Morgunblaðið - 18.01.1997, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
*■111 i
IT 551 6500
► ^
Sfmi
F551 6500
LAUGAVEG94
Hér er á ferðinni ósvikin
Zuckeruppskrift.
Dangerous Minds",
Stand And Deliver",
Rebel Without A
Cause" o.fl.
kennslustund \
og útkom- :>. f ' . t
man er: \ ‘ ‘Vjl .
GRÍN-
MARAÞON
ÁRSINS 1997.
Ekki missa af y
fyndnustu kennslustund A \\ ]
allra tíma.Kennslan er f
[UGLUKOLLAR
hér með hafin.
Frá sömu
framleiðendum
og gerðu
NAKED GUN
mA a
Thx
i, TRISIAR i% i/ |
'RIBUIORS - Jl I
N ATIONAl
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
★★★ M.R. Dagsljós
★ ★★★ A.E. HP
★ U.M. Dagur-Tíminn
★ ★★V2 S.V. Mbl
★ ★★V2 H.K. DV
★ ★★ Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 3, 5, og 7.
Sýnd kl. 9 og 11.
MIÐAVERÐ 550.
FRÍTT FYRIR BÖRN
4RA ÁRA OG VNGRI.
★ ★★ DV
★ ★★Mbl
★★★ Dagsljós
★ ★★ Dagur-Tírr
★ ★★X-ið**
★ ★★TakaZ
5NWa5INI5AND JlFF &NDGE5 / ---n
ii t r I myndarinnar
™Mll^OHWO pACE5
Baumruk bestur hjá Haukum
► PETR Baumruk var fyrir skömmu valinn Iþróttamaður Hauka
fyrir árið 1996. Hann er 34 ára handknattleiksmaður, fyrrum lands-
liðsmaður Tékkóslóvakíu, sem leikið hefur með Hafnarfjarðarliðinu
síðastliðin sex ár. Auk þess að leika með karlaliði félagsins var hann
þjálfari meistaraflokks kvenna, sem varð íslandsmeistari í handknatt-
leik í fyrra. Baumruk (t.h) ásamt Lúðvík Geirssyni, formanni Ilauka.
Guðrún íþróttamaður Ármanns
► GUÐRÚN Arnardóttir frjálsíþróttakona, sem setti tvö íslandsmet
í 400 metra grindahlaupi á Olympíuleikunum í Atlanta í sumar, var
kosin Iþróttamaður Glimufélagsins Armanns fyrir árið 1996. Upp-
lýst var um valið á dögunum og var myndin tekin við það tæki-
færi. Frá vinstri: Katrín Sveinsdóttir, formaður frjálsíþróttadeildar
Armanns, Guðrún Arnardóttir og Geirlaug Geirlaugsdóttir, sprett-
hlaupari, æfmgafélagi Guðrúnar og vinkona.
Carolyn
Garcia fær 5
milljónir dala
ÖNNUR eiginkona gítarleikara og
leiðtoga hljómsveitarinnar Greatful
Death, Jerrys Garcia sem lést fyrir
rúmu ári, Carolyn Adams Garcia,
vann deilu þá sem hún stóð í fyrir
rétti í Bandaríkjunum við þriðju
eiginkonu gítarleikarans, Deborah
Koons Garcia, um að fá 5 milljónir
dala, jafnvirði 335 milljóna króna,
úr dánarbúi gítarleikarans en Jerry
hafði gert skilnaðarsáttmála við
Carolyn sem hljóðaði upp á fyrr-
nefnda upphæð í framfærslueyri
henni til handa.
Carolyn og Jerry giftust árið
1981. Þau skildu að borði og sæng
árið 1990 en fengu lögskilnað árið
1994. Þriðju eiginkonunni,
Deborah, kvæntist gítarleikarinn
árið 1994.
-----» ♦ ♦-----
Sex mánaða
knattspyrnu-
kappi
EKKI er ráð nema í tíma sé tekið,
hugsaði rúmenski knattspyrnuliðs-
eigandinn Aurel Rusu sjálfsagt þeg-
ar hann ákvað að setja sex mánaða
gamlan son sinn, Lucian, á leik-
mannaskrá félagsins og gera hann
auk þess að formanni félagsins.
Félagið heitir Sadcom og er í aust-
urhluta Caragele. Rusu er sagður
vilja að sonur sinn verði frábær leik-
maður. „Ég vil að hann verði fram-
úrskarandi leikmaður og þessvegna
ákvað ég að kynna hann snemma
fyrir íþróttinni,“ sagði Rusu.
B cicccce
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384
NETFANG: http://www.sambioin.com/
KVENNAKLUBBURINN
ÍÍBeíte/
MIDJJER
*/oa
HAWN
'm/ie?
KEATON
FIRST
Gamanmyndin sem allir hafa beðið eftir er loksins komin!
Eiginmennirnir skila Goldie Hawn, Diane Keaton og Bette Midler
en þær ætla ekki að sætta sig við slíka meðferð og ákveða
hefndir... eins og þessum elskum einum er lagið!
VINSÆLASTA GAMANMYND ÁRSINS
Einnig sýnd í Borgarbíó Akureyri,
fRJNGJARINN í
Sýnd kl. 3 og 5. íslenskt tal
BLOSSI
GLIMMER man
Vill „kettina“
sína aftur
JOSHUA Saul Winstein, frá Pom-
ona í Kalíforníu, hefur nú krafist
þess að yfirvöld skili aftur gæludýr-
unum sem tekin voru af honum
nýlega. Dýrin, 159 kíló þungt afr-
íkuljón og 136 kílóa þungt bengal-
tígrisdýr, hefur Joshua geymt í
stórum flutningabíl og alið við góð-
an kost án þess að þau fengju litið
dagsins ljós nema í takmörkuðum
mæli, en hann hefur sýnt dýrin
gegn greiðslu. „Líf mitt snýst í
kringum þessa ketti, þetta eru börn-
in mín,“ sagði Joshua grátklökkur.
Marsha Wyatt, yfirmaður Mannúð-
arfélagsins í Pomona, segir að dýr-
unum verði einungis skilað ef Jos-
hua geti sýnt fram á að hann geti
búið þeim mannúðlegt umhverfi og
fái leyfi yfirvalda fyrir þeim.