Morgunblaðið - 12.03.1997, Page 38

Morgunblaðið - 12.03.1997, Page 38
. .38 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ HERDIS BIRNA ARNARDÓTTIR + Herdís Birna Arnardóttir fæddist í Reykjavík hinn 15. apríl 1963. Hún lést á heimili sínu 3. mars síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Askirkju 11. mars. Frænka mín hefur ->nú fengið hvíld eftir stutt en erfið veikindi. Astvinir sjá á bak ungri konu í blóma lífsins. Öll stöndum við svo ótrúlega tóm eftir tapaðan leik við sláttumanninn slynga. Það var átakanlegt að fylgjast með því hvemig athafnamanneskj- unni var kippt úr sambandi við hið daglega líf til að takast á við svo harða baráttu sem raun ber vitni. Frá því veikindi hennar byijuðu leit ég stundum við í Skipholtinu og var mér alltaf jafnvel tekið þó misjafnlega stæði á. Þar var Herdís Bima umvafin hlýju og ástúð fjöl- skyldu sinnar, sem gaf henni styrk - Hil að gefa öðrum hlutdeild í viður- eign hennar við krabbameinið. Ég dáðist að því baráttuþreki sem hún sýndi allt til hinstu stundar. Ekki fór fram hjá neinum sem fylgdist með henni síðasta spölinn hversu mikilvægur þáttur umönnun móður hennar var, því Áslaug var vakin og sofin yfir velferð hennar. Hví fölnar jurtin friða og fellir blóm svo skjótt? (Björn Halldórsson.) ViF Herdís Bima var mjög sérstök og fór sínar eigin leiðir. Hún var að vissu leyti hlédræg og hélt manni í hæfilegri fjarlægð en nálgaðist mann á sinn hátt þegar hún vildi. Mér em einnig minnisstæð frænku- boðin sem móðir hennar átti frum- kvæði að fyrir nokkrum árum og sem við frænkurnar héldum við eft- ir megni. Þar fundum við saman þann meið sem við allar erum sprottnar af, og alltaf vorum við Keflavíkursystur stoltar af henni frænku okkar þegar hún birtist á sjónvarpsskjánum. Um leið og ég þakka frænku minni samfylgdina vil ég þakka henni fyrir að gefa mér hlutdeild í . því sem hefur verið mér svo fram- andi til þessa. Ég og fjölskylda mín vottum Örnu Ösp, foreldrum, systkinum og vini Herdísar Birnu okkar dýpstu samúð og megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Ragnhildur Sigurðardóttir. Það er tregt tungu að hræra þeg- ar góður samstarfsmaður til margra ára fellur frá langt um aldur fram - ekki síst þegar samstarfið hefur verið ánægjan eintóm. Raunar var það ekki í vinnunni sem ég kynntist Herdísi Birnu fyrst - hún var litla stelpan, sem átti heima í húsinu við hliðina á okkar á Túngötunni i Vest- mannaeyjum. Hún var á aldur við litlu systur mína og tíður gestur í húsi foreldra minna. Ég var hins vegar á þeim aldri að ég sóttist ekki mikið eftir samneyti við svona smástelpur, svo kynnin urðu ekki náin í það sinnið. Óralöngu síðar kom svo litla stelpan úr húsinu við hliðina - þá orðin stór - og fékk vinnu við að þýða erlendar fréttir á Stöð 2. Hún hætti svo fljótlega að þýða fréttir og tók til við að skrifa þær og segja. Ég hef alltaf wtalið sjálfum mér trú um að ég væri nokkuð glúrinn í mannaráðn- ingum og ekki urðu störf Herdísar Birnu til að draga úr þeirri sjálfum- gleði. Einhvern veginn er það samt svo, að það eru ekki störfin hennar Dísu, sem eru mér hugstæðust á þessari stundu, heldur hún sjálf. Fréttastofa Aer að ýmsu leyti dálítið þrúgandi vinnustaður - hávaða- og erilsam- ur, og fólk í sífelldu kapphlaupi við tímann - í mikilli nalægð hvert við annað. í þessu um- hverfi er gott að hafa fólk á borð við Dísu. Það andaði frá henni hlýju, góðvild og um- burðarlyndi. Hún var hvers manns hugljúfi og skapgerð hennar indæl blanda af góð- semi og glettni. Það slaknaði einatt á spennu þegar Dísa lagði gott til mála og það gerði hún oft. Ég hitti Dísu síðast í eldhúsi for- eldra hennar nokkrum dögum áður en hún laut í lægra haldi fyrir illvíg- um sjúkdómi, sem hún hafði þó barist svo hetjulega gegn mánuðum saman. Þrátt fyrir að veikindin hefðu sett á hana mark hið ytra var andinn óbugaður. Hún talaði um málefni fréttastofunnar af sama áhuga og eldmóði og áður, en mest þó af venjulegri umhyggjusemi fyrir starfsfélögum sínum. Og aldrei heyrði ég annað en að hún ætlaði að koma aftur í vinnuna. En Dísa kemur ekki aftur og við söknum hennar. Mest hefur þó misst hún Arna Ösp, litla dóttir hennar Dísu, sem sér á bak móður sinni á viðkvæmum aldri. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra starfsmanna á fréttastofunni þegar ég votta henni, foreldrum Dísu og öðrum ástvinum, dýpstu samúð. Megi birtan sem ávalit staf- aði af Dísu sem fyrst hrekja burt skuggann, sem nú grúfir yfir ástvin- um hennar. Páll Magnússon. Fréttastofa er sérkennilegur vinnustaður. Þar ríkir bæði hraði og keppni og stundum verða árekstrar. Allir hafa skoðanir á öllu og oft er barist um athyglina. Það var því fagnaðarefni þegar í frétta- mannahópinn bættist ung kona, sem gekk hljóðlega um, hafði fastmótað- ar skoðanir en kenndi okkur að hægt er að koma þeim á framfæri án bægslagangs. Ékki veitti okkur konunum af slíkum liðsauka. Og eftir því sem árin liðu, varð þessi kona kjarninn í einstöku samfélagi - samfélagi kvenna á fréttastof- unni. Herdís Birna var einstaklega vel af Guði gerð. Hún var lagleg, nán- ast sem gyðja. Göngulag hennar og framkoma öll einkenndist af hæ- versku og kvenlegum þokka. En fyrst og fremst bjó hún yfír persónu- töfrum sem heilluðu alla. Og í henni áttum við öll traustan vin. Dísa var líka skemmtileg blanda. í henni toguðust á bóheminn og „Báran“. Hversdagslega gekk hún í þægilegum og stundum svolítið losaralegum klæðnaði, en einstöku sinnum rann á hana kaupæði og þá stökk hún búð úr búð og fjárfesti í ótrúlegum fjölda skópara - iðulega mjög sérstökum og áberandi skóm. 0g þegar árshátíðin nálgaðist var allsendis óvíst hvort hún mætti í rauða gúmmíkjólnum úr Skaparan- um, eða síða pallíettukjólnum frá frú Báru! Það skipti kannski engu máli, hún var hvort sem er glæsileg- ust allra. Oftar en ekki þegar við hittumst var Arna dóttir hennar með í för. Samband þeirra var ákaflega fallegt og var byggt á ást, trausti og vin- skap. Dísa var kelin og Arna sömu- leiðis og það kom ósjaldan fyrir að sú yngri sofnaði í fangi móður sinnar undir fremur háværum um- ræðum okkar kvennanna um hin þörfustu málefni. Það er jafnan tilhneiging þegar skrifuð eru eftirmæli fólks að tíunda aðeins það besta í fari þess. Engan galla fundum við þó í fari Dísu alvar- legri en þann að henni þótti stundum gott að sofa frameftir um helgar - sérstaklega ef hún var á vakt! Hún var rösk til vinnu, nákvæm og ein- staklega bóngóð. Én rósemin, hlýjan og umhyggjan fyrir öðrum var það sem einkenndi hana kannski öðru fremur. Hún var félagsvera og stóð jafnan fremst í flokki þegar skipu- leggja átti samkomur utan vinnu- tíma, hvort sem voru reglulegir kvennafundir á kaffíhúsi, skíðaferð- ir eða annar gleðskapur. Og það eru stundirnar sem eru svo ógleyman- legar. Orðin „mannleg reisn“ öðluðust nýja merkingu þegar við fylgdumst með Dísu glíma við örlög sín. Þessa mánuði sem hún barðist fyrir lífí sínu, bar hún alltaf höfuðið hátt og horfði fram á við. Það er svo sárt að sjá á bak vini sem jafnvel í dimm- ustu éljunum leiddi ljós inn í líf allra í kringum sig. Hún barðist eins lengi og mögulegt var, ekki síst fyrir dóttur sína og fjölskyldu, en henni var ekki gefínn lengri tími. Hetjan okkar er fallin, en minning hennar mun um alla tíð lifa í hugum okkar. Elsku Arna, Áslaug, Örn, Haukur og systkini Herdísar; Guð veiti ykk- ur styrk til að halda áfram og horfa fram á veginn, það væri í hennar anda. Anna Katrín Guðmundsdóttir, Helga Guðrún Johnson, Hulda Gunnarsdóttir, Hulda Dóra Styrmisdóttir, Hildur Hilmarsdóttir, Katrín Lovísa Ingvadóttir, Katrín Baldursdóttir, Ragnhildur Ragnarsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir. Fólk kemur eftir ýmsum leiðum í fréttamennsku; sumir þurfa að sitja lengi á skólabekk meðan aðrir fara í gegnum svokallaðan skóla lífsins. Herdís Birna byijaði sem þýðandi hjá mér í erlendu fréttunum á Stöð tvö og þegar starf frétta- manns lpsnaði kom vart annar til greina. Ég hef enga ánægjulegri og happadrýgri ákvörðun tekið í frétta- mennsku en að mæla með henni í þá stöðu. Þeir sem þekkja vinnu á sjón- varpsfréttastofu vita að þar ríkir ekki alltaf logn. En það var alltaf saman hversu uppnámið var mikið, hversu skammt var í útsendingu og hversu nálægt við vorum því að fara yfir um - Dísu tókst alltaf að vinna hraðar, hrópa minna og skila meiru en öðrum í kringum hana. Sami rólegi dugnaðurinn ein- kenndi samskiptin við hana þegar ég var fréttaritari í útlöndum, en það er starf sem er oft unnið í nokk- urri einsemd og einangrun. Dísa hafði allt sitt á hreinu, gat greitt úr flækjum og mundi eftir þessum mikilvægu smáatriðum sem er svo auðvelt að gleyma í hita leiksins þegar skilatími nálgast á fréttaút- sendingu dagsins. En þegar ég sit hér langt í burtu og hugsa um Dísu, sem mér var sagt að hefði dáið í morgun, og hugsa til þess hversu ósanngjarnt lífíð - og dauðinn - getur verið, sé ég fyrir augum mér konu sem geislaði mannlegri hlýju. Það var hægt að spjalla við hana tímunum saman og skiptast á slúðri en þegar upp var staðið hafði hún engum hallmælt; í mesta lagi beitt einhvern gáskafullri stríðni. Hún vissi alltaf hvað var að gerast í kringum hana af því að hún hafði raunverulegan áhuga á öðru fólki. Henni fannst minna máli skipta að tala um sjálfa sig. Við brottför mína til Mið-Asíu missti ég tengslin við Dísu. í tóma- rúmið fyllti nokkuð þegar við náðum upp tölvusambandi tiltölulega ný- lega. í síðasta skeyti hafði hún von um að ný lyfjameðferð væri farin að bera árangur. Næstu frétt af henni fengum við í símtali að heim- an síðdegis daginn sem þetta er skrifað. Það er til einskis að leita að merk- ingu í því að þessi góða kona skuli svipt lífínu svona allt, allt of snemma. Hún átti að fá að njóta alls þess sem lífið býður upp á svo miklu lengur. Við sem eftir sitjum getum bara vonað að eftir sársauka undanfarinna mánaða hafí hún loks fengið ró, og að eitthvað miklu betra hafí tekið við. En við sem þekktum Dísu munum alltaf sakna hennar. Þórir Guðmundsson, Kasakstan. í lífi sérhvers manns skiptast á skin og skúrir. Síðustu mánuðina hefur fyrrum mágkona mín barist hetjulega við erfiðan sjúkdóm en alltaf sá hún sólskinið og átti þá von í bijósti að lífíð sigraði. Dísa kom inn í fjölskylduna með Magn- úsi bróður mínum fyrir hartnær þrettán árum. Hún var hæglát en bauð af sér mjög góðan þokka og hreif alla með sínu fallega brosi. I umræðum sem gátu oft orðið ansi lífiegar í okkar stóra systkinahópi kom í ljós að Dísa var vel lesin og kom ærið oft með gáfuleg en líka oft og tíðum hnyttin tilsvör. Mánuði eftir að ég flutti með fjöl- skyldu minni til náms í Bandaríkj- unum fæddist svo Arna Ösp. Við vorum ekki komin með síma en fylgdumst daglega með tíðindum að heiman í gegnum símasjálfsala sem var staðsettur við þvottahús skólaíbúðanna. Á fögrum sumardegi fengum við þær fréttir að lítil frænka væri fædd. Fagnaðarlætin voru mikil hjá dætrum mínum Al- dísi Kristínu og Védísi Hervöru þeg- ar að þær fréttu að loksins væri komin lítil frænka. En ég verð að viðurkenna að mikið langaði mig heim þennan dag til að samgleðjast stoltum bróður mínum og Dísu. Við fengum þó reglulega myndir af þeim mæðgum og var greinilegt að sterkt samband ríkti á milli þeirra frá fyrstu stundu. Dísa var þeim einstaka eiginleika gædd að taka hlutum af miklu jafn- aðargeði og veraldlegir hlutir voru ekki að vefjast fyrir henni. And- rúmsloftið í kringum hana var því alltaf þægilegt og gott að vera ná- vistum við hana. Undanfarna mánuði hefur hugur okkar allra í íjölskyldunni verið hjá Dísu og það var einstakt að fylgjast með baráttuviljanum. í samtali okkar fyrir tveimur vik- um hafði hún fengið þær slæmu fréttir að nú gætu læknavísindin ekki gert meira fyrir hana. Hún hughreysti og óskaði mér alls góðs i því verkefni sem ég á fyrir höndum næstu vikurnar. Hún krafðist þess að ég leitaði til sín ef hún gæti lið- sinnt mér. Þannig var Dísa. Lífssól hennar er nú sest en geisl- amir frá henni Dísu munu áfram skína til Ömu Aspar og þeirra ást- vina er sárt syrgja hana. Samfylgd- in var ljúf, en allt of stutt. Bryndís. Á brautarpalli Vinir rótlausir erum við á framandi brautarpalli lestin endalausa rennur hjá og öll eigum við frátekið sæti. Ólíklegt er að við ferðumst í sama vagni en á meðan við bíðum skulum við haldast í hendur og þegar eitt okkar fer reyna að hlaupa í skarðið. (HM’86) Það er ekki margt fólk sem mað- ur hittir á lífsleiðinni sem maður finnur strax að verður vinur frá fyrstu stundu. Þannig var það með Herdísi Birnu. Ég sá hana fyrst þar sem hún þaut upp og niður stigann að klippiherbergjunum á fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar. Hún sá um þýðingar á viðtölum í fréttum sem þurfti að vinna hratt og á síð- ustu stundu fyrir útsendingu. Við þessar aðstæður er pressan mikil og fréttamenn ekki alltaf í sólskins- skapi við samstarfsfólk sitt sökum álagsins. En Herdís Birna vann verk sín af röggsemi og vann þau vel og bugaðist ekki undan álaginu. Hún hafði alla hæfileika sem til þurfti í góðan fréttamann enda fór það svo að hún hætti í þýðingunum og gerð- ist fréttamaður. Þær eru óteljandi gleðistundirnar sem ég og aðrir samstarfsmenn Herdisar Birnu átt- um, bæði í og fyrir utan vinnu. Einn af meginmannkostum hennar var hvað hún var afburða greind og því var hægt að ræða við hana um allt milli himins og jarðar. í hópi sem vinnur undir álagi eins og á frétta- stofu myndast eins kona systkina- samband milli fólks. Milli sumra getur verið ákveðin togstreita en eins og í öllum stórum fjölskyldum er einn sem getur talað við alla án átaka og slík persóna var Herdís Birna. Okkur var því öllum brugðið þegar í ljós kom hversu alvarleg veikindi hennar voru. Engan gi'un- aði hvað framundan var þegar hún fór heim af vaktinni vegna þess hvað hún var slöpp, enda var í fyrstu talið að hún væri með bijósklos. En þegar sannleikurinn kom í ljós sýndi Herdís Birna fádæma styrk. Hún tók því sem að höndum bar með miklu æðruleysi, staðráðin í að vinna sigur á krabbameininu. Það var líka dæmigert fyrir hana að veita tímaritsviðtal vegna veikinda sinna. Ekki til að velta sér upp úr eigin veikindum, heldur ti! að vekja athygli á því sem hún sá að ekki var í lagi varðandi þjónustu við alvar- lega veikt fólk. Þrátt fyrir veikindin gat hún ekki hætt að líta á hlutina með augum fréttamannsins. Hún sá að víða var pottur brotinn varðandi rétt skyld- fólks sem hlúir að veikum ættingj- um, og hún sá hveijar afleiðingarn- ar eru af lokun deilda á sjúkrahús- um. En henni nægði ekki að sjá brotalamirnar. Hún þurfti líka að miðla því sem hún sá til annarra og gerði það af sömu fagmennsk- unni og hún vann sín verk á frétta- stofunni. Herdís Birna var ákaflega stolt kona. Þess vegna var það stór stund í lífi hennar þegar hún keypti sér sína fyrstu íbúð. Hún hlakkaði ein- læglega til að flytja inn með Örnu dóttur sinni og gat látið ósk hennar um að fá kött rætast. Við deildum dálæti á köttum og ræddum það fram og til baka hvort hún ætti að fá sér einn eða tvo til að gefa Örnu í jólagjöf jólin 1995. Við komumst að þeirri niðurstöðu að tveir væru betri kostur upp á félagsskapinn. Það reyndist líka rétt. Herdls Birna lýsti því malandi glöð hvernig þær mæðgurnar lægju í leti í rúminu þegar þær áttu frí með kettlingana lúrandi við höfðagaflinn. Þarna voru þær orðnar drottningar í ríki sínu og framtíðin virtist björt. En það var aðeins nokkrum mánuðum eftir að þær mæðgur fluttust í íbúðina sína sem Herdís Birna veiktist. Eft- ir það var hún hjá foreldrum sínum sem vöktu yfir henni hvem dag og nótt fram undir það síðasta. Herdís Birna var lánsöm að eiga svo ástríka fjölskyldu. En hún átti líka góðan félaga í Hauki Holm vinnufélaga okkar, en þau höfðu ruglað saman reitum sínum fyrir nokkrum árum. í ljóðlínunum hér að framan er fjall- að um þá staðreynd að dauðinn kemur til okkar allra. Hann kom hins vegar allt of snemma til vin- konu minnar Herdísar Birnu. Arna reynir nú það sem er ekki lagt á marga 12 ára, en hún hefur sýnt það í gegnum veikindi móður sinnar að hún er sterk og stolt eins og hún. Ég sendi henni, fjölskyldu hennar og Hauki mínar dýpstu sam- úðarkveðjur og vona að guð gefi þeim styrk í glímunni við sorgina og missinn. Minningin um Herdísi Birnu mun eiga hólf í hjarta mér alla tíð. Heimir Már Pétursson. Þegar hljóðfráar þotur dauðans fara hjá með gný, sundrast spegill minninganna og brotin lenda í hjartastað. (St. Sn.) Þessar ljóðlínur orti bróðir minn um vin sinn sem var kallaður burtu úr þessum heimi á unglingsárum. Þær komu upp í hugann þegar hringt var til mín síðastliðið sumar þar sem ég sat úti á verönd og dáðist að fegurð heimsins að kvöld- lagi staddur í sumarleyfi á Eyjahaf- inu. Sjúkdómslýsingin var með þeim hætti að innst inni var mér ljóst hvað klukkan sló. Og veröldin var

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.