Morgunblaðið - 15.03.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.03.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997 39 Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir ANIMOSITY með alla strengi heila. GAUR sýndi miklar framfariir, en þó ekki nógar. URÐHURÐHURÐAUGA lék sér- kennilega tónlist. LEIÐTOGI Triumphant Warrior fór vel með sitt. _______________TÓNLIST____________________ Tónabær MÚSÍKTILRAUNIR Músíktilraunir, liljómsveitakeppni Tónabæjar. Tíu h\jóm- sveitir kepptu um sæti í úrslitum næstkomandi fostudag. Fram komu Andhéri, Animosity, Anus, Fungus, Triumphant Warrior, Gaur, Drákon, Lady Umbrella, Urðhurðhurðauga og Stórbruni. Annað undanúrslitakvöld, haldið 13. mars. MÚSÍKTILRAUNIR hafa jafnan speglað þá tónlist sem mestra vinsælda hefur notið hverju sinni, en tekur sinn tíma fyrir straumana að skila sér úr bílskúrunum inn í Tónabæ. Þannig hefur aukinn áhugi á danstónlist ekki enn komið að fullu fram í tilraununum eins og heyra mátti síðastliðinn fimmtudag þegar tíu sveitir kepptu um sæti í úrslitum Músíktilrauna og léku allar rokkkennda tónlist. Fyrsta sveit á svið, Andhéri, var undir sterkum áhrifum af bresku gítarpoppi og ekki ýkja frumleg, en þétt og skemmtileg í mörgu, til að mynda síðasta laginu. Söngur- inn var snöggur blettur, sérstaklega raddæfingar söngvar- ans og útúrdúrar. Næsta sveit, Animosity, lenti í miklum hremmingum, því hún fór út af sporinu eftir fyrsta lagið með slitinn gítar- streng og varð að draga sig í hlé í bili. Anus hljóp í skarð- ið með látum og sýndi að þar fóru piltar sem kunnu að rokka. Textar sveitarinnar voru þeir frumlegustu sem heyrðust þetta kvöld þó ekki hafí þeir verið innihalds- eða andríkir. Eftir að Anus hafði hrist fram úr erminni þrjú og hálft rokklag á mettíma kom Animosity aftur á svið Slitinn strengnr og lauk við prógramm sitt. Tónlist sveitarinnar er heldur gamaldags þungarokk, en yfírleitt vel flutt, sérstaklega sýndu gítarleikarar sveitarinnar að þeir kunna sitthvað fyrir sér. Animosity tróð upp með plötusnúð sem skrámaði plötur af kappi ofan í þungarokkið; sérkennileg blanda sem gekk ekki upp. Enn var rokk í boði þegar Fungus kom á svið. Þar var keyrslan prýðileg, en textar afskaplega lélegir. Sérstaklega tókst sveitinni vel upp í fyrsta laginu, en önnur voru klén. Triumphant Warrior sagðist mundu leika þungarokk en út kom þungapopp. Söngvari og gítarleikari sveitarinnar stóð sig með prýði, sérstaklega er hann efnilegur söngvari með skemmtilega baritónrödd, en mætti leggja meiri rækt við íslenskuna, þ.e. ef hann telur sig hafa eitthvað að segja. Hann sýndi líka ágæta takta á gítarinn, en dugði ekki til. Eftir hlé kom á svið hljómsveitin Gaur og sýndi mikla framför frá síðustu tilraunum í hljóðfæraleik. Ekki hafa orðið sömu framfarir í lagasmíðum, þó nokkuð hafí miðað í rétta átt. Söngurinn er og óleyst vandamál, en gekk ágætlega upp í síðasta laginu. Drákon kom úr Kefavík með mannskap með sér í sal til halds og trausts. Hún þurfti og á styrk að halda, því ýmislegt bjátaði á í flutningi. Tónlistin er rokkkyns, ekki merkileg sem slík, en sveitin átti sína spretti. Trymbillinn lagði heldur hart að sér og flýtti og hægði á víxl í fyrsta laginu, en róaðist þegar á leið. Lady Umbrella steig á svið beint úr skugga bresk/banda- rísks iðnaðarrokks, sem kannski mætti frekar kalla popp. Raddsetning var ágæt hjá sveitinni og einnig góðir sprettir í öðru lagi hennar, sérstaklega klifun í lokakafla þess. Gítarleikarinn varð fyrir því ólani að slíta streng í miðju því lagi og skipti um gítar, sem bætti hljóm sveitarinnar. Urðhurðhurðauga stakk ekki bara í stúf fyrir nafnið, því fyrsta lag hennar var sérkennilegt, ekki síst fyrir ósam- stæðan leik liðsmanna. í það lag vantaði sárlega viðbótar- gítar til að fylla í eyður. Þegar sveitin aftur á móti náði sér á strik var hamagangurinn dægilegur. Lokarokkskammtur kvöldsins var hljómsveitin Stór- bruni. í henni mættust tveir straumar; spunagítarleikari sveitarinnar framleiddi þungarokkskenndar einleiksstrófur, en aðrir hljómsveitarmeðlimir spiluðu sumarpopp. Þetta framkallaði sérkennilega stemmningu á stundum, sérstak- lega þegar hrynsveitin dró sig að mestu í hlé til að spunag- ítarinn fengi notið sín í einleiksköflum sem voru í engu samhengi við það sem á undan var komið. Fyrir vikið fékk gítarleikurinn ekki notið sín, þó fimlega væri farið með hljóðfærið. Örugg sigursveit þessa tilraunakvölds var Andhéri, en Drákon kom þar næst. Árni Matthíasson STÓRBRUNI; tvær sveitir í einni. ANUS flutti óð pizzasendilsins. BRIPS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Reykjavíkur Þriðjudaginn 11. mars var spilað- ur einskvölds tölvureiknaður Miteh- ell tvímenningur með forgefnum spilum. 24 pör spiluðu 9 umferðir með 3 spilum á milli para. Meðal- skor var 216 og efstu pör voru: NS Sævin Bjamason - Guðmundur Baldursson 254 Páll Þór Bergsson - Helgi Hermannsson 241 Eyþór Jónsson - Ómar Olgeirsson 236 AV Guðmundur M. Jónsson - Hans Óskar Isebam 243 Dúa Ólafsdóttir—Ólina Kjartansdóttir 241 Guðbrandur Guðjohnsen - Mapús Þorkelsson 240 14 pörtóku þátt í Verðlaunapott- inum og skiptist hann síðan á 2 efstu pörin sem tóku þátt í honum. Sævin Bjarnason og Guðmundur Baldursson fengu fyrstu verðlaunin, 4500 krónur. Jöfn í öðru sæti voru Dúa og Ólína annars vegar og Páll og Helgi hinsvegar. Dregið var úr spilastokk og urðu Páll og Helgi í 2. sæti og fengu 2500 krónur. Þriðjudagsspilamennska BR er á hveiju þriðjudagskvöldi, í húsnæði BSÍ, Þönglabakka 1, 3ju hæð og byijar spilamennska kl. 19.30. Spil- urum er boðið að leggja 500 kr. á par í Verðlaunapott sem síðan fer til efstu para sem tóku þátt í hon- um. Spilarar sem eru 20 ára eða yngri spila frítt á þriðjudögum. Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríksson og eru allir spilarar velkomnir. Miðvikudaginn 12. mars var spil- aður einskvölds Monrad Butler með þátttöku 28 para. Bestum árangri náðu: Baldvin Valdimarsson - Hjálmtýr Baldursson +93 ísakÖmSigurðsson-HaukurJngason +71 Guðmundur Sveinsson - Bjöm Theodórsson +37 Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason +33 Jacqui McGreal - Þorlákur Jónsson +23 Miðvikudaginn 19. mars verður spilaður einskvölds Monrad Butler og er minnt á að bestu 2 kvöldin af 3 einskvölds Butler keppnum reikn- ast til sérstakra verðlauna. Miðvikudaginn 26. mars verður ekki spilað vegna úrslita íslands- mótsins, en síðan byijar Aðaltví- menningur félagsins. Bridsfélag SÁÁ Þriðjudaginn 11. mars 1997 var spilaður eins kvölds Mitchell tví- menningur. 14 pör spiluðu 7 um- ferðir, 4 spil á milli para. Meðal- skor var 168 og lokastaðan varð eftirfarandi. NS Nicolai Þorsteinsson - Jóhann Guðnason 213 Indriði Guðmundsson - Pálmi Steinþórsson 197 Einar Pétursson - Einar Einarsson 185 AV Ágústa Jónsdóttir - Óskar Kristinsson 185 Sveinþór Eiríksson — Ólafur Oddsson 179 Sigtryggur Jónsson - Friðjón Vigfússon 177 Keppnisstjóri var að venju Matt- hías Þorvaldsson og verður haldið áfram með eins kvölds tvímennings- keppnir þar sem notuð verða forgef- in spil. Keppt er um verðlaunagripi á hveiju kvöldi og afhending verð- launa fer fram með formlegum hætti að lokinni spilamennsku. Fé- lagið vill hvetja sem flesta til að mæta, spilað er í húsnæði Úlfald- ans, Ármúla 40 og hefst spila- mennska stundvíslega klukkan 19.30. Bridsfélag Hornafjarðar Nýlokið er æsispennandi aðal- sveitakeppni Bridsfélags Homa- fjarðar. Þar sem hver yfírslagur skipti sköpum um sæti. Pjórar sveit- ir áttu möguleika á fyrsta sæti. Sparisjóður spilaði við Gunnar Pál og tapaði 8:22 og átti ekki möguleika á að vinna. Sveit Hafdís- ar átti þá möguleika með þvf að vinna stórt en sá aldrei til sólar. Slóðarnir sem voru búnir að leiða mótið máttu sætta sig við 5:25 tap á móti Blómalandi en þessi 5 vinn- ingsstig dugði Slóðunum til að vinna mótið. Hefði Blómaland feng- ið einum yfirslag meira hefðu þeir unnið 25:4 og unnið mótið. Lokastaðan: Slóðamir 83 Blómaland 82 Sparisjóður Hornaíjarðar 81 Hafdís 71 Sveit Slóðanna var skipuð Hall- dóri Tryggvasyni, Ragnari L. Bjömsssyni, Steinarr Guðmunds- syni, Reyni Gunnlaugssyni og Árna Hannessyni. Af Nesjamönnum Hreindýramót B.N. var spilað í febrúar og spilaður þriggja kvölda Howell tvímenningur. Lokastaðan: ÓlafurJónsson-HelgiHlynurÁsgrimsson 357 Gunnar P. Haildórss. - Guðbrandur Jóhannss. 351 Sigurpáll Ingibergsson - Ágúst V. Sigurðsson 350 Meðalskor var 324 stig og tóku 12 pör þátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.