraka og hún flutti á dvalarheimilið var um- hyggja þeirra ætíð vís. Þuríður Guðmundsdóttir lifði ekki stormasama ævi, hún lét ekki-til sín taka í þjóðmálum né á opinberum vettvangi. Til hennar komu börn til dvalar, skyld og vandalaus, um lengri og skemmri tíma. Foreldrum sínum bjó hún fagurt ævikvöld og að öldruðum bræðrum sínum hlúði hún þegar þeir þurftu hennar með. Hún var alltaf veitandi og bar hag fjölskyldu sinnar og vina fyrir bijósti. Hennar líf snerist fyrst og fremst um að annast um, hlúa að og líkna öðrum. íslenskt samfélag og heilbrigðiskerfi skuldar henni og hennar líkum margt og gæti auk þess ýmislegt af þeim lært. Ég sá Þuru mína síðast á þriðja dag jóla. Það var komið að kveðjustund. Ég trúi því að hún hafi þekkt mig því hún rétti mér hönd sína. Við héld- umst í hendur góða stund. Ég sagði henni af högum mínum og minna eins og áður, las á jólakort og sagði henni að við Hafsteinn hefðum kveikt á kertum á leiðum horfinna ástvina. Mér fannst hún brosa og þakka eins og hún var vön. En ég á henni mun meira að þakka. Hún fer að engu óð, er öllum mönnum góð og vinnur verk sín hljóð. (D. Stef.) Guð geymi þig, kæra vinkona. Bless- uð sé minning Þuríðar Guðmunds- dóttur. Kolbrún Haraldsdóttir. + Guðbjörg Stef- ánsdóttir var fædd á Krókvelli í Garði 12. nóvember 1902. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 30. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigríður Sveins- dóttir frá Lykkju á Kjalarnesi, f. 17. júní 1874, d. 17 júlí 1957, og Stefán Einarsson frá Skála- brekku í Þingvallasveit, f. 17. sept 1862, d. 23. mars 1938. Þau hjón bjuggu lengst af á Krókvelli í Garði þar sem Stef- án stundaði sjóinn. Þau eignuð- ust tíu börn og ólu upp eina stúlku. 1) Sveinn, f. 3 apríl 1894. Hann drukknaði í Halaveðrinu í feb. 1925, maki Hall- bera, látin, barn Þor- steinn. 2) Einar, f. 18. okt. 1895, d. 1. okt. 1966, maki Málfríður, látin, börn Ásgeir, látinn, Ásta, Einar Stefán og Lalla. 3) Kristinn, f. 26 jan. 1986, d. 20. nóv. 1966, ógiftur. 4) Theodóra, f. 14. sept. 1897, d. 21. feb. 1984, maki Þormóður, látinn, börn Sveinn, Hörður, Stefán, Benedikt, og Sveiney sem lést 1995. 5) Guðríður, f. 21. apríl 1898, d. 18. sept. 1986, fyrri maður Siguijón, Iátinn, böm Stefán, d. 1995, Guðmundur, d. 1994, dætur Þuríður og Lilja. Seinni maður Guðríðar var Sig- hvatur, látinn. 6) Stefanía, f. 1901, d 1906. 7) Guðbjörg, f. 12. nóv. 1902, d. 30. des. 1996, giftist 1962 Sigurgeir Vil- hjálmssyni frá Óseyrarnesi Eyrarbakka, f. 28 maí 1909, d. 7. apríl 1992, þau voru barn- Iaus. 8) Eyjólfur, f. 14. nóv. 1904, lést 1974, fyrri kona var Guðrún, hún lést eftir stutta sambúð. Seinni kona var Helga, d. 1991. Þau áttu einn son, 01- af. 9) Marteinn, f. 15 feb. 1910, d. 18. nóv. 1991. Fyrri maki var Haildóra, þau einuðust fjögur börn, Stefaníu er dó barn að aldri, Jónu, Steinar og Sal- gerði. Með seinni konu sinni, Birnu, átti hann tvær dætur, Jónínu og Sigríði. 10) Stefanía, f. 9. júlí 1914. Hún er sú eina sem er eftirlifandi af systkinun- um hún var tvígift. Fyrri maður hennar var Frank, þau skildu. Áttu þau eina dóttur, Sigríði. Seinni maður, Sigurður, lést 1971. Uppeldissystir þeirra var Salgerður Jónsdóttir, f. 31. Júlí 1916, d. 14. sept. 1936. Guðbjörg var jarðsett frá Foss- vogskirkju 10. janúar. GUÐBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR Guðbjörg Stefánsdóttir, eða Bagga eins og hún var oftast köll- uð af ættingjum og vinum, fór snemma að vinna fyrir sér, lærði m.a. að sníða og sauma karl- mannaföt. Þar af leiddi að það kom oftast í hlut Böggu að sníða og sauma á yngri meðlimi fjölskyld- unnar hvort heldur það voru systk- ini eða systkinaböm. Hún var með eindæmum hjálpfús, alltaf tilbúin að bjóða fram aðstoð ef vissi hún af þörf fyrir hana. Hún var með 'eindæmum frændrækin og manna fróðust um ætt sína, og er nú skarð fyrir skildi þegar maður vill fræð- ast meir um ættfræðina. Lengst af bjó Bagga á Berg- þórugötunni og hugsaði þá um móður sína sem var rúmliggjandi í tæplega tíu ár eða þar til hún lést 1957. Þá var Bagga búin að kynnast Geira (Sigurgeiri Vil- hjálmssyni, d. 1992) og hófu þau búskap saman 1960 í Skipholti 55, síðan Bólstaðarhlíð 54 og svo á Boðahlein 22 í eitt og hálft ár, eða þar til Geiri lést. Eftir það var Bagga ein I húsinu þangað til hún komst inn á Hrafnistu 1994. í mínum huga er vart hægt að tala um Böggu nema hafa Geira með því Bagga og Geiri voru eitt og það sama. Eitt mesta lán Böggu var Geiri því hún átti við hreyfi- hömlun að stríða. Það var ekki til sá hlutur sem Geiri vildi ekki fyrir hana gera. Þau stunduðu mikið sund, fóru helst á hveijum degi. Þau voru miklir náttúruunnendur, fóru vítt og breitt um landið og kynntu sér það vel. Það var mikið lán að alast upp í sama húsi og Bagga. Var hún mér sem önnur móðir og börnum mínum sem önnur amma. Eða eins og sagt er, maður átti hauk í horni þegar þau hjón voru annars vegar. Bagga var mjög glaðsinna en þver og kom það henni oft til góða vegna bæklunar hennar. Aldrei að gefast upp, var hennar mottó. Nú er aðeins ein systir, Stefan- ía, eftir af systkinahópnum, og saknar hún nú Böggu systur. Að lokum vil ég flytja þakklæti til starfsfólks Hrafnistu í Hafnar- fírði fyrir góða umönnun og gæsku við Böggu. Sigríður. Bagga frænka var 94 ára þegar hún lést á Hrafnistu. Það gefur augaleið að hún með öll þessi ár að baki skilur eftir minningar, og væri langt mál að telja það allt upp. Frá því að ég man eftir mér, gekk hún við staf því hún var með ónýta mjaðmaliði. Þó það hafi háð henni stoppaði það hana ekki. Hún var alltaf glöð, kát og dugleg. Hún fór í sundlaugar á hveijum degi. Ef veðrið var gott gat maður fund- ið hana annaðhvort uppi við Rauðavatn í kartöflugarðinum eða á Laugarvatni í sumarbústaðnum þar, og alltaf var tekið vel á móti manni. Þegar ég hóf skólagöngu mína endaði ég oft í veislu heima hjá Böggu, því hún átti heima í næstu götu við skólann. Og það sem stóð upp úr var kæfan, það gerði engin eins góða kæfu og hún. Það var alltaf hægt að þekkja eftirlíkingar frá. Þegar maður svaf hjá henni þurfti maður að fara með bænim- ar. Hún átti litla skrifbók þar sem hún skrifaði bænir niður og kenndi manni. Ég man sérstaklega eftir bæninni „Vertu yfir og allt um kring.“ Að vísu vissi ég aldrei hvað englarnir voru að gera yfir sæng- inni minni, því ég sá þá aldrei og fannst þetta frekar kyndugt. Bagga var menntuð saumakona, hún pijónaði mikið úr lopa, sem endaði oftar en ekki hjá mér og ættinni. Það var ekki fyrr en und- ir það síðasta að hún gat ekki stundað hannyrðir lengur og varð að lokum rúmföst. Daginn áður en hún lést heim- sótti ég hana og þakkaði henni fyrir návist hennar í gegnum árin. Þrátt fyrir að hún vissi að þetta væru síðustu stundirnar var hún ekki að barma sér og þegar ég labbaði út sagði hún hátt og skýrt: „Ég bið að h'eilsa öllum.“ Stefanía litla. Guðbjörg eða Bagga eins og ég kallaði hana er nú horfin á vit for- feðra sinna. Bagga var mér eins og amma, hún vildi allt fyrir mann gera. Ég var oft hjá henni í tvo vetur þegar ég var í Isaksskóla sem var stutt frá henni. Hún sá til þess að maður mætti í skólann á réttum tíma, gekk stundum með mér þangað eða á móti mér eftir skóla. Og svo var passað að gefa manni að borða og taka lýsið, og síðast en ekki síst að læra eftir skóla. Því eins og Bagga sagði alltaf: „Hvað ungur nemur gamall tem- ur.“ Þegar ég svaf hjá henni þá voru mér kenndar margar bænir, sem munu ávallt fylgja mér. Og þegar ég lít til baka álít ég mig heppna að hafa fengið að kynnast henni og hafa margt lært hjá henni og mun ég ávallt standa í þakkar- skuld við hana fyrir allt sem hún kenndi mér og segi: Takk. Katrín.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.