Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 46
46 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
SIGFÚS
HALLDÓRSSON
SIGURÐUR
BORGÞÓR
MAGNÚSSON
+ Sigfús Halldórsson fæddist
í Reykjavík 7. febrúar 1920.
Hann lést í Landspítalanum 21.
desember síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Hallgríms-
kirkju 2. janúar.
Nú er komið að því enn og aftur
að sætta sig við það, sem skapað
er. Stund skilnaðar við ástkæran
vin, unna honum hvíldar og forfröm-
unar á þeim leiðum sem hann nú
hefur hafið vegferð á.
Sigfús kom inn í líf mitt þegar
ég var barnungur. Sigfús kom heim
til pabba, ásamt fleiri vinum, til
þess að fagna einhveijum áfanga í
Reglunni.
I augum barnsins voru allir þessir
„kallar“ dálítið sérstakir og það sem
þeir voru að gera hulið mystík og
dulið - fegurðin, gæskan og vinar-
þelið fylgdi þessum bestu mönnum
sem ég vissi. Kallarnir heilsuðu mér,
ég man ekki hveijir það voru, en
Sigfús, hann tók í höndina á mér -
eins og hinir - en ég man það svo
vel að hann gerði gælur við mann
við augunum, strauk blíðlega um
kollinn og síðan var „Fúsi“ partur
af mér. Pabbi sagði að augun væru
spegill sálarinnar, hvílík góðsemi og
blíða, vinátta og eindrægni.
Kæri vinur. Síðar á ævinni þegar
ég sjálfur hafði eignast börn, varst
þú í heimsókn á Tálknafirði hjá syni
þínum. Heimsóttir þú mig þá, bless-
aður. Það var eins og við manninn
mælt, börnin min drógust að þér
eins og járn að segli og erfitt var
að eiga stundina einir saman, krakk-
arnir vildu vera hjá þér. Við fórum
í bíltúr og leystum það þannig, ljúfl-
ingur. Fegurð fjarðarins snart þig
og þú veittir enn af þínum nægta-
brunni lista. Færðir fjarðarbúum lag
við ljóð Davíðs á Sellátrum, lagið
hljómaði eins og það hefði alltaf
verið til. Slík var snilli þín, ekkert
of, ekkert van, eins og bogi af hring,
rétt horn og gullinsnið. Lagið varð
því strax. að „þjóðsöng" Tálknfirð-
inga. Þú hélst sýningu á málverkum
þínum, lyftir okkur yfir amstur dag-
anna með lögunum þínum á konsert
sem haldinn var eins og þú sagðir
í þakkarskyni fyrir fegurð fjarðarins.
Nú kveð ég þig með blendnum
tilfinningum, - eigingjörnum og
óeigingjörnum. Hefði viljað njóta
samvista við þig lengur, veit að sú
vegferð sem nú er hafin hjá þér,
velundirbúnum, er þér til frekari
visku og fegurðar.
Æ kæri vinur þakka þér, - við
áttum öll hann Fúsa - aðstandendur
vissu það vel, þeir hafa deilt honum
með þjóðinni, - þökk sé þeim.
Eins o g listaverkin þín fylgja þjóð-
inni fann maður að þér fylgdi krafa
til samferðamanna þinna að þeir leit-
uðu hins góða og sanna með lotn-
ingu og lítillæti.
Nýbirt ljóð Davíðs Oddssonar
„Hin fyrstu jól“ lýsa þessu að hluta.
Þótt Kristur sé fundinn er göngunni löngu
ekki lokið,
leitin er eilíf, þó hann hafi létt mönnum okið.
Eitt svarið er fengið.en glíman og lífsgátan
krefjast
að gangan að jötu sé ætíð og sífellt að he§-
ast.
Þú veittir okkur yl og fegurð, þú
brýndir okkur einnig til leitar, hvers
meir er hægt að æskja af einum
manni?
Bjarni Kjartansson.
+ Sigurður Borgþór Magn-
ússon, húsasmíðameistari
og matsmaður, Fasteignamati
ríkisins, fæddist í Hafnarfirði
7. október 1931. Hann lést í
Landspítalanum 6. janúar síð-
astliðinn og fór útför hans
fram frá Bústaðakirkju 16.
janúar.
Elsku bróðir minn!
Nú er þessum erfiða kafla lok-
ið. Eftir stendur falleg minning.
Um unga manninn sem fann sér
konu, reisti bú og átti börn. Já,
enn gerast ævintýri, því börnin
fimm, hvert öðru fallegra og ynd-
islegra, gerðu eins og þið. Fengu
sér maka og halda við þessu hug-
ljúfa ævintýri. Að sjá börn vaxa
og þroskast er eins og að sjá blóm
opna sig. Og blómin urðu mörg,
eitt á ég sjálf sem þið hjón hlúðuð
að með sömu umhyggju og ykkar
eigin. Það blóm fjölgaði sér einn-
ig. Ef gleymist að vökva visnar
blómið og deyr. Nú þegar allar
lindir eru fullar eftir sírennsli
sorgar, - kemur í hugann hvort
hætta sé á að drekkja blómunum.
Ég held þú hafir búið það vel að
rótum þeirra að þær þoli það um
sinn. Og eftir standi sterkari stilk-
ar. Já, elsku Boggi okkar! Magnús
Reynir, fjölskylda hans og Hulda
systir þakka þér samfylgdina um
leið og við biðjum þér guðsbless-
unar á nýjum ferðaleiðum og
stúlkunni ungu sem gaf þér hönd
sína í ævintýraferðina fyrir ljörtíu
árum, og stóð við hlið þér til
hinstu stundar.
Hulda Magnúsdóttir,
Magnús Reynir Ástþórs-
son og fjölskylda.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
i bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasiðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðalllnubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum.
RAÐAUa YSINGAR
A TVINNUAUGí ÝSINGAR
Fræðsluráð málmiðnaðarins
óskar að ráða
framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjórinn sér um rekstur Fræðslu-
ráðsins, ásamt því að fylgja eftir ákvörðun
ráðsins um uppbyggingu og framkvæmd
tækninámskeiða fyrir málmiðnaðarmenn,
samskipti við yfirvöld mennta- og iðnaðar-
mála í landinu og samstarf við innlendar og
erlendar tæknistofnanir.
Leitað er að einstaklingi með tæknimenntun,
auk sveinsprófs, í málmiðngrein. Viðkomandi
þarf að hafa góð tök á Norðurlandamáli og
ensku og mikil áhersla er lögð á lipurð í
mannlegum samskiptum.
Fræðsluráð málmiðnaöarins er sameiginlegur vettvangur atvinnurek-
anda og launþega. Markmiðið með rekstri þess er m.a. uppbygging
og efling fag- og endurmenntunar í málmiönaði.
Nánari upplýsingar gefur Bjarni Thoroddsen
í síma 897 1545 milli kl. 17.00-19.00 virka
daga.
Umsóknir sendisttil Fræðsluráðs málmiðn-
aðarins, Hallveigarstíg 1, pósthólf 1704,
121 Reykjavík, fyrir 7. febrúar nk.
HÚSNÆÐIIBOÐI
Til leigu
Til leigu er 80 fm verslunarhúsnæði við
Laugaveg.
Áhugasamir sendi umsóknir til afgreiðslu
Mbl., merktar: „T - 15369".
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélagsins í Bakka- og Stekkja-
hverfi verður haldinn í Félagsheimilinu,
Álfabakka 14, miðvikudaginn 22. janúar nk.
kl. 20.30.
Gestur fundarins verður Árni Sigfússon,
borgarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin.
Sólarkaffi
ísfirðinga
ísfirðingafélagið í Reykjavík gengst fyrir
sínu árlega Sólarkaffi á Hótel íslandi laugar-
dagskvöldið 25. janúar nk.
Húsið opnað kl. 20.00, en kl. 20.30 hefst
hefðbundin dagskrá með kaffi og rjómapönnu-
kökum.
Halldór Hermannsson flytur hátíðarræðuna og
lætur gamminn geysa. Harmóníkuleikari og
heljarfjör. Aðeins ísfirskir skemmtikraftar.
Gömlu og nýju dansarnir til kl. 03.00 e.m.
Nú verður stuð.
Aðgangseyrir kr. 2.000, með fordrykk kr. 2.300.
Forsala aðgöngumiða á Hótel íslandi laugar-
daginn 18. janúar kl. 14.00-16.00.
Borð tekin frá á sama tíma.
Miða- og borðapantanir auk þess í síma
568 7111 dagana 21.-25. janúar kl. 13.00-
17.00. Greiðslukortaþjónusta.
Stjórnin.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrlfstofu embættislns, Hnjúkabyggð 33,
Blönduðsi, þriðjudaginn 21. janúar 1997 kl. 11.00 ð eftirfarandi
elgnum:
Bjarmaland, Skagaströnd, þingl. eig. Kjartan Stefánsson, gerðarbeið-
andi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Bláland (hluti GH), Skagaströnd, þingl. eig. Guðný Hjartardóttin
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóöur Norðurlands.
Blöndubyggð 9, Blönduósi, þingl. eig. Sigurður Valgeir Jósefsson,
gerðarbeiöandi Byggingarsjóöur ríkisins.
Efstabraut 2, Blönduósi (3/17 hluti), þingl. eig. Timburvinnsla H.J.
hf., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður.
Fífusund 17, Hvammstanga, þingl. eig. Elísabet L. Sigurðardóttir,
gerðarbeiðendur Hekla hf. og Islandsbanki hf.
Hafnarbraut 8, Blönduósi, talin eig. Jóhannes Þóröarson, gerðarbeið-
andi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Hlíðarbraut 14, Blönduósi, þingl. eig. Þorsteinn Högnason, gerðar-
beiöandi íslandsbanki hf.
Hvammstangabraut 25, Hvammstanga, þingl. eig. Bragi Arason,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóöur ríkisins.
Hvammur 2, Áshreppi, þingl. eig. Gunnar Ástvaldsson og Þuríður
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Kaldakinn 1, Torfalækjarhreppi, þingl. eig. Finnur Karl Björnsson,
gerðarbeiðendur Islandsbanki hf., Lífeyrissjóður Norðurlands og
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Króksstaðir, Ytri-Torfustaðahreppi, þingl. eig. Eggert Rúnar Ingibjarg-
arson, gerðarbeiðendur Ingvar Helgason hf., Kaupfélag Vestur-Hún-
vetninga og sýslumaðurinn á Blönduósi.
Mýrarbraut 18, Blönduósi, þingl. eig. Hallgrímur Stefánsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Ránarbraut 22, Skagaströnd, þingl. eig. Strönd hf., byggingarfélag,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Skúlabraut 15, Biönduósi, þingl. eig. Hekla Birgisdóttir, gerðarbeið-
endur Vátryggingafélag Islands hf. og Blönduósbær.
Þórshamar, Skagaströnd, eignarhl. gþ., þingl. eig. Einar Ólafur Karls-
son, geröarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Sýslumaðurinn á Blönduósi.
Blönduósi, 16. janúar 1997.
FÉLAGSÚF
Cranio Sacral-jöfnun
Nám i 3. hl. 1. stigs 14.-20. mars.
Uppl. s. 564 1803 og 562 0450.
Dagsferö18.janúar
Námskeið jeppadeildar, Akstur
í snjó, fellur niður.
Dagsferð 19. janúar
kl. 10.30: Skíðaganga. I Bláfjöll-
um er nægur snjór og þar má
finna fáfarnar gönguslóðir.
Tilvalið að dusta rykið af göngu-
skíðunum. Verð kr. 1.000/1.200.
Helgarferð 24.-26. jan.
kl. 20.00: Þorrablót. Söguferð á
slóðir Önnu frá Stóruborg.
Gist veröur á Heimalandi.
Gönguferðir og kvöldvaka.
Fararstjóri Lovísa Christiansen.
Netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
@> ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferð
19. janúar kl. 10.30
Heiðmörk að vetri-Hólmsborg.
Það er skemmtilegt að ganga
um Heiðmörkina á öllum árstím-
um. Hólmsborg, falleg fjárborg,
skoðuð. Verð 700 kr., frítt f.
börn 15 ára og yngri.
Brottför frá BS(, austanmegin.
Heimkoma um kl. 15.00.
Þorraganga frá Mörkinni 6 um
Fossvogsdal f Perluna laugar-
dagskvöldið 25. janúar kl. 20.00.
Þorrablót F.l. og Perlunnar.
Þorraferð (þorrablót) f öræfa-
sveit 8.-9. febrúar. Gist í Freys-
nesi. i þorrablótsferðirnar þarf
að panta.
Ferðafélag (slands.