Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
AÐ FALSA TILVERUNA
Köttur á heitu blikkþaki, vinsælasta
verk bandaríska leikritaskáldsins
Tennessee Williams, verður frumsýnt
á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld.
Orri Páll Ormarsson fór að fínna
köttinn og karlremburnar sem þar
eru í brennidepli og komst að raun
um að erfítt getur verið að fóta sig
á heitu blikkþaki.
ÞAÐ SEM þegja á í hel bítur sig
fast í þögnina - verður illkynja.
Eftir það er engrar undankomu auð-
ið, sálarflækjur, sundurlyndi og sukk
leiða til óhamingju og einsemdar
enda getur það „gert mann meira
einmana að búa með þeim sem mað-
ur elskar en að búa einn“. Samt
verður „lífið að halda áfram þótt lífs-
draumurinn sé fyrir bí“.
Maggí elskar Brick en Brick þolir
ekki Maggí, þetta öfundsjúka „katt-
arkvikindi", heldur henni í skefjum
og leggur til að hún fái sér elsk-
huga. Hún neitar, kveðst í það
minnsta ekki munu gera það fýrir
opnum dyrum, þar sem hún sjái
engan nema hann, jafnvel þótt hún
sé með lokuð augun, og getur því
staðið eins lengi á heitu blikkþakinu
og hún þarf. „Ef ég vissi að við
ættum aldrei eftir að elskast framar
myndi ég fara niður í eldhús, ná í
lengsta og beittasta hnífinn og reka
hann beint í hjartastað!"
Augljóst er að eitthvað er eins og
það á ekki að vera og pápi, þessi
„kreppti hnefi" sem fengið hefur
Morgunblaðið/Halldór
MUN BRICK (Baltasar Kormákur), maður sem tíminn hefur hlaupið af sér, kom-
ast á réttan kjöl á ný. Það vonar Maggi köttur (Margrét Vilhjálmsdóttir) að
minnsta kosti.
með því að lifa í lyginni, auk þess
brottfararspj aldið
í hendur - kominn
með illkynja
krabbamein - er
áhyggjufullur. Er
jörðin að ganga
fjölskyldunni úr
greipum? Hvers
vegna drekkur
Brick og hvers
vegna er Maggí
bamlaus? Hvers
vegna brotnaði
Skipper, vinur
Bricks, eins og
fúinn kvistur?
Skyldi hafa örlað
á þrá sem ekki var
alveg hrein? Upp-
gjörið er óumflýj-
anlegt, „sannleikurinn" skal leiddur
í ljós og í þeim efnum mæðir mest
á manni sem hefur óbeit á óheilind-
um og lýgur aldrei að neinum -
nema sjálfum sér!
„Ég vil að áhorfendur uppgötvi
hvemig fólk falsar tilvem sína, með
því að horfast í augu við eigið eðli,
sem ég vona að þeir geti dáðst að
hetjulegri staðfestu lífsins og lífs-
kraftsins," sagði Tennessee Williams
eitt sinn um Kött á heitu blikkþaki
og bætti við: „Ég lít á sjálfan mig
sem ófullkominn einstakling og þess
vegna hef ég alltaf haft meiri áhuga
á fólki eins og mér; fólki sem á við
vandamál að stríða, fólki sem þarf
að beijast fyrir tilveru sinni, fólki
sem er að því komið að bugast. Þetta
er minn heimur og mitt fólk. Og ég
verð að skrifa um fólkið sem ég
þekki. Ef til vill takmarkar það mig
- ég er viss um að það takmarkar
mig sem listamann - en ég gæti
ekki skapað trúverðugar persónur
ef ég færði mig út fyrir þennan
heim.“
En hvemig er „hans“ fólk í hátt-
um í Ketti á heitu blikkþaki. „Maggí
notar öll hugsanleg brögð til að ná
sínu fram,“ segir Margrét Vilhjálms-
dóttir sem leikur „köttinn" sjálfan.
„Hún er sprottin úr allt öðru um-
hverfi en flest hinna, var fátæk í
æsku, og er hrædd um að deyja í
örbirgð. Þess vegna er henni í mun
að koma Brick á réttan kjöl til að
fá hlutdeild í auðæfum pápa. Þar
með er reyndar ekki öll sagan sögð
því hún elskar hann, þrátt fyrir allt,
mjög heitt og er því reiðubúin að
leggja allt í sölumar.“
Hyggst drekka sig í hel
„Drykkjusýki Bricks er afleiðing
- ekki orsök,“ segir Baltasar Kor-
mákur sem fer með hlutverk sonar-
ins sukksama. „Það hefur eitthvað
gerst sem gerir það að verkum að
hann tekur ekki lengur þátt í þessum
hildarleik, lífínu, og stefnir leynt og
ljóst að því að drekka sig í hel.
Mótsögnin, sem einkennir hann líkt
og flestar persónumar sem Williams
hefur skapað, er hins vegar sú að á
sama tíma er hann ekki heill gagn-
vart sjálfum sér.“
„Pápi er maður sem brotist hefur
af eigfin rammleik úr örbirgð til
auðæfa," segir Erlingur Gíslason
sem leikur ættföðurinn, „og þótt
hann hafi alla tíð verið til fyrirmynd-
ar á yfírborðinu, sótt kirkju, verið
frímúrari og leyft konunni að halda
kökubasara, er hann í raun dóm-
harður og hrokafullur - karl-
mennskan uppmáluð. Ýmislegt
bendir hins vegar til þess að pápi
sé farinn að endurskoða lífssýn sína
í skugga dauðans - ef til vill er hún
ekki sú „eina rétta“.“
Aðrir sem koma við sögu í verkinu
eru Mútta (Helga Bachmann), Coo-
per (Valdimar Öm Flygenring),
LANCOME
Sérfrœðingur verður í
versluninni I dag og á morgun
og veitir persónulega ráðgjöf
um notkun snyrtivara.
Varalitirnir eru komnir
Glœsilegur kaupauki.
fAf'IIO Bankastrœti 8,
ödl Q s. 551 3140
«k
SNYRTIVÖRUVERSLUNIN
Q f klt\ F Álfheimium 74,
JLOVÞJ/L. simi 568 5170
Aukasýning
á Ein og
La Cabina 26
ÍSLENSKI dansflokkurinn
heldpr aukasýningu á Ein og
La Cabina 26 í Borgarleikhús-
inu föstudaginn 7. mars. Verkin
eru eftir þýska danshöfundinn
Jochen Ulrich. 2.500 manns
hafa séð sýninguna.
íslenski dansflokkurinn und-
irbýr nú ferð til Helsinki í Finn-
landi með verkið Ein ásamt
nýju verki eftir Láru Stefáns-
dóttur, Hræringar, en þar tekur
íslenski dansflokkurinn ásamt
Skárren ekkert þátt í norrænni
danshátíð í Alexandersleikhús-
inu í byijun apríl.
Thorvaldsendagar í Róm
Thorvaldsen endurkynntur
á 200 ára Rómarafmæli sínu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MYNDHÖGGVARINN Bertil
Thorvaldsen verður hylltur í Róm
8.-10. mars með bókaútgáfu, ball-
ett, upplestri og tónleikum, því
þann 8. mars eru liðin 200 ár síð-
an þessi hálfíslenski listamaður
kom fyrst til
Rómar. Kynni
hans af borginni
höfðu slík áhrif
á hann að hann
hélt æ síðan upp
á 8. mars sem
rómverska af-
mælisdaginn
sinn. Að sögn
Stigs Miss, for-
stöðumanns
Thorvaldsen-
safnsins í Kaup-
mannahöfn, er
ætlunin að
kynna ítölum á
ný þennan lista-
mann, sem á sín-
um tíma var víð-
frægtir um alla
Evrópu. Bæði
Ebbe Lundgaard, menningarmála-
ráðherra Dana, og Walter Veltr-
oni, menningarmála- og varafor-
sætisráðherra Ítalíu, verða við-
staddir opnun hátíðarinnar.
Eins og flestir lista- og andans
menn síns tíma lagði Thorvaldsen
í suðurgöngu til að kynnast hinni
miklu menningararfleifð Grikkja
og Rómveija. Hann fékk styrk til
fararinnar frá dönsku listaaka-
demíunni, lagði af stað 1796 og
náði til Rómar 8. mars árið eftir.
Hann varð svo hugfanginn af
borginni og þótti sem hann endur-
fæddist við kynnin af henni, svo
æ síðan hélt hann upp á 8. mars
sem rómverska afmælisdaginn
sinn. Síðar varð dagurinn hátíðis-
dagur Dana í listamannanýlendu
borgarinnar. Thorvaldsen bjó í
Róm til 1838, með nokkurra ára
dvöl í Kaupmannahöfn í kringum
1920, og vann því helstu verk sín
í Róm. Svo mikið orð fór af honum
að hann var meðal annars fenginn
til að gera minn-
ismerki yfir Píus
páfa VII. og er
það í Péturs-
kirkjunni. Einn-
ig gerði hann
veggmynd af
Alexander
mikla, sem er í
Quirinale-höll-
inni, heiðursbú-
stað forseta ítal-
íu. Svo mikil
voru umsvif
hans að hann
hafði 40 manns
í vinnu á vinnu-
stofu sinni, sem
auk þess var vin-
sæll samkomu-
staður lista-
manna.
Thorvaldsendagamir eru skipu-
lagðir af Thorvaldsensafninu,
dönskum samtökum um menningu
síðustu aldar og dönsku menning-
arstofnuninni í Róm. Þá daga, sem
hátíðin stendur, verða fyrirlestrar
um Thorvaldsen, tónleikar með
tónlist frá dögum Thorvaldsen og
sérstök dagskrá verður um H.C.
Andersen, en hann var í Róm á
dögum Thorvaldsens og umgekkst
hann. Stig Miss segir að auk þess
sem ætlunin sé að halda hátíðlegt
200 ára Rómarafmæli Thorvalds-
ens sé hugmyndin að nota tæki-
færið til að kynna Thorvaldsen
aftur á Ítalíu, en á sínum tíma var
hann ekki aðeins víðfrægur í Róm,
heldur um alla Evrópu, þótt hann
sé nú kunnastur í Danmörku.
Sjálfsmynd, sem Bertil
Thorvaldsen gerði 1794.