Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
t
-
FRÉTTIR
VR gerir samning
við Regn ehf.
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur og fyrirtækið Regn
ehf., sem rekur þrjár verslanir í
Reykjavík undir nafninu Monsoon,
undirrituðu síðdegis í gær nýjan
kjarasamning, sem er efnislega
að mestu samhljóða kjarasamn-
ingum sem VR hefur gert við
Félag íslenskra stórkaupmanna
og íslenska útvarpsfélagið hf.
Samningurinn nær til 25 versl-
unarstarfsmanna í verslunum
Regns og gildir til þriggja ára.
Fyrirtækið er ekki aðili að sam-
tökum atvinnurekenda. Kveður
samningurinn á um 4,7% hækkun
launataxta við undirritun, 4%
hækkun 1. janúar 1998, 3,5% 1.
janúar 1999 og 1,2% l.janúar árið
2000. í samningnum er heimild-
arákvæði um gerð fyrirtækja-
samninga.
Sjöfn Kolbeins, framkvæmda-
stjóri Regns, sagðist vera n\jög
ánægð með samninginn. Ástæða
þess að fyrirtækið hefði ákveðið
að gera þennan saming væri sú,
að starfsfólk fyrirtækisins hefði
ekki viljað fara í verkfall. „Við vilj-
um það ekki heldur og erum tilbú-
in til að greiða þessi laun sem samn-
ingurinn kveður á um,“ segir hún.
Verslanir farnar
að hamstra mjólk
um 80 þúsund lítrar á dag í verslan-
ir en á fimmtudögum og föstudög-
um fer magnið upp í 140 þúsund
lítra á dag. Þórður segir að starfs-
fólk Mjólkursamsölunnar hafi verið
undir auknu álagi vegna mikillar
aukningar í mjólkursölu. Ekki hafi
orðið vart við að starfsmenn hafi
hægt á sér við vinnu eins og orð-
rómur var uppi um að þeir myndu
gera seinni hluta vikunnar.
Ekki verður hægt að auka frekar
útkeyrslu mjólkur en orðið er vegna
þess að vöruflæðið til Mjólkursam-
sölunnar eykst ekki. „Kýmar
mjólka ekki fyrirfram og það verður
að ráðast hvernig varan berst hing-
að inn,“ sagði Þórður.
Hann sagði að með þeim ráðstöf-
unum sem þegar hefur verið gripið
til væri hægt að auka við söluna
um 100-150 þúsund lítra á viku.
Gripið verður til skammtana ef kaup-
menn hamstra mjólk í miklum mæli
KAUPMENN hafa þegar brugðist við yfirvofandi verkfalli hjá
starfsmönnum Mjólkursamsölunnar með því að kaupa 100 þúsund
lítrum meira af mjólk en eðlilegt má teljast í þessari viku. Þórður
Jóhannsson, dreifíngarstjóri hjá Mjólkursamsölunni, segir að fyrir-
tækið hafi enn sem komið er getað annað þeim pöntunum sem
borist hafa en segir ljóst að gripið verði til skammtana ef þess
verður vart að kaupmenn fari að hamstra mjólk í miklum mæli.
Þórður segir að ef ekkert gerist
í samningamálum megi búast við
því að strax á morgun fari að draga
úr því magni mjólkur sem berist til
Mjólkursamsölunnar. „Við erum að
keyra út mun meiri mjólk en við
gerum venjulega. Verslanirnar eru
farnar að kaupa mun meira af mjólk
en venjulega," sagði Þórður.
Á virkum dögum eru keyrðir út
# a Morgunblaðið/Kristinn
SILVIA Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna, Sjöfn S. Kolbeins, eigandi og framkvæmdastjóri
Regns ehf, og Magnús L. Sveinsson, formaður VR, undirrita nýjan kjarasamning.
Formbreyting ríkisviðskiptabankanna
Heimilt verði að
selja 35% hlut
SAMKVÆMT stjórnarfrumvarpi um breytingu ríkisviðskiptabankanna,
Landsbanka íslands og Búnaðarbanka íslands, í hlutafélög er gert ráð
fyrir að samanlagður hlutur annarra aðila en ríkissjóðs megi ekki vera
hærri en 35% af heildarfjárhæð hlutafjár í hvorum bankanna um sig.
Að sögn forsætisráðherra var upphaflega gert ráð fyrir að hluturinn
gæti orðið 49% en komið var til móts við óskir þingflokks Framsóknar-
flokksins um að miðað yrði við 35%.
I
!
\
I
1
*
Islenska útvarpsfélagið gerir samning við 90% starfsmanna sinna
Byggist á samningi
VR við stórkaupmenn
Morgunblaðið/Kristján Maack
KJARASAMNINGURINN var undirritaður í fyrrinótt
eftir tiltölulega skamma fundarsetu.
Bónus
Selur sólar-
landaferðir
BÓNUS hefur samið við Plús-
ferðir um sölu á 300 ferðum til
Billund í Danmörku, Benidorm
og Mallorca. Verði viðtökur
góðar hyggja Bónus og Plús-
ferðir á frekara samstarf. Sem
dæmi um verð má nefna að 35
daga ferð til Benidorm með
hóteli kostar 39.900 krónur á
mann, miðað við að tveir ferðist
saman.
■ Bónus/17
Gagnrýndur
fyrir að-
gerðarleysi
ÖSSUR Skarphéðinsson, þing-
maður Alþýðuflokks, sakar
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra um aðgerðarleysi
gagnvart útfærslu Norðmanna
á fiskveiðilögsögunni kringum
Svalbarða síðastliðið vor.
Utanríkisráðherra svaraði
því til að Norðmenn hefðu í
fyrsta sinn í vor gefíð út opin-
ber sjókort af umræddu svæði
og væru þau byggð á dómi
Hæstaréttar Noregs frá því í
vor. Afstaða íslands, sem og
annarra þjóða, væri sú að þeir
viðurkenndu ekki lögsögu
Norðmanna við Svalbarða.
Sakaður
um nauðgun
TILKYNNING barst lögreglu í
fyrradag frá konu sem sakar
mann um að hafa nauðgað sér
á heimili sínu. Konan var flutt
á neyðarmóttöku en hinn grun-
aði var handtekinn f íbúðinni
og fluttur á slysadeild þar sem
blóðsýni voru tekin úr honum.
ÍSLENSKA útvarpsfélagið hf. und-
irritaði samning við Blaðamannafé-
lagið, Verslunarmannafélag
Reykjavíkur og Rafiðnaðarsam-
bandið í fyrrinótt. Samningurinn
gerir ráð fyrir sömu grunnhækkun-
um og samningur VR við Félag ís-
lenskra stórkaupmanna. Laun
hækka um 14% á samningstíman-
um, sem er þijú ár. Júlíuppbót og
desemberuppbót er samræmd milli
stéttarfélaganna þriggja og verður
25.000 kr. að jágmarki. í eldri
samningi VR við ÍU var júlíuppbót-
in 8.000 kr.
Hreggviður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og rekstr-
arsviðs, sagði að samningurinn
næði til yfír 180 starfsmanna ÍÚ
eða meira en 90% starfsmanna fyr-
irtækisins. Hann sagðist vera
þokkalega sáttur við samninginn,
ekki síst þar sem hann næði til fé-
lagsmanna í þremur stéttarfélögum
og tryggði frið í fyrirtækinu næstu
þijú ár. Viðræður við félögin hefðu
staðið frá því í haust, en í viðræðu-
áætlunum hefði verið gert ráð fyrir
að samningum yrði lokið 1. janúar.
„Það er mitt mat að við höfum ver-
ið búnir að eiga nógu marga fundi
til að meta stöðuna. Það var því
ekki eftir neinu að bíða að ljúka
samningum.“
Fréttamenn með 100 þúsund
króna lágmarkslaun
Hreggviður sagði að það hefði
verið mat fyrirtækisins að það hefði
ekki verulegan kostnað í för með
sér að fallast á kröfu VR um 70
þúsund króna lágmarkslaun þrátt
fyrir að nokkrir einstaklingar hefðu
tekið mið af töxtum sem hefðu ver-
ið við þau mörk.
Lúðvík Geirsson, formaður
Blaðamannafélagsins, sagði að
samningur VR við stórkaupmenn
væri fyrirmynd hvað varðar pró-
sentuhækkanir og samningstím-
ann. En til viðbótar gerði Blaða-
mannafélagið samning um sérkjör
sinna félagsmanna, sem m.a. fæli
í sér starfsaldurshækkanir. Þá hefði
kafli samninganna um höfundarrétt
og skilgreiningar á störfum verið
endurskrifaður.
„Við hreinsuðum út þetta taxta-
kerfi, sem raunverulega hefur ekki
haft neina þýðingu þarna frekar en
á mörgum öðrum vinnustöðum, og
settum inn eina grunntölu. Lág-
markslaunin eru bundin við 100
þúsund krónur og hækka síðan í
samræmi við áfangahækkanir í
samningnum. Yfirvinnuálag frétta-
manna tekur áfram mið af heildar-
launum en ekki grunnkaupi.
Ég met það svo að þessi samning-
ur breyti töluvert þeirri kyrrstöðu
sem verið hefur í samningaviðræð-
um, ekki bara hjá okkur heldur al-
mennt á markaðinum. Þarna er
verið að festa í sessi ákveðin atriði
sem voru komin fram í samningi
við stórkaupmenn, en það er útfært
nánar eftir einstökum félögum,"
sagði Lúðvík.
IÚ á ósamið við nokkra starfs-
menn, s.s. smiði, verkfræðinga og
fleiri, en samið verður við þá sam-
hliða almennum samningum stétt-
arfélaga þeirra.
Gert er ráð fyrir að sala á hlutafé
í eigu ríkissjóðs í bönkunum verði
óheimil án samþykkis Alþingis og í
stefnuyfírlýsingu í greinargerð með
frumvarpinu er miðað við að ríkis-
sjóður selji ekki hlutabréf sín í bönk-
unum fyrstu fjögur rekstrarár þeirra.
Frumvarpið var lagt fram á Al-
þingi í gær ásamt frumvörpum um
stofnun Fjárfestingarlánabanka at-
vinnulífsins hf. og Nýsköpunarsjóð
atvinnulífsins.
■ EignarhIutur/45
----------------
Félagsdómur
Bein kaup
á afla- 1
heimildum
FÉLAGSDÓMUR hefur komist að
þeirri niðurstöðu að viðskiptin tonn
á móti tonni séu bein kaup á afla-
heimildum og jafnframt að slík við-
skipti séu brot á kjarasamningi um c
að tryggja skuli yfirmönnum hæsta
gangverð alls afla. Ennfremur að
viðskiptin hafi almennt leitt til lægra |
fiskverðs.
í dómi félagsdóms í máii Far-
manna- og fískimannasambands ís-
lands gegn Landssambandi íslenskra
útvegsmanna, fyrir hönd Útvegs-
mannafélags Norðurlands vegna
Sæbergs hf. á Ólafsfirði segir að LÍÚ
teljist hafa brotið gegn kjarasamn-
ingi Farmanna- og fiskimannasam- §
bandsins með því að taka ekki tillit
til móttekins aflamarks fyrir seldan I
afla við tilgreiningu heildarskipta- \
verðmætis.
í niðurstöðu dómsins kemur fram
að viðskipti með tonn á móti tonni
leiði almennt til lægra fiskverðs. Því
hafi verið haldið fram að fískkaup-
andinn útvegi útgerð skips og áhöfn
viðbótarheimildir til að halda skipinu
lengur á veiðum og jafnframt að fisk-
kaupandinn sé ekki reiðubúinn til að ,
greiða jafnhátt verð fyrir aflann, sem
hann kaupir, og hann myndi gera ef 1
eingöngu væri veitt af kvóta skipsins. |
■ Tonn á móti/11