Morgunblaðið - 06.03.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 11
FRÉTTIR
Tonn á móti
tonni brot á
kjarasamningi
*
I niðurstöðum Félagsdóms kemur fram að
jafna megi tonn á móti tonni viðskiptum við
bein kaup á aflaheimildum. Slík viðskipti séu
einnig brot á kjarasamninffl sem kveður á
um að tryggja skuli yfirmönnum hæsta
gangverð alls sem aflað er
FELAGSDOMUR kvað upp
þann dóm í gær í máli
Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands
vegna Skipstjóra- og stýrimannafé-
lags Norðlendinga gegn Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna, fyrir
hönd Utvegsmannafélags Norður-
lands vegna Sæbergs hf. á Ólafs-
firði, að stefndi, LÍÚ, telst hafa
btotið gegn kjarasamningi Far-
manna- og fískimannasambands Is-
lands og Landssambands útvegs-
manna með því að taka ekki tillit
til verðmætis móttekins aflamarks
fyrir seldan afla við tilgreiningu
heildarskiptaverðmætis. Málið sner-
ist um svonefnd tonn á móti tonni
viðskipti.
Ágreiningur var með málsaðilum
um túlkun á orðalagi greinar 1.03
í kjarasamningi LÍU og yfirmanna
innan FFSÍ. Greinin er svohljóð-
andi: „Um sölu afla innanlands.
Yfírmönnum skal tryggt hæsta
gangverð alls sem aflað er og aldrei
lægra en útgerðarmaður fær fyrir
sinn hlut. Þeir taka ekki þátt í út-
gerðarkostnaði.
I. Almennt. Útgerðarmaður hefur
með höndum sölu aflans og hefur
til þess umboð áhafnar að því er
aflahlut hennar varðar. Hann skal
tryggja skipverjum hæsta gangverð
fyrir fiskinn, þó aldrei lægra en
útgerðarmaður fær, þar með talin
hrogn, lifur og bein. Ekki er heim-
ilt að draga frá heildarverðmæti
afla kostnað vegna kaupa á veiði-
heimildum . . .“
Tvenns konar greiðsla
Af hálfu FFSÍ var því haldið fram
að fyrirtækið Sæberg hf. hafi kosið
að túlka ofangreind ákvæði kjara-
samningsins á þann veg að til skipta
komi aðeins sá hluti af verðmæti
afla sem greiddur er með peningum.
Þannig byggi stefndi á því að þrátt
fyrir að kaupandi afla greiði fyrir
hann bæði með peningum og kvóta
þá skuli aðeins gert upp gagnvart
skipveijum miðað við peninga-
greiðslur sem inntar eru af hendi í
viðskiptum útgerðar og fiskkaup-
anda. I þessum viðskiptum, sem
gjarnan eru nefnd tonn á móti tonni,
fái útgerðarmaður raunverulega
tvenns konar greiðslu fyrir landaðan
afla. Annars vegar peningagreiðslu
miðað við magn og hins vegar kvóta
í formi aflamarks þeirrar fiskteg-
undar sem viðskiptin varða.
Stefnandi byggði málsókn sína á
því að Sæbergi hf. hefði verið skylt
að gera upp aflaverðmæti í sam-
ræmi við ákvæði greinar 1.03 í
kjarasamningnum. Utgerðarmönn-
um beri, samkvæmt tilvitnuðum
ákvæðum hans, að greiða laun mið-
að við það heildaraflaverðmæti sem
útgerðin fær fyrir aflann. Málsóknin
byggðist á því að við uppgjör afla-
hlutar hefði Sæberg hf. lagt til
grundvallar rangt aflaverðmæti við
tilgreiningu heildarskiptaverðmæt-
is. Að mati stefnanda hefur Sæberg
hf. brotið gegn kjarasamningum
með þessari háttsemi.
Verðmæti móttekins
aflamarks ekki reiknað með
Stefndi taldi að krafa stefnanda
um að fá greiðslur bæði fyrir land-
aðan afla og að auki söluverð kvót-
ans og skipta andvirði veiðiheimilda
fiskkaupandans eftir að búið var að
veiða þær einnig upp til hlutaskipta
fái ekki staðist. Kjarni málsins sé
sá að veiðiheimildir fískkaupandans,
sem hann á og leggur til og lætur
veiða fyrir sig, séu ekki greiðsla
fyrir landaðan afla, eins og stefn-
andi haldi fram. Leggi fiskkaupandi
til veiðiheimildir hafi það áhrif á það
fiskverð sem fískkaupandinn sé til-
búinn að greiða fyrir landaðan afla.
í niðurstöðu dóms Félagsdóms
segir að við uppgjör á aflahlut hafi
verið miðað við greiðslu í peningum
en verðmæti móttekins aflamarks
ekki reiknað með. í þessu máli hafi
verið til skoðunar hvort uppgjörsað-
ferðin feli í sér að yfírmönnum hafí
ekki verið tryggt hæsta gangverð
og yfirmenn tekið þátt í útgerðar-
kostnaði vegna kaupa á veiðiheim-
ildum.
Fram hafi komið í málinu að tonn
á móti tonni viðskipti leiði almennt
til lægra fískverðs. Stefndi haldi því
fram að fiskkaupandinn útvegi út-
gerð skips og áhöfn viðbótarheimild-
ir til þess að hægt sé að halda skipi
lengur til veiða. Á móti sé fískkaup-
andinn ekki reiðubúinn til að greiða
jafnhátt verð fyrir aflann sem hann
kaupir eins og hann mundi gera ef
veitt væri alfarið af eigin kvóta
skips. Þær veiðiheimildir sem fisk-
kaupandinn leggi til séu verðmæti
sem hann eigi og vilji þar af leið-
andi fá eitthvað fyrir sinn snúð.
Þetta komi fram í lægra verði sem
hann sé tilbúinn að greiða fyrir afl-
ann.
Má jafna við bein kaup á
aflamarki
Telur Félagsdómur að viðskiptum
stefnda og viðkomandi fiskkaup-
anda megi jafna við bein kaup á
aflamarki. Verði skipvetja ekki gert
að taka þátt í kostnaði af beinum
eða óbeinum viðskiptum sem jafna
megi til kaupa á aflamarki nema
kveðið sé á um það í lögum eða
kjarasamningum. Viðskiptaaðferð
stefnda og fiskkaupanda feli það í
sér að heildarverðmæti afla sem
stefndi miðaði uppgjör til hluta-
skipta við er lægra en ella og kem-
ur því minna til skipta.
„Með hliðsjón af öllu framan-
sögðu er það niðurstaða dómsins
að aðferð stefnda í viðskiptum við
fiskkaupandann og eftirfarandi upp-
gjör aflahluts yfírmanna bijóti í
bága við nefnd ákvæði greinar 1.03
í kjarasamningi aðila sem skyldar
stefnda til að tryggja yfirmönnum
hæsta gangverð og leggur bann við
því að þeir taki þátt í útgerðarkostn-
aði vegna kaupa á veiðiheimildum,"
segir í dóminum.
Stefnandi gerði kröfu til þess að
stefndi yrði dæmdur til greiðslu
sektar en með hliðsjón af eðli
ágreinings aðila og forsögu málsins
þótti Félagsdómi engin efni til að
taka sektarkröfu stefnanda til
greina. Stefndi var dæmdur til að
greiða stefnanda 200 þúsund krónur
í málskostnað.
Málið dæmdu Auður Þorbergs-
dóttir, Gylfi Knudsen, Ingibjörg
Benediktsdóttir, Atli Gíslason og
Valgeir Pálsson. Valgeir skilaði sér-
atkvæði og vildi hann sýkna stefnda
í málinu af öllum kröfum stefnanda
að því undanskildu að kröfu um við-
urkenningu þess að stefndi hafi
brotið gegn 3. málslið 1. mgr. I.
kafla í grein 1.03 skyldi vísað frá
Félagsdómi.
Yfirlýsing frá fyrrverandi stuðningsmönnum Péturs Hafstein
Rétt skal vera rétt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá fyrrverandi stjórnar-
mönnum samtaka um forsetafram-
boð Péturs Kr. Hafstein sem undir-
rituð er af Sindra Sindrasyni, Pétri
Kjartanssyni og Hallgrími Jónas-
syni:
„Að undanförnu hafa komið fram
erindi til Hæstaréttar þar sem bornar
eru brigður á hæfí Péturs Kr. Haf-
stein til að gegna störfum sem
hæstaréttardómari vegna framboðs
hans til embættis forseta íslands.
Hæstiréttur mun væntanlega af-
greiða þessi erindi eins og lög gera
urður ýmis störf á sjó
og landi meðal annars vörubílaakst-
ur á eigin bílum en hætti eftir að
hann missti sjónina í slysi árið 1942.
Eftir það vann hann í fyrstu við
burstagerð, taumaáhnýtingar og
línuuppsetningu fyrir báta í Hnífs-
dal. Arið 1945 fór hann að fást við
ráð fyrir. Þess vegna þykir okkur
undirrituðum, er störfuðu með Pétri
Kr. Hafstein að framboðinu, ástæða
til að taka eftirfarandi fram.
Það er rangt að framboð Péturs
Kr. Hafstein hafi óskað eftir við fjár-
málaráðuneytið að virðisaukaskattur
yrði endurgreiddur. Hið rétta er að
forsvarsmenn framboðsins auk fram-
boða Guðrúnar Agnarsdóttur og Ól-
afs Ragnars Grímssonar fóru á fund
fjárlaganefndar Alþingis skömmu
fyrir síðustu áramót og óskuðu eftir
að framboðin fengju styrkveitingu á
fjárlögum á sömu forsendum og
var formaður Sjálfstæðisfélags Eyr-
arhrepps og sat í kjördæmisráði
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðurn.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er
Aðalheiður Tryggvadóttir.
stjórnmálaflokkar við kosningar til
Alþingis. Fjárlaganefnd hafnaði er-
indinu og var það þar með úr sög-
unni.
Ástæða er til að árétta það sem
margítrekað hefur komið fram að
Pétur Kr. Hafstein tók þá ákvörðun
í upphafi með tilliti til þeirra dómara-
starfa sem hann gegnir að fá ekki
vitneskju um einstök framlög eða
fjáhæðir þeirra. Þessu hefur verið
fylgt eftir í hvívetna.
I þeirri umfjöllun sem átt hefur
sér stað undanfarið um ætlað van-
hæfi Péturs Kr. Hafstein, hafa kom-
ið fram fleiri rangfærslur sem ekki
er hirt um að leiðrétta hér. Hins
vegar hlýtur það að vera réttmæt
krafa að þeir sem sækja þessi mál
vandi til málatilbúnaðarins og hafa
það sem sannara reynist."
------♦—♦—♦------
Áreitti
börn kyn-
ferðislega
MAÐUR á fertugsaldri var handtek-
inn í Sundhöllinni við Barónsstig í
fyrrakvöld fyrir að hafa í frammi
kynferðislega áreitni gagnvart börn-
um.
Maðurinn var handtekinn og færð-
ur í fangageymslu og mun hann
hafa viðurkennt að hafa áreitt börn.
Þroskaheftur piltur var fluttur á
slysadeild til aðhlynningar.
Maðurinn mun einnig hafa áreitt
þijú önnur börn. Að sögn lögreglu
viðurkenndi maðurinn að hafa hand-
leikið kynfæri sín fyrir framan unga
drengi I Sundhöllinni. Hann lagði
hönd á öxl eins drengsins og viður-
kenndi maðurinn að hann hefði ætlað
að fá hann til að koma með sér og
misnota hann kynferðislega.
Andlát
SIGURÐUR SVEINS
GUÐMUNDSSON
SIGURÐUR Sveins
Guðmundsson, einn
stofnenda Rækju-
verksmiðjunnar hf. í
Hnífsdal, lést á
Sjúkrahúsi Isafjarðar
2. mars sl. á áttug-
asta og sjöunda ald-
ursári.
Foreldrar Sigurðar
voru Guðmundur Ein-
arsson, fiskmatsmað-
ur í Hnífsdal, og kona
hans Bjarnveig
Magnúsdóttir frá Sæ-
bóli í Aðalvík. Á yngri
árum stundaði Sig-
verslun með ýmsan smá-
vaming og veitingar og
voru verslunarstöf hans
aðalstarf í mörg ár eða
þar til hann stofnaði
ásamt öðrum Rækjuverk-
smiðjuna hf. í Hnífsdal
árið 1959. Stjórnaði Sig-
urður fyrirtækinu frá
upphafi ásamt Guðmundi
syni sínum allt þar til
reksturinn var seldur árið
1987. Sigurður tók einn-
ig þátt í stofnun fjölda
fyrirtækja á sviði versl-
unar, fiskvinnslu, heild-
sölu og útflutnings sjáv-
arafurða.
Sigurður var umboðsmaður og
fréttaritari Morgunblaðsins. Hann
Bókaðu fyrir
10. mars
°9 tryggðu þér
allt að 32.000 kr
afsláttfyrir
fjölskylduna í sumar
Undirtektirnar við ferðum Heimsferða hafa verið ótrúlegar,
þúsundir farþega okkar eru búnir að tryggja sér sæti í ferðina
sína í sumar og nú eru 11 brottfarir með Heimsferðum
uppseldar í sumar. Bókaðu fyrir 10. mars og tryggðu þér
afmælisafsláttinn í ferðinni þinni í sumar.
Costa del Sol
8.000
afsláttur pr. mann
21. maí, 18. júní,
2. og 23. júlí.
París
4.000
afsláttur pr. mann
2., 9. og 30. jdlí.
Benidorm
6.000,.
afsláttur pr. mann
21. maí, 18. júní,
2., 9., 16. og 23. júlí.
Æ
m
kr.
LHEl IMSFERI ðl R,
~i r—
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 562 4600