Morgunblaðið - 06.03.1997, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
i
LANDIÐ
tj!ð: •Afl'Taoiið.. eggjar-auðtit.
*w ym* kfy&t, KÆUVAftA *
v &íM iK airv* mv, *
^905 75'f20 tö 15 ■
L”?Vb»* S;<á,jíK
Námskeið
Garðyrkju-
skólans
vel sótt
Hveragerði - Garðyrkjuskóli rík-
isins að Reykjum í Ólfusi stendur
reglulega fyrir ýmsum námskeið-
um er tengjast garðyrlgu og nýst
geta bæði fagfólki í greininni sem
ogöðrum.
Um síðastliðna helgi var fjöl-
breytt námskeiðahald á vegum
skólans en þá var meðal annars
haldið tveggja daga námskeið fyr-
ir fagfólk í blómaverslunum. Þar
var kennd körfugerð sem og nýj-
ustu línurnar í blómaskreytingum.
Kennarar á námskeiðinu voru
Uffe Balslev blómaskreytinga-
maður og Margrét Guðnadóttir
körfugerðarkona. Er þetta í fyrsta
skipti sem skólinn gengst fyrir
námskeiði þar sem körfugerð og
blómaskreytingum er blandað
saman. Var ekki annað að heyra
á þátttakendum en að þetta ný-
mæli mæltist vel fyrir og greini-
legt að þarna komu fram margar
góðar hugmyndir sem örugglega
eiga eftir að sjást í blómaverslun-
um landans á komandi misseri.
Aðspurður sagði Uffe að blóma-
skreytingar fylgdu ákveðinni
tísku rétt eins og annað. Núna eru
skreytingar úr náttúrulegum efn-
um mjög vinsælar. Alls konar efni
sem er rétt við höndina í islenskri
náttúru sem og í görðum fólks er
mest notað. Það sama gildir um
körfugerðina, greinar af íslensk-
um trjám og runnum verða að
gerðarlegum körfum eða vegg-
myndum. Á verkum þátttakenda
mátti sjá að mjög skemmtilegar
skreytingar geta orðið til þegar
körfugerð og blómaskreytingum
er blandað saman.
Næstkomandi laugardag verður
Uffe Balslev með blómaskreyt-
inganámskeið fyrir almenning en
laugardaginn þar á eftir verður
gerð páskaskreytinga kennd.
-kjarni málsins!
Séreignaríbúðir
í Grundarfirði
Grundarfirði - Á þessu ári hef-
ur verið reist veglegt hús í
Grundarfirði sem er ætlað öldr-
uðum og öryrkjum. Húsið er
steinsteypt og er 655 fm að
grunnfleti en kjallarinn sem er
undir tæplega hálfu húsinu er
m.a. ætlaður fyrir bílageymslur.
í húsinu eru átta íbúðir sem
seljast skv. almennu og félags-
legu kaupleigukerfi Húsnæðis-
málastofnunarinnar. Húsið er
tengt dvalarheimili aldraðra í
Grundarfirði með tengigangi.
Húsið er nú fullfrágengið og
hefur ein íbúð þegar verið seld.
Kaupendurnir eru Guðmundur
Runólfsson, útgerðarmaður og
Ingibjörg Kristjánsdóttir kona
hans, sem hafa nú þegar flutt
inn í íbúð sína og eru harðánægð
með aðstöðuna.
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
GUÐMUNDUR Runólfsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir eru
hæstánægð með íbúð sína.
„ Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
NAMSKEIÐ í körfugerð og blómaskreytingum hefur verið n\jög vinsælt.
nmetís
stígur Iram
Sósan er frábær með öllu grænmeti.
Hún er kjörin í samlokur og ómissandi
í salatið.
Prófaðu þessa! Hún er pottþétt.
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 424 6525
ttettni íf 4Öi, 410,4 f4l1)
wwtfá'BiMírfOffa,
Js
420 ml v>
Raf-
magns-
leysi á
Tálkna-
firði
Tálknafirði - Miklar raf-
magnstruflanir hafa verið á
Suðurfjörðum Vestfjarða und-
anfarna daga. Aðfaranótt
þriðjudags bilaði línan frá
Mjólká á Dynjandisheiði þann-
ig að rafmagnslaust varð á
Tálknafirði og Patreksfirði. í
fyrstu var talið að aðalspennir
veitustöðvarinnar á Keldeyri á
Táknafirði hefði bilað en við
athugun kom í ljós að það var
sjálf línan sem var biluð. Núna
er rafmagni veitt á svæðið
eftir sæstreng sem liggur yfir
Arnarfjörð. Sæstrengurinn er
kominn til ára sinna og er ein-
göngu notaður þegar Tálkna-
fjarðarlínan bilar. Beðið er eft-
ir skaplegra veðri svo unnt
verði að gera við bilunina.
Rafmagnið fór af um kl. 4
aðfaranótt þriðjudags og búið
var tengja inn rafmagn frá
Bíldudal um kl. 16 sama dag.
Skömmu síðar var keyrð upp
varaaflsstöð á Patreksfirði
sem veitir rafmagni einnig til
Tálknafjarðar en vegna bilun-
arinnar var það ekki hægt svo
skammta varð rafmagn á
Tálknafirði. Heimili fengu um
klukkustundar rafmagn á
fjögurra tíma fresti. Skólahald
féll niður í rafmagnsleysinu
en ekki varð mjög kalt í húsun
þar sem ekki var frost.
Fram kom í samtali við Ingi-
mund Andrésson, svæðisstjóra
Orkubúsins, að varaaflsstöðin
á Tálknafirði annar ekki raf-
magnsþörf þegar þetta ástand
skapast en hún skilar einum
fimmta af því rafmagni sem
þörf er á við slíkar aðstæður,
hún er aðeins 420kw. Stöðin
er staðsett í Hraðfrystihúsi
Tálknafjarðar og var þar vinna
allan þriðjudaginn. I Þórsbergi
var unnið í nokkra tíma um
morguninn og síðar gefið frí
vegna ástandsins.
í
I
í
i
I
;
I
i
I
I
I
I
í
I
i
I
<
I
t
I
t
t
C