Morgunblaðið - 12.03.1997, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 12.03.1997, Qupperneq 60
•tiYUNDAI HÁTÆKNI TIL FRAMFARA M Tæknival SKEIFUNNI 17 SlMI 550-4000 ■ FAX 550-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆ TI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ný störf við ensím- vinnslu og rannsóknir BRESKA lyfjafyrirtækið Phairson Medical hefur samið við Jón Braga Bjarnason, prófessor í lífefnafræði, um að hann stjórni hér vinnslu á ensími úr rækju frá suðurskautinu. Ensímið verður notað til framleiðslu á lyfi sem flýta á fyrir því að sár grói. Líklegt er að starfsemin standi í nokkur ár og krefjist fimm starfa við vinnsluna sjálfa og 10 til 20 við rannsóknir og síðar fleiri. Þorsteinn I. Sigfússon prófessor og starfsfélagi Jóns við Háskólann tjáði Morgunblaðinu að Jón Bragi Bjarnason hefði í mörg ár rannsakað möguleika þess að vinna ensím úr sjávarfangi og væri hann frumheiji á þessu sviði. Sagði hann að breska lyfjafyrirtækið hefði kannað aðferðir við vinnslu á ensími úr suðurskauts- rækju, m.a. hjá japönskum og sænskum vísindamönnum, svo og aðferð Jóns Braga og litist best á hana. Var skrifað undir samninga um verkefnið sl. föstudag. Vinna þarf ensímið úr talsvert miklu magni af suðurskautsrækj- unni sem flutt verður hingað. Stundar breska fyrirtækið dýratil- raunir áður en lyfið fer á markað. Meðan þær standa yfir skapast nokkur störf við ensímvinnsluna hérlendis og frekari rannsóknir. „Þarna skapast störf fyrir ungt menntað fólk sem er að útskrifast úr Háskóla íslands sem ef til vill færi annars til Evrópu eða Banda- ríkjanna sem er okkur mjög mikil- vægt,“ sagði Þorsteinn I. Sigfússon. Segir hann að þetta sé fýrsti út- flutningur á líftækni og nýtt við- skiptatækifæri. Þorsteinn GK talinn ónýtur BJ ÖRGUN ARS VEIT ARMENN úr björgunarsveitinni Fiskakletti í Hafnarfirði sigu niður að flaki Þorsteins GK í gær til þess að freista þess að bjarga verðmæt- um úr skipinu. Tryggingafélag skipsins veitti leyfi til þess að þetta væri gert enda þykir ljóst að flakinu verði ekki bjargað og afsalaði fyrir- tækið sér þeim verðmætum sem björgunarsveitin treysti sér til að bjarga. Valgarður Sæmundsson for- maður sveitarinnar segir skipið afar illa farið, og liggi meðal annars stjórnborðshlið þess beygluð að grjóturðinni. „Brúin stjórnborðsmegin er alveg gjör- samlega ónýt. Stjórntæki og ann- að er í rúst, bæði eftir barninginn við grjótið og brimið sem hefur átt greiða leið inn um dyrnar bakborðsmegin og glugga sem þarna var,“ segir Valgarður. Björgunarsveitarmenn náðu meðal annars tveimur loftnetum og björgunarbát en fáu öðru. Þeir sigu niður Krísuvikurberg, um 40-45 metra leið og segir Valgarður að aðstæður hafi gert mönnum erfitt fyrir. ■ Hrikalegar aðstæður/7/30 Tilllaga á aðalfundi Flugleiða Nafn Loft- leiða fyrir millilanda- - flugið FJÖLEIGN, hópur fyrrum hluthafa Loftleiða, hyggst leggja til á aðal- fundi Flugleiða á morgun að tekið verði upp nafnið Loftleiðir á milli- landaflug félagsins, þ.e. Ameríku- flugið og flugið á þá áfangastaði sem Loftleiðir flugu til á árum áður. Telur hópurinn að með því að taka upp nafnið Flugfélag Islands á nýja félagið sem taka á við innanlands- flugi félagsins sé brotið samkomuþag um nöfn Loftleiða og Flugfélags ís- lands sem gert var þegar félögin voru sameinuð árið 1973. Kristjana Milla Thorsteinsson, ein í Fjöleignarhópnum, tjáði Morg- ^ unblaðinu í gær að við sameininguna m hefði verið samið um að nöfnin skyldu lögð niður til lífstíðar. Þegar stjórn Flugleiða ákvað að stofna nýtt félag um innanlandsflugið sendi Fjöleignarhópurinn stjórninni bréf og stakk upp á að höfð yrði sam- keppni um nafn fyrir nýja félagið. Morgunblaðið/Golli SIGMENN burðast með björgunarbát sem þeir fundu heilan í flaki Þorsteins GK, en skipið sjálft er talið ónýtt. Sáttaumleitanir halda áfram í málum fjölda félaga hjá sáttasemjara Stefnt að lausn í deilu SIB í dag eða á morgun SÁTTAFUNDIR fjölda félaga og landssambanda og vinnuveitenda voru haldnir hjá ríkissáttasemjara í gær. Viðræður Landssambands verslunarmanna og vinnuveitenda liggja þó niðri en í dag hafa samn- inganefndir Dagsbrúnar/Fram- sóknar og viðsemjenda verið boðað- ar til fyrsta sáttafundar eftir að upp úr slitnaði á laugardag og viðræð- um verður einnig haldið áfram á milli VSÍ/VMS og Verkamanna- sambandsins. Góður gangur er í samningavið- ræðum Sambands íslenskra banka- manna og samninganefndar bank- anna en þær fóru fram hjá ríkis- sáttasemjara í gær. Undir kvöldið var fundum frestað til kl. 14 í dag en samningsaðilar stefna að því að ná niðurstöðu í dag eða á morgun því á föstudag þarf ríkissáttasemj- ari að leggja fram sáttatillögu í deilunni, hafi ekki samist, vegna verkfallsboðunar bankamanna. „Það eru uppi hugmyndir um hugsanlega lausn á okkar málum sem eru á heildina litið nálægt launaramma sem aðrir hafa samið um, og hafa nálægt 15% útgjalda- auka í för með sér á samnings- tíma,“ segir Friðbert Traustason, formaður SÍB. Um 250 verkamenn í Dagsbrún hjá Eimskipi, Samskipum og Lönd- un og félagsmenn Hlífar í Hafnar- firði, sem starfa hjá Eimskipi, leggja að óbreyttu niður störf á miðnætti í nótt en þá hefst ótíma- bundið verkfall félagsins hafi samn- ingar ekki tekist. Mjólk er ekki lengur fáanleg í mörgum stórmörkuðum og verslun- um á höfuðborgarsvæðinu vegna yfirstandandi verkfalls Dagsbrúnar hjá Mjólkursamsölunni. RSÍ felldi samning við Reykjavíkurborg Rafíðnaðarmenn hjá Reykjavíkur- borg felldu nýgerðan samning í gær með eins atkvæðis mun og tók verk- fall þeirra gildi að nýju. I ljós kom að mistök höfðu orðið við breytingar á launakerfí nema sem lækkuðu í launum vegna þeirrar viðmiðunar sem notuð var. í gærkvöldi unnu samninganefndir RSÍ og Reylq'avík- urborgar að leiðréttingu textans sem verður borinn upp að nýju á félags- fundi í dag. Rafíðnaðarmenn hjá RARIK undirrituðu nýjan kjara- samning við VSÍ í fýrrinótt. Rafíðn- aðarmenn hjá ríkinu hafa hins vegar samþykkt boðun verkfalls, sem á að hefjast á miðnætti 19. mars, með 96,2% atkvæða. Öll aðildarfélög BSRB hafa ákveðið að vísa kjaraviðræðum sín- um við ríkið til ríkissáttasemjara. ■ Kjaramálafréttir 10/11/12 Fjögur fiskiskip fengu net í skrúfuna FJÖGUR fískiskip og bátar fengu veiðarfæri sín í skrúf- una á rúmum sólarhring. Þessi skip eru Hegranes SK, sem var á veiðum 100 sjómílur út af Stokksnesi í fyrrinótt, Grindvíkingur GK skammt undan Garðskaga og Freyja sem fékk net í skrúf- una við Eldey í gær. Þau voru öll dreginn til hafnar. Þá fékk Þorsteinn GK net í skrúfuna í fyrradag og rak bátinn upp í Krísuvíkurberg. Loks fékk togarinn Venus frá Hafnarfirði veiðarfærin í skrúfuna um miðnætti sl. sunnudag og var hann dreg- inn til hafnar. ■ Áreki/6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.