Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 23
LISTIR
Sjónræn minni
TENA Palmer og Justin Heynes.
Tónlistarskóli Njarð-
víkur fagnar afmæli
MYNPUST
Hafnarborg
MYNDVERK
Kjartan Ólafsson. Opið alla daga frá
12-18. Lokað þriðjudaga. Til 10.
marz. Aðgangur 200 krónur í allt
húsið.
LÖNGUM hefur verið borð-
leggjandi að Kjartan Ólafsson
væri góðum málaragáfum gædd-
ur, og að ekki skorti á metnaðinn.
En myndmál hans hefur hingað
til byggst á framkvæmdum ofur-
stærða, þar sem undarlegur sósíal-
realismi og hetjurómantík vörðuðu
veginn, og virkaði hálfframandi
hér á norðurslóðum.
En nú hafa rannsóknir Kjartans
leitt hann út á aðrar brautir og
öllu mýkri og nálægari, því þau
sjónminni sem hann yfirfærir á
dúka sína þekkja flestir. Um leið
hefur hann víkkað til muna frekar
eintóna tæknisvið sitt, pensilstrok-
uraar eru ijölþættari og og litrófið
bjartara. það er líkast því sem ein-
hver hamingja hafi lostið lista-
manninn og um leið hafi honum
opinberast verðmæti hins nálæga
og jarðtengda í umhverfinu. Hafi
uppgötvað að nálgast má mynd-
efnin út frá mörgum sjónarhorn-
um. Við blasa útlínur af styttum
þekktra íslendinga, Ingólfi Arnar-
syni, Snorra Sturlusyni og Bertel
Thorvaldsen. Af stöðum og skjöl-
um sem tengjast sögu okkar, af
myndbrotum sem við höfum sum
daglega fyrir augunum án þess
að gefa þeim sérstaklega gaum,
eins og kynning í sýningarskrá
framber.
Það er líka alveg rétt athugað,
að þetta séu brot úr myndrænum
orðaforða okkar íslendinga, svipir
sem eru svo djúpt greyptir í vit-
undina að við þekkjum þá hvar
sem er. Og við þetta má bæta, að
þessi myndræni orðaforði er mun
meiri en myndlistarmenn hafa enn
áttað sig á, eiga eftir að uppgötva
og gera skil, einnig í formi rót-
tækra núlista. Er í sjónmáli allt
um kring, ennfremur í sögu okk-
ar, siðfræði, atferli og bókmennt-
um.
Þessar rannsóknir frambera
engin ný sannindi enn sem komið
er, hvorki hvað myndefni né efnis-
meðferð snertir, en eru engu að
síður eins og ferskur gustur er
best lætur, um leið og þær gefa
til kynna að listamaðurinn er við
upphafsreit sviðs sem hann hefur
ekki gaumgæft áður.
Sum verkanna vinnur Kjartan
í þokukenndum punktastíl svo sem
stytturnar áðurnefndu, einnig stál-
hjarta Jóns Gunnars, laug nokkra
og settletur Morgunblaðsins. Síð-
asttalda myndin er einstaklega
snjöll og núlistaleg, og rétt að
vekja athygli blaðsins á henni.
Slysavarnafélags íslands
Dregið hefur verið í fyrsta
útdrætti happdrættisins.
Aðeins dregið úr greiddum miðum.
Eftirtaldir aöilar hlutu vinning:
1. Ferð fyrir tvo í tvær vikur
til Mallorka eða Benidorm
nafn: Arndís Hólmsteinsdóttir
miði nr: 015949
2. Ferð fyrir tvo til Dublin,
nafn: Álfheiður F. Friðbjarnard.
miöi nr: 006714
3. Ferð fyrir tvo til Dubiin,
nafn: Guðrún Hlíf Helgadóttir
miði nr: 034565 ~
llr
aT DZ55Sl*^feUrðni*"
Kjartan er mistækari í handrita-
myndum sínum en þar ber nr. 9
af fyrir uppbyggingu, form og lita-
ríkdóm, sem bera í sér skírskotan-
ir til margþættrar sögu, hins veg-
ar eru fossamyndir hans afar at-
hyglisverðar fyrir það hve vel þær
eru málaðar og orka sterkt á skyn-
stöðvarnar. í stuttu máli sýning
sem kemur á óvart og gefur dijúg
fyrirheit . . .
„Gráar myndir“
Listhús 39
MYNDVERK
Jón Bergmann Kjartansson Opið
mán-föstu. 10-18, lau. 12-18, sun.
14-18. Til 11. marz, Aðgangur
ókeypis.
GERANDINN nefnir framtak
sitt Gráar myndir, Hlutar og Ljós
myndir (þ.e. að vinna með ljósið)
og er þetta orðaleikur í ætt við
hugmyndafræði, sem hann virðist
mun uppteknari af en lögmálum
sjálfs myndflatarins.
Hvað gráu myndirnar snertir
vísar hann til þeirra ummæla Ger-
hards Richters, að grátt sé and-
hverf fullyrðing, Grey is non-state-
ment.
Fara ber þó mjög varlega við
að gleypa slíkt orðpijál núlista-
manna ómelt, því meiningin getur
verið allt önnur en virðist, byggst
meira á sértækri persónubundinni
lifun á afmörkuðu sviði en algildri
rökfræði, sem kemur svo helst
fram í verkum þeirra sjálfra. Fyr-
ir réttu ári hélt Jón Bergmann
Kjartanson fyrstu sýningu sína í
listhúsinu Greip, og af henni að
marka var ekki alveg ljóst hvert
hann væri að fara í verkum sínum
nema að sjálf hugmyndafræðin að
baki yfirgnæfði málverkið. Það
gerir hún í enn ríkara mæli hvað
þetta framtak áhrærir, í raun þeim
mæli að það er stór spurn hvort
hann eigi ekki að gefa sig þeim
fræðum fullkomlega á vald og
yfirgefa málverkið. í öllu falli er
framlag hans að þessu sinni afar
veikt og ósannfærandi, ef tekið
er mið af almennum grunnreglum
málaralistar og einföldustu tækni-
brögðum. Átök við lit, form, ljós,
byggingu og sjálfan samanlagðan
myndflötinn vart fínnanleg, fram-
setningin í senn klaufsk og ósann-
færandi.
Bragi Ásgeirsson.
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás ehf.,
Langholtsvegi 84, s. 533 1330.
UM ÞESSAR mundir fagnar Tón-
listarskóli Njarðvíkur 20 ára af-
mæli sínu, sem var sl. haust, en
skólinn var stofnaður árið 1976
og hóf starfsemi sína þá um haust-
ið.
Nemendur og kennarar skólans
hafa sett saman afmælisdagskrá,
sem flutt verður í Safnaðarheimil-
inu í Innri-Njarðvík. Þetta eru af-
mælistónleikar með leikrænu ívafi
og hafa nemendur og kennarar
samið hluta af þeirri tónlist sem
flutt verður, sett saman allar kynn-
ingar og einnig gert öll sviðstjöld
og leikmyndir. Flytjendur eru svo
að sjálfsögðu nemendur og kennar-
ar auk tölvubúnaðar í einu atriði.
Á afmælistónleikunum, sem
bera yfirskriftina „Á ferð um heim-
inn“, verður farið með áheyrendur
til 12 þjóðlanda, þau kynnt í stuttu
máli og leikinn tónlist þeirra. Tvö
af þessum löndum eru ennþá
óþekkt. Leiðangursstjórar og sögu-
menn eru úr hópi nemenda.
Tónleikarnir verða fluttir þrisv-
ar sinnum og eins og áður kemur
fram, í Safnaðarheimilinu í Innri-
Njarðvík. Þeir tveir fyrstu verða
föstudaginn 7. mars kl. 10 og kl.
13 fyrir 1. til 4. bekk Njarðvíkur-
skóla og skólahópa leikskólanna
Gimli og Holt í Njarðvík. Þriðju
og síðustu tónleikarnir verða
sunnudaginn 9. mars kl. 14. Þeir
tónleikar eru ætlaðir foreldrum
og systkinum flytjenda, nemend-
um tónlistarskólans og að sjálf-
sögðu einnig almenningi. Aðgang-
ur er ókeypis og eru allir velkomn-
ir.
Afmælisdagskráin er sett saman
með unga áheyrendur í huga og
er áætluð lengd hennar u.þ.b. 45
Kanadískur
jazz í Gerð-
arsafni
KANADÍSKU jazztónlistarmenn-
imir Tena Palmer og Justin Heynes
leika á tónleikum í Listasafni Kópa-
vogs - Gerðarsafni föstudaginn 7.
mars kl. 20.30.
Tena Palmer er í hópi fremstu
jazzsöngvara Kanada og hefur hlot-
ið ýmsar viðurkenningar. Kanadískir
gagnrýnendur hafa m.a. nefnt hana
athyglisverðustu söngkonu ársins og
borið lof á hljómsveitir hennar. Just-
in Heynes er að margra áliti eitt
helsta nýstimið í kanadískum jazzi.
Hann leikur jöfnun höndum á gítar
og píanó, semur og útsetur.
Palmer og Heynes hafa starfað
saman sem duo undanfarin þrjú ár
og hafa nýlega sent frá sér geisla-
disk. Þau leika eigin tónlist og ann-
arra, frumlega tónlist með nýstár-
legu sniði, en þó aðgengilega öllum.
Palmer og Heynes leika nú á Is-
landi í annað sinn, en þau voru
gestir RúRek jazzhátíðarinnar
1996, þar sem þau hlutu frábærar
móttökur áheyrenda.
•HINN umdeildi leikliússtjóri
Burgtheater í Vín, Claus Pey-
mann, hefur tilkynnt að hann
muni ekki sækjast eftir endur-
ráðningu er samningur hans við
leikhúsið rennur út árið 1999.
Ástæðan er „óbærilegar deilur
og átök um starf mitt, leikarana
og leikhúsið“ og kvaðst hann ekki
þola þá „rógsherferð" sem væri
í gangi gegn sér miklu lengur.
Peymann, sem er Þjóðveiji, hefur
komið illa við margan Austurrík-
ismanninn með uppfærslum á
leikritum sem fjalla m.a. um hina
myrku fortíð Austurrikismanna i
heimsstyijöldinni siðari.
Vegna nýrra tegunda og útlitsbreytinga,
seljum við næstu daga nokkrar eldri gerðir meo verulegum afslætti!
Stgr.verð nú:
Stgr.verð nú:
Verð áður.
39.995^-
Þurrkarí 5D 510
Tromlan snýst í báSar
áttir,tvö hitastig.
Kaldur blástur.
Klukkurofi.
Barki fylgir
Stgr.verð nú:
Þvottavél IW 860
Vindur 800 sn.
14 þvottakerfi.
Stialaus hitastillir.
Orkunotkun 2,3 kwst.
H: 85 B:60 D:60
Uppþvottavél
D 4500
10 kerfa vél,
tekurl 2 manna
matarstell,
6 falt vatns-
öryggiskerfi
mjög hljóSlát
og fullkomin.
H: 85 B:60 D:60
Kæliskópur
GR 1860
H: 117 B:50D:60 cm
Kælir:140 I.
Frystir: 45 I.
1.15 kwst/24 tímum.
Kæliskápar með frystihólfi
Gcrð HæðxBrciddxDýpt í Kælir Itr. Frystirltrj Verðáður Vcrð nú
GR 1860 117x50x60 140 45 : 44.995,- 33.990,-
GR2600 152x55x60 187 67 1 52.900,- 42.990,-
GC 1272 GC135 150x55x60 190 165x60x60 242 80 61.950,- 93 j 69.990,- 49.990, - 55.990, -
Verð áður
44.995/-
◄ Eldavél
KN 6046
Undir og yfirhiti.
Geymsluskúffa.
H:85-90 B:60 D:60