Morgunblaðið - 14.03.1997, Síða 26

Morgunblaðið - 14.03.1997, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Ljóðin kölluðu á að vera sungin Sólveig Anna Jónsdóttir og Anna Júlíana Sveinsdóttir æfa fyrir tónleikana á laugardaginn. Með vífið í lúkunum LEIKLISTARDEILD UMFT á Tálknafírði sýnir leikritið „Með vífíð í lúkunum" 14. mars. Verkið er eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen. Þessi uppfærsla er að því leyti ólík öðrum sviðsetningum að leikstjórinn Ingibjörg Bjömsdóttir hefur, með leyfi þýðanda heimfært verkið upp á íslenskar aðstæður. Leikarar eru 7, en alls era aðstandendendur sýningarinn- ar 14. Sýningin verður sett upp víðar á sunnanverðum Vest- fjörðum. Tónleikar Tónmennta- skólans TÓNLEIKAR verða á vegum Tónmenntaskóla Reykjavíkur laugardaginn 15. mars kl. 14. Þetta era árvissir tónleikar ýmissa hijómsveita skólans. Fram koma yngri og eldri strengjasveit og yngri og eldri blásarasveit ásamt léttsveit skólans. Efnisskráin er fjöl- breytt. Aðgangur að tónleikun- um er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfír. Tónleikar í Reykholts- kirkju TÓNUSTARFÉLAG Borgar- fjarðar stendur fyrir tónleikum í Reykholtskirkju sunnud. 16. mars kl. 16.00. Flutt verður fjölbreytt tónlist m.a. barokk- og þjóðlagatónlist. Flytjendur eru: Sverrir Guðjónsson kontratenór, Camilla Söder- berg, blokkflautu, og Snorri Öm Snorrason, lútu. Þóra sýnir í Galleríi list ÞÓRA Sigurþórsdóttir leirlist- arkona er listamaður mánaðar- ins í Galleríi List, Skipholti 50b. Þóra hefur undanfarin ár rekið eigin vinnustofu á Ála- fossi í Mosfellsbæ. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið margar einkasýning- ar. Sýning Þóra verður opnuð í dag, föstudag. Sýningarlok í Kirkjuhvoli SÝNINGU Gæflaugar Bjöms- dóttur og Bjöms Halldórsson- ar gullsmiðs í Listasetrinu Kirkjuhvoli lýkur sunnudaginn 16. mars. Listasetrið er opið virka daga frá kl. 19-21 og um helgar frá kl. 15-18. Brúðubíllinn í Hveragerði BRÚÐUBÍLLINN sýnir í Hveragerði laugardaginn 15. mars kl. 3, í sal grunnskólans, og í Hvoli, Hvolsvelli, sunnu- daginn 16. mars kl. 3. Sýnd verða leikritin „Bibbi-di-babbi- di-bú“ og „Gaman er á gæsló“. Venus/Mars í Valaskjálf SÝNING á Venus/Mars eftir Eddu Björgvinsdóttur sem byggður er á bókinni Karlar eru frá Mars - konur eru frá Venus verður á Egilsstöðum sem hádegisleikhús í Vala- skjálf laugardaginn 15. mars. ANNA Júlíana Sveinsdóttir mezzósópran og Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleikari halda tónleika í Kirkjuhvoli í Garðabæ laugardaginn 15. mars kl. 17. A efnisskrá eru ítölsk sönglög frá fyrri hluta 17. aldar, verk eftir Robert Schumann, Richard Strauss og Sigvalda Kaldalóns og frum- flutt verður verkið Fjögur Andalúsiuljóð eftir Jónas Tóm- asson. Anna Júlíana Sveinsdóttir sagði í samtali við Morgunblað- ið, að hún hefði kynnzt Anda- lúsíouljóðunum i þýðingu Daní- els Á. Daníelssonar og hrifizt af þeim. „Þetta eru svo falleg ljóð,“ sagði hún. „Ég fann strax að þau kölluðu á að vera sungin. Svo kom hann Jónas Tómas- son á tónleika hjá okkur í SÝNING á verkum Sæmundar Valdimarssonar verður opnuð í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, laugardaginn 15. mars kl. 14. Á sýningunni verða fimmtíu högg- myndir unnar í rekavið. Um 1970 fór hann að setja sam- an myndir úr steinum og rekaviði. Þessar myndir voru fyrst sýndar í Gallerí SÚM árið 1974 á sýningu á alþýðulist. Um það leyti hóf hann að vinna stærri skúlptúra úr rekaviði. Fyrstu einkasýningu sína hélt Sæmundur árið 1985, en sýning hans í Hafnarborg nú er sú þrettánda, þar af var ein í Osló í október 1989. Sigrún Harðar í Sverrissal Sama dag og á sama tíma verð- ur opnuð í Sverrissal Hafnarborg- ar sýning á verkum Sigrúnar Harðardóttur. Sýning þessi er unnin út frá þema um hvemig „hin músíkalska hlið hversins er dregin fram í rythmisku innsetn- ingsverki, en hughrifum, formum SÉRSTÆÐ sýning verður opnuð í anddyri Norræna hússins. Sýningin ber heitið Tákn dagrenningar og er um Ólaf helga og hlutverk hans og er hún gerð í tilefni af 1000 ára afmælishátíð Þrándheims. Höf- undur sýningarinnar er arkitektinn, pýramídafræðingurinn og rithöf- undurinn Bodvar Schjelderup. Hann heldur fýrirlestur á norsku við opnun sýningarinnar og nefnist fyrirlesturinn: Reisen inn mot midten og det evige sprá- ket. í kynningu segir: „Sýningin er sjónræn framsetning á þeim tákn- um og fyrirboðum sem sýna mikil- vægi norska þjóðardýrðlingsins Ólafs helga lífs sem liðins. Tákn- Stykkishólmi í fyrra og ég sagði honum frá þessum ljóð- um og hversu mjög mig lang- aði til að syngja þau. Hann var ekkert að tvínóna við hlutina og nokkrum dögum seinna færði hann mér lög við fjögur þessara ljóða. Og nú er komið að okkur að flytja þau.“ Andalúsíuljóð arabískra ljóðskálda á Suður - Spáni voru ort á tíundu, elleftu og tólftu öld og sagði Anna Júl- íana að þessi skáld hefðu ver- ið forverar trúbardoranna. Eftir Schumann flytja þær Anna Júlíana og Sólveig Anna ljóðaflokkinn við Ijóð Maríu Stuart Skotadrottningar, en ljóðin orti hún er hún beið dauða síns fangi frænsku sinnar, Elísabetar Englands- drottningar og sagði Anna Júlíana þau tjá örlög hennar, og litum gerð skil í olíumálverk- inu,“ segir í kynningu. Sigrún nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1978-1982 og síðan við Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam í Hollandi 1982-1986. Sigrún hef- ur sýnt og tekið þátt í sýningum bæði hérlendis og erlendis, má þar helst nefna þátttöku í alþjóðlegri hátíð kvikmynda- og myndbands- listakvenna í Montreal, Kanada, 1990, og samsýningu í borgar- listasafni Amsterdam 1983. Sig- rún sýndi videoinnsetningsverk í Öskjuhlíð árið 1986, en það verk var síðan sýnt í Ríkissjónvarpinu í janúar 1987. Síðast sýndi Sigrún hér á landi árið 1988 í listasalnum Nýhöfn. Frá 1988 hefur Sigrún málið er t.d. mjög greinilegt í stóra pýramídanum (Giza) og sýnir að tölur, mál, rúmfræði og táknmynd- ir eru mikilvæg verkfæri við miðlun upplýsinga um tilgang lífsins og markmið alheimsins. Sýningin var fyrst til sýnis á Ólafshátíð í Þránd- heimi 1995. Sýningin í Norræna húsinu verður opin daglega kl. 9-19, nema sunnudaga 12-19 og stendur hún til 9. aprfl.“ Bodvar Schjelderup er fæddur 1932 á Eiði í Norðurmæri. Hann hlaut menntun sína í arkitektúr við Tækniháskólann í Þrándheimi. Bodvar hefur starfað sem arkitekt í fjóra áratugi og kennt við tækniháskólann í Þrándheimi í rúma tvo áratugi. Hann hefur lagt angist og bænir. ítölsku söng- lögin er frá fyrri áratugum 17ndu aldar og eru í útsetn- ingu Norðmannsins Arne Dör- umsgaard. Anna Júlíana Sveinsdóttir hefur oft komið fram á lóða- tónleikum hérlendis og erlend- is og sungið við Ríkisóperuna í Aachen í Þýskalandi og í óperuuppfærslum hér heima. búið og starfað í Montreal í Kanada en frá janúarbyijun í ár hefur hún verið gestur í gistivinnu- stofunni í Hafnarborg og síðastlið- ið vor dvaldi hún í þijá mánuði í gestavinnustofu Hvergerðinga. Smámyndir Elíasar B. Halldórssonar SÝNING á smámyndum Elíasar B. Halldórssonar verður opnuð sama dag í kaffístofu Hafnarborg- ar. Elías er fæddur á Borgarfirði eystri 1930. Hann hóf nám við Handíða- og myndlistaskólann 1954 og naut m.a. leiðsagnar Sig- urðar Sigurðssonar listmálara. Eftir að hafa lokið námi hér heima fór hann utan til frekara listnáms, stund á fjölmörg önnur fræði m.a. pýramídafræði, táknfræði, korta- og tölfræði. Segja má að rann- sóknir hans eigi margt sameigin- legt með kenningum Einars heitins Pálssonar. Bodvar Schjelderup hefur skrifað nokkrar bækur um þessi hugðarefni sín. Nýjasta bók hans Loggbok for en helgen kemur út í maí í ár, og er þar fjallað um nýjar hugmyndir varðandi Ólaf helga og hlutverk hans. Bodvar Schjelderup heldur ann- an fyrirlestur á ensku í Norræna húsinu mánudaginn 17. mars kl. 20. Nefnist fyrirlesturinn: „Three Keys to The Great Pyramid." Aðgangur er ókeypis. Hún starfar við tónlistar- kennslu í Reykjavík og Kópa- vogi. Sólveig Anna Jónsdóttir nam píanóleik á Isafirði, Akureyri, Reykjavík og Texas í Banda- ríkjunum. Hún hefur starfað við tónlistarkennslu og píanó- leik og m.a. leikið með Sinfó- níuhljómsveit Islands, Kamm- ersveit Reykjavíkur. fyrst til Stuttgart í Þýskalandi og síðan til Danmerkur, þar sem hann nam við listaakademíuna í Kaup- mannahöfn undir leiðsögn Hjort Nielsen og fleirri. Elías hélt fyrstu einkasýningu sína í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1960 og síðan hefur hann haldið fjölda sýninga. Elías hefur áður sýnt verk sín í Hafnarborg og árið 1993 færði hann safni Hafnar- borgar veglega listaverkagjöf, en þar var um að ræða eintak allra þeirra grafíkverka sem hann hefur unnið. Elías hefur enn bætt við það safn síðar. Á sýningunni í Hafnarborg að þessu sinni eru smámyndir, bæði afstraktverk og landslagsmyndir og auk þess ein stór olíumynd þar sem viðfangefnið er Njarvíkur- skriðurnar, en Elías fæddist og ólst upp á bænum Snotrunesi, sem er næsti bær við þann fræga stað. Sýningamr standa til 7. apríl og eru opnar virka daga frá kl. 9-18 en 12-18 um helgar. Lokað verður á föstudaginn langa og páskadag. Heklumyndir í Galleríi Smíðar og skart LISTAMAÐUR mánaðarins í Galleríi Smíðar og skart, Skólavörðustíg 16a, er Hekla Björk Guðmundsdóttir. Hekla lauk námi frá fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1994 og lagði einn- ig stund á framhaldsnám í Hochschule fúr bildende kunst í Hamborg í Þýskalandi. Verkin sem eru unnin með olíu á striga árið 1997, túlka á léttan og einfaldan hátt land- ið og sveitina með sauðkindina í aðalhlutverki. Kynningin stendur til 18. mars og er opin á verslunartíma. Sæmundur Sigpnán Þrjár sýningar í Hafnarborg Elías Tákn dagrenningar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.