Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 43

Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 43 ASGEIR G UÐMUNDSSON + Ásgeir Guð- ‘ mundsson var fæddur á Folafæti í Seyðisfirði við ísa- fjarðardjúp 12. des- ember 1919. Hann lést í Sjúkrahúsi Isafjarðar aðfara- nótt 13. janúar síð- astliðins eftir stutta legu. Foreldrar Ás- geirs voru Guðrún Sigurðardóttir frá Heimabæ, Folafæti, húsfreyja þar og fiskverkakona í Bolungarvík, f. 16. maí 1901, og lifir hún son sinn í hárri elli á Sjúkraskýlinu í Bolungarvík, og Guðmundur Salómonsson, f. 3. ágúst 1894, d. 9. apríl 1963. Fósturforeldr- ar Ásgeirs voru Sigurgeir Guð- mundur Sigurðsson, bróðir Guðrúnar, f. 22. júlí 1902, d. 28. júlí 1995, og Margrét Guðf- innsdóttir, f. 29. mars 1909, d. 3. október 1994. Systkini Ás- geirs sammæðra og á Iífi eru Krislján, Jónína, Elías, Jón Valgeir, Sigurður, Árni og Sig- ríður, látin eru Þórður, Sigurð- ur er dó ungur og tvíburar er dóu við fæðingu. __ Fóstur- systkini Ásgeirs sem eru á lífi eru Evlalía, Guðfinna Sigurborg, Erla, Halldóra, Guð- mundur Baldur, Svenna Rakel, og Heiðrún, látin eru Guðfinnur, dó ungur, Jón Eggert, og Þór- arinn. Ásgeir hóf búskap með Kristrúnu Stein- unni Benediktsdóttur frá Bæjum á Snæ- fjallaströnd, f. 26. júní 1927, árið 1944 og bjuggu þau alla tíð í Bolungarvík, hún er húsmóðir og lifir mann sinn. Þeim varð tólf barna auðið og eru ellefu þeirra á lífi. Þau eru: 1) Jón Sig- urgeir, maki Hjördís Þorgilsdótt- ir, þau búa í Reykjavík og eiga þijú börn og eitt barnabarn. 2) Drengur, dó fimm mánaða, óskírður. 3) Benedikta Fanney, maki Jón Friðrik Gunnarsson, þau búa í Bolungarvík og eiga átta börn og eitt barnabarn. 4) Eva Margrét, maki Sigurður Nú er ég sest niður að leiðarlok- um til að skrifa örfá orð til minning- ar um tengdaföður minn, Ásgeir Guðmundsson, er mér efst í huga þakklæti fyrir að fá að kynnast honum og fræðast af honum um marga hluti. Ég kynntist Ásgeiri fyrir sextán árum og varð snemma ljóst að þar fór ljúflingur er vildi öllum gott, þó hann gæti verið fast- ur fyrir ef honum þótti það við eiga, og því tók ég strax eftir hvað fjöl- skyldan var honum mikils virði. Með henni hafði hann vakandi auga og barnabörnin voru honum sérlega kær, enda var hann með afbrigðum barngóður og öll börn hændust að honum. Ásgeir var ekki margorður mað- ur við fyrstu kynni, en eftir því sem kynnin efldust breyttist það og traustari vin var tæpast að hafa, ég minnist þess að oft sátum við saman og ræddum gamla og nýja daga. Það voru stundir er gáfu mér mikið því hann var minnugur og kunni mikið af sögum, bæði af al- varlegum toga, þá helst tengdum lífsbaráttunni, og einnig margar skemmtilegar sögur af samskiptum fólks í Víkinni og við Djúp. Kímni- gáfa hans var þeim kostum gædd að hún meiddi engan og þegar hann sagði skemmtilegar sögur skein af honum kátínan og hláturinn ískraði svo smitandi í honum. Fljótlega eftir að við kynntumst komst ég að því að Ásgeir hafði brennandi áhuga á öllu er laut að búskapnum hjá okkur Evu, enda var hann vanur búskap vegna þess að Sigurgeir fósturfaðir hans hafði alla tíð búskap með útgerðinni. Mér er það minnisstætt þegar ég spurði Ásgeir af hveiju hann hefði ekki orðið bóndi og hann svaraði að hann hefði alveg eins getað hugsað sér það, en hann taldi að hann væri öruggari með að framfleyta fjölskyldunni með því að velja starf við sjávarsíðuna enda Djúpið annál- i uð matarkista. í þessu svari kom glöggt fram að framfærsla fjöl- skyldunnar skipti hann öllu. Ásgeir var alla tíð vandaður til allra verka og eftirsóttur í vinnu og mér fannst mikið til koma um trúmennsku hans við alla vinnu, svo fannst og vinnuveitendum hans og var honum snemma falið forræði í beitingaskúrunum sem voru hans starfsvettvangur um ævina, þar leið honum best innan um lóðir og bala. Ég kom oft til hans í skúrana og þar var hann svo sannarlega á heimavelli, áætla má að hann hafi beitt allt að fimmtíu þúsund kíló- metra af línu um ævina, það mun vera einsdæmi. Ásgeir sóttist ekki eftir verald- legum verðmætum umfram það að hafa nóg fyrir sig og fjölskylduna að bíta og brenna, ekki sóttist hann heldur eftir vegtyllum af neinu tagi, hann hafði nægjusemina að leiðar- ljósi og var ánægður á meðan fjöl- skyldumeðlimimir voru heilsugóðir og gátu framfleytt sér og sínum. Þetta eru mannkostir sem eru mjög á undanhaldi nú um stundir og þess vegna mikils virði fyrir okkur er eftir lifum til íhugunar og eftir- breytni. Ásgeir var fyrst og síðast mikill fjölskyldumaður og var vak- inn og sofinn yfir velferð fjölskyld- unnar. Ég og fjölskylda min biðjum Ásgeiri allrar guðs blessunar á nýj- um vegum og við þökkum fyrir að fá að geyma með okkur minninguna um hann. Guðrúnu móður hans, Rúnu og bömunum ásamt vanda- mönnum öllum bið ég guðs blessun- ar í sorg þeirra og söknuði. Sigurður Aðalsteinsson. I dag, 18. janúar, verður borinn til grafar elskulegur afi okkar, Ás- geir Guðmundsson. Elsku afi, alltaf gastu fengið okkur til þess að brosa og eru ófá- ar stundirnar, sem við geymum í hjörtum okkar, sem við deildum með þér. Elsku afí, okkur langar til að þakka þér fyrir allt sem þú gafst okkur. Við eigum eftir að sakna þín sárt. Ásgeir, Gunnar, Hulda, Kristrún, Margrét, Fannar, Dagný og Sandra. Fósturbróðir okkar, Ásgeir Guð- mundsson, er látinn. Okkur langar til að minnast hans með nokkmm orðum. Hann kom til foreldra okkar, Sigurgeirs Sig- urðssonar og Margrétar Guðfinns- dóttur, þegar þau byrjuðu búskap, þá aðeins sex ára gamall. Hann ólst upp með okkur og litum við á hann sem einn af okkur. Ásgeir var hæglátur og prúður maður, hann var síhlæjandi og léttur í skapi, dáður af samferðamönnum sínum og frændur hans sem kynntust hon- um við beitingu dá hann og líta á hann sem góðan vin. Beiting var hans aðalstarf og byrjaði hann sína sjómennsku með fóstra sínum á mb. Húna. Ásgeir var tryggur og góður við foreldra okkar og vildi launa þeim uppeldið, enda dáðu þau hann og létu allt jafnt yfir hann ganga eins og okkur. Um mömmu okkar sagði Aðalsteinsson, þau búa á Vað- brekku og eiga fjögur börn, og Eva átti tvö börn áður. 5) Guð- rún, maki Ingimar Baldursson, þau búa í Bolungarvík og eiga fimm börn. 6) Húni Sævar, maki Bryndís Sigurðardóttir, þau búa í Noregi og áttu þrjú börn, misstu eitt, og Húni átti tvö börn áður. 7) Asrún, maki Gylfi Þórðarson, þau eiga þrjú börn og Ásrún átti eitt barn áður. 8) Erla Þórunn, maki Hallgrímur Hallsson, þau búa á Húsavík og eiga fimm börn. 9) Guðmundur Salómon, maki Ingibjörg Sigríður Guðmunds- dóttir, þau búa á ísafirði og eiga þijú börn. 10) Kolbrún Rögnvaldsdóttir, maki Gunnar Njálsson, þau búa á Grundar- firði og eiga þijú börn. 11) Inga María, maki Sigurður Böðvar Hansen, þau búa í Mosfellsbæ og eiga tvö börn og Inga María átti eitt barn áður. 12) Rósa Sigríður, hún býr í Bolungarvík og er ógift. Ásgeir helgaði sjómennsku alla starfsævi sína og var línu- beitingamaður frá fjórtán ára aldri þar til fyrir ári og vann því samfellt við beitingu í 63 ár og var landformaður lengst af.^ Utför Ásgeirs fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag og hefst athöfnin klukkan 14. hann að hún hefði verið einstök kona, sem aldrei skipti skapi. Pabba kallaði hann alltaf frænda, enda var hann systursonur hans. Heimili Rúnu og Geira stóð okkur ávallt opið og var gott að koma til þeirra, enda margt um manninn. Elsku Rúna, börn og fjölskyldur, við vottum ykkur innilega samúð, við vitum að þið eigið ljúfar minn- ingar um góðan dreng. Gunnu frænku sendum við sam- úðarkveðju og biðjum Guð að gefa henni friðsælt og fallegt ævikvöld. Elsku fósturbróðir, við kveðjum þig með virðingu og þökk. Og vertu nú sæll. Það fer vel um þig nú, og vorgyðjan o’n á þig breiði, og sætt er það þreyttum að sof eins og þú með sólskin á minning og leiði. (Þorsteinn Erlingsson.) Blessuð sé minning þín. Fóstursystkini. Sjómennska er jafngömul þjóð- inni, og hafa sjávarútvegur, fisk- veiðar og vinnsla verið, og verða, eins og horfir, megintekjulind þjóð- arinnar í náinni framtíð. Það velferðarþjóðfélag, er flestir Islendingar njóta í dag, er að veru- legu leyti ávöxtur þeirrar iðju. Um aldir hefur línuútgerð skipað háan sess í þessu ferli. Mikilvægt er, að vel sé staðið að vinnu við sjálfa línuna, að stokka hana upp, lagfæra ábót, krekjur og tauma og beita hana, til að ná sem beztum árangri í veiðum. Ásgeir Guðmundsson, sem nú hefur kvatt jarðlíf sitt, náði af- burðaleikni í þessum störfum. Hann mun hafa byijað að beita 13 ára að aldri, og síðast beitti hann línu á fyrri hluta liðins árs, þá 76 ára garnall, og hefur því stað- ið við lóðabalann um 63 ára skeið. Ásgeir tók þátt í fjölmörgum Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri blómaverkstæði INNA, Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090 kappbeitingarmótum á hátíðisdegi sjómanna, og vann oft til verðlauna. Hann var 35 ára, þegar hann vann til eignar silfurbala, sem gef- inn var af útgerðarmönnum árið 1941. Verðlaunagripnum fylgdi sú kvöð, að hann skyldi vinnast til eignar, ef sami maður mundi vinna hann þrjú beitingamót í röð, eða 5 sinnum alls. Að öðrum kosti gengi hann á milli vinningshafa sem far- andgripur. Til að ná slíkum árangri, þurfti vandvirkni, flýti og keppnisskap. Ásgeir var líka harðduglegur og samvizkusamur, og í essinu sínu var hann jafnan við lóðabeitingu. Hann gat ekki hugsað sér að sinna öðrum störfum. Sagt hefur verið, að á starfsævi sinni muni hann hafa beitt línu, sem næði þrisvar sinnum í kringum jarð- arhnöttinn. Mörg ungmenni lærðu að beita hjá Ásgeiri, og ótalmargir nutu til- sagnar hans. Frá fyrstu árum bernsku og alit til fullorðinsára ólst hann upp hjá móðurbróður sínum og eiginkonu hans, heiðurshjónum, ásamt 8 efni- legum börnum þeirra hjóna, sem litu ávallt á hann sem góðan bróð- ur, og hann þau sem kær systkini. Ásgeir var líka íjölskyldunni ævarandi þakklátur fyrir þá gæfu, er honum féll í skaut í hennar ranni. Ásgeir kvæntist myndar- og dugnaðarkonu, sem ól honum 12 börn. Þau misstu dreng í frum- bernsku, en ellefu komust upp til fullorðinsára og eru mannvænlegt dugnaðarfólk, eins og þau eiga kyn til. Það gefur lífinu aukið gildi að hitta góða samferðamenn, eiga gott samstarf við þá og eignast vináttu þeirra. Svo fór fyrir mér og föður mín- um, þegar leiðir okkar Ásgeirs lágu saman. Hann var landmaður á línubát- um, er við feðgar sáum um útgerð á, í hartnær hálfan fimmta áratug og lengstum sem landformaður. Samstarfið var allt eins og bezt verður á kosið. Ásgeir var hörku- duglegur, samvizkusamur, trúr, traustur og þægilegur í umgengni, og stutt var í brosið. Dagfarsprúður var hann, en að sögn gat hann verið stór í skapi, en rann fljótt reiðin. Þessa varð ég aldrei var í áratuga samstarfi. Ásgeir setti vissulega svip á umhverfið og samtíð sína hér í Bolungarvík á löngúm starfsferli. Daginn er nú tekið að lengja hér á norðurslóðum. Megi birta hækk- andi sólar lýsa fjölskyldu hans og nánustu ástvinum á vit minning- anna um það, sem var. Einlægar samúðarkveðjur flyt ég eiginkonu hans, bömum og tengdabörnum, aldraðri móður hans, elzta núver- andi Bolvíkingi, næstum 96 ára, systkinum hans og fóstursystkin- um. Og nú að leiðarlokum kveð ég ljúfan samstarfsmann með heilli þökk fyrir allt, sem með honum gafst, góða samfylgd, trúmennsk- u'na og samstarf allt, sem aldrei bar skugga á, og bið honum blessunar á æðri leiðum. Benedikt Bjarnason. í dag kveðjum við með sárum söknuði elskulegan afa okkar sem er nú horfinn á braut. Stórt skarð er opið í hjarta okkar, sem erfitt verður að fylla aftur. Minningin um yndislegan mann mun aldrei gleymast. Afi var dug- legastur allra og besti beitingar- maður sem uppi hefur verið. Elsku afi, við eigum eftir að sakna þín rosalega mikið. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Við biðjum góðan guð um að styrkja ömmu og öll börnin hennar í þessari miklu sorg. Baldur Guðmundur, Helga Salóme, Soffía Ásrún, Karítas Sigurlaug og Anna Ingrún. t Útför frænku minnar, GUÐRÚNAR JÓSEPSDÓTTUR, áðurtil heimilis á Hagamel 43, ferframfrá Fossvogskirkju mánudaginn 20. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Blindravinafélag íslands. Fyrir hönd aðstandenda, Kristrún D. Guðmundsdóttir. t Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, VILBORG SIGURÐARDÓTTIR, Blöndubakka 1, Reykjavík, áðurtil heimilis á Gilsbakkavegi 5, Akureyri, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 16. janúar sl. Rósa Pálsdóttir, Margrét Pálsdóttir, Sigrfður G. Pálsdóttir, Álfhildur Pálsdóttir, Eiríkur Eiríksson, Helgi Þórðarson, Svanur Karlsson, Bárður Halldórsson. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi, SIGURVIN SNÆBJÖRNSSON byggingameistari, lést á heimili sínu 16. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Svanþrúður Frímannsdóttir, Guðný Sigurvinsdóttir, Kristinn Atlason, Ethel Brynja Sigurvinsdóttir, Danfel Sigurðsson, Sif Sigurvinsdóttir, Jón L. Sigurðsson, Guðný Ó. Sigurvinsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.