Morgunblaðið - 14.03.1997, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGÚR 14. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VÍ5INDAMENN ATHUCIÐ:
í
I
0
§
Skerpir athygli
- eykur þol.
RAUTT
EÐALGINSENG
Gjafabækurnar
viinsæii
Spámaðurinn og
Mannssonurinn
Sígild rit eftir
Kahlil Gibran í
snilldarþýðingu
Gunnars Dal
Gunnar Dal segir:
„ Vegna þess að ég tel það skyldu
rithöfunda að þýða öndvegisrit
annarra þjóða þýddi ég Spámanninn
og Mannssoninn eftir Kahlil Gibran.
Án bóka hans getur engin
menningarþjóð verið.
Ég telþessar bækur jafngóðar."
Bœkurnar fást í öllum
helstu bókaverslunum.
Muninn bókaútgáfa. Sími 898 5868.
Húsbréf | Innlausnarverð
húsbréfa í
4. flokki 1992
4. flokki 1994
2. flokki 1995
Innlausnardagur 15. mars 1997
4. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.968.590 kr.
1.000.000 kr. 1.393.718 kr.
100.000 kr. 139.372 kr.
10.000 kr. 13.937 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.866.440 kr.
1.000.000 kr. 1.173.288 kr.
100.000 kr. 117.329 kr.
10.000 kr. 11.733 kr.
2. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.624.668 kr.
1.000.000 kr. 1.124.934 kr.
1 100.000 kr. 112.493 kr.
| 10.000 kr. 11.249 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
cSa HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
|| HÚSBRÉFAOEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYICJAVÍK • SÍMI 569 6900
IDAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Fétursson
Svartur leikur
og vinnur
RÚSSAR halda sína eigin
bikarkeppni, sem háð er
með svipuðu sniði og nor-
ræna VISA-keppnin.
Þessi staða kom upp á
opnu bikarmóti sem hald-
ið var í Perm fyrr á þessu
ári.
Julia Ovchinikova
(2.235) hafði
hvítt, en stór-
meistarinn
Viktor Vara-
vin (2.505) var
með svart og
átti leik. Hann
fann hér glæsi-
lega vinnings-
leið, sem er allt
annað en aug-
ljós:
32. - Rg4!! 33.
hxg4 - Hxg4
34. He2 -
Hxg2+! 35.
Dxg2 - Hg6 (Ennþá
sterkara en 35. - Hg6)
36. Dxe2 - Hg6+ 37.
Khl - Hh6+ 38. Kg2 -
Dh4 39. Kf3 - Dg4+ og
hvítur gafst upp, því mát
í öðrum leik blasir við.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Netfang: eUy@mbl.is
Tapað/fundið
Gullhringur fannst
GULLHRINGUR með
hvítum steini fannst í
sumarbústað í landi
Úthlíðar, í byrjun febrúar.
Upplýsingar í síma
567-2184.
Kvenúr fannst
KVENÚR fannst sunnu-
daginn 9. mars fyrir utan
Gauk á Stöng, úrið er
merkt. Upplýsingar í síma
562-7466.
Dýrahald
Kisa fannst
ALGRÁ, lítil læða,
fannst í hnipri við stein
á víðavangi vestast á
Seltjamamesi í élja-
ganginum sl. sunnu-
dag. Hún var orðin
lítillega kalin á eyrun-
um og var banhungruð.
Hún var ólarlaus og
ómerkt, er gullfalleg,
mannelsk og kassavön.
Hún hefur verið flutt í
Kattholt.
Morgunblaðið/Kristinn
Frá Þorlákshöfn
Víkverji skrifar...
UNGLINGAR hittust á dansleik
í íþróttahúsi í Hafnarfirði
föstudaginn 7. mars. Það væri svo
sem ekki í frásögur færandi, nema
vegna þess hve allt fór vel fram.
Samtök félagsmiðstöðva á landinu
héldu dansleikinn og þar voru um
1.300 unglingar, sem hlustuðu á
Pál Óskar, Botnleðju og fleiri hljóm-
sveitir. Margir komu langt að, frá
Patreksfirði, Dalvík, Ólafsfirði og
svo mætti Iengi telja.
Kunningi Víkverja er lögreglu-
maður í Hafnarfírði. Hann sagði
að lögreglan hefði haft viðbúnað
fyrir utan íþróttahúsið, ekki vegna
þess að hafa þyrfti hemil á ungling-
unum 1.300, heldur til að tryggja
að enginn væri með óknytti fyrir
utan sem vörpuðu iýrð á samkom-
una. „Á ballinu var tóbaks- og
áfengisbann og enginn reyndi að
bijóta gegn því," sagði lögreglu-
maðurinn. „Þetta fór allt svo vel
fram, að það var unglingunum til
mikils sóma.“
Það er vissulega ánægjulegt að
heyra jafngóðar fréttir af ungling-
unum okkar og þær undirstrika,
að það er aðeins lítill meirihluti
þeirra sem kemur stundum óorði á
allan hópinn.
xxx
SKRIFARI dagsins átti þess kost
að fylgjast með hluta sjóprófa
vegna strands Víkartinds, leigu-
skips Eimskips. Þar sem skipstjór-
inn er þýskur var kallaður til dóm-
túlkur, til að þýða orð hans fyrir
íslenskum dómurum og lögmönn-
um. Víkveiji skilur auðvitað nauð-
syn þessa. Það hlýtur að vera mjög
mikilvægt að ekkert fari milli mála
þegar reynt er að komast til botns
í málum af þessu tagi, líkt og öðrum
málum sem koma til kasta dóm-
stóla.
Hins vegar vakti það óneitanlega
athygli, að dómtúlkinn skorti ís-
lensk orð til að lýsa því sem skip-
stjórinn sagði. Þannig hét stefni
skipsins eitthvað í líkingu við
„þarna að framan, hausinn", upp-
lýsingar um hve margir liðir af
akkeriskeðju hefðu verið látnir út
hétu að svo og svo margar keðjur
hefðu verið úti og þegar túlkurinn
var beðinn um að spyija skipstjór-
ann hvort hann hefði áður þurft að
leita vars við íslandsstrendur hváði
túlkurinn og spurði hvað það þýddi,
að leita vars.
Skrifari er ekki svo sleipur í þýsk-
unni að hann hafí áttað sig á hvort
eitthvað mikilvægt fór forgörðum í
þýðingunni. Það hlýtur hins vegar
að þurfa að gera þær kröfur til
túlka, að þeir þekki þann heim sem
þeir Qalla um, eða hafí a.m.k. sama
orðaforða tiltækan og almenningur.
Flestir vita jú að „hausinn" heitir
stefni.
xxx
VÍKVERJA hefur borist eftjr-
farandi bréf frá Runólfi Ól-
afssyni, framkvæmdastjóra Félags
íslenskra bifreiðaeigenda:
„í Morgunblaðinu 7. mars skrif-
aði Víkveiji um samskipti sín við
FÍB-Tryggingu og taldi þau hafa
gengið vel fyrir sig. Víkveiji velti
einnig upp grundvallarspurningum
varðandi stöðu FÍB á vátrygginga-
markaðnum og hvort það gæti kom-
ið niður á þjónustu félagsins við
félagsmenn sína.
Rétt er að minna á að FÍB er
ekki vátryggingafélag og engin
fjárhagsleg tengsl eru á milli FÍB
og FÍB-Tryggingar. FÍB-Trygging
er heiti á hagstæðum bílatrygging-
um sem FIB-félögum standa til
boða og er tryggingin með Lloyd’s
- einn sterkasta vátryggingamark-
að heims að bakhjarli. Islenskir
vátryggingamiðlarar sjá um FÍB-
Tryggingu sem er vátryggð hjá
Ibex Motor Policies at Lloyd’s.
Frá sjónarhóli neytenda hefur
FÍB-Trygging hjá Lloyd’s ekki að-
eins lækkað tryggingaiðgjöld heim-
ilanna heldur er þar einnig boðið
upp á tjónaskoðun hjá óháðum að-
ila, Bifreiðaskoðun hf., sem starf-
rækir skoðunarstöðvar í öllum
landshlutum. FÍB gætir hagsmuna
félagsmanna sinna komi til ágrein-
ings við tryggingafélag og gildir
þá einu hvort um er að ræða FÍB-
Tryggingu hjá Lloyd’s eða annað
vátryggingafélag.
Lögfræðingur og tæknimaður
FÍB veita félagsmönnum sérhæfða
aðstoð og ráðgjöf komi til ágrein-
ings, t.d. varðandi sakaskiptingu
eða gæði viðgerðar."