Morgunblaðið - 12.03.1997, Page 27

Morgunblaðið - 12.03.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 27 LISTIR „Ný aðföng“ SJONMENNTIR Listasafn íslands NÝ AÐFÖNG 1994-1997 35 verk eftir 24 isl. og 5 erlenda listamenn. Opið alla dagafrá 12-18. Lokað mánudaga. Til 13. apríl. Aðgang^ur 300 krónur. ÞAÐ er góð og mikilsverð venja að kynna árlega úrtak innkaupa Listasafns íslands, þótt æskilegt væri að virknin væri meiri og gesturinn fengi frekari upplýs- ingar upp í hendurnar en tiltækar eru. Fram kemur í riti sem þjónar sem sýningarskrá, að á tímabilinu 1994-1997 hafi safnið eignazt 403 myndverk (!), kaup og gjafir, en hins vegar ekki eftir hvað marga listamenn, né hvaða aðra en eiga verk á kynningunni. Það sem að þessu sinni er til sýnis mun samkvæmt upplýsingum frá safninu og viðtölum í fjölmiðlum vera „úrval" verkanna. Elzti lista- maðurinn er Guðmunda Andrés- dóttir f. 1922, og er þannig á 75. aldursári, en yngstur er Hrafn- kell Sigurðsson f. 1963, á 34. aldursári. Sýningin á að gefa inn- sýn í margbreytileika íslenzkrar samtímalistar, og eins og tekið er fram: „Listamennirnir vinna hvorki út frá einu meginþema, efni né stíl heldur er í verkum þeirra að finna dæmi um fjöl- breytilegar skírskotanir og mynd- mál - oft með sterku ívafi ljóð- rænu og kímni - expressjónísk náttúrusýn, náttúrurómantík, konzeptlist, formtilraunir, frá- sagnarlist, sviðsetningar hvers- dagslífsins, skreytilist, hljóðinn- setningar og rómantísk tákn- hyggja." Hvernig sem á það er litið, telst það stórt orð að standa við að tala hér um úrval í stað úrtaks, því gesturinn meðtekur framsláttinn óhjákvæmilega í þá veru, að hér sé verið að kynna mikilsverðustu verkin sem safn- inu hefur áskotnazt. Jafnframt, að samantektin eigi að endur- spegla það bezta í framsækinni íslenzkri myndlist á þessu af- markaða tímabili. Skilvirkara hefði náttúrulega Hannes Lárusson. Decoy, 1991. Blönduð tækni. Keypt 1996 LÍ H-331. verið að tala um úrtak, telja jafn- framt upp nöfn allra sem safnið hefur keypt af á tímabilinu, enn- fremur gjafir til safnsins sem hvort tveggja gæfi möguleika til hlutlægs samanburðar. Annars er hætta á að gesturinn fari að álíta að þau 378 verk sem ekki eru uppi og afgangs urðu í geymslum safnsins víða um borg séu úrkast, í öllu falli á hæpnara gæðastigi. Rýnirinn hefur verið árviss gestur á sýningum þessa „úrvals“ nýrra aðfanga, á stund- um hefur það verið hlutverk hans að fjalla þar um. Það hefur verið vandasamt, sérstaklega að þessu sinni í ljósi þessa litla brots inn- kaupa safnsins og gjafa sem til sýnis eru og svo að ekki liggja frammi upplýsingar um allt hitt. í raun eru hendur hans þræl- bundnar að fengnum upplýsing- um um allt magnið sem mætir afgangi. Hins vegar getur hann komið á framfæri skoðun sinni á mörkuðu hlutverki þjóðlistasafna í ljósi reynslu og yfirsýnar. Eink- um freistast hann til slíkra at- hafna vegna þess að mjög ákveð- inni tegund núlista hefur verið haldið fram, sem frekar gefur til kynna að um róttækt samtíma- listasafn sé að ræða en þjóðlista- safn. Róttækt, vegna þess að hugtakið samtímalist er almennt skilgreint sem öll framsækin og lífræn list frá lokum seinni heims- styijaldarinnar. En bersýnilega virðist það helzt skilgreint sem list eftir að árum ungt fólk hér á útskerinu, og þá sér í lagi ef sá framningur er endurómur þess sem gert er í útlandinu og hefur hlotið löggildingu sértækra fjár- festa í núlistum. Að vísu hafa verið gerðar nokkrar undantekn- ingar frá róttækninni með því að kaupa verk miðaldra og eldri listamanna er lengi hafa staðið í fylkingarbijósti, sumir allt frá styijaldarlokum, en þá vill svo til að innkaupin hafa svip tregðu og málamiðlunar, og ósjaldan um annars flokks verk að ræða. Hafa sumir þeirra þó verið jafn virkir þeim ungu, ef ekki virkari flestum þeirra um svipmiklar athafnir á sýninga- og listavettvangi. Ein- stæð tækifæri til að festa til safnsins stór úrvalsverk þessa fólks látin fara forgörðum á sama tíma og margfalt það verð er reitt af hendi fyrir verk nýliða sem gildir á almennum markaði. þetta heitir á almennu máli markaðs- setning, og er alls ekkert við slíkt að athuga, nema að draga verður í efa að vettvangurinn sé megin- hlutverk þjóðlistasafna (eða borg- arlistasafna). Gefur auga leið, að ris og vægi listamanna verður meira er mikils háttar söfn festa sér myndir þeirra, en yfirleitt er gangurinn annar. Þannig keppast umboðsmenn ungra listspíra úti í hinum stóra heimi við að fá mik- ilsháttar söfn til að taka við myndum skjólstæðinga sinna að gjöf vegna auglýsingagildisins, er þá fremdin ein þóknun lista- mannsins. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur og þar yfir minnast þess áreiðanlega ekki að söfnin hafi keypt af þeim verk yfir almennu markaðsverði. Sættu sig við að eldri og nafnkenndari listamenn væru með hærra verð á verkum sínum sem telst víðast eðlilegt markaðslögmál. En þeim finnst skjóta skökku við er ungum á byijunarreit að segja má er lyft UPP °S goldið er jafnvel mun hærra verð fyrir verk viðkomandi án sýnilegs tilefnis. íslenzkur listamarkaður er að vísu rugl og hefur lengstum verið, því hann hefur aldrei fengið að rótfesta sig, ruglið og brenglað gildismat á verðmæti í hámarki á síðustu árum. Er í góðu samræmi við að í þessu þjóðfélagi verður flest það sem eyðist og hverfur, yfirborð hjóm og glingur, stöðugt verð- Sigurður Örlygsson. Konan með brauðið, 1996. Olia. Keypt 1996 LÍ-5899. Ólöf Nordal. Hvítir hrafnar, 1996. Gifs, stál. Keypt 1996 LÍ H-353. meira á kostnað þess sem mölur og ryð fær ekki grandað, sem telst öllu öðru fremur mannauð- ur, gildi sem fram eru borin af lifandi og safaríku hugviti. Hvergi á byggðu bóli þar sem ég þekki til ganga þjóðlistasöfn né önnur opinber söfn undir slík jarðarmen, heldur leitast við að skapa hér jafnvægi og stuðla þarmeð að heilbrigðri þróun listamarkaðsins, opna augu fólks fyrir ekta og jarð- tengdum gildum. Hlutverk þeirra er einnig að halda fram úrvali allra kynslóða framsækinna og virkra listamanna, fara hér ekki í neina aldursgreiningu né aðrar persónubundnar greiningar sem telja má þeirra einkamál. Fram kemur, að sautján (!) ís- lenzku listamannanna eru fæddir á árnum 1954-63, tveir á þriðja áratugnum og fimm • á þeim fimmta, engir virðast hafa átt forvitnileg verk af kynslóð fjórða áratugarins, og aðeins einn af yngstu kynslóð undir 35 ára. Ýmislegt má lesa út úr tölunum, það athyglisverðasta, að yfirleitt er um að ræða jafnaldra og félaga þeirra sem völdu verkin. Þá telst til umhugsunar, að sumir listamenn eru kynntir ár eftir ár, án þess að séð verði að listrænt pund þeirra standi undir slíkri virkt á meðan verk annarra og mikilvirkra listamanna sjást hvergi. Annað mál er svo, að sjálf framkvæmdin er á köflum mun lífmeiri en á undanförnum árum, fjölþættari og þokkafyllri fyrir augað enda fær hún aukið rými og meira er borið í hana. Bragi Ásgeirsson Léttgeggjaðir græningjar KVIKMYNDIR Bí 6 h ö1lin, Kringlubíó INNRÁSIN FRÁ MARS (MARS ATTACKS!) ★ ★ Vi Leikstjóri Tim Burton. Handrits- höfundur Jonathan Gems. Kvik- myndatökustjóri Peter Suschitzky. Tónlist Danny Elfman. Aðalleik- endur Jack Nicholson, Glenn Close, Annette Bening, Pierce Brosnan, Danny De Vito, Martin Short, Sarah Jessica Parker, Michael J. Fox, Rod Steiger, Lukas Haas, Natalie Portman, Jim Brown, Pam Grier, Sylvia Sydney, Tom Jones, Joe Don Baker, Paul Winfield, Lisa Marie. 102 mín. Bandarísk. Warner Brothers 1996. LEIKSTJÓRINN ungi, Tim Burton, fer jafnan eigin leiðir, víðsfjarri hefðbundinni gróða- stefnu kvikmyndaveranna og hefur komist upp með það. Nú gæti orðið breyting á, aðsóknin að Innrásinni frá Mars olli mikl- um vonbrigðum og skildi eftir skuldasúpu. Það vantar í hana bit og grínið stendur ekki undir væntingum þegar á heildina er litið. Þó getur myndin tæpast talist annað en paródía þar sem skopast er að hasarblöðum og B-vísindaskáldsögulegum mynd- um, einkum frá sjötta áratugn- um. Einsog nafnið bendir til fjallar myndin um innrás grænna Marsbúa og viðskipti þeirra við Bandaríkjamenn. Þeir taka land í Arizona eyðimörkinni og endar fyrsti fundurinn með ósköpum. Forsetinn (Nicholson) varar þjóð sína við innrásinni en í Hvíta húsinu eru skoðanir skiptar á hvernig eigi að meðhöndla Marsbúana. Vísindamaðurinn Kessler (Pierce Brosnan) leggur til að komið sé fram við þá af huggulegheitum, hershöfðinginn Decker (Rod Steiger) vill skella þeim á kjarnorkugrillið. Leikur- inn berst til Las Vegas og Kans- as, þar sem einstaklega ólíklegt leynivopnið finnst að lokum. í fyrsta skipti á ferlinum veld- ur Burton nokkrum vonbrigðum, Innrásin frá Mars er dágóð skemmtun, en það er ekki nóg þegar leikstjóri Beatlejuice og Batman á í hlut. Þær voru vel- lukkaðar, kolsvartar grínmynd- ir, báðar tvær. Hugmyndin að Innrásinni frá Mars er fengin að láni frá teiknimyndaseríu sem fylgdi kúlutyggjói á sjöunda ára- tugnum en þótti ofbeldisfullt úr hófi fram fyrir smáfólkið. Þá sækir Burton og handritshöf- undurinn, Jonathan Gems, fjöl- margar tilvísanir í brellur og myndskeið gamalla B-mynda og það tekst ljómandi vel. (Mörg atriði Innrásarinnar minna á ID4, þar er hinsvegar um tilvilj- un að ræða þar sem myndirnar voru gerðar á svipuðim tíma. Tæknivinnan er stórsnjöll og tónlistin hans Danny Elfman á ríkan þátt í hve sterkum tökum þessi ósköp öll taka mann fyrsta klukkutímann eða svo. í hléinu furðar maður sig á því hvers- vegna Innrásin sló ekki hressi- lega í gegn. Það liggur hinsveg- ar í augum uppi eftir miðja mynd, eða svo, þá erum við búin að fá smjörþefinn af öllu gamn- inu sem verður endurtekningar- gjarnt og einfaldlega ófyndið og Innrásin farin að fjarlægjast Dr. Strangelove... en tekin að minna þess meira á 1941 eftir Spiel- berg, The Hallelujah Trail og aðra kunna ofurskelli byggða á stjörnufans og einhliða farsag- amni. Persónurnar eru vitaskuld léttgeggjaðar en þynnast fljót- lega út eins og annað. Farsa- stíllinn á vel við Nicholson sem gerir stólpagrín að yfirborðs- kenndri Clintonímynd en tekst jafnvel betur þegar hann skiptir yfir í Burt Reynolds. Annette Bening hefur ekkert bitastætt að gera. Sama máli gegnir um Söru Jessicu Parker og Michael J. Fox í tilgangslausum frétta- mannahlutverkum, Jim Brown og Martin Short en enginn er þó meira misnotaður en Danny De Vito í einskisverðu smáhlut- verki. Sá sem stendur sig best (fyrir utan Nicholson) er náungi sem að öllu jöfnu er ekki í neinni guðatölu á þessum bæ, Englend- ingurinn Pierce Brosnan, sem nær rétta farsatóninum. Það gera þau líka: Joe Don Baker sem byssuglaður Suðurríkja- maður, Sylvia Sdney í hlutverki elliærrar móður hans, Lisa Marie (sem lék blóðsuguna í í Ed Wood), er yndislega „speisuð“ sem Marsættað kyntröll og Glenn Close tekur Nancy Reagan og hennar líka í karphúsið. Innrásin er blandaður kokk- teill sem þynnist þegar neðar dregur, á marga góða kafla og skemmtir eflaust einhveijun vel en bitið vantar. Sæbjörn Valdimarsson Islands- klukkan á færeysku VAKA-Helgafell hefur gengið frá samningum um útgáfu á íslands- klukkunni eftir Halldór Laxness á færeysku og kom bókin út hjá bókaforlaginu Unga Foroyar í lok síðasta árs. Fyrsti hluti verksins, íslandsklukkan, var gefin út á færeysku 1969-1970 en það var ekki fyrr en í fyrra sem hinir tveir hlutarnir, Hið ljósa man og Eldur í Kaupinhafn, höfðu verið þýddir og gefnir út á því tungumáli. Sig- urður Joensen þýddi alla bókina en hann féll frá áður en hún var gefín út. íslandsklukkan er 443 blaðsíður að lengd í útgáfu Unga Foroyar en bókin var prentuð og bundin á íslandi í Odda. Á bókarkápu getur að líta myndir frá uppsetningu Þjóðleikhússins á íslandsklukkunni frá 1985 með Helga Skúlasyni í hlutverki Jóns Hreggviðssonar, Tinnu Gunnlaugsdóttur í hlutverki Snæfríðar og Þorsteini Gunnars- syni í hlutverki Amæusar. Islandsklukkan var fyrst gefín út á árunum 1943-1946 en hefur nú komið út í 83 útgáfum á 23 tungumálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.