Morgunblaðið - 15.03.1997, Blaðsíða 23
MATARGESTIR í úrslitakeppninni skiptust oft á diskum til að ná að bragða á sem flestum réttum.
ar ekki síður en á hvíta tjaldið og hefur
haslað sér völl með grúa tölvuleikja. Árni
Matthíasson skoðaði úrvalið.
15. MARZ 1997 23
Disney risafyrirtækið stefnir inn á tölvurn-
Morgunblaðið/Kristinn
VÍNÞJÓNAR verða að huga að ýmsu. Kristjana Sveinbjörnsdóttir á
Nausti, er lenti í þriðja sæti, vandar sig við að opna flöskur sínar og
Daði Agnarsson á Argentínu, kynnir gestum eitt vínanna er hann valdi
með matseðli galakvöldverðs á Grillinu, þar sem úrslitin fóru fram.
Það var því sniðug ákvörðun að
láta keppendur í úrslitum mat-
reiðslukeppninnar glíma við grísa-
læri til tiíbreytingar. Það heppnað-
ist í öllum tilvikum vel og í sumum
tilvikum frábærlega.
Einnig er vel til fundið að láta
keppendur elda fyrir opnum tjöld-
um þannig að gestir geti fylgst með
vinnubrögðum þeirra í eldhúsinu.
Islenskir þjónar hafa ekki síður
en matreiðslumenn stöðugt verið að
auka metnað sinn en lítið hefur þó
farið fyrir vínþjónum til þessa og
hugtakið í raun verið nær óþekkt.
Kennsla í vínfræðum og vínþjónustu
er orðinn stöðugt stærri þáttur
þjónanámsins en enginn veitinga-
staður hefur til þessa ákveðið að
leyfa einum þjóni að sérhæfa sig al-
farið í vínþjónustu.
Vínþjónar, sem kallaðir eru
sommelier á alþjóðavettvangi, eru
hins vegar starfandi á öllum bestu
veitingastöðum Evrópu, Bandaríkj-
anna og víðar. Vínþjónninn sér um
að velja vín viðkomandi veitinga-
staðar og fylgist hann vel með
markaðnum og því sem þar er að
gerast. I veitingasalnum sér hann
síðan alfarið um allt er snýr að vín-
inu með matnum. Hann afhendir
gestum vínlistann, svarar öllum
spurningum er þeir kunna að hafa,
ráðleggur með val á víni og tekur
loks niður pöntun og afgreiðir vínið
til gestsins. Þjónustan á víninu er
því algjörlega aðskilin þjónustu á
öðrum veitingum.
Það reynir því mikið á þekkingu
vínþjónsins og mikilvægt að hann
hafí jafnt góða fræðilega þekkingu
á vínum, reynslu og næmi fyrh-
samsetningu matar og víns. Að
auki verður hann að sjálfsögðu að
gjörþekkja alla rétti á seðli veit-
ingastaðarins, þannig að hann geti
fundið út réttu vínsamsetningarn-
ar. En fleira kemur til. Ekki þýðir
bara að velja bestu samsetninguna
heldur þá sem best á við viðkom-
andi tækifæri, þ.e. hverjir eru gest-
irnir (ung hjón, ferðamenn eða
kaupsýslumenn), hvert er tækifær-
ið, andrúmsloftið og hvað eru gest-
irnir reiðubúnir að borga mikið fyr-
ir vínið.
A allt þetta reyndi í vínþjóna-
keppninni, sem er liður í alþjóðlegri
keppni af þessu tagi, og stóðu kepp-
endur sig allir með prýði. Það er því
vonandi einungis spurning hvenær
einhver veitingastaður leggur metn-
að í að vera með fyrsta starfandi
vínþjónninn á Islandi.
EKKERT fyrirtæki er eins vel í
stakk búið að framleiða tölvu-
leiki fyrir böm og Disney ris-
inn, með allt sitt kvik- og teikni-
myndasafn. Það getm- því vart komið
á óvart að fyrirtækið skuli halda út á
þennan markað, sem getur gefið vel
af sér ef rétt er að málum staðið.
Disney-menn nýta sér teikni-
myndaefni í leikjavinnslu sem von-
legt er en legga ekki síður áherslu á
fræðslugildi en afþreyingu, bæði til
að geðjast foreldram, sem kaupa
leikina og svo til að auka notagildið,
því ef ekkert er til að glíma við ann-
að en hlaupa og hoppa þreytast
börnin snemma á leikjunum.
Nýlegar kvikmyndir eru áberandi
í leikjasafni Disney, eða í það minns-
ta þeim hluta þess sem Japis, um-
boðsaðili Disney-leikja, hefur flutt
inn. Þar má nefna þrjá leiki tengda
Leikfangasögu, tvo tengda ævintýr-
inu um Simba, konung ljónanna,
tveir leikir eru byggðir á sögunni um
hringjarann í Frúarkirkju, einn er til
um dalmatíuhundaflokkinn fríða og
einnig eru til leikir um indíánastúlk-
una Pocahontas og Bangsímon. Ekki
má svo gleyma leik sem nýtir Andr-
és önd sem ninjahermann.
Þessir leikir eru mjög ólíkrar
gerðar; ýmist er um að ræða svo-
nefnda Animated Storybook, sem er
ætluð börnum sem geta lesið og þá
ensku, gefið út fyrir Bandaríkja-
markað fyrst og fremst. í Animated
Storybook er helst ætlast til þess að
bömin smelli sig áfram ef svo má
segja, því á nánast hverri skjámynd
er fjölmargt við að vera sé mús við
höndina. Sitthvað er og um þrautir
og einfaldari leiki, viða myndskeið
sem ekki eru í myndunum sjálfum og
ýmisleg lestrarkennsla.
Það sem Disney-menn kalla Acti-
vity Centre er öllu leikjakenndara,
þó leikirnir séu sem forðum ná-
tengdir myndunum sem þeir byggja
á. Þannig má nefna að í leiknum sem
byggður er á Konungi ljónanna er
bráðsniðug litabók, þar sem hægt er
að lita myndir af söguhetjunum og
prenta síðan út, raðspil og ýmsar
þrautir, aukinheldur sem í leiknum
má semja tónlist á rifjafón, leika
afríska leiki og þjálfa sig í enskri
réttritun. Öllu meiri áhersla er lögð
á leikina í Leikfangasögugerðinni þó
þar sé líka hægt að lita og leika sér,
en einnig eru stærðfræðiþjálfun í
boði, leikfangagerð, þrívíddarþraut,
tónsmíðar og margt fleira. Af þess-
um leikjum tveimur er sá síðamefndi
öllu veigameiri, þó sá fyrri henti vís-
ast vel fyrir yngri böm.
Hríngjarinn ag
Tímnn ag Púmba
í þeim Disney-skammti sem hér
er gerður að umtalsefni eru eiginleg-
ir leikir þeir sem byggðir eru á sög-
unni um hringjarann í Frúarkirkju
og frumskógarævintýrum Tímons og
Púmba, en þeir félagar eru aukaper-
sónur í ævintýrinu um Konung ljón-
anna. I síðamefnda leiknum, sem
kallast einfaldlega Framskógaleikir
Tímons og Púmba, eru fimm leikir,
skotleikur, flóðhestastökk, ropleikur,
kúluspil og pödduraðleikur. Einfalt
er að komast inn í leikina og þeir
vissulega ágæt afþreying fyrir yngri
kynslóðina. Töluvert meira er lagt í
leikinn sem byggist á upsagrýlunum
þremur úr myndinni um Esmeröldu
og kroppinbakinn. Þar í eru leikimir
einnig fimm, en meiri umbúnaður og
veigameiri leikir sem gera meiri
kröfur til vélbúnaðar. Ki'öfurnar era
samt ekki meiri en svo að þeir sem
ráða að minnsta kosti yfir 33 MHz
486-tölvu eru í góðum málum, svo
fremi sem þeir séu með hljóðkort,
geisladrif og 8 MB innra minni.
Að lokum skal getið svonefndra
Video Game Action-leikja þeirra
Disney-manna sem segja frá raunum
Andrésar andar í einskonar ninja-
gervi og annar sem byggist á
þrekraun Woodys sem frelsar Buzz
vin sinn úr hremmingum illmennis í
leik sem byggist á persónum Leik-
fangasögu. Báðir eru þessir leikir
heldur klénir og blikna í samanburði
við þá sem áður eru taldir. Sérstak-
lega er leikurinn um Andrés önd
misheppnaður og gamaldags, en þeir
færu líklega báðir betur í leikjatölvu.
Svninaarhelcji í Lífslist
^ FramanHi hi icnnnn ■■WMMHBHHHHi■■Btm
Sýning á verkum frá t
Leiriðju Hafdísar I
SYNIR
MÁLVERK
LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRA KL. 11:00 - 17:00