Morgunblaðið - 18.01.1997, Side 44
44 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUNNAR HALLDÓR GUNNARSSON,
Löngumýri 57,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum að kvöldi 9. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Svanhildur Gunnarsdóttir,
Gunnar Stefán Gunnarsson, Helga Ólafsdóttir,
Halldór Snorri Gunnarsson, Herdís Jónsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför okkar ástkæru syst-
ur og móðursystur,
JÓHÖNNU SIGRIÐAR
GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Nýjabæ,
Álagranda 23,
Reykjavfk.
Birna Guðmundsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir
og systrabörn.
t
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför
GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR,
Snorrabraut 56.
Edda Sigurðardóttir,
Guðný Einarsdóttir.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við and-
lát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, fósturföður
og afa,
ÓLAFS SKÚLASONAR,
Þórufelli 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunar-
og gjörgæsludeildarSjúkrahúss Reykja-
víkur.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Valborg Guðrún Eiríksdóttir.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim,
sem auðsýndu okkur samúð við andlát
og útför elskulegs sonar okkar, bróður,
unnusta og barnabarns,
HAFLIÐA OTTÓSSONAR,
Glæsivöllum 8,
Grindavík.
Hlýhugur ykkar er okkar styrkur.
Guð blessi ykkur öll.
Hrafnhildur Björgvinsdóttir,
Hrund Ottósdóttir,
Eyrún Ösp Ottósdóttir,
Inga Óladóttir,
Valgerður Samsonardóttir,
Ottó Hafliðason,
Björgvin Ottósson,
Lovfsa Hilmarsdóttir,
Björgvin Gunnarsson,
Hafliði Ottósson.
t
Hjartans þakklæti til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við fráfall tengdadóttur okkar,
VIKTORÍU HAFDÍSAR VALDIMARSDÓTTUR,
og dóttursonar okkar,
HAFLIÐA OTTÓSSONAR.
Samhygð ykkar og vinsemd hefur verið okkur styrkur.
Guð blessi ykkur.
Björgvin Gunnarsson, Inga Óladóttir
og þeirra fjölskyldur.
ÁGÚSTINGI
SIG URÐSSON
+ Ágúst Ingi Sigurðsson
fæddist í Reykjavík 15.
október 1957. Hann lést á heim-
ili sinu 5. janúar síðastliðinn
og fór útför hans fram frá Sel-
fosskirkju 11. janúar.
Ljós kvikna og ljós slokkna og
jafnvel skærustu ljós sem lýsa upp
umhverfi sitt eru slökkt áður en
blessuð jólin eru á enda runnin og
við sem eftir stöndum í skugganum
störum og skiljum ekki tilganginn.
Hugurinn fer að leita skýringa
því án skýringa sættist þú ekki við
sjálfan þig. Staðreyndin er sú að
sumra er þörf á alltof mörgum stöð-
um, þeim sem aldrei geta sagt nei
og alltaf eru tilbúnir á nóttu sem
degi að hlaupa til að rétta hjálpar-
hönd. Þetta er okkar skýring á svo
skyndilegu brotthvarfí vinar okkar
og félaga. Það er líka trú okkar
félaga hans að sá sem þurfti svo
skyndilega á hjálp hans að halda
gefi í staðinn styrk og orku til að
lýsa að nýju upp Lágengi 13 og
fylla hjörtu fjölskyldu hans og ætt-
ingja gleði og birtu að nýju því það
var hans stíll. Látum hugann leiða
okkur þá braut sem Gústi lagði
grunninn að.
Það voru hressir piltar sem börðu
út bfla og skiptu um framrúður á
yfírbyggingaverkstæði KÁ hér á
árum áður en þar lágu leiðir okkar
Gústa saman. Við vorum að glíma
við að verða bifreiðasmiðir. Það tókst
okkur öllum og alla tíð síðan höfum
við verið viðloðandi jámaruslið.
Eitt af því sem við stefndum að
var að taka í spil þegar við værum
allir fluttir í Grænumörkina, rifja
upp gömlu dagana og láta Gústa
hlæja því hann átti sinn sérstaka
hlátur. Alla tíð síðan höfum við
reynt að herma eftir honum en
ekki tekist. Við félagarnir hefðum
átt bágt með að trúa að Gústi yrði
ökumaður á stórum rútum því að
í upphafí gekk ökuferillinn frekar
brösulega. Það urðu bæði fyrir hon-
um bílar og ljósastaurar en Siggi
pabbi hjálpaði Gústa sínum ávallt
að koma Toyotunn: aftur á lappirn-
ar og auðvitað þroskaðist strákur-
inn innan um góða félaga og varð
fímm stjömu bílstjóri hjá SBS á
Selfossi. Þar starfaði Gústi nánast
allan sinn starfsferil. Þar var hann
ánægður.
Það er sárt til þess að hugsa að
heyra ekki lengur hláturinn hans
og sjá autt pláss í röðum félaga
hans í Karlakór Selfoss. En þetta
eru smámunir á móti þeirri traustu
og sterku grein sem brotin var af
því fjölskyldutré sem hann hafði
ræktað upp af slíkri alúð, síðast á
Lágengi 13.
+ Guðvarður Jónsson, málara-
meistari á Akureyri, fæddist
á Bakka í Sléttuhlið í Skagafirði
23. nóvember 1916. Hann lést á
Akureyri 22. desember síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Akureyrarkirkju 30. desember.
Það er svo stutt síðan við vorum
í áttræðisafmælinu hans afa, þar sem
flestir afkomendur hans og systkini
vom saman komin. Það var gaman
En tréð stendur áfram sterkt og
ákveðið að standast þann storm sem
á því dynur og fyrir hann blómstra
og brosa að nýju til komandi fram-
tíðar.
Hugrún, haltu vel utan um það
sem hann skiidi eftir.
Kveðja,
Ólafur, Guðjón og Þorvaldur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég var staddur undir Ingólfs-
fyalli að keyra áætlun. Það var kom-
ið myrkur á þessum fyrsta sunnu-
degi ársins, hátíð ljóssins að baki.
Bílasíminn hringdi og mér var þá
sagt að Gústi væri farinn. Hvert
er hann farinn? Hann Gústi er far-
inn, dáinn. Ég fraus. Hvernig gat
það verið? Þessi dagfarsprúði mað-
ur í blóma lífsins?
Mig langar að minnast vinar
míns í nokkrum orðum en lífshlaup
Ágústs Inga Sigurðssonar verður
ekki rakið hér þar sem ég tel það
frekar í höndum fróðari manna.
Það var fyrir um 12 árum að
ég kynntist Gústa fyrst, ég þá að
keyra fyrir Ólaf Ketilsson hf. en
Gústi fyrir Sérleyfisbíla Selfoss hf.
Það ríkti þá hálfgert stríð milli
þessara fyrirtækja en þau samein-
uðust síðar í SBS. Við Gústi hitt-
umst oft upp við Geysi og spjölluð-
um yfir kaffibolla, og í því spjalli
kom í ljós að við vorum frændur.
Seinna jukust kynni okkar eftir að
ég fór að vinna hjá SBS. Þá vildi
líka þannig til að þegar móðir mín
hætti störfum vegna aldurs tók
Erla, móðir Gústa, við sem stöðvar-
stjóri pósts og síma á Laugarvatni.
Gústi var afbragðsgóður vinur,
traustur og hjálpfús. Hann skipti
aldrei skapi hvað sem dundi yfír,
en átti það til að vera stríðinn í
tilsvörum án þess þó að nein al-
vara væri þar að baki. Gústi vann
aðallega á verkstæði SBS þar sem
hann var lærður bílasmiður. En
þekking hans og lagni náði þó langt
út fyrir þá einu iðngrein, því það
lék allt í höndum hans er tengdist
viðgerðum. Hvílíkur listamaður
Gústi var ber gleggsta vitnið raf-
að sjá hvað hann skemmti sér vel
þegar hann var að tala við ættingj-
ana vegna þess að eitt af því
skemmtilegasta sem hann gerði var
að spjalla við fólk og rifya upp göm-
ul atvik. Hann skemmti sér líka vel
við að taka utan af gjöfunum, en
samt fannst honum leiðinlegt að
krakkamir (bamabömin og bama-
barnabömin), sem voru að fylgjast
með honum, fengu engar gjafir.
Hann naut þess líka út í ystu æsar
lögnin í mælaborðinu í rútunni
X874 og mætti hver bílaframleið-
andi vera stoltur af því verki sem
þar var unnið. Gústi vildi alltaf
hjálpa öllum, sagði aldrei nei og
vann öll sín verk vel og vandlega,
alveg sama hve langan tíma það
tók. Á rútuferðum mínum um land-
ið þurfti ég ekkert að óttast þó að
rautt aðvörunarljós kviknaði í
mælaborðinu. Þá hringdi ég i Gústa
sem var alltaf fljótur að finna hvað
var að, svo vel þekkti hann inn á
rúturnar og fylgdist með öllu.
Gústi var skemmtilegur og góð-
ur ferðafélagi, hvort sem við vorum
í fjölskylduferðum á vorin eða ferð-
um erlendis. í vorferðum SBS var
hann ávallt mjög virkur bæði við
grillið og eins var hann fljótur til
þegar farið var í leiki með börnin.
Gústi var í stjórn starfsmannafé-
lagsins þegar vinnufélagar SBS og
makar fóru saman í fyrstu utan-
landsferðina, og hafa ferðirnar orð-
ið fleiri eftir það.
Gústi sinnti fjölskyldu sinni af
mikilli alúð, fyölskyldan var honum
allt. Af einlægni vildi hann alltaf
fá fréttir af mínum börnum og
barnabörnum, vildi fá að fylgjast
með hvernig þau döfnuðu. Þegar
Gústi var með áætlunina í kringum
Laugarvatn kom hann oft við í
heimsókn í Flókalundi þegar tími
gafst til. Og stundum komu börnin
með. Þetta voru yndislegar heim-
sóknir og kom þá best í ljós hve
rólegur og yfirvegaður Gústi var,
aldrei neitt stress í kringum hann.
Við Gústi áttum okkar tvö uppá-
haldslög saman, „Undir dalanna
sól“ og „Undir bláhimni“. Þegar
annað þeirra hljómaði í útvarpinu
sagði Gústi alltaf: „Þarna er lagið
okkar, Halldór." Á föstudags-
morgnum, þegar við hittumst eftir
þátt Hermanns Ragnars í útvarp-
inu, þar sem lögin okkar eru oft
spiluð, sagði Gústi alltaf: „Heyrð-
irðu lagið."
Tilvera okkar er undarlegt
ferðalag og ferðalaginu hans Gústa
er lokið. Það er sárt að hugsa til
þess en Drottinn hefur ætlað hon-
um æðra hlutverk og minninguna
um hann geymum við í hjörtum
okkar. Ég veit að í framtíðinni á
ég oft eftir að segja eða hugsa:
„Nú vantar Gústa.“ Kæri vinur,
Guð geymi þig.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Hugrúnu, Sigurði, Jónínu Bjarn-
eyju, Selmu og öðrum aðstandend-
um sendi ég mínar dýpstu samúðar-
kveðjur og vona að trúin og kær-
leikurinn hjálpi ykkur á hinum
grýtta vegi sorgarinnar.
Halldór Benjamínsson
og fjölskylda.
að fara á ættarmótið sem við héldum
í sumar í Húsabakkaskóla úti í Svarf-
aðardal. Það var flott að þó að hann
væri á ættarmóti gat hann ekki stillt
sig um að fara á sýningu sem var á
Dalvík. Hann keypti sér frímerki þar.
Afa fannst líka mjög gaman að tala
við ættingjana utan af landi, sem
hann hitti sjaldan.
Afí var mikiil safnari og hann átti
gífurlega stórt frímerkjasafn sem er
eitt af stærri söfnum á landinu.
Hann hafði gaman af að sýna okkur
frímerkin og steinana sína, en hann
átti líka stórt steinasafn og þar voru
margir merkilegir steinar. Þar var
steinn úr Berlínarmúrnum og steinar
með steingervingum sem voru
150-500 milljóna ára gamlir. Við
höfðum gaman af að skoða það og
hlusta á hann segja frá einstaka
steinum. Oft þegar við sátum inni í
eldhúsi og vorum að spjalla saman
kom afí með steina, frímerki og fleira
til að sýna okkur.
Hann var góður og skemmtilegur
maður, var alltaf í góðu skapi og
sást aldrei reiðast út af neinu. Það
er skrýtið að hann sé farinn frá okk-
ur og það vantar mikið inn á heimil-
ið þegar hann er farinn.
Við kveðjum hann með söknuði.
Lísa, Sverrir, Katrín og Kolbrún.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endur-
gjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins i Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfí
(5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS).
GUÐVARÐUR
JÓNSSON