Morgunblaðið - 14.03.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 41
inni og guð blessi minninguna um
ömmu Ingibjörgu og afa Ragnar.
Ykkar dóttursonur,
Guðmundur Hafsteinsson.
Það sagði við mig kona þegar
hún frétti að ég hefði verið að missa
ömmu mína: Mikið er það nú ann-
ars sérstakt að eiga ömmu svona
lengi - og þegar ég velti þessu
fyrir mér þá er þetta svo sannar-
lega rétt. Ég er virkilega heppin
að hafa átt hana ömmu jafnlengi
og raun ber vitni. Reyndar er ég
ekki elsta barnabarnið, sú er fædd
1951, sama ár og amma fæddi
yngsta barnið sitt! Eins og nærri
má geta er því aldursflóran í barna-
hópnum sem frá ömmu og afa er
komin ansi fjölbreytt. Amma varð
ekki aðeins margföld amma og
langamma, heldur einnig langa-
langamma.
Það er margt sem kemur upp í
hugann þegar ég minnist ömmu
Imbu. T.d. þessi ótrúlega þijóska
hennar að kveinka sér aldrei. Það
var ýmislegt sem hijáði hana um
ævina en að hún kvartaði - ó nei.
Hún reyndi líka sitt besta til að
koma þessu áleiðis til næstu kyn-
slóða með því að hvetja börnin til
að vera „hörð í haus“ ef henni
fannst ekki tilefni til umkvörtunar.
Hún gat þó svo sannarlega líka
þurrkað tárin og fengið fram bros
með glettni sinni sem hún hafði í
svo ríkum mæli alveg fram undir
það síðasta.
Amma var með ótrúlega græna
putta. Það lifðu bókstaflega öll blóm
hjá henni í mikilli grósku til hárrar
elli. Meira að segja gat hún haft
afskorin blóm standandi miklu leng-
ur en nokkur annar. Leyndarmálið?
Jú, að tala við þau. Nostra við þau.
Ef ég sagði henni frá því að stofu-
blóm hefðu dáið hjá mér var svarið:
Þú ert bara ekki nógu góð við þau.
Þú átt að tala meira við þau!
Amma gat verið óttaleg pjattrófa
hvað útlitið varðaði. Reyndar á ynd-
islega krúttlegan hátt. Hún fór helst
ekki út úr húsi nema hafa sig til og
á hælaháum skóm. Hún bar sig líka
svo flott og var svo ungleg í fasi
að yfirleitt var hún talin miklu yngri
en árin sögðu til um. Reyndar var
hún ekki mikið fyrir að „klína“
framan í sig „meiki og svoleiðis"
og sagðist ekkert skilja í okkur
ungu konunum að vera að þessu.
Hún amma þurfti þess heldur ekki
með, hún hafði svo slétta og fallega
húð að hún bókstaflega geislaði.
Pönnukökurnar hennar ömmu
eru frægar innan fjölskyldunnar.
Ég á ótal minningar úr eldhúsinu
í Safamýrinni þar sem amma stend-
ur við eldavélina og bakar pönnu-
kökur sem hverfa jafnharðan ofan
í nærstadda. Hún sagði líka stund-
um ef ég leit óvænt til hennar:
Gúnna mín, láttu mig svo vita næst
þegar þú kemur, svo ég geti verið
búin að hræra í pönnsur. Henni
ömmu fannst alveg ótækt ef gestir
vildu ekki þiggja eitthvað hjá henni.
Það vantaði líka ekki að borðin
svignuðu oftast undan kræsingun-
um sem boðið var uppá hjá þeim
hjónum í Safamýrinni.
Amma missti afa Ragnar fyrir 6
árum. Það var mikil breyting fyrir
hana eins og nærri má geta eftir
meira en 60 ára sambúð. Hún bjó
ein áfram í Safamýrinni alveg þar
til fyrir tæpu ári að hún lagðist inn
á Borgarspítalann vegna veikinda.
Síðar fluttist hún á Landakot. Allan
tímann sem hún dvaldi þar komu
börn hennar og tengdabörn til
hennar á hveijum einasta degi! Ég
held ég megi fyrir hönd okkar hinna
í fjölskyldunni færa þeim hér með
alúðarþakkir fyrir alla umhyggjuna
og ástúðina sem þau veittu ættmóð-
ur okkar undir lok ævikvöldsins.
Eins litum við hinir afleggjararnir
inn til hennar alltaf annað veifið
og mikið var hún ætíð glöð að sjá
mann. Sérstaklega hafði hún gam-
an af því þegar ungviðið var með
í för. Þá kom gamla blikið í augun
og bros færðist yfir. Nú verða heim-
sóknirnar ekki fleiri. Við höfum
kvatt ömmu hinstu kveðju. Hafí hún
þökk fyrir allt og allt.
Guðmunda Jónsdóttir.
BJÖRG
HARALDSDÓTTIR
+ Björg Haralds-
dóttir fæddist á
Austurgörðum í
Kelduhverfi 24.
september 1906.
Hún lést á Dvalar-
heimilinu Hlíð á
Akureyri hinn 5.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Harald-
ur Júlíus Ásmunds-
son og Sigríður
Sigfúsdóttir.
Hinn 28. júní 1932
giftist Björg Karii
Jónssyni frá Mýri í
Bárðardal, f. 7. júní
1901, d. 1979. Foreldrar hans
voru hjónin Jón Karlsson og
Aðalbjörg Jónsdóttir. í rúmlega
30 ár bjuggu þau í Mýri og fluttu
síðan til Akureyrar árið 1963.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast ömmu minnar. Það var eig-
inlega ekki fyrr en ég varð fullorðin
sem ég kynntist henni náið. Þannig
áttum við saman yndislegar stundir
nú mörg undanfarin ár, bæði hjá
henni á Akureyri, en ekki síður hér
hjá mér, þegar hún kom í heimsókn
og var þá alltaf nokkra daga í senn.
Þannig gafst okkur tækifæri til að
kynnast enn nánar og eiginmanni
mínum að kynnast henni líka, en þau
gátu setið löngum stundum saman
og spjallað um lífið og tilveruna, en
ekki síður um liðna tíð hér áður fyrr.
Synir mínir fengu einnig tækifæri
Börn Bjargar og
Karls eru: Sigríður,
f. 4. nóv. 1933, hún
býr á Akureyri; Jón
Karl, f. 11. maí 1937,
kvæntur Hólmfríði
Friðriksdóttur, þau
búa á Sauðárkróki
og eiga þijú börn og
sex barnabörn; Hild-
ur Svava, f. 29. ágúst
1942, hún býr á Ak-
ureyri og á fimm
börn og fimm barna-
börn; Aðalbjörg, f.
3. okt. 1943, gift
Bjargmundi Ingólfs-
syni, þau búa í
Garðabæ og eiga þijú börn og
eitt barnabam.
Útför Bjargar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
til að kynnast langömmu sinni, en
það tel ég vera forréttindi fyrir börn
í dag að eiga langömmur og langafa.
Þegar hún varð níræð sl. haust,
hittist stórfjölskyldan með henni og
áttum við saman góðan dag. Það
var henni mikið hjartans mál að svo
yrði og er gaman að eiga slíka minn-
ingu nú.
Að lokum vil ég svo þakka þér
fyrir þessar stundir allár og ekki
síður fyrir síðasta augnablikið sem
við áttum saman fyrir örfáum dög-
um. Ég kveð þig með virðingu og
þökk, elsku amma.
Björg.
KRISTIN SIGUR-
BJÖRNSDÓTTIR
+ Kristín (Ninna) Sigurbjörns-
dóttir Nielsen, listakona i
Kaupmannahöfn, fæddist i
Reykjavík 28. september 1909.
Hún lést í Kaupmannahöfn 20.
febrúar síðastliðinn. Útför
hennar var gerð frá Bronshoj-
kirke 26. febrúar.
Ég kynntist Ninnu árið 1929 þeg-
ar ég sem ungur maður starfaði á
íslandi.
Við urðum sammála um að ganga
saman lífsins veg. Það gerðum við
næstu 68 árin og saman eignuðumst
við ríkulegt líf.
Ninna talaði góða dönsku og við-
hélt sínu fagra íslenska móðurmáli.
Við eigum fjóra góða syni sem
hver um sig á sína góðu fjölskyldu.
Náið samband hefur ávallt verið
milli minnar dönsku fjölskyldu og
hinnar stóru íslensku fjölskyldu
Ninnu. Við höfum átt marga góða
vini í báðum löndum.
Ég þakka ykkur, ykkur öllum.
Ég veit að þið með mér munuð varð-
veita minninguna um Ninnu mína.
Holger Nielsen.
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
SVEINS ÞORSTEINSSONAR.
Unnur Guðmundsdóttir,
Reynir Sveinsson, Anna Kristín Jónsdóttir,
Þórólfur Sveinsson, Sigríður Inga Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og
bróður,
SIGURGEIRS Ó. SIGMUNDSSONAR
kaupmanns,
Grund, Flúðum.
Sérstakar þakkir til Karlakórs Selfoss og
sr. Eiríks Jóhannssonar í Hruna.
Sólveig Ólafsdóttir,
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Magnús Gestsson,
Ólafur I. Sigurgeirsson, Sigriður Björnsdóttir,
Sigmundur G. Sigurgeirsson,
Einar Logi Sigurgeirsson, Arnheiður S. Þorvaldsdóttir,
Kárí, Sigurgeir, Kristín Eva, Sólveig Arna,
Sigurður Sigmundsson og systkini.
+
Minningarathöfn um ástkæra móður okkar, tengdamóður og ömmu,
HUGBORGU A. ÞORSTEINSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Jaðri,
áðurtil heimilis
í Sandholti 16, Ólafsvík,
fer fram frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 14. mars kl. 14.30.
Jarðsett verður frá nýju kapellunni í Fossvogi mánudaginn 17. mars
kl. 13.30.
Alda Vilhjálmsdóttir,
Þórður Viihjálmsson,
Sigríður Vilhjálmsdóttir
Þorsteinn Vilhjálmsson,
Sigrún Viihjálmsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Kleifahrauni 2A,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum laugardaginn 15. mars kl. 14.00.
Haukur Kristjánsson, Ester Friðjónsdóttir,
Jóna Sigríður Kristjánsdóttir, Birgir Sigurðsson,
Guðbjörg Kristjánsdóttir, Jóhann I. Guðmundsson,
Edda Kristjánsdóttir,
Ester Kristjánsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
KRISTJÁNS KRISTJÁNSSONAR
skipstjóra,
Höfðagrund 15,
Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Elín Frímannsdóttir,
Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir, Friðjón Edvardsson,
Davið Kristjánsson, Sigrún Edda Árnadóttir,
Kristján Kristjánsson, Ingibjörg Guðbrandsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Alúðarþakkir til allra, er sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGVELDAR LÁRU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Aðalgötu 14,
Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir færum við félögum í Hest-
eigendafélagi Stykkishólms og auðsýnda
virðingu við útför hennar. Guð blessi ykkur öll.
Erla Guðný Sigurðardóttir, Þórólfur Danfelsson,
Gyða Sigurðardóttir, Jóhannes Þórðarson,
Jóhanna Kristín Sigurðardóttir, Sigurberg Árnason,
Gerður Ruth Sigurðardóttir,
Agnes Agnarsdóttir,
Marinó Ingi Emilsson,
bamabörn og bamabarnabörn.
+
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tendamóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU JÓHANNESDÓTTUR,
Syðra-Langholti.
Jóhannes Sigmundsson, Hrafnhildur Jónsdóttir,
Kristjana Sigmundsdóttir, Brynjólfur Geir Pálsson,
Sólveig Ólafsdóttir,
Sigurður Sigmundsson,
Sverrír Sigmundsson, Anna Bjarnadóttir,
barnabórn og barnabarnabörn.