Morgunblaðið - 12.03.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Evrópuþingið um aukaaðild íslands og Noregs að Schengen
Flutningur í lögsögu
ESB torveldaður?
Strassborg. Morgunblaðið.
EVRÓPUÞINGIÐ telur hættu á að
aukaaðild íslands og Noregs að
Schengen-samningnum um afnám
vegabréfaeftirlits muni torvelda það
að vegabréfasamstarfinu verði í
framtíðinni komið undir lögsögu
yfirþjóðlegra stofnana Evrópusam-
bandsins. Þetta kemur fram í þings-
ályktun, sem þingið samþykkti á
fundi sínum í Strassborg í gær.
Í ályktuninni er núverandi form
Schengen-samningsins gagnrýnt
harðlega, meðal annars fyrir ógagn-
sæi og skort á lýðræðislegu eftir-
liti. Þingið telur að innlima eigi
samninginn í stofnsáttmála ESB,
en um leið eigi að stefna að því að
vegabréfasamstarfíð verði ekki að-
eins milliríkjasamstarf, heldur falli
það undir lögsögu yfírþjóðlegra
stofnana ESB, það er framkvæmda-
stjórnarinnar, dómstólsins og Evr-
ópuþingsins, til að tryggja eftirlit
og opna starfshætti.
Anne Van Lancker, þingkona
belgískra sósíalista og fyrsti flutn-
ingsmaður þingsályktunartillögunn-
ar, sagði í samtali við Morgunblaðið
að hún hefði ekki áhyggjur af því
að innlimun Schengen í ESB myndi
stofna samstarfínu við Island og
Noreg í hættu, heldur miklu fremur
að aðild þessara ríkja, sem ekki
ættu aðild að stofnunum ESB myndi
flækjast fyrir því að samningurinn
yrði hluti af hinni yfírþjóðlegu
„fyrstu stoð“ Evrópusambandsins.
Van Lancker sagði hins vegar að
þetta vandamál kæmi varla upp I
náinni framtíð, þar sem ekki væri
samstaða innan ESB um að færa
samstarfið undir hinar yfirþjóðlegu
stofnanir. „Við verðum bara að vona
að þegar sá tími kemur, hafí Noreg-
ur og ísland þegar gengið í Evrópu-
sambandið," sagði hún.
■ Gagnrýna leynd/20
Almennar spari-
sjóðsbækur
15 mill-
jarðar á
neikvæð-
um vöxtum
í ÁRSLOK 1996 voru 14.770 millj-
ónir króna, eða 8,4% af öllum inn-
lánum innlánstofnana, geymdar á
neikvæðum raunvöxtum á almenn-
um sparisjóðsbókum. Þessar inn-
stæður rýrnuðu að meðaltali að
raunvirði um 1,3% á síðasta ári.
Öll innlán innlánsdeilda kaupfélag-
anna, tæpir 2,3 milljarðar króna,
voru geymd á slíkum reikningum.
Þetta kemur fram í svari við-
skiptaráðherra við fyrirspurn þing-
mannanna Guðmundar Hallvarðs-
sonar og Péturs H. Blöndal.
Stærsti hluti inneigna á almenn-
um sparisjóðsbókum er hjá Lands-
bankanum, eða tæpir 5,7 milljarðar
króna. Hjá Búnaðarbanka eru rúm-
ir 2,9 milljarðar, hjá íslandsbanka
rúmir 2,4 milljarðar og hjá spari-
sjóðunum rúmir 1,4 milljarðar.
í svari viðskiptaráðherra kemur
fram að í sumum tilvikum beri
sparisjóðsbækur hærri vexti en
auglýst kjör segja til um, en um-
fang slíkra viðskipta liggi ekki fyrir.
-----«---------
Gjöld til Háskólasjóðs í
stað sóknargjalda
Hátt í þre-
földun á
átta árum
SÚ upphæð sem einstaklingar utan
trúfélaga greiða til Háskólasjóðs í
stað sóknargjalda hefur á undan-
förnum átta árum hækkað úr sam-
tals rúmum níu milljónum króna í
tæpar 24 milljónir króna.
Sjóðurinn á nú rúmlega fjörutíu
milljóna króna eignir. Þetta kemur
fram í svari menntamájaráðherra
við fyrirspurn Marðar Árnasonar,
varaþingmanns Þingflokks jafnað-
armanna.
Samkvæmt skipulagsskrá Há-
skólasjóðsins skal honum varið til
að efla menningarstarfsemi innan
Háskólans, svo sem útgáfustarf-
semi, fyririestrahald fyrir almenn-
ing, tónleikahald eða aðra menning-
arviðleitni sem Háskólaráð telur
þess verðuga.
Morgunbiaðið/Júlíus
FARIÐ var með olíudælubúnað um borð í Vikartind í gær og
reynt verður að hefja dælingu olíunnar á fjöru í dag.
Eigendur Vikartinds
borga hreinsunina
EIGENDUR Vikartinds gáfu
yfirlýsingu um að útgerðin
muni bera kostnað af hreinsun
á strandstað skipsins hvað varð-
ar dælingu olíu úr skipinu,
fjarlægja skipið af strandstað
og hreinsun fjörunnar, á fundi
sem haldinn var með þeim og
fulltrúum Eimskips, Hollustu-
verndar rikisins, Heilbrigðis-
nefndar Suðurlands, Djúpár-
hrepps og umhverfisráðuneytis-
ins í gærkvöldi.
Að sögn Eyvindar Gunnars-
sonar, lögfræðings í umhverfis-
ráðuneytinu, var tilgangurinn
með fundinum fyrst og fremst
sá að ákveða hvernig samvinnu
verði háttað við heilbrigðisyfir-
völd á staðnum og eigendur
skipsins um að fjarlægja um-
merki strandsins á sjó og á
landi. Eyvindur segir að mikill
samstarfsviiji sé á milli aðila um
að hreinsa til sem fyrst en ekk-
ert haf i verið rætt um hvemig
endanlegur kostaður af hreins-
unarstarfinu muni skiptast á
milli eigenda Vikartinds og
Eimskips.
Byrjað að
dæla olíu í dag
Eyvindur segir að byijað
verði að dæla olíu upp úr skip-
inu í dag en ekki Iiggi fyrir
hvenær verði hægt að afferma
það vegna þess hversu erfitt er
að fá þau tæki sem til þarf
vegna gáma sem enn eru um
borð en að öllum líkindum verði
teknar ákvarðanir um það síðar
í dag.
■ Gámar á þilfari/7
Morgunblaðið/Júlíus
ALEXANDRA lá við Ægisgarð í Reykjavík í gær en skipið var
í jómfrúrferð sinni þegar það fékk á sig brot.
Sjór í geymslur
Alexöndru
SJÓR komst í geymslur í flutn-
ingaskipinu Alexöndru þegar það
var statt í vonskuveðri suðvestur
af landinu á sunnudag þegar brot
kom á lúgu fremst á skipinu og
skemmdi hana.
Sjórinn komst einnig í
rafmagnstöflu og bógskrúfa varð
óvirk og var því skipinu snúið til
Reykjavíkur á ný þaðan sem það
lagði upp síðdegis síðastliðinn
laugardag. Skipið var á leið til
Japans með frystar loðnuafurðir
og er farmur þess óskemmdur.
Fyrirtækið Skipamiðlarar
Gunnar Guðjónsson sf. sér um
afgreiðslu skipsins og fengust þær
upplýsingar þar í gær að unnið
væri að viðgerð en skipið kom til
hafnar í gærmorgun. Skipið var í
jómfrúrferð sinni en það er smíðað
í Árósum og var von á fulltrúum
skipasmíðastöðvarinnar til
Reykjavíkur I gærkvöld til að
leggja á ráðin um viðgerð. Var
ekki vitað hvenær skipið færi úr
höfn á ný.
Engin hætta
fyrir skip né farm
Við brotið skemmdist lúga
fremst á skipinu og komst nokkur
sjór í rafmagnstöflu, málningar-
geymslu og reipageymslu og bóg-
skrúfa varð óvirk. Þótti rétt að
snúa skipinu við til viðgerðar en
engin hætta mun þó hafa steðjað
að áhöfn eða farmi skipsins. Fyrir
utan skemmdir á sjálfu skipinu
hefur þessi atburður í för með sér
truflun og óþægindi vegna röskun-
ar á fyrirhugaðri áætlun skipsins.
Alexandra er rúm 3.800 brúttó-
tonn, skráð á Bahama, og er
áhöfnin rússnesk. Skipið lagði úr
höfn á laugardag og átti fyrir
höndum 35 daga siglingu til Jap-
ans gegnum Panamaskurð.
Nýjar viðræð-
ur við Elkem
FULLTRÚAR Elkem í Noregi og
íslensk stjórnvöld hafa á ný tekið
upp viðræður um breytta eignar-
aðild að íslenska járnblendifélag-
inu hf. á Grundartanga og stækk-
un verksmiðjunnar um einn ofn.
Viðræðurnar hófust um helgina að
frumkvæði Elkem.
Viðræður Elkem og fulltrúa ís-
lenska ríkisins sigldu í strand um
síðustu mánaðamót og sl. föstudag
sendi stjórn Jámblendifélagsins
bréf til Landsvirkjunar þess efnis
að félagið myndi ekki nýta sér
ákvæði raforkusamnings um
stækkun Járnblendiverksmiðjunn-
ar um einn ofn.
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri kísiljárns- og kísil-
málmssviðs Elkem, óskaði eftir ,
fundi með Finni Ingólfssyni iðnað-
arráðherra um helgina til að ræða I
við hann um stækkun verksmiðj-
unnar og breytta eignaraðild.
Hann er farinn af landinu en tveir
samningamenn Elkem ræddu við
samningamenn íslands í allan
gærdag.
Jón Sveinsson stjórnarformaður
íslenska járnblendifélagsins hf.
vildi í gærkvöldi sem minnst tjá
sig um viðræðurnar. Þær væru á
viðkvæmu stigi.
- - - M
iB'íL'j - iiiuuiíaifjj,. . mmjavia
kaup Nýjar •*
^ atslætti
MEÐ blaðinu í dag fylgir tólf síðna
auglýsingablað frá Kringlunni.