Morgunblaðið - 06.03.1997, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
%
Ebeneser
► EBENESER heitir hljómsveit úr Reykjavík og leik-
ur rokk. Liðsmenn hennar eru Kjartan Bjarnason
trommuleikari, Ómar Guðjónsson gítarleikari og
söngvari og Stefán Björnsson bassaleikari. Þeir fé-
lagar eru átján til nítján ára.
The Outrage
► FYRSTA brekabeat-sveit tilraunanna að þessu
sinni er The Outrage úr Reykjavík. Liðsmenn henn-
ar segjast leika hart drum ’n bass breakbeat og eru
fimmtán ára gamlir. Þeir heita Halldór H. Jónsson
og Brynjar Örn Ólafsson og leika á ýmisleg tölvutól.
Hlj ómsveitakeppni
Tónabæjar
Músíktilraunir Tónabæjar
*
Arleg hljómsveitakeppni félagsmið-
stöðvarínnar Tónabæjar hefst í
kvöld, en þá keppa sjö bílskúrs-
hljómsveitir um sæti í úrslitum.
Ami Matthíasson segir frá
tilraununum sem eru þær fímm-
tándu í röðinni.
MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar eru framundan, hljóm-
sveitakeppni bílskúrssveita hvaðanæva af landinu, og
þá gefst fágætt færi á að sjá og heyra hvað er á seyði
í bílskúrum landsins. Undanfarin ár hafa Músíktilraunir
sótt verulega í sig veðrið, sífellt fleiri sveitir sækjast
eftir þátttöku og óhætt að segja að þær verði betri með
hveiju árinu, nægir að líta til sigursveita síðustu ára
sem flestar hafa náð að koma ár sinni vel fyrir borð í
kjölfar sigursins. Reyndar verða meðal gestasveita
Músíktilrauna að þessu sinni, þ.e. hljómsveitir sem leika
fyrir og eftir keppnina, sigursveitir tilraunanna.
Músíktilraunirnar að þessu sinni eru þær fimmtándu
í röðinni, og vel á fimmta hundrað sveita hefur stigið
á svið í Tónabæ síðan fyrstu tilraunirnar voru haldnar.
Keppninni er svo háttað að allar hljómsveitir hvað-
anæva af landinu hafa þátttökurétt svo framarlega sem
þær hafi ekki áður gefið eitthvað út og eigi í fórum
sínum þrjú frumsamin lög. Dreifing hljómsveita hefur
verið nokkuð jöfn af landinu öllu og svo er að þessu
sinni, þó vitanlega séu sveitir af suðvesturhorninu fjöl-
mennastar og reyndar í miklum meirhluta fyrsta til-
raunakvöldið. Keppni fer fram á íjórum kvöldum, 6.,
13., 14. og 20. mars, en 21. mars verður síðan úrslita-
kvöld tilraunanna. Tilraunakvöldin velja áheyrendur
tvær hljómsveitir áfram, en úrslitakvöldið gilda atkvæði
úr sal 30% á móti atkvæðum sérstakrar dómnefndar,
sem situr reyndar einnig tilraunakvöldin og hefur til
þess vald að hleypa fleiri hljómsveitum í úrslit ef henni
sýnist svo.
Hefðbundin
verðlaun
Hefðbundin verðlaun Músíktilrauna eru hljóðvers-
tímar. í fyrstu verðlaun eru 25 tímar í Sýrlandi, full-
komnasta hljóðveri landsins, sem Skífan gefur. Onnur
verðlaun eru 25 tímar í Gijótnámunni frá Spori hf. og
þriðju verðlaun eru 20 tímar í Stúdíói Hljóðhamar, sem
hljóðverið gefur. Til viðbótar eru svo 20 hljóðverstímar
í Stúdíói Hellinum, sem hljóðverið gefur, en þeir eru
ætlaðir athyglisverðustu hljómsveitinni að mati dóm-
nefndar. Aukaverðlaun eru svo gítar frá Hljóðfærabúð
Steina sem besti gítarleikarinn hlýtur, besti söngvarinn
fær hljóðnema frá Tónabúðinni, besti bassaleikarinn
úttekt frá Hljóðfærahúsi Reykjavíkur og besti trymbill-
inn úttekt frá Samspili, aukinheldur sem besti hljóm-
borðsleikarinn fær verðlaun. Aðrir styrktaraðilar til-
raunanna eru Hard Rock Café, Flugleiðir, Japís og
Domino’s Pizza.
Fyrsta tilraunakvöldið er í kvöld, eins og áður er
getið, og keppa þá sjö sveitir ólíkrar gerðar um hljóð-
verstímana eftirsóttu. Það er til marks um tíðarandann
að tvær þeirra leika breakbeat, önnur reyndar drum ’n
bass breakbeat. Gestasveit í kvöld verður Kolrassa
krókriðandi sem vann frækinn sigur í Músíktilraunum
fyrir fimm árum og leika Kolrössur áður en tilraunirnar
hefjast og síðan meðan atkvæði verða talin í lokin.
Aðrar gestasveitir verða Quarashi, sem rappar af krafti
13. mars, Maus leikur 14. og Páll Óskar Hjálmtýsson
20. mars, en úrslitakvöldið, 21. mars, leikur Botnleðja.
I g
Spitsign
► REYKJAVÍKURSYEITIN Spitsign segist einfald-
lega leika rokk, en liðsmenn eru Bóas Hallgrímsson
söngvari, Björn Stefánsson trommuleikari, Bjarni
M. Sigurðsson gítarleikari og Þórður Illugi Bjarna-
son bassaleikari. Meðalaldur þeirra er tæp sautján ár.
Semi in Suits
► FRÁ Selfossi kemur sveitin Semi in Suits sem leik-
ur kröftugt rokk. Semi-menn eru Magnús A. Kristins-
son bassaleikari, Sigurður Magnússon gítarleikari
og söngvari og Þórhallur Stefánsson trommuleikari.
Þeir eru allir á sautjánda árinu.
► ÞVÍ sérkennilega nafni Shemale heitir hljómsveit
úr Reykjavík sem leikur „bara rokk“. Liðsmenn henn-
ar eru Kolbeinn Ingi Höskuldsson gítarleikari og
söngvari, Kári Halldórsson gítarleikari, Krislján Freyr
Einarsson trommuleikari og Kristján Páll Kristjánsson
bassaleikari. Þeir eru allir á átjánda árinu.
Plasma
► POPPSVEITIN Plasma kemur af höfuðborgar-
svæðinu og er skipuð Jóni Dal Kristbjörnssyni og
Helga Hrafni Gunnarssyni sem báðir leika á hljóm-
borð, en Helgi syngur að auki, og Einari Óla Kristó-
ferssyni, sem syngur og leikur eitthvað á gítar. Gestat-
rymbill sveitarinnar verður Sigurvald ívar Helgason.
Þeir félagar eru á sautjánda árinu, en aldur
Sigurvalds óræður.
ST 7000
► SEINNI tölvusveit kvöldsins skipa tvímenningarn-
ir í ST 7000. Þeir heita Atli Már Þorvaldsson og
Þröstur Sveinbjörnsson, leika á tölvutól og eru báðir
á sautjánda ári. Þeir segjast leika breakbeat.