Morgunblaðið - 15.03.1997, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997 31
Orð og athöfn
eigi samleið
FYRIR nokkrum
dögum var sýnd
merkileg heimildar-
mynd í sjónvarpinu
um millistríðsárin.
Sagt var frá tilraunum
ríkisstjórnar Roosew-
elts Bandaríkjaforseta
til þess að örva at-
vinnulífið með það að
meginmarkmiði að
skapa störf fyrir alla.
Talað var um „að gefa
upp á nýtt“: New
Deal.
í Svíþjóð hétu jafn-
aðarmenn því á þess-
um tíma að láta at-
vinnuleysi aldrei ná að
festa rætur og lýstu því yfir að
ættu þeir um þá tvo slæmu kosti
að velja, atvinnuleysið annars veg-
ar eða tímabundinn halla á ríkisbú-
skap hins vegar þá myndu þeir
láta sig hafa það að búa við tíma-
bundinn halla. Forgangsröðin
skyldi ævinlega vera sú að tryggja
öllum landsins þegnum atvinnu.
Einsog hinir
Þetta var félagsleg og pólitísk
afstaða. Þetta var krafa tímans.
Ekki aðeins í þessum tveimur ríkj-
um sem hér voru nefnd heldur
einnig víða um lönd. Og það hefur
reyndar ágerst með árunum að sú
hugsun sem er uppi á einum stað
er einnig við lýði annars staðar -
líkt og tískan flæðir yfir alla heims-
byggðina þá fara pólitískar hug-
myndir um hana alla með leiftur-
hraða og þessi tilhneiging verður
áþreifanlegri eftir því sem heimur-
inn skreppur saman með samgöng-
um, tækni og viðskiptum.
En hver skyldi vera krafa dags-
ins í dag? Nú er öldin önnur en
var fyrir fáeinum áratugum. Evr-
ópa virðist vera búin að sætta sig
við fjölda-atvinnuleysi upp á 13 til
14 prósent og jafnvel í Svíþjóð þar
sem enn ráða ríkjum menn sem
kenna sig við jöfnuð er atvinnu-
Ieysið á þessu róli. Og það sem
verra er. Það virðist hafa náð að
festa rætur án þess að það raski
næturró stjómarherranna eftir því
sem best verður séð. Hvað hefur
gerst?
Allir tala máli
markaðarins
setja fram kröfur um
að breyta launakerf-
um og innleiða mark-
aðshugsun inn í allar
stofnanir samfélags-
ins - og virðist einu
gilda hvort um er að
ræða verslun, verk-
smðiju, sjúkrahús eða
skóla.
Framleiðniaukning
á sjúkrahúsum
Allt er þetta gert
undir því yfirskini að
verið sé að hagræða
og framleiðniaukning
er hugtak sem boðber-
um þessarar stefnu er
mjög tamt. Framleiðniaukning
heitir það þegar sama verk er unn-
ið með færri höndum. Á sjúkrahús-
um á íslandi hefur þannig orðið
mikil framleiðniaukning á síðustu
árum. Sú framleiðniaukning lítur
án efa vel út í bókhaldi spítalanna.
En fyrir sjúklingana þýðir hún hins
vegar minni og lakari aðhlynningu
og fyrir starfsfólkið aukið álag.
Niðurstaða BSRB var
sú, segir Ragnhildur
Guðmundsdóttir, að
ráðast til atlögu
gegn misréttinu.
Að því ógleymdu vitanlega að at-
vinnuleysi eykst.
Nýlega var haldinn sérstakur
baráttudagur kvenna. Af því tilefni
leita þessi mál mjög á hugann. Ég
er þeirrar skoðunar að þessi stefna
sé þeirrar náttúru að sérstök
ástæða sé fyrir konur að andæfa
gegn henni og sporna við henni
fótum. Hún er mannfjandsamleg.
Og það sem er mannfjandsamlegt
er kvenfjandsamlegt.
Launamisrétti
og yfirvald
Þetta er þróun og stefna sem
bitnar hart á konum og þá ekki
síst láglaunakonum. Það hefur
sýnt sig að atvinnuleysið bitnar
Ragnhildur
Guðmundsdóttir
fyrst á þeim og sama gildir um
markaðsvæðingu launakerfisins.
Nokkrar kannanir hafa verið
gerðar um launamisrétti kynjanna.
Þær hafa allar sýnt svo ekki verð-
ur um villst að í þeim hluta launa-
kerfisins sem er utan takstanna,
þar sem geðþóttagreiðslur tíðkast,
er kynjamisréttið mest.
Innan samtaka launafólks hefur
það mikið verið rætt hvernig þess:
ari öfugþróun verði snúið við. í
BSRB varð okkar niðurstaða sú
að nú skyldi reynt að ná raunveru-
legum tökum á þessum málum og
ráðist til atlögu gegn misréttinu.
Við höfum haft uppi málflutning
um að því góðæri sem er í landinu
skuii komið til allra.
Góðærið til allra
Þetta viljum við gera með öflugri
skattheimtu í réttláttu skattakerfi
og með almennum launahækkun-
um í réttlátu launakerfi. Og þegar
við segjum að að allir eigi að fá
hlutdeild í góðærinu þá meinum
við allir, konur og karlar, hvar sem
þeir eru staddir.
Við ákváðum því að mótmæla
kröftuglega hugmyndum viðsemj-
enda okkar hjá ríki og Reykja-
víkurborg um launakerfi þar sem
kveðið er á um framleiðniauknigu
og ábataskipti en stungum upp á
því þess í stað að samningasaðilar
gerðu með sér samkomulag um
að öll launakjör og allar tilfærslur
innan launakerfisins yrðu ákvarð-
aðar á félagslegum grunni.
Hvers vegna er
jafnréttisstefnu hafnað?
Þetta hefur hvorki ríki né
Reykjavíkurborg viljað samþykkja.
Ég tel þetta hins vegar vera for-
sendu þess að við náum árangri
fyrir hönd kvennastéttanna sem
hafa verið hlunnfarnar um langt
árabil einmitt vegna þess að stór
hluti launaákvarðana byggir ekki
á félagslegum samningum heldur
duttlungum forstjóra og forstöðu-
manna. Ég hvet viðsemjendur okk-
ar til þess að endurskoða afstöðu
sína í þessu Ijósi.
Ég vek sérstaklega á þessu
máls vegna þess að mér finnst
skipta öllu máli að konur ræði
umbúðalaust um þessi mál bæði
um það sem þær eru sammála en
ekki síður um hitt þegar ágreining-
ur er uppi. Við þurfum að ræða
opinaskátt og heiðarlega um hlut-
ina og gera þá kröfu hver til ann-
arrar að orð og athafnir eigi sam-
Ieið.
Höfundur er varaformaður BSRB.
Alögur á
útivistarfólk
UNDANFARIÐ hefur verið í
gangi umræða um miklar opinber-
ar álögur á skotveiðimenn, sem
taldar eru miklu meiri en annað
útivistarfólki þarf að þola. Undir
þessa gagnrýni tek ég,
enda stunda ég skot-
veiðar í frístundum og
þekki þetta af eigin
raun. Ég stunda einnig
aðra útivist og allt
þetta hefur fært mér
mikla lífsfyllingu og
ættjarðarást. Hvergi
vil ég búa annars stað-
ar en á íslandi. Það
hlýtur að vera kapps-
mál hverrar ríkis-
stjórnar að búa þannig
að þegnum sínum, að
þeir geti notið alls
þess, sem landið hefur
uppá að bjóða og þess
gætt að mismunun
vegna efnahags sé í lágmarki.
Álögur ríkisvalds á útivistarvör-
ur hafa hér leitt til þess að hinir
efnaminni hafa færri tækifæri til
að njóta landsins og allra síst í
Álögur ríkisvaldsins á
útivistarvöru takmarka,
að mati Ólafs Sigur-
geirssonar, möguleika
hinna efnaminni til að
njóta landsins okkar.
lagt á, en það eru kr. 25,50 á lítra.
Þó er bannað að aka vélsleðum á
vegum.
Vélsleðamenn stofnuðu með sér
landssamtök 1984 til að vinna að
sameiginlegum hags-
munamálum sínum.
Margt gott hefur verið
gert, en ég tel brýnast
að betjast fýrir lækk-
un opinberra gjalda á
sleðana sjálfa og elds-
neytið, svo allur al-
menningur geti notið
landsins á nútímaleg-
an hátt. Eftir síðustu
stjórn landssambands-
ins stendur það helst
að hafa klofið vél-
sleðamenn í norðan-
menn og sunnanmenn.
Stjórn sú sem nú situr
er að byija sinn starfs-
tíma og skora ég á
hana að setja þetta mál á oddinn.
Byija má á bensínmálunum og
krefjast afnáms vegagjalds á elds-
neyti vélsleða. Auðvelt væri að
hafa á ákveðnum stöðum bensín
án vegagjalds blandað tvígengis-
olíu. Þá væri ekki hætta á að þetta
ódýrara eldsneyti væri notað á bíla.
Ég vil í lokin nefna eitt tóm-
stundagaman, sem ríkisvaldið hef-
ur ekki gert sér að féþúfu, en það
er einkaflugið. Verð flugvélar er
ca. verð fjögurra vélsleða og eru
engin aðflutningsgjöld á vélarnar,
né varahlutina og álögur ríkis á
eldsneyti nema um 5 aurum á lítra.
Ólafur
Sigurgeirsson
takt við þau tækifæri, sem tækni-
öld hefur fært okkur. Vélsleðar
hafa ásamt fjallabílum opnað land
okkar ofan byggðar fyrir þjóðinni
að vetrarlagi síðustu tvo áratugi.
Mikill fjöldi góðra íslendinga hefur
lært að elska og virða hálendið,
sem þjóðin óttaðist áður. Sumir
alþingismenn og ríkisstjórnir hafa
ekki talið þetta jákvæða þróun og
rætt hefur verið um að loka hálend-
inu og álögur á vélsleða eru meiri
en þekkist um aðra útivistarvöru.
Á hvern vélsleða sem fluttur er
til landsins er lagt 70% vörugjald
og síðan 24,5% virðisaukaskattur.
Þetta er þó ekki allt, því á vélsleð-
ana fæst ekki annað bensín, en
það sem vegagjald til ríkissjóðs er
Höfundur er lögfræðingur.
^emantaúúóið
Fermingagjafir, glæsilegt úrval
DEMANTAHÚSIÐ
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
Það hefur gerst að allflestir
stjórnmálaflokkar eru famir að
tala einum rómi máli markaðarins.
Svo mikil er lotningin gagnvart
markaðslögmálunum að við þeim
virðist ekki mega hrófla á nokkum
hátt. Til þess að laga sig að nýrri
stefnu markaðs- og peningaafl-
anna er ríkisstjórnum skipað að
skera niður velferðarþjónustu og
orð dagsins er einkavæðing. Það
var vel við hæfi að byggingar-
meistari Perlunnar, þáverandi
borgarstjóri og núverandi forsætis-
ráherra, skyldi nú á dögunum efna
til sérstakrar vakningarsamkomu
um einkavæðingu í því húsi með
starfsmönnum alþjóðlegra pen-
ingastofnana sem einum rómi dá-
sömuðu einkavæðingu og mark-
aðsbúsakp.
Samfélag til sölu
Mér finnst það hins vegar vera
umhugsunarefni og áhyggjuefni
hve þessi hugsun virðist hrífa
stjórnmálamenn sem segjast
starfa í anda félagshyggju. Þann-
ig ganga stjórnmálamenn víða um
lönd, sem í öðru hveiju orði segj-
ast hafa félagsleg viðhorf að leið-
arljósi, ekki síður en sjálfir fijáls-
hyggjumennirnir, fram í því að
gefa peningamönnum samfélags-
legar eignir og einnig þeir, félags-
hyggjumennirnir sjálfskipuðu,
MARKMIÐ ° HÁMARKSÁRANG
Nó er komið að framkvæmdinni
HUGSAÐU TIL BAKA FRÁ FRAMTÍÐINNI
PRÓFSTEINN Á MEGINMARKMIÐ ÞITT
SVONA SKALTU NOTA BÓKINA UM
SKIPULAGNINGU TIL ÁRANGURS
Skrifaðu hér fyrir ncðan 9 jákvæðar staðhæfíngar um maka þin
Strfndu á athöfn láttu eitthvað gerast hér og nú. Deildu ítóru áaecluninni þinni niðut
' mörg smá ikrtf og taktu fyrsta skrefið núna.
Richard Thalhcimcr
A undonlomum orum hef ég kynnst Brion Troty gcgnum baekui hom. niyndbond
og hffóðsneeldur. Honn tr lumælolousi i hópi lueluílu monns ó sviði sjollsjjeUmgcr.
Hmosljormmoi og þjóllunai til órongurs." . Thomas Motter Itomlivæmdorsfjóri
HAMARKS
ÁRANGUR
Brian Tracy
Langar þig að ferðast um heiminn ?
Hvað langar þig að vinna við ?
Viltu bæta samskipti þín við annað fólk ?
Hvaða árangri viltu ná í íþróttum ?
Hvað ætlar þú að gera eftir nám þitt ?
Hvað viltu í raun og veru og hvernig
ætlarðu að öðlast það.
DRAUMAR,VÆNTINGAROG OSKIRsem ekki eru
skrifaðar niður eru MARKMIÐÁN AFLS.
Ef þú vinnur ekki að þínum MARKMIÐUMþá
vinnurðu fyrir einhvern annan sem hefur MARKMIÐ.
BYRTAÐU AÐ FRAMKVÆMA.
Fæst í öllum helstu bókaverslunum. UPP1-1 síma: 898-2265 °gFAX: 501-9935