Morgunblaðið - 15.03.1997, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eiríkur Eiríksson, háseti á Dísarfelli, ætlar ótrauður aftur á sjóinn
Sjómennska er
alltaf lífshætta
Morgunblaðið/Kristinn
AFTUR á sjóinn þegar skipspláss fæst, segir Eiríkur Eiríks-
son, einn skipverjanna sem voru á Dísarfelli.
„NEI, það er ekkert því til fyrir-
stöðu að fara aftur á sjóinn -
nema ef vera skyldi skipspláss -
en það er víst í gerjun hjá útgerð-
inni,“ sagði Eiríkur Eiríksson,
einn skipverja á Dísarfelli, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Ei-
ríkur hefur verið til sjós frá árinu
1961 og byijaði að sigla hjá
Skipadeild SÍS árið 1964 og hélt
síðan áfram hjá Samskipum.
„Ég er alinn upp á Þingeyri
og þar var enginn maður með
mönnum nema hann væri á sjón-
um. Þeir sem unnu á skrifstofum
í landi voru bara hálfgerðir aum-
ingjar með flibba og það var nú
ekki alltaf borin mikil virðing
fyrir þeim. Fyrstu árin var ég á
fiskibáti sem reri frá Ólafsvík en
3. febrúar 1964 réðst ég til
Skipadeildar SÍS,“ sagði Eiríkur
en hann féllst á að spjalla við
Morgunblaðið nú eftir að sjópróf-
um er lokið. Hann fór reyndar
líka í Samvinnuskólann, sagðist
hafa ætlað að leggja fyrir sig
verslunarstörf en sjónin hafi eig-
inlega komið í veg fyrir það og
því farið á sjóinn og kunnað því
vel. Hann hefur verið bátsmaður
í aldarfjórðung, siglt um því sem
næst öll heimsins höf og var nú
síðast háseti á Dísarfellinu í
nokkra mánuði. En hvað tekur
þá við?
„Það hefur verið nóg að gera
fram að þessu, ýmis fundahöld
og slíkt og við erum á launum í
mánuð meðan verið er að athuga
málið svo það er nú nógur tími,“
segir Eíríkur en hann býr einn
og segist því ekki þurfa að æsa
sig neitt í vinnu í hvelli. Því má
skjóta hér inn að Ólafur forstjóri
Ólafsson tjáði Morgunblaðinu að
stefnt væri að því að ráða alla
skipshöfn Dísarfells á skip sem
fyrirtækið fengi á næstu vikum.
Aftur að Eiríki og nú er hann
spurður hvort mikið hafi breyst
á farskipunum þessa rúmu þijá
áratugi sem hann hefur verið í
siglingum?
„Gámarnir voru bylting.
Stoppin í landi styttust en oft
voru þau tveir til Ijórir dagar og
jafnvel vika. Glansinn er nú eigin-
lega farinn af þessu því menn
geta ekki lengur skoðað sig um
í erlendum borgum, skemmt sér
eða látið sér líða vel! Þetta er
orðið eins og Grandi-Vogar,
nokkrir klukkutímar í höfn, losað
og lestað og haldið áfram um
leið. Enda er nú svo komið að
miklu færri sækja í stýrimanna-
skólann og stöður fyrir yfirmenn
eru líka orðnar fáar svo menn
verða bara að sækja í annað.“
Trúði ekki að skipið
færi niður
- Hvaða áhrif hefur svona
reynsla á þig?
„Ég veit í sjálfu sér ekki hvort
hún breytir miklu, ég finn það
ekki. Sjómennska er alltaf lífs-
háski, við erum alltaf í hættu en
auðvitað fór þetta heldur lengra
nú en maður er sáttur við. En
það er samt svo einkennilegt að
maður trúði því eiginlega ekki
að skipið gæti farið niður. Þetta
eru stór og sterkleg skip, dælur
og alls konar búnaður eru fyrir
hendi til að laga hlutina ef eitt-
hvað fer úrskeiðis en svo stönd-
um við allt í einu þarna á lunning-
unni í flotbúningunum og sjáum
gámana fara í sjóinn. Gúmbjörg-
unarbáturinn er farinn, bak-
borðsbjörgunarbáturinn er brot-
inn og stjórnborðsbáturinn á
hvolfi. Við vissum að Dettifoss
var einhvers staðar í grennd en
ekki hvort hann gæti gert nokkuð
en þyrlan á leiðinni svo það var
ekki um annað að ræða en fara
í sjóinn.“
Eiríkur sagði að kennt væri í
Slysavarnaskólanum að menn
reyndu að læsa sig saman þegar
í sjóinn væri komið: „Með því
styrkja menn hver annan en
menn tíndust inn í hópinn smám
saman þótt ekki næðu allir þang-
að. En það sem menn gera sér
ekki grein fyrir er hversu erfitt
getur verið að komast af skipinu,
að koma sér um skipið í miklum
halla getur verið nánast ógjörn-
ingur.“
Eitthvað var að gerast
Eiríkur segir að mikið eftirlit
sé jafnan með farmi á siglingum,
farið sé um lestar og þilfar tvisv-
ar á sólarhring og frystigámar
athugaðir, kannað hvort nokkuð
hafí losnað og vélaverðir kanni
hvort dæla þurfi út vatni. „Skipið
var áreiðanlega farið að leka mjög
mikið. Við vorum ræstir klukkan
nímlega tvö og ég hafði þá fund-
ið að ég kýldist upp við þilið í
kojunni svo eitthvað var að ger-
ast. Við fórum því allir upp og
eftir það þekkja menn söguna,“
sagði Eiríkur Eiríksson að lokum.
Háskóli íslands
Kynning á
rannsókn-
um í raun-
vísindum og
verkfræði
HÁSKÓLI íslands mun standa
fyrir kynningu á rannsóknum í
raunvísindadeild, verkfræðideild, á
Raunvísindastofnun, Líffræði-
stofnun og Verkfræðistofnun á
morgun, sunnudag, og af því til-
efni verður viðamikil dagskrá í
Háskólabíói og í Tæknigarði, VR
II og VR III.
Auk þess verða Endurmenntun-
arstofnun og Rannsóknaþjónusta
Háskóla íslands með sérstaka
kynningu í Tæknigarði.
Hátíðardagskrá
í Háskólabíói
Hátíðardagskrá hefst í Háskóla-
bíói kl. 13, þar sem Sveinbjörn
Björnsson, rektor HÍ, og Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands,
munu flytja ávörp. Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna mun flytja
píanókonsert eftir F. Meldelssohn
og Háskólakórinn mun syngja. Þá
mun Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra afhenda verðlaun í
stærðfræði- og eðlisfræðikeppni
framhaldsskólanema.
Almenningi gefst kostur á að
kynna sér ýmis rannsóknarverk-
efni í áðurnefndum byggingum
háskólans til kl. 17, en frá 14.30
til 16.30 munu verða fluttir fyrir-
lestrar í verkfræði í stofu V-157
í VR II en í stofu V-158 verða
fluttir fyrirlestrar í raunvísindum.
FASTEIGN ER FRAMTÍD /j SlMI 568 77 68
FASTEIGNA ii j Ymiðlun
Sudurlandsbraut 12, 108 Reykjavík, ^ll fax 568 7072 m\W Sverrir Kristjánsson JSZ lögg. fasteignasali II
Þór Þorgeirsson, sölum. Kristín Benediktsdóttir, ritari, Krisjana Lind, ritari
VESTURBÆR-SKJÓLIN Nýtt í einkasölu mjög
vandað og gott ca 212 fm einbýli, hæð og ris með
vönduðum innréttingum og gólfefnum. Innb. bílskúr. 4-5
svefnherb. Góð lokuð útiaðstaða. Upphitað plan.
Verð 18,9 m.
GRETTISGATA Vorum að fá í sölu járnvarið
einbýlishús á þessum eftirsótta og rólega stað. Húsið er
ca 100 fm og er kjallari, hæð og ris. 5-6 svefnherbergi.
Hús með sál. Skipti koma til greina. Verð 7,5 m.
OPIÐ í DAG FRÁ KL. 12:00-14:00
rrn ■j-irn rrn 1070 lárusþ.valrimarsson,FRAMKVÆMOAsuáRi
ÖUl I luU'UUL lu/U JÓHflNNÞÚRBARSON,HRL.LOGGILTURFASTEIBNASALI.
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Einbýlishús við Hrauntungu, Kóp.
Mjög gott steinhús, 141,2 fm auk geymslu m.m. Góður bílskúr 33,6
fm. Ræktuð lóð með heitum potti. Tilboð óskast.
Lækkað verð - frábær kjör
Góð sólrík 3ja herb. íb. á 2. hæð, 81,9 fm, skammt frá sundlaug vest-
bæjar. Góð geymsla I kj. Ágæt nýstandsett sameign. Nánar á skrif-
stofunni.
Lítil íbúð á góðu verði
Nokkuð endurbætt 2ja herb. íb., um 50 fm á 1. hæð við Hraunbæ.
Nýstands. sameign. Langtímalán. Tilboð óskast.
Vesturborgin - lyftuhús - hagkv. skipti
Stór og góð 4ra herb. ib. á 4. hæð. Tvennar svalir. Frábært útsýni.
Gott lán fylgir. Margskonar skipti möguleg. Nánar á skrifstofunni.
Vegna sölu að undanförnu óskast
stór og góð 4ra herb. íb. I lyftuhúsi, helst á Nesinu eða I vesturborg-
inni, með bilageymslu. Rétt eign staðgreidd.
Þjónustuíbúð fyrir aldraða, 2ja-3ja herb. Rétt eign verður borguð út.
2ja-5 herb. íbúðir, sérhæðir og einbýii óskast í borginni og nágr.
Fjöldi fjársterkra kaupenda. Margskonar eignaskipti.
• • •
Opið í dag kl. 10-14.
Verslunarhúsnæði
óskast við
Laugaveg/nágrenni.
Margt kemur til greina.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
Morgunblaðið/Kristinn
ÁHÖFN björgunarþyrlunnar og öðrum sem komu við sögu björgunaraðgerðanna var þakkað. Ben-
óný Ásgrímsson flugstjóri tekur við viðurkenningu hjá Friðbirni Pálssyni.
Hjá þeim stendur Ólafur Ólafsson forstjóri Samskipa.
Mimist þeirra sem fórust og
björgunarmönnum þakkað
AHOFN og forráðamenn Samskipa
heiðruðu í gær áhöfnina á TF-LIF,
björgunarþyrlu Landhelgisgæslunn-
ar, fyrir björgun skipshafnar Dísar-
fells síðastliðinn sunnudagsmorgun.
Jafnframt var minnst þeirra sem
fórust, Oskars Svavars Guðjónsson-
ar og Páls Garðars Andréssonar.
Auk þess var stjórn Landhelgisgæsl-
unnar færður skjöldur til minningar
um björgunina og Slysavarnaskóli
sjómanna fékk fjóra flotbúninga að
gjöf frá Samskipum.
I upphafi athafnarinnar minntist
Ólafur Ólafsson forstjóri Samskipa
skipveijanna sem fórust og sagði
þá báða hafa þjónað fyrirtækinu vel
og dyggilega. Þá las séra Pálmi
Matthíasson úr Ritningunni og flutti
minningar- og huggunarorð og séra
Ægir Sigurgeirsson flutti bæn.
í ávarpi sínu sagði Ólafur Ólafs-
son að mínúturnar hefðu liðið hægt
þegar beðið var fregna af afdrifum
skipverja Dísarfells eftir að vitað var
að skipið var sokkið og þar til TF-
LIF var komin á vettvang. Ljóst
væri að áhöfn þyrlunnar hefði unnið
þrekvirki við erfiðar aðstæður og
þakkaði hann áhöfn, starfsmönnum
í stjórnstöð og stjórnendum Land-
helgisgæslunnar. Sagði hann áhöfn
og forráðamenn skipafélagsins vilja
tjá starfsmönnum Landhelgisgæsl-
unnar sérstakar þakkir sínar með
því að afhenda starfsmannafélagi
Gæslunnar kr. 500 þúsund að gjöf.
Benóný Ásgrímsson flugstjóri tók
við gjöfínni. Sonur annars skipveijans
sem fórst, Friðbjöm Pálsson, afhenti
gjöfina og sömuleiðis afhenti hann
Hafsteini Hafsteinssyni forstjóra
Landhelgisgæslunnar skjöld til minn-
ingar um björgunina. Friðbjörn hefur
verið sjómaður á mörgum skipum
Samskipa og sigldi oft með föður
sínum. Slysavarnaskóla sjómanna var
einnig afhent gjafabréf fyrir fjórum
flotbúningum sem nota má við björg-
unaræfingar og tók Hilmar Snorra-
son skólastjóri við gjöfinni.
Samheldnin skiptir máli
Ólafur Ólafsson sagði að sam-
heldni skipshafnarinnar hefði skipt
öllu máli er þeir biðu svo lengi í sjón-
um, hún hefði brugðist rétt við sem
skipti miklu máli frammi fyrir erfið-
um aðstæðum, braki og gámum úr
skipinu.
Skipveijarnir sem fórust verða
jarðsungnir á þriðjudag og miðviku-
dag í næstu viku.