Morgunblaðið - 12.03.1997, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SÆNSKI sendiherrann PSr Kettís sýnir Magnúsi Sigurðssyni og Ólafi
Sigurðssyni upplýsingabækling um Svíþjóð.
Morgunblaðið/Ásdís
S WISSCARE
pour G I V E N C H Y
Kynníng á morgun,
HHHRj
!2tTR,CElUA
'
I
HYDRi
frábært 3-þátta rakakrem
frá GIUENCHY
Bára Björnsdóttir,
snyrtifræðingur, kynnir og
leiðbeinir.
Kaupauki:
20% afsláttur eða
spennandi kaupauki uið
kaup á 3 hlutum
mamr aeeti
H Y G E A
jnyrtiviiru verjlu n
Krinj’tunni 8-12, simi 533.4553
Formaður Landssam-
bands iðnverkafólks
Halldór
hefur ekki
eytt tíma í
samstarf
GUÐMUNDUR Þ. Jónsson, formaður
Iórju og Landssambands iðnverka-
fólks, mótmælir harðlega ummælum
Halldórs Bjömssonar, formanns
Dagsbrúnar, í Morgunblaðinu í gær,
um að Iðja hafí komið aftan að öðrum
iandssamböndum með gerð kjara-
samnings aðfaranótt mánudags.
„Halldór hefur ekki eytt tímanum
í samráð eða samstarf við okkur á
þessu ferli. Aðeins einu sinni boðað
okkur til fundar, eingöngu til að
segja okkur hvernig hann ætiaði að
haga sínum verkfallsmálum. Slíkir
menn geta ekki kvartað undan því
þótt aðrir bíði ekki eftir því sem
þeim þóknast að gera. Það kemur
úr hörðustu átt að segja að við höf-
um komið aftan að einhveijum,"
segir Guðmundur.
Sömdum á okkar
forsendum
Guðmundur segir að landssam-
böndin hafí aðeins verið í samstarfi
á tímabili. „Við settum fram okkar
eigin kröfur eins og öll önnur lands-
sambönd gerðu og sömdum á okkar
forsendum,“ segir hann.
Guðmundur gagnrýnir einnig
ummæli Björns Grétars Sveinssonar,
formanns VMSÍ, um að ekki hafi
verið farin krónutöluleið í samning-
unum sem gerðir voru á mánudag-
inn. Guðmundur segir það rangt hjá
Birni Grétari að eingöngu hafí verið
farin prósentuleið við hækkun launa.
Austurgata - Hafnarfirði
Til sölu 5 herb. íbúð, 150 fm á tveim hæður í timburhúsi
á góðum stað. 24 fm geymsla. Verð 7,8 millj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
Vantar 4ra — austurbær
Traustur kaupandi að 90—120 fm íbúð í fjölbýli eða hæð, helst með
bílskúr, þó ekki skilyrði. Verðhugmynd 7—9 millj. Æskileg staðsetn-
ing allur austurbærinn, eða miðbær. Önnur góð staðsetning skoð-
uð. Traustar greiðslur (engin skipti).
Nánari upplýsingar veita Bárður, Ingólfur eða Þórarinn.
Valhöll, fasteignsala,
sími 588 4477.
Opið hús í
sænska
sendiráðinu
UM SEXTÍU manns komu við á
opnu húsi hjá sendiráði Svíþjóðar
í gær, að sögn Daina Zaidi blaða-
fulltrúa sendiráðsins, en tilgang-
urinn var að gefa almenningi
færi á að afla sér nánari upplýs-
inga um Sviþjóð og bera fram
spurningar tíl sendiherrans og
starfsfólks ráðuneytisins. Daine
segir að opna húsið hafi gengið
vel og að fleiri hafi komið en
búist var við í fyrstu. „Flestír
spurðu okkur um starfsemi
sendiráðsins en minna var spurt
um Svíþjóð," segir hún, en bætti
því við að upplýsingabæklingar
um Svíþjóð sem lágu frammi
hafi runnið út.
Landssöfnunin
Gefum þeim von
„GEFUM þeim von - styrkjum
hjartveik börn“ er yfirskrift lands-
söfnunar sem fram fer á föstudag-
inn, 14. mars. Söfnunin er sam-
vinnuverkefni íslenska útvarpsfé-
lagsins, SPRON, Gulu línunnar,
Neistans, styrktarfélags hjartveikra
bama og fleiri aðila.
Að sögn Elínar Viðarsdóttur, for-
manns Neistans, er markmið söfn-
unarinnar fyrst og fremst tvíþætt.
Í fyrsta lagi miðar söfnunin að því
að tryggja að foreldrar geti annast
hjartveik börn sín án þess að stofna
fjárhagsöryggi fjölskyldunnar í
hættu. í öðru lagi, að hjartveik
böm geti lifað sem eðlilegustu lífi
utan sjúkrahúsa. Hjartagæslu- og
súrefnistæki og önnur dýr hjálpar-
tæki eru sumum hjartveikum börn-
um nauðsynleg til þess að þau geti
dvalist á heimilum sínum. Elín seg-
ir enn fremur, að alls greinist ár-
lega 40-50 börn með hjartasjúk-
dóma á ári hverju hér á landi. Af
þeim þurfi 20-25 að gangast undir
aðgerð, eina eða fleiri. 5-7 börn
greinast árlega með það flókna
hjartasjúkdóma að þau þurfa utan-
til aðgerða.
Söfnunin fer fram á Bylgjunni
og Stöð 2 og hefst á Bylgjunni að
morgni dags.
Hægt að hringja inn framlög
Fólk getur hringt í söfnunarsíma
hjá íslenska útvarpsfélaginu allan
daginn og er aðalnúmer söfnunar-
innar 8005050. Einnig getur fólk
hringt í Gulu línuna, 5626262, sem
hefur lánað númer sitt. Enn fremur
er hægt að leggja framlög inn á
reikning söfnunarinnar, 11522697
í SPRON.
Allan daginn verða dagskrár
tengdar söfnuninni á Bylgjunni og
að loknum kvöldfréttum á Stöð 2
heldur söfnunin áfram í beinni út-
sendingu. Fjölbreytt dagskrá verður
samhliða söfnuninni undir stjórn
Stefáns Jóns Hafstein og Kristínar
Helgu Gunnarsdóttur. Fjölmargir
skemmtikraftar koma fram og með-
al gesta í sjónvarpssal verður Guð-
rún Katrín Þorbergsdóttir, forseta-
frú.
Borgarráð bókar vegna kjaraviðræðna
Tekjur af veltuaukn-
ingu ekki sambærilegar
Á FUNDI borgarráðs í gær var
samþykkt bókun, þar sem lýst er
undrun yfir hugmynd ríkisstjómar-
innar um lækkun útsvarstekna, sem
gangi þvert á sjálfsforræði sveitar-
félaganna. Bent er á að sveitarfé-
lögin njóti ekki með sambærilegum
hætti og ríkið tekna af veltuaukn-
ingu sem búast megi við með vax-
andi kaupmætti.
í bókun borgarráðs er því fagnað
að skriður skuli kominn á kjara-
samningaviðræður á almennum
vinnumarkaði. Jafnframt er lagt til
að fjárhagsleg samskipti ríkis og
sveitarfélag að undanförnu verði
tekin til sérstakrar athugunar.
Borgarráð telji að í ljós muni koma
að sveitarfélögin þoli ekki frekari
tekjuskerðingu en orðin er vegna
skattbreytinga. Minnt er á sam-
komulag um yfírtöku grunnskólans
frá 1. ágúst á síðasta ári, sem gert
hafí verið í trausti þess, að tekju-
stofnar sveitarfélaga yrðu ekki
skertir.
Utandagskrárumræða á Alþingi um skattabreytingar
Tekjur ekki auknar með
öðrum skattahækkunum
SIGHVATUR Björgvinsson alþing-
ismaður óskaði eftir utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær vegna
breytinga á skattamálum sem ríkis-
stjórnin hefur tilkynnt um.
Taldi hann áhrif þeirra koma
hátekjufólki mest til góða og spurði
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hvort ríkisstjórnin væri reiðubúin
að tryggja að minni skatttekjur rík-
issjóðs yrðu ekki teknar með nýrri
skattlagningu eða niðurskurði á
mikilvægri þjónustu. Forsætisráð-
herra sagði að tekjuskerðingu ríkis-
sjóðs yrði ekki mætt með hækkun
annarra skatta.
Engin rauð strik
Málshefjandi sagði skattabreyt-
ingamar vekja meiri athygii fyrir
það sem ekki væri í þeim en það
sem boðað væri, engin rauð strik
væru fyrir hendi, breytingarnar
byggðust ekki á verðlagsforsendum
og engin yfirlýsing væri um að
kaupmáttur yrði tryggður. Sagði
hann fjögurra manna íjölskyldu
með 525 þúsund króna mánaðar-
tekjur njóta 16 þúsund króna skatt-
lækkunar en fjölskylda með 125
þúsund króna tekjur fengi tvö þús-
und króna lækkun. Þá sagði hann
áhrif jaðarskatta meiri, m.a. vegna
beinni tekjutengingar bamabóta.
Spurði þingmaðurinn forsætisráð-
herra hvort þessar aðgerðir væru
endanlegar og hvort jaðarskatta-
nefnd hefði lokið störfum.
Nokkrir þingmenn stjómarand-
stöðunnar tóku undir fyrirspumir
Sighvats ogtaldi Steingrímur J. Sig-
fússon aðdraganda þessara skatta-
breytinga sérkennilegan. Rangt væri
að senda reikning vegna kjarasamn-
inga til ríkisstjómarinnar, hann ættu
atvinnurekendur að greiða, þeir
byggju við nægilegt góðæri.
Verið að skila
sköttum til baka
Kristín Ástgeirsdóttir taldi nær
að hækka persónuafslátt þannig að
allir fengju sömu krónutöluhækkun
og spurði hvort mæta ætti tekju-
skerðingu ríkissjóðs með niðurskurði
í mennta- og heilbrigðismálum. Jón
Baldvin Hannibalsson benti á að þar
sem tekjuskattur til ríkissjóðs hefði
á síðasta ári verið 4,2 milljörðum
hærri en ráðgert var væri nú aðeins
verið að skila þeirri skattheimtu til
baka. Margrét Frímannsdóttir sagði
sumt í breytingunum gott en sakn-
aði þess að ekki væri reynt með
þeim að jafna lífskjörin. Ágúst Ein-
arsson kvaðst orðinn þreyttur á að
ríkisstjóm greiddi það sem fyrir-
tækjunum í landinu bæri að greiða
og Svavar Gestsson spurði hvort
rétt væri að ríkissjóður hagnaðist
um 700 milljónir á yfirstandandi ári
vegna skattabreytinganna.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra tók einnig þátt í umræðunni
og sagði að þótt skattalækkun
hinna tekjuhærri væri meiri í krón-
um talið væri hún hiutfallslega
lægri. Skattar einstaklings með 100
þúsund króna tekjur lækkuðu um
12,6% en skattar einstaklings með
400 þúsund krónur lækkuðu um
8,4%. Munur á skattbyrði þeirra
væri meiri eftir breytinguna og
aðalatriðið væri að ráðstöfunartekj-
ur ykjust. Aðrir sem tóku þátt í
umræðunni voru Jón Kristjánsson
og Páll Pétursson.
Forsætisráðherra sagði varðandi
rauð strik að hér væri um kaup-
máttarsamninga að ræða en ekki
verðbólgusamninga. Ríkisstjórnin
væri sammála forsendum ASÍ um
að kjarasamningarnir þýddu 2,5%
verðbólgu. Sagði hann ríkisstjórn-
ina hafa komið að málinu sam-
kvæmt óskum ASÍ og hér væri ein
umfangsmesta skattalækkun sem
gerð hefði verið, þörf og tímabær.
Þeir sem mestrar lækkunar nytu
væru fjölskyldur með um 250 þús-
und króna meðaltekjur og hefði rík-
isstjómin ekki síst verið að svara
kröfum um að bæta hag þess fólks.
Sagði hann að kaupmátturinn
myndi aukast um 10% á næstu
tveimur og hálfa ári og fá dæmi
væru um svo trausta kaupmáttar-
aukningu.