Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 45
Karlanefnd Jafnréttisráðs
Breyttar reglur um fæðing-
arorlof verði forgangsmál
KARLANEFND Jafnréttisráðs
beinir þeim eindregnu tilmælum
| til aðila beggja vegna samninga-
borðsins í yfirstandandi kjara-
. samningum að þeir hafi breyttar
I reglur um fæðingarorlof meðal
forgangsmála við gerð kjarasamn-
inga. Þetta kemur fram í ályktun
sem samþykkt var á fundi Karla-
nefndar Jafnréttisráðs 19. febrúar
síðastliðinn.
I ályktuninni kemur fram að
Karlanefnd vilji lengja fæðing-
arorlof í 12 mánuði og binda fjóra
mánuði við móður og fjóra mánuði
við föður, en fjórum geti foreldrar
skipt eins og þeim best hentar.
Þá vill nefndin auka sveigjanleika
í töku fæðingarorlofs þannig að
mánuðunum 12 megi dreifa á tvö
ár, að hvort foreldri hafi sjálfstæð-
an rétt til töku fæðingarorlofs og
bóta, að feður fái tveggja vikna
leyfi á launum við fæðingu barns
og að bætur í fæðingarorlofi séu
tekjutengdar.
Karlanefnd telur að ef fæð-
ingarorlofi yrði skipað með þeim
hætti sem nefndin leggur til myndi
það styrkja fjölskylduna og á þann
hátt bæta allt mannlíf, vera stuðn-
ingur við þá almennu stefnu að
draga úr launamun karla og
kvenna, draga úr þeirri tilhneig-
ingu atvinnurekenda að líta á kon-
ur á barnseignaraldri sem sér-
stakan áhættuhóp við ráðningu
og að það myndi auka áhuga karla
á fjölskyldulífi og þar með stuðla
að því að ná vinnutíma þeirra nið-
ur og skapa aukinn þrýsting á að
menn fái mannsæmandi laun fyrir
venjulegan vinnudag.
Ræða vændi, klám og kyn-
i ferðislega áreitni á málþingi
MÁLÞING gegn kynferðisofbeldi
heldur áfram í Háskólabíói nk.
laugardagsmorgun þann 8. mars
kl. 10-13. Yfirskrift þessa fundar
er: Vændi, klám og kynferðisleg
áreitni.
Meðal fyrirlesara verða: Stefan-
j ía Traustadóttir sem mun fjalla
um kynferðislega áreitni á vinnu-
stöðum. Áshildur Bragadóttir
fjallar um hvernig vændismarkað-
urinn er á íslandi og hvernig hann
hefur áhrif á stöðu kvenna. Anna
Ólafsdóttir Björnsson og Salvör
Gissurardóttir fjalla um klám á
Internet. Brynja Dýrborgardóttuir
fjallar um konur og klám. Guðrún
Jónsdóttir fjallar um hvort klám
auki líkur á ofbeldi og að lokum
segir Kristín Jónasdóttir frá ráð-
stefnu sem nýlega var haldin í
Stokkhólmi.
Síðasti málþingsfundurinn verð-
ur þann 15. mars og verða þá al-
mennar pallborðsumræður.
Fjölmörg félög og félagasamtök
standa á bak við Málþingið. Meðal
þeirra eru: Stígamót, Samtök um
kvennaathvarf, Kvenna- og karla-
keðjan, Barnaheill, Kvennaráðg-
jöfín, Samtök um kvennalista og
Landssamband Framsóknar-
kvenna.
Allir eru velkomnir á málþingið
meðan húsrúm leyfir, enginn að-
gangseyrir.
FRÉTTIR
FRÁ afhendingu monitorsins f.v.: Magnús Ásmundsson, læknir,
Aðalsteinn Valdimarsson, Gunnar Bjartmarsson, Anna A. Frí-
mannsdóttir, Kristín Guttormsson, læknir, og Gréta Friðriksdóttir.
Gjafirtil sjúkrahúss-
ins á Neskaupstað
FÉLAGAR úr stjórn Félags
hjartasjúklinga á Austurlandi
afhentu 6. febrúar sl. Magnúsi
Asmundssyni, yfirlækni lyfja-
deildar Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Neskaupstað, gjafabréf
fyrir Hewlett Packard Monitor,
til notkunar við hvers konar
rannsóknir, gjörgæslu o.fl.
Einnig Schvann-þrekhjól til
endurhæfingar. Þessi tæki
munu auðvelda læknum sjúkra-
hússins rannsóknir til muna og
þar með styrkja þá í starfi.
Gjafir þessar eru helgaðar
minningu Ingva Rafns Alberts-
sonar, formanns félagsins, en
hann vann ötullega að þessum
málum meðan honum entist
aldur. Þrekhjólið var afhent
síðastliðið sumar en monitor-
inn í 40 ára afmæli sjúkrahúss-
ins hinn 14. janúar 1977. Þar
þakkaði yfirlæknirinn þessar
gjafir og gat þess jafnframt
að áður hefði sjúkrahúsinu
borist gjafir frá félaginu og
mætti það nefna vandað þrek-
hjól til að mæla ástand sjúkl-
inga.
Geta má þess að félagið hef-
ur einnig styrkt verkefni á öðr-
um stöðum og einstaklinga sem
hafa þurft að fara í kostnaðars-
amar aðgerðir erlendis. Til
þessara verkefna hefur fé verið
aflað með sölu merkja annað
hvert ár, árlegri sölu jólakorta
ásamt félagsgjöldum. Einnig
eru seld minningarkort og
rennur andvirði þeirra í sér-
stakan styrktarsjóð.
\
I
Stjórnarfrumvarp um breytingu ríkisviðskiptabankanna í hlutafélög
Eignarhlutur annarra en ríkis-
sjóðs verði að hámarki 35%
I STJÓRNARFRUMVÖRP um stofn-
| un hlutafélaga um ríkisviðskipta-
bankana, stofnun Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins hf. og Nýsköp-
unarsjóð atvinnulífsins voru lögð
fram á Alþingi í gær. í frumvarpinu
um stofnun hlutafélaga um Lands-
banka íslands og Búnaðarbanka
Islands er gert ráð fyrir að sala á
hlutafé í eigu ríkissjóðs í bönkunum
I verði óheimil án samþykkis Alþing-
is, og í stefnuyfirlýsingu í greinar-
1 gerð með frumvarpinu er miðað við
| að ríkissjóður selji ekki hlutabréf
sín í bönkunum iyrstu fjögur rekstr-
arár þeirra. Þrátt fyrir það geti við-
skiptaráðherra heimilað útboð á
nýju hlutafé, en samanlagður hlutur
annarra aðila en ríkissjóðs megi þó
ekki vera hærri en 35% af heildar-
fjárhæð hlutafjár í hvorum bank-
anna um sig.
í upphaflegu frumvarpi ríkis-
< stjórnarinnar sem kynnt var í þing-
' flokkum stjórnarflokkanna var gert
I ráð fyrir að hlutur annarra aðila
en ríkissjóðs gæti orðið 49%, en að
sögn Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra var komið til móts við
óskir sem fram komu í þingflokki
Framsóknarflokksins um að eignar-
hluturinn gæti ekki orðið hærri en
35%.
Tilgangurinn að jafna
samkeppnisstöðu bankanna
\
Finnur Ingólfsson viðskiptaráð-
* herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í frumvörpunum um breyt-
ingu ríkisviðskiptabankanna í
hlutafélög, sameiningu fjárfesting-
arlánasjóðanna í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins hf. og stofnun
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins séu
boðaðar umfangsmestu skipulags-
breytingar á íslenskum fjármagns-
markaði sem séð hafa dagsins ljós.
„Tilgangurinn með formbreyt-
ingu ríkisviðskiptabankanna er í
fyrsta lagi sá að jafna samkegpnis-
aðstöðu bankanna á markaði. I öðru
lagi er með formbreytingunni auð-
veldari leið fyrir bankana að styrkja
eiginfjárstöðu sína með því að leita
eftir nýju hlutafé og verða þannig
betur í stakk búnir til að takast á
við aukna samkeppni. Einnig verða
þeir færari um að þjóna íslensku
atvinnulífi, en það er ekkert langt
í það að farið verði að gera kröfur
um að þeir megi ekki lána nema
ákveðið hlutfall af sínu eigin fé til
einstakra viðskiptamanna að há-
marki til. Með þessu gefst meira
svigrúm til að bregðast við slíkum
aðstæðum," sagði Finnur.
í greinargerð með frumvarpinu
er lögð áhersla á að þegar til sölu
á hlutabréfum í hlutafélagsbönkun-
um komi sé það mat ríkisstjórnar-
innar að allir aðilar í landinu eigi
að hafa rétt til að eignast eignar-
hlut í bönkunum og jafnframt beri
að stefna að dreifðri eignaraðild.
„Til þess að hafa möguleika á
að styrkja eiginfjárstöðu bankanna
og gera þá betur í stakk búna til
að takast á við samkeppnina er
gert ráð fyrir að viðskiptaráðherra
hafi heimild til að auka hlutafé
þeirra, en þó skuli þess gætt að
samanlagður eignarhlutur annarra
en ríkisins fari ekki upp fyrir 35%,“
sagði Finnur. Staðfesti hann að
komið hefði verið til móts við óskir
þingflokks Framsóknarflokksins
um að eignarhluturinn yrði að há-
marki 35% en ekki 49% eins og
upphaflega var gert ráð fyrir.
Hagstæðari lánskjör fyrir
atvinnulífið
Finnur sagði að með stofnun
Fj árfestingarbanka atvinnulífsins
hf. væri fyrst og fremst um hagræð-
ingaraðgerð að ræða þar sem fjár-
festingarlánasjóðirnir, Fiskveiða-
sjóður íslands, Iðnlánasjóður, Út-
fíutningslánasjóður og Iðnþróunar-
sjóður væru sameinaðir í einn
banka. í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að 49% af eignarhlut ríkisins
í Fjárfestingarbankanum verði sett
á markað og seld.
„Þannig hefst strax ákveðin
einkavæðing á Fjárfestingarbank-
anum, og það er gert í þeim til-
gangi að losa um fjármuni í bankan-
um til þess meðal annars að greiða
inn í Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
Eitt af því sem meðal annars setur
okkur skorður sem vel samkeppnis-
hæfu landi er einhæfni fjármagns-
markaðarins þar sem ríkið er oft á
tíðum alveg ráðandi í fjárfestingar-
lánastarfseminni. Þarna er verið að
draga úr þátttöku ríkisins á því
sviði, en færa það yfir á það svið
að verða beinn þátttakandi í
áhættufjármögnun og verkefnafjár-
mögnun sem lýsir sér í Nýsköpunar-
sjóðnum. Með þessari sameiningu
sjóðanna er stefnt að verulegum
sparnaði í heildarrekstri og þannig
getum við boðið atvinnulífinu hag-
stæðari lánskjör heldur en við höf-
um getað gert fram til þessa með
því að draga úr rekstrarkostnaðin-
um. Þannig erum við að auka sam-
keppnishæfni atvinnulífsins,“ sagði
Finnur Ingólfsson.
Sjö milljarða eigið fé
I greinargerð með frumvarpinu
um stofnun Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins hf. kemur fram að sam-
eiginlegt eigið fé fjárfestingarlána-
sjóðanna fjögurra hafi verið rúm-
lega 10,6 milljarðar króna í árslok
1995. Gert er ráð fyrir að fjárfest-
ingarbankinn taki við eignum,
skuldum og skuldbindingum sjóð-
anna að frádregnum 3 milljörðum
króna, sem lagðar verða til Nýsköp-
unarsjóðs, og um 650 milljónum
króna eigin fjár vöruþróunar- og
markaðsdeildar Iðnlánasjóðs, sem
gert er ráð fyrir að flytjist til Ný-
sköpunarsjóðs.
Þannig yrði eigið fé bankans um
7 milljarðar króna ef miðað er við
ársreikning fyrir árið 1995, en
800-1000 milljónum meira ef miðað
er við áætlaða aukningu á sameig-
inlegu eigin fé sjóðanna á síðasta
ári.
Mótmæli vegna
Dounreay
ÞINGFLOKKUR Kvennalistans
sendi nýlega mótmæli til Umhverfis-
verndarstofnunar Skotlands, þar sem
honum virðist sem stofnunin hafi
lagt blessun sína yfir aukna losun
geislavirkra úrgangsefna í hafíð og
andrúmsloftið við Dounreay í Skot-
landi. Til stendur að tvöfalda losun
Plutonium-241 frá endurvinnslustöð-
inni við Dounreay í hafíð og fjórfalda
losun þess út í andrúmsloftið, að því
er segir í fréttatilkynningu.
Kvennalistanum hefur borist svar
frá stofnuninni þess efnis að mót-
mælin verði tekin til athugunar en
umhverfisverndarfólk víðs vegar að
hefur á liðnum árum mótmælt gá-
leysislegri meðferð á geislavirkum
úrgangi frá stöðinni.
Engar opinberár áætlanir um
auknar mengunarvarnir
í fréttatilkynningu frá þingflokki
Kvennalistans segir m.a.: „Ovarinn
úrgangur hefur margsinnis verið af-
hjúpaður og tveir tankar fullir af
geislavirkum úrgangi, vatni og öðrum
efnum sem sprengihætta er af, eru
taldir liggja það nærri ströndinni að
landris geti hæglega brotið þá á
næstu 40 til 100 árum. Til að tryggja
að ekki hljótist af stórslys, er brýnt
að gera áætlanir til þess að tryggja
ströndina."
Ennfremur segir í fréttatilkynn-
ingunni að engar opinberar áætlanir
séu til um auknar mengunarvarnir
en hins vegar sé fyrirhugað að tvö-
falda losun Plutonium-241 frá stöð-
inni í hafið og fjórfalda losun þess út
í andrúmsloftið. „Það er brýnt að
íslendingar láti sig málið varða. Til-
vist okkar og afkoma byggist á að
okkur takist að halda Atlantshafinu
og andrúmsloftinu hreinu.“
Söngtónleikar
GUÐRÍÐUR Júlíusdóttir, sópran og
Agnes Löve, pínanóleikari, halda tón-
leika í sal Tónlistarskóla Rangæinga
á Hvolsvelli í kvöld, fímmtudags-
kvöldið 6. mars, og hefjast þeir kl.
21 en ranghermt var í Morgunblaðinu
í gær að tónleikamir væru þá.
Flutt verður dagskrá með lögum
og aríum eftir ýmsa höfunda, inn-
lenda og erlenda. Þetta eru aðrir ein-
söngstónleikar skólans sem haldnir
em nú í vor en þeir eru liður í 40
ára afmælishaldi tónlistarskólans.
Fræðsluerindi
um fjölskyldu og
heimili í Breið-
holtskirkju
ANNAR fræðslufundurinn af fjórum
á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra verður haldinn í Breiðholts-
kirkju í Mjódd í kvöld, fimmtudaginn
6. mars kl. 20.30 þar sem fluttir
verða fyrirlestrar um heimilið og fjöl-
skylduna. Að þessu sinni fjallar sr.
Þór Hauksson, prestur við Árbæjar-
kirkju um efnið foreldri og farsæld.
Fimmtudaginn 13. mars fjallar sr.
Irma Sjöfn Oskarsdóttir, prestur við
Seljakirkju, um efnið vinnan og heim-
ilið. Fræðslufundunum lýkur fímmtu-
daginn 20. mars með því að sr. Gunn-
ar Siguijónsson, sóknarprestur í Di-
granesprestakalli fjallar um efnið fjöl-
skyldan og frístundimar.
Að fyrirlestrunum loknum gefst
fólki tækifæri til að beina fyrirspum-
um til fyrirlesaranna og taka þátt í
umræðum um umfjöllunarefni þeirra.
Þátttaka í þessum fræðslustundum
er ókeypis og ekki þarf að skrá sig
sérstakiega.
LEIÐRÉTT
Rangtföðurnafn
í FORUSTUGREIN blaðsins í gær,
„Gróska í hugbúnaðargerð“, var
ranglega farið með föðurnafn fram-
kvæmdastjóra Hugvits. Hann heitir
réttu nafni Ólafur Daðason. Er
hann og aðrir hlutaðeigendur beðn-
ir velvirðingar á mistökunum.