Morgunblaðið - 12.03.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 12.03.1997, Blaðsíða 56
>56 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYIMDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP Filman er best Morgunblaðið/Jón Svavarsson BÖÐVAR Bjarki skoðar brot úr íslenskri kvikmyndasögu. ^'„í GRUNDVALLARATRIÐUM lýtur Kvikmyndasafn íslands sömu lög- málum og önnur söfn. Það sér um söfnun, varðveislu, endurgerðir og viðhald, þjónustu og rannsóknarstarf innan sinnar sérgreinar. Safna skal öllum íslenskum kvikmyndum og efni þeim tengdu, svo sem handritum, veggspjöldum, ljósmyndum og hinum ýmsu munum eins og tökuvélum og sýningarvélum," sagði Böðvar Bjarki Pétursson forstöðumaður Kvik- myndasafns fslands í samtali við Morgunblaðið en safnið flutti nýlega J stórt og mikið húsnæði þar sem Bæjarútgerð Hafnarfjarðar var áður til húsa. Engin skilaskylda Á íslandi er ekki komin á skila- skylda á kvikmyndum, eins og er í flestum öðrum Evrópulöndum, líkt og menn þekkja í sambandi við blöð og tímarit. Safnið hefur þó að sögn Böðvars rétt á að eignast eintök og frumefni af þeim myndum sem fá styrk úr kvikmyndasjóði, en það ger- ist þó ekki sjálfkrafa. „Það er handa- hófskennt hvað við fáum af þeim myndum sem framleiddar eru úti í bæ af hinum ýmsu sjálfstæðu fram- leiðendum. Ég vil fá eintak af öllum i.myndum sem eru framleiddar og líka helst myndir frá áhugamönnum og þess vegna heimilismyndir, ef þær hafa þýðingu á landsvísu. Varðveisla kvikmynda er tiltölu- lega flókið mál, en þær varðveitast best við ákveðið raka- og hitastig, og litfilmur eru hreinlega geymdar í frosti. Það er ekki eins og fólk heldur að filmur séu bæði viðkvæmar og eldfímar. Það er gamla goðsögnin um nítratfilmumar sem voru alls ráðandi fyrstu áratugina á þessari öld, og reyndar alveg fram yfir stríð. Filman getur geymst ótrúlega lengi; áratugum saman, jafnvel árhundruð- um, samkvæmt útreikningum á ástandi elstu filma í dag.“ Að sögn Böðvars Bjarka er það myndbandið sem er stóra vandamálið í myndmiðlun í dag, þar sem það er í eðli sínu mjög vont varðveisluform. „Menn hafa áhyggjar af því að stór- ar eyður muni myndast í söfnum eftir að hætt var að taka á filmur og myndböndin tóku yfir. Staðreynd- in er sú að elstu myndböndin tekin milli 1970 og 1980 eru byijuð að skemmast." Endurgerðir eru mjög stór kostn- aður við rekstur kvikmyndasafna. „Yfirleitt eru gerðar nýjar negatífur af kvikmyndunum sem endalaust er svo hægt að búa til ný sýningarein- tök eftir. Við erum langt komin með að endurgera alla fyrstu áratugina í íslenskri kvikmyndagerð og nú eru myndir frá íslenska kvikmyndavor- inu farnar að þarfnast endurgerðar. Væntanlega á eftir að eyða tugum milljóna á komandi árum í að koma þeim myndum í það ástand að þær varðveitist fyrir komandi kynslóðir." Þjónusta við almenning „Við aðstoðum nemendur á öllum skólastigum sem eru að rannsaka eða skrifa um eitthvað sem tengist kvikmyndum og kvikmyndasögu. Við tökum yfirleitt vel í það ef fólk er að leita að myndum af einhveijum sem það þekkir, og reynum við að sinna eins stórum hluta af þessum fyrirspumum og við komumst yfir. Einnig emm við með vísi að bóka- safni, þannig að áhugamenn geta komið hingað og lesið á staðnum." Sá hluti sem er mikilvægastur í þjónustu safnsins við almenning er sýningahald og í haust fær safnið aðstöðu í Bæjarbíói. „Við munum hægt og bítandi hefja þar sýningar á myndum sem eru hér í safninu. Það sem verður lykilatriðið eru sýn- ingar á hinum ýmsu klassísku kvik- myndum sögunnar." Ljósmyndasýning Morgunblaðsins á Suðurlandi NÁTTÚRUHAMFARIRNAR Á VATNAJÖKLI OG SKEIÐARÁRSAN Dl Eldgosið í Vatnajökli í október og hlaup á Skeiðarársandi í byrjun nóvember á síðasta ári eru meðal mestu náttúruhamfara á Islandi á þessari öld. Á svipstundu stórskemmdust samgöngumannvirki á Skeiðarársandi og hringvegurinn rofnaði og olli það einstaklingum og fyrirtækjum á sunnan- og austanverðu lancfinu miklum óþægindum. Myndir sem ljósmyndarar Morgunblaðsins tóku af náttúruhamförunum verða til sýnis á Suðurlandi á eftirtöldum stöðum: Víkurskáli Vík í Mýrdal. 30. mars - 5. apríl. Fossnesti á Selfossi. 6. apríl - 20. apríl. Allar myndimar á sýningunni eru til sölu. MYNDASAFN Skaftárskáli Kirkjubæjarklaustri. 2. mars — 29. mars. Afsprengi djöfulsins NÝJASTA teiknimynda- hetjan til að feta í fót- spor Ofurmennis og Leðurblökumanns á hvíta tjaldinu í leikinni útgáfu kallast hvorki meira né minna en af- sprengi djöfulsins, Spawn (sbr. „the spawn of Satan“ á engilsax- nesku). Ætli Skítseiði sé ekki ágætis þýðing? Þessi skuggalegi náungi, sem birtist fyrst á teikni- myndamarkaðinum í Bandaríkjunum árið 1992, kemur til með að hrylla og trylla bíógesti vestanhafs næsta sumar. Leigumorðingi ríkisstj órnar innar Saga Spawn er áþekk sögu Krákunnar, ann- arrar teiknimyndahetju sem skelft hefur bíó- gesti. Hið rétta nafn per- sónunnar er A1 Simm- ons. Hann er leigumorð- ingi fyrir ríkisstjórnina sem er myrtur en gerir samning við djöfulinn til þess að geta snúið aftur til eiginkonu sinnar. Það er tiltölulega óþekktur leikari að nafni Michael Jai White sem fer með aðalhlutverkið, en stærri nöfn á borð við Martin Sheen og John Leguizamo fara einnig með stór hlutverk í myndinni. Spawn er ekki eina teiknimyndahetjan sem verið er að kvikmynda. Wesley Snipes hefur tek- ið að sér að leika frekar óþekkta teiknimyndafíg- úru, Blade, sem eltist við vampírur. TEIKNIMYNDAHETJAN Spawn er illileg á að líta. SPAWN er dökkur og drungalegur í nýja kvikmyndabúningnum. ^ Gætið þess að klukkan í myndbandstækinu sé rétt stillt. Tækin með Myndvaka- búnaði eru yfirleitt merkt ShowView eða VideoPlus+. Réttar rásir í myndbandstækinu: Sjónvarpið: | Stöð 2: | Sýn: rás 1 | rás2 j rás 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.