Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 VERIÐ ERLENT MORGUNBLAÐIÐ HROGNIN unnin hjá ísfélagi Vestmannaeyja. Morgunblaðið/Sigurgeir Allt orðið klárt í landi fyrir vinnslu hrogna LEIÐINDAVEÐUR hefur hamlað loðnuveiðum undanfama daga og lík- ur eru á að svo verði eitthvað áfram, gangi veðurspáin eftir. Engin loðnu- skip gátu athafnað sig á miðunum í gær og lágu því flest bundin við bryggju. Þær loðnuvinnslur, sem hyggjast vinna loðnuhrogn á Japans- markað, eru flestar tilbúnar til hrognatöku og örfáar munu nú þeg- ar vera komnar í gang að einhveiju leyti. Hrognataka og vinnsla stendur að jafnaði í tvær til þrjár vikur á ári. Litlar líkur voru á að þau hrogn, sem þegar er búið að kreista, séu söluhæf vegna ónógra gæða. Auk þess óttast loðnusjómenn að hrognin verði nán- ast öll lekin út næst þegar hægt verður að fara á sjó. Það hefði gerst áður í stórum brælum að loðnan hellti allt í einu úr sér, eins og einn loðnusjómaðurinn orðaði það í sam- tali við Verið í gær. „Það er nú eiginlega ekki hægt að segja að við séum byijaðir hrogna- vinnslu að ráði þó við séum rétt fam- ir að kíkja á hana. Okkur líst ekkert of vel á hrognatökuna vegna veðrátt- Nokkrir hafa þegar hafið hrognatökuna unar, sem hamlar því að eitthvað sé hægt að gera, auk þess sem búið er að boða yfirvinnubann í loðnuverk- smiðjunum tveimur í Vestmannaeyj- um frá og með 10. mars nk., en verksmiðjurnar em yfirleitt keyrðar allan sólarhringinn. Málið var komið inn á borð sáttasemjara, en það slitn- aði upp úr viðræðum í fyrradag þann- ig að einhver stífni er uppi. Við vitum ekkert hvemig þetta fer þó hrognin séu að verða klár til hrognatöku enda emm við að detta inn í þann tíma, sem hrognin eiga að vera orðin þokkaleg til þess að hægt sé að fara að vinna þau. Það var hugur í okkur að reyna að vinna einhver hrogn. Það hefur verið breytilegt frá ári til árs hversu mikið við höfum unnið af hrognum á ári og ræðst af því hvernig markaðurinn er úti í Japan fyrir þessa vöra,“ seg- ir Viðar Elíasson, framleiðslustjóri Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest- mannaeyjum. íslendingar em þeir einu sem framleiða nú og frysta loðnuhrogn á Japansmarkað og er heildameyslan talin nema þijú til fjögur þúsund tonnum á ári. Að sögn Viðars, hafa tvö fyrirtæki í Eyjum, Vinnslustöðin og ísfélagið, framleitt um 40-50% af því magni. Hrognavertíðin brást hinsvegar alfarið í fyrra. Þegar átti að fara að hirða hrognin, gaf loðnan sig ekki þar sem megnið af henni hafði þegar hrygnt og var dauð á botninum, en hrygningarloðnan er tekin suðvestanlands, allt frá Vest- mannaeyjum og vestur að Snæfells- nesi. Viðar telur markaðshorfur fyrir loðnuhrogn ágætar, verði fram- leiðslumagnið innan skynsamlegra marka. „Hitt ber á að líta að við emm með margfalda afkastagetu fyrir markaðinn og gætum auðveld- lega rústað honum. Því er nauðsyn- legt að tempra það magn, sem sett verður inn á markaðinn með góðri samvinnu allra framleiðenda." Umboðsmaður Alþingis telur gjaldtöku Flskistofu ólögmæta GJALDTAKA Fiskistofu fyrir veitta þjónustu af gæðasviði er ekki lögmæt samkvæmt áliti umboðsmanns Al- þingis en Ámes hf. í Þorlákshöfn hefur borið fram kvörtun vegna gjaldtökunnar. Farið er fram á end- urskoðun gjaldtökunnar, enda sé hún forsenda ákvarðana um endur- grejðslur á gjaldinu. Ámes hf. kvartaði sérstaklega yfir gjaldtöku fyrir vinnsluleyfi tveggja báta fyrirtækisins. Telur fyr- irtækið að kostnaður vegna þjón- ustunnar sé í engu samræmi við inn- heimt gjald sem nam um 50 þúsund krónum fyrir hvorn bát. Ófullnægjandi gjaldflokkar Álit umboðsmanns Alþingis fjallar almennt um stjórnsýslu Fiskistofu og um aðskilnað þjónustu og eftir- lits. Umboðsmaður segir heimild til gjaldtöku í lögum en hinvegar verði hún að vera bundin við meðaltals- kostnað sem af gjaldtökunni leiði í hveijum flokki. í álitinu er dregið í efa að tækt sé að flokka saman vinnsluskip til gjaldtöku með þeim hætti, sem gert er í gjaldskránni. Þar séu skip af mismunandi stærð felld undir sama gjaldflokk. Bátar Ámess sem hér um ræðir em rúm- lega 200 rúmlestir en falla undir sama gjaldflokk og frystitogarar flotans. Þá segir í álitinu að ekki sé skýrlega kveðið á um það í lögum hvemig eftirliti Fiskistofu með vinnsluleyfishöfum skuli háttað. Niðurstaða umboðsmanns Alþing- is er sú að gjaldskrá Fiskistofu sé ekki lögmæt og beinir hann því til sjávarútvegsráðuneytisins að það taki gjaldskrána til endurskoðunar og komi henni á lögmætan gmnd- völl. Auk þess óskar umboðsmaður Alþingis eftir því að ráðuneytið taki til sérstakrar athugunar hina um- deildu gjaldtöku af Ámesi hf., fari fyrirtækið fram á endurgreiðslu ef gjaldtakan reynist of há. Tekið er fram að rétt gjaldfjárhæð verði ekki fundin með vissu fyrr en endurskoð- un á gjaldtöku hefur farið fram. Óeðlileg innheimta Pétur Reimarsson, framkvæmda- stjóri Ámess hf., segir þessa inn- heimtu mjög óeðlilega og strax árið 1995 hafi verið farið fram á það við sjávarútvegsráðuneytið að það gerði Fjskistofu að endurgreiða gjaldið. „Ég ítrekaði þessa beðni við ráðu- neytið allt árið 1995 en fékk lítil viðbrögð. Að lokum kvartaði ég yfir þessu við umboðmann Alþingis. Á þeim tíma sem leyfið var gefið út hafði Fiskistofa aldrei komið hingað og aldrei skoðað bátana. Eini kostn- aðurinn sem hún hefur haft af leyfi- sveitingunni var að prenta skjalið og senda okkur það í póstkröfu," segir Pétur. Pétur segir að í framhaldi af þess- ari niðurstöðu verði farið fram á það við sjávarútvegsráðiineytið að gjaldið verði endurgreitt. Ámes hf. gerir út fimm báta og rekur þijú frystihús og segir Pétur að líklega verði farið fram á endurgreiðslu gjaldsins fyrir frystihús og önnur skip fyrirtækis- ins, þar sem greitt hafi verið fyrir vinnsluleyfi þeirra með sama fyrir- vara. Endurskoðun að hefjast Ámi Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, segir að vinna við endurskoðun gjaldskrárinn- ar sé að heijást í samvinnu við Fiski- stofu. Fara þurfi í gegnum gjaldtök- una að gefnum þeim forsendum sem komi fram í áliti umboðsmanns Al- þingis og meta hvort lækka þurfi gjaldið í einhveijum tilvikum eða flokka betur í sundur þær stofnanir sem um er að ræða. I framhaldi af því verði metið hvort fleiri skip en skip Ámess, og þá hvaða skip, hafi endurkröfurétt til gjaldsins. Reuter Cohen ræðir við Kohl WILLIAM Cohen, nýskipaður varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna (t.v.), ræddi við Helmut Kohl, kanslara Þýskalands, í Bonn í gær um hersveitir Bandaríkjamanna í Evrópu. Cohen sagði Kohl hafa látið í Ijós ánægju með gang við- ræðnanna um stækkun Atlants- hafsbandalagsins (NATO) í austur og hvatt Bandaríkjastjórn til að halda hersveitum sínum í Þýska- landi. Um 75.000 bandariskir her- menn eru í landinu. Cohen er í fyrstu ferð sinni til Evrópu frá því hann varð varnar- málaráðherra í lok janúar. Kohl kvaðst ánægður með að Cohen skyldi hafa fengið embættið því hann hefði sýnt málefnum Evrópu mikinn áhuga þegar hann var þingmaður í öldungadeildinni. Cohen hélt síðan til Stuttgart og ræddi þar við bandarísku hers- höfðingjana George Joulwan, æðsta yfirmann hersveita NATO í Evrópu, og William Crouch, yfir- mann hersveita bandalagsins í Bosníu og bandarisku hersveit- anna í Evrópu. Tillögur um breytt hlutverk forseta framkvæmdastjórnar ESB Forseti fái meirí völd árið 2000 London. The Daily Telegraph. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins, ESB, tók í gær til um- fjöllunar tillögur um að forseta fram- kvæmdastjómarinnar verði færð meiri völd árið 2000. Utanríkisráð- herrar ESB-ríkjanna munu fjalla um tillögumar seinna í þessum mánuði. Fyrir liggur, að tillögumar njóti stuðnings meirihluta aðildarríkjanna. Ráðamenn margra þeirra em þeirrar skoðunar, að Jacques Santer skorti áhrif til að setja mark sitt á fram- kvæmdastjórnina og vilja end- urskipuleggja hana til að tryggja að sá sem gegni embætti forsetans geti stýrt henni á skilvirkari hátt. Starfstímabil Sant- ers lýkur 1999. Tillögunum mun þó ekki verða vel tekið meðal Breta og annarra, sem þekktir eru fyrir tortryggni í garð Evrópusammnans. Þeir munu túlka þær þannig, að þær beri merki um einarðan ásetning sammnasinna um að færa völd frá ríkisstjórnunum til Bmssel. Forsetinn velji sjálfur liðsmenn sína Meðal tillagnanna er sú hugmynd, að forseti framkvæmdastjórnarinnar fái vald til að velja sjálfur menn í framkvæmdastjórnina og til að gera „uppstokkanir" á henni, til honum gefist svigrúm til að launa þeim sem skila góðu verki og lækka þá í tign sem gera það ekki. Eins og reglurnar em nú tilnefna ríkisstjómir aðildarríkjanna meðlimi framkvæmdastjómarinnar. Þegar þeim hefur einu sinni verið útdeilt málaflokkum í upphafi starfstímabils hverrar framkvæmdastjómar fæst engin breyting gerð þar á í fimm ár. Ennfremur ganga tillögumar út á að vald forset- ans innan stofn- anauppbyggingar ESB yrði styrkt með því að breyta skipulagi fram- kvæmdastjómarinnar þannig, að meðlimum hennar yrði skipt í tvennt. 10-14 meðlimir hennar mynduðu nán- asta samstarfshring forsetans, og fæm með mikilvægustu málaflokk- ana, s.s. peningamál, viðskipti, sam- keppnismál og utanríkismál. Sagt er að Santer krefjist þess, að hann hljóti rétt til að beita neitun- arvaldi gegn einstökum tilnefningum ríkisstjórnanna, en líklegra þykir að honum verði leyft að velja úr stuttum lista manna, sem ríkisstjórnimar leggja til, eða í samráði við ráða- menn hvers aðildarlands. EVRÓPA^ Evrópudómstóllinn Eykur aðgang að upplýsingum Lúxemborg. Reuter. EVRÓPUDÓMSTÓLLINN í Lúxem- borg kvað upp úr um það í gær, að framkvæmdastjóm Evrópusam- bandsins, ESB, væri óheimilt að neita almenningi um aðgang að upp- lýsingum með þeim rökum, að við- komandi skjöl væm trúnaðarmál. Alþjóðlegu náttúmverndarsamta- kökin WWF höfðu kært fram- kvæmdastjómina fyrir Evrópudóm- stólnum til þess að freista þess að fá aðgang að upplýsingum, sem lágu til grundvallar þeirri ákvörðun fram- kvæmdastjómarinnar að veita ekki styrk til nýs þjóðgarðs á írlandi. Lögfræðingur WWF sagði úrskurð dómstólsins „mikilvægan sigur fyrir alla sem vilja sjá opnari vinnubrögð við ákvarðanatöku á vettvangi Evr- ópusambandsins.“ Þá röksemdafærslu fyrir banni við innsýn í stjómsýslugögn, að þau væru trúnaðarmál, sagði lögfræð- ingurinn vera of víðtæka og gæfí framkvæmdastjórninni færi á að halda of mörgu leyndu. Þetta hefði dómstóllinn staðfest með úrskurði sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.