Morgunblaðið - 14.03.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 43
i
]
I
I
I
1
!
I
]
I
]
J
I
j
1
(
4
i
(
(
i
<
(
Efasemdir á Al-
þingi um meng’-
unarvarnir
NOKKRIR þingmenn stjórnar-
andstöðunnar gagnrýndu Finn
Ingólfsson iðnaðaráðherra á
Alþingi í gær vegna samninga
ríkisins við Elkem um meiji-
hlutaeign fyrirtækisins á Is-
lenska járnblendifélaginu.
Fram fór utandagskrárumræða
þegar ráðherra kynnti samn-
inginn og tóku allmargir þing-
menn til máls að ræðu hans
lokinni.
Iðnaðarráðherra rakti helstu
atriði samningsins og taldi ekki
síst mikilvægt að framtíð verk-
smiðjunnar væri nú tryggð svo
og samkeppnisstaða hennar,
þörf væri fleiri starfsmanna og
atvinnuöryggi þeirra væri
betra. Einnig kæmi erlent
áhættufé sem nýtast myndi í
rannsókna- og þróunarvinnu í
fyrirtækinu.
Sighvatur Björgvinsson sagði
kosti samningsins að stækkunin
væri tryggð og fleiri störf. Deila
mætti hins vegar um verðið þótt
það væri innan mats sem feng-
ist hefði, galli væri að erlendur
aðili færi með meirihlutavald og
Elkem væri þekkt fyrir deilur
við starfsmenn sína í öllum verk-
smiðjunum og reynsla íslend-
inga væri sú að þar færi harður
aðili í samskiptum.
Litlar upplýsingar lagðar
fyrir þingheim
Svavar Gestsson sagði erfitt
að ræða málið þar sem litlar
upplýsingar hefðu verið lagðar
fyrir þingheim, starfsleyfi lægi
ekki fyrir, ekki væri ljóst hvern-
ig farið yrði með mengunarmál-
efni en ljóst væri að miðað við
fjögurra milljarða framlag ríkis-
ins í Járnblendifélagið væri
eignarhlutur þess upp á 1,3
milljarða lítils metinn.
Hver verður
hagnaðurinn?
Kristín Halldórsdóttir spurði
hver yrði hagnaðurinn af þess-
um samningi þegar upp yrði
staðið, hvert væri orkuverðið og
hvernig færi með mengunarmál
sem hefðu verið í ólestri hjá
fyrirtækinu. Sagði hún ljóst að
hér væri ríkisstjórn á villigötum
í áherslum sínum í atvinnumál-
um. Sturla Böðvarsson, Magnús
Stefánsson og Stefán Guð-
mundsson fögnuðu samningnum
og Ágúst Einarsson sagði kosti
hans fleiri en gallana.
Hver hefur valdið og hver
ræður ferðinni? spurði Hjörleif-
ur Guttormsson og sagði iðn-
aðarráðherra hafa afhent er-
lendu fyrirtæki meirihlutann í
Járnblendifélaginu. Sagði hann
rétt að fara yfir sögu Elkem
og spyrja hverjar yrðu varnirn-
ar. Kvað hann stefna í síaukna
losun hættulegra efna án
hreinsunar og spurði hvernig
samningar stæðu um þessi stór-
mál? Sagði hann ísland vera
að bruna fram úr skuldbinding-
um sínum og að í það stefndi
í lok ársins að lögfesta yrði
ákvæði til að draga úr losún
efna. Hvaða atvinnuvegir ættu
að taka það á sig, ferðaþjónust-
an eða fiskveiðar?
FRÉTTIR
Fyrrverandi lögfræðingur hjá Húsnæðisstofnun dæmdur
1 árs fangelsi og
6,5 millióna bætur
FYRRVERANDI lögfræðingur hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins var í
gær í Héraðsdómi Reykjavíkur
dæmdur í eins árs fangelsi fyrir
fjárdrátt og umboðssvik í opinberu
starfi og skjalafals. Þá var hann
dæmdur til að greiða Húsnæðis-
stofnun rúmlega 6,5 milljónir
króna í bætur, auk vaxta.
Manninum var gefið að sök að
hafa dregið sér heimildarlaust og
fénýtt greiðslur, sem hann tók
við en Húsnæðisstofnun báru,
samtals 3,5 milljónir í 13 greiðsl-
um. Hann gaf þá skýringu, að
hann hefði átt rétt á þessum
greiðslum fyrir almenn lögfræði-
störf í þágu þeirra sem greiddu,
í innheimtuþóknun samkvæmt
gjaldskrá lögmanna og fyrir inn-
heimtu sparifjár.
Veitti sér veðheimild
Þá var maðurinn ákærður fyrir
að hafa gefið út veðleyfi fyrir hönd
Húsnæðisstofnunar vegna láns
með veði í eigin íbúð. Þar með
hleypti hann þriggja milljóna
króna láni fram fyrir fasteignaveð-
bréf Húsnæðisstofnunar, sem
leiddi til þess að rúmlega 4 milljón
króna kröfur hennar fengust ekki
greiddar við nauðungarsölu. Lög-
fræðingurinn kvaðst hins vegar
hafa haft fulla heimild til þessa
frá yfirmönnum sínum. Ekki væri
rétt að bannað væri að veita veð-
leyfi af þessu tagi og væru dæmi
um slíkt, en Húsnæðisstofnun
hefði neitað veijanda sínum um
að leggja þau fram til að færa
sönnur á mál sitt.
Hefur verið at-
vinnulaus síðan
honum var sagt
upp störfum
Þriðji liður ákærunnar laut að
sölu á fölsuðum 160 þúsund króna
víxli í Landsbankanum. Maðurinn
falsaði nafn móður sinnar sem
greiðanda og samþykkjanda.
Hann játaði þetta brot. Móðir hans
dró kæru vegna þessa til baka,
en ekki var fallið frá saksókn
vegna brotsins.
Enginn samningur
umþóknun
í dóminum kemur fram varð-
andi fjárdráttarákæru, að fullyrð-
ingum mannsins um að gerður
hafi verið samningur um sérstaka
innheimtuþóknun fyrir kröfulýs-
ingar í uppboðsandvirði hafi verið
hafnað af öllum vitnum sem borið
hafi um þetta atriði. Því væri
ósannað, að slíkur samningur
hefði verið gerður og maðurinn
gæti ekki réttlætt hluta af fjár-
drætti með vísan til þess. Inn-
heimtukostnaður vegna skyldu.-
sparnaðar hefði farið um ákveð-
inn reikning og skýringar manns-
ins á fjártökum vegna skyldu-
sparnaðar væru ekki marktækar.
Loks sagði að fullyrðingar hans
um greiðslur fyrir almenn lög-
fræðistörf fengju í engu tilviki
stoð í framburðum greiðendanna.
Enginn þeirra kannaðist við slík
störf hans, heldur nefndu greið-
endurnir oftast að umrædd
greiðsla hefði átt að fara til lækk-
unar á vanskilum við Húsnæðis-
stofnun.
Dómarinn kemst einnig að þeirri
niðurstöðu að lögmanninum hafi
verið óheimilt að veita sjálfum sér
veðleyfi, sem ýtti áhvílandi lánum
Húsnæðisstofnunar á 2. veðrétt.
Þrátt fyrir að slíkt hefði verið
heimilt, sem það var ekki, þá hefði
hann sem opinber starfsmaður
gefið sjálfum sér leyfi, sem væri
mjög óeðlilegt.
Missir atvinnu
og eigna
Dómarinn sagði brot mannsins
stórfelld og framin í opinberu
starfi. Refsing hans væri því hæfi-
leg 1 árs fangelsi. Að auki er hon-
um gert að bæta Húsnæðisstofnun
skaðann, með greiðslu rúmlega
6,5 milljóna króna, auk vaxta frá
1992.
Ekki voru því tekin til greina
mótmæli mannsins, sem kvaðst
hafa verið atvinnulaus frá því að
honum var sagt upp hjá Húsnæðis-
stofnun fyrir þremur árum, hafa
misst allar eigur sínar og eiga
réttindamissi yfír höfði sér. Til
þess að hafa lögmannsréttindi
þurfí að kaupa starfsábyrgðar-
tryggingu, en eftir að málið hafi
verið kært til RLR séu trygginga-
félög landsins ekki mjög áhuga-
söm um að gera samning við sig
um slíka tryggingu. Loks lægi svo
fyrir beiðni um að bú hans yrði
tekið til gjaldþrotaskipta.
A Q A U G L V S 1 1 1 IM G A
UPPBOQ
FUNDIR/ MAIMiMFAGIMAQUP
SMAAUGLYSINGAR
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 18. mars 1997 kl. 10.00 á eftirfarandi
eignum:
Bakarísstígur 2 (brauðgerðarhús), Eyrarbakka, þingl. eig. Kristinn
Harðarson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Eyravegur 22, 1. haeð, Selfossi, þingl. eig. Arnar Ö. Christensen, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Hveramörk 8, Hveragerði, þingl. eig. Kristján S. Wiium, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins, Ferðamálask. íslands, Hveragerðis-
bær, Landsbanki Islands, Selfossi og Vátryggingafélag Islands hf.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
13. mars 1997.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
fimmtudaginn 20. mars 1997 kl. 14.00.
Jörðin Þjórsárholt, Gnúpverjahreppi (ehl. H. Óskd. og Á. (sl.), þingl.
eig. Helga Óskarsdóttir og Árni Isleifsson, gerðarbeiðendur Bilfoss
ehf., Búnaðarbanki íslands, Selfossi, Kaupfélag Árnesinga og Lands-
banki íslands, Selfossi.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
13. mars 1997.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Ingólfshvoli, Ölfushreppi,
miðvikudaginn 19. mars 1997 kl. 14.00:
4 hross á ýmsum aldri.
Ávisanir ekki teknar gildar nema með samþykki uppboðshaldara
eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
13. mars 1997.
Kynningardagur
Stýrimannaskólans í Reykjavík
laugardaginn 15. mars 1997.
Siglingar og sjósókn eru nauðsyn.
Skipstjóranám er hagnýtt nám.
Tæki skólans eru til sýnis gestum í umsjá
nemenda.
Stofnanir siómanna oa fyrirtæki í þáqu sjávar-
útveas oq sialinaa kvnna starfsemi sína.
Kl. 13.30 - Skólinn, tækja- og skólastofur,
opnaðar gestum.
Kl. 14.00 - Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF, kemur á svæðið.
Kl. 15.30 - Keppni í splæsingum.
KOMPÁS - skólablað nemenda Stýrimanna-
skólans, 20. árgangur, kemur út.
Kaffiveitingar - kvenfélagið HRÖNN verður
með kaffiveitingar í matsal Sjómannaskólans
allan daginn frá kl. 13.30.
Lok sýningar eru áætluð kl. 17.00.
Árshátíð Stýrimannaskólans í Félagsheim-
ilinu Seltjarnarnesi að kvöldi 15. mars og hefst
kl. 19.30.
Kynningardagsnefnd
Stýrimannaskólans í Reykjavík.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12- 1783147V2 —
GÓUGLEÐI
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
SnæfeMsjökull-SnæfeHsnes
á vorjafndægrum 21 .-22.
mars. Góð sólarhringsferð.
Fjölbreyttar páskaferðir
Ferðafélagsins:
1. 26.-31. mars: Miklafell-Laki
Skaftárdalur, skíðagönguferð.
2. 26.-31. mars: Snæfell-Lóns-
öræfi, skíðagönguferð.
3. 27.-29. mars: Öræfasveit-
Skaftafell. Ummerki Skeiðarár-
hlaups.
4. 27.-31. mars: Skíðaganga un
Laugaveginn.
5. 27.-31. mars: Skiðaganga
Landmannalaugar og dvöl þar.
6. 29.-31. mars: Þórsmörk-Langi
dalur, gönguferðir.
Pantið tímanlega. Miðar á skrifst
Sími: 568 2533.
Sunnudagsferðir 16. mars
Kl. 10.30 Draugatjörn-Blá
fjöll, skíðaganga um Reykjaveg
inn.
Kl. 13.00 Heiðmörk að vetr
(afmælisferð). Farið í Ferðafé
lagsreitinn. Gönguferð og skíða
ganga. Brottför frá BSl, austan
megin og Mörkinni 6.
GPS-rötunarnámskeið 17. oc
20. mars. Skráning á skrifstofu.
Munið hressingargöngu frí
Mörkinni 6 þriðjudag 18. mar;
kl. 20.00.
Aðalfundur Ferðafélagsins
verður miðvikudagskvöldið 19
mars kl. 20.00 í félagsheimilini
Mörkinni. Venjuleg aðalfundar
störf. Sýnið félagsskirteini.