Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 48

Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Snyrtistofan Hrund býður fermingarbörn velkomin í CLINIQUE húðhreinsun Innifalið í húðhreinsun er: Húðgreining, persónuleg ráðgjöf, gufa fyrir andlit, hreinsun, maski. Til að taka með heim byijenda- hreinsilina frá Clinique: Andlitssápa, andlitsvatn, rakakrem. 100% ilmefnalaust Sny/itísto{an d Grænatúni 1, Kópavogi, sími 554 4025. CLINIQUE VIÐ LEYSUM VANDAIVtALIN Kynning verður á hinum margverðlaunuðu ELANCYL vörum sem bjóða upp á mismunandi meðferð við CELLULITE ■ EAU THERMALE ásamt Avene húðvörunum sem ætlaðar eru fyrir hina viðkvæmustu húð og bjóða upp á ýmis meðferðarkrem við húðvandamálum. ( í dag, frá kl. 13-18: v Á morgun, frá kl. 13-18: HAGKAUP, Kringlunni Komið og fáið faglega ráðleggingu. HAGKAUP, Kringlunni Mosfellsapótek veg, Seltjari $1 1680 Jakkar dragtir bnxna- dragtir ÍDAG SKAK llmsjön Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á opnu móti í Las Vegas í Bandaríkjunum í vetur. Stórmeistarinn Sergei Kudrin (2.515) hafði hvítt og átti leik, en alþjóðlegi meistarinn Anthony Saidy (2.415) var með svart. 30. Hxh7! - Kxh7 31. Bxg6+! — Rxg6 (Tapar strax. 31. — Kg8 var skást, en þá ætlaði Kudrin að leika 32. Be4-I— Kf7 33. Hel og svartur virðist vamarlaus) 32. Dh5+ - Kg7 33. Dh6+ - Kg8 34. Dxg6+ - Kh8 35. Dh6+ - Kg8 36. Dxe6+ — Kh8 37. Dh6+ - Kg8 38. Dg6+ - Kh8 39. e6 - Hd5 og Saidy gafst upp án þess að bíða eftir svari hvíts, sem yrði 40. Be5+. Kudrin, fluttist til Bandaríkjanna árið 1980. Hann tók sér nýlega langt frí frá tafimennsku til að afla sér MBA gráðu frá Wharton viðskiptaháskól- anum. Hann starfaði síðan um hríð í Moskvu, en skák- in togaði í hann og nú er hann aftur kominn á fulla ferð á þeim vettvangi. HVÍTUR leikur og vinnur. Með morgunkaffinu * Ast er ... f?P0 &<- 9-19 ... að kíkja í heimsókn mcð blómavönd. TM R»o. U S Pmt 0«. — •! nght« w»v») (c) 1996 Lo* Angaéaa T.m» Syndicala DÓTTIR mín lagði af stað í brúðkaupsferð i morgun. MAGNÚS á eftir að elska mig enn meira eftir brúð- kaupið. Það segja mér allir að hann vilji helst giftar konur. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: elly@mbl.is Fataviðgerðir KONA hafði samband við Velvakanda og hefur hún áhuga á að fá að vita hvar hægt sé að láta breyta fatnaði, t.d. stytta dragtarjakka eða þrengja buxur. Tapað/fundið Filma tapaðist FILMA tapaðist á leiðinni Goðheimar-Glæsibær laugardaginn 22. febrúar, rétt eftir hádegi. Skilvís finnandi hringi í síma 553-0359, eftir kl. 19. Plastpoki með skyrtum glataðist PLASTPOKI merktur Flash, með tveimur hvítum skyrtum, glataðist annaðhvort í versluninni Vínberinu eða Kirkjuhúsinu laug- daginn 1. mars. Skilvís finnandi hringi í síma 588-1731. Munið eftir smáfuglunum VELVAKANDI minnir fólk á að gefa smáfuglunum. Það er hart í búi hjá þeim þessa dagana þar sem frost er og snjór yfir öllu. Þeim finnst gott að fá feitmeti, ávexti og fuglakom sem fæst í flestum verslunum. Betra er að gefa þeim á morgnana því þeir fara á stjá í birtingu en taka á sig náðir síðla dags. Kattareigendur era einnig beðnir um að hugsa til smáfuglanna og hafa kettina sína með bjöllu. FYRST góðu fréttirnar: ÉG þoli ekki þessi keppn- Þeir héldu mér frábært isferðalög á framandi kveðjuhóf. slóðir. Víkveiji skrifar... A ANÆGJULEG nýjung bættist í kaffihúsaflóru Akureyringa skömmu fyrir jólin, kaffihús í bóka- versluninni Bókvali, í nýju húsnæði verslunarinnar á „kaupfélagshorn- inu“, þar sem KEA rak áður bús- áhaldaverslun og fleira. Ekki er um að ræða stórt kaffihús, en ein ástæða var fyrir því að Víkverji var staðráðinn í að þetta yrði fyrsta verslunin sem hann kæmi inn í þeg- ar hann átti leið um Akureyri á dögunum; nefnilega sú að bannað er að reykja á kaffihúsinu. Loksins! xxx VÍKVERJI skilur ekki hvers vegna bæjaryfirvöld á Akur- eyri ákváðu að leyfa bílaumferð á nýjan leik í Hafnarstræti, sem verið hefur göngugata í allmörg ár. Verslunareigendur munu hafa kraf- ist þessa, en Víkveiji getur ekki ímyndað sér að nálægð bíla verði til þess að viðskipti aukist. Næg bílastæði eru í grenndinni og bílarn- ir í Hafnarstrætinu varla til annars en auka mengun og slysahættu. XXX RÁÐHÚSTORGINU á Akureyri var breytt fyrir nokkrum árum, til hins verra að því er Vík- veija fannst þá. Grá steinsteypan er ekki augnayndi, en torgið skán- aði reyndar eftir að nokkrum gróðri var komið þar fyrir. Víkveija finnst göngugatan hins vegar ljótari nú en áður - eftir að búið er að koma þar fyrir gijótpinnum til að afmarka „umráðasvæði" vélfákanna. xxx BJARNI Felixson, sá góðkunni íþróttafréttamaður, var í við- tali í sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins á dögunum. Eftirfarandi um- mæli Bjama vöktu athygli Víkveija: „Það kemur oft fyrir að ég lýsi handbolta- eða fótboltaleik og skemmti mér konunglega en les það svo í blöðunum daginn eftir að leik- urinn hafi verið leiðinlegur." Ætli Bjarni eigi við að ekkert sé að marka lýsingu hans, eða eru starfs- bræður hans á blöðunum svona dómharðir? XXX FYRST farið er að tala um íþróttafréttamenn getur Vík- veiji ekki annað en minnst á atriði, sem löngum hefur farið í taugarnar á honum: þegar sumir starfsbræðra Bjama Fel á ljósvakanum tala um stutta bolta, langa bolta og jafnvel fasta bolta. Væri ekki nær að tala um stuttar, langar og fastar send- ingar? Víkverja fannst hann líka heyra á dögunum í lýsingu, að einn leikmaður tæki annan á! Þarna var viðkomandi fréttamaður líklega að lýsa því sem Tjallinn kallar take him on, þ.e. að leikmaður reyni að leika á andstæðing sinn. Þessu hlýt- ur að vera hægt að lýsa öðmvísi en þarna var gert. XXX SANNKÖLLUÐ veisla hefur ver- ið í kvikmyndahúsum borgar- innar að undanförnu, a.m.k. fyrir þá sem sneiða hjá venjulegum has- armyndum og þess háttar. Víkveiji hefur séð nokkrar myndir upp á síðkastið, hveija annarri betri, og enn em nokkrar eftir á óskalistan- um. Af nógu er að taka en af þeim sem Víkverji hefur séð er sérstök ástæða til að nefna eina: Leyndar- mál og lygar (Secret and Lies) sem sýnd er í Háskólabíói. Þar er sann- arlega á ferðinni stórkostlegt lista- verk, sem enginn unnandi góðrar kvikmyndalistar ætti að láta fram hjá sér fara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.