Morgunblaðið - 15.03.1997, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
GdA-tc&Om
( þ/)£> Órr/UE6/1STA
i þBTTA ER. AРɣ SfC/L
_____Hann
1-/3
\?hferf)i<) geJ± Uðinu\ £/ckj sem
þinu / dájiElmQr ?/ bazb.
Þtgftobnu*.
þá. hróp- ) LidiS bitt hlC/ýurab
u&uatíir \ NHo.mik.id aUta.
JeUarxnn^—^þér
Jí3!*# , á
Elmarsia.'
Nteiér t .
£!marsta.ru
Ferdinand
Smáfólk
4-5
IT5 A CAvALRY CHAR6E! FIVE HUNPRED
UIHAT >
ARE YOU
WATCHIN6?
H0R5EMEN 6ALL0PIN6 ACR055 THE
DE5ERT AT THE CRACK OF DAWN!
' THEV
F0R60T TO
FEEDTHE
l D06..
Hvað ertu að horfa á? Það er riddaraliðsáhlaup! Fimm Þeir gleymdu að gefa
hundruð reiðmenn á harðabrokki yfir hundinum ...
eyðimörkina í dagrenningu!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Lifandí vimiustaður
fyrir dugmikið fólk
Frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni:
í NÝBIRTRI skýrslu Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur er að
finna sérstaka kjaravísitölu.
Samkvæmt henni fá vinnustaðir
félagsmanna VR sérstakan
gæðastimpil félagsins.
Þessi kjaravísitala er þannig
útbúin að þjónustufyrirtæki með
dýra og sérhæfða starfskrafta
tróna á toppnum. Þeir vinnustað-
ir sem bjóða ungt fólk velkomið
til starfa lenda í neðstu sætum
þar sem unga fólkið, eðli málsins
samkvæmt, skiptir oftar um
vinnustað en það eldra og ráð-
settara. Bjóði fyrirtækin skóla-
fólki sumarvinnu mælir kjara-
vísitala VR það svo að fyrirtækj-
unum haldist illa á starfsfólki.
Bónus lendir í 138. sæti þessarar
kjaravísitölu VR og er þar, vel
að merkja, í góðum félagsskap
helstu samkeppnisaðila sinna.
Engu breytir þó að allir starfs-
menn Bónuss séu yfirborgaðir.
Það gildir einu þó Bónus bjóði
starfsfólki sínu mikla yfirvinnu
þannig að algengust laun starfs-
manna þess eru á bilinu 120-125
þúsund krónur á mánuði.
Bónus hefur kynnt fyrir VR
tillögu þess efnis að því verslun-
arfólki verði umbunað á launum
sem sækir nám í verslunarfræð-
um þar sem það menntar sig í
afgreiðslu- og sölustörfum.
Þannig hefur Bónus viljað stuðla
að því að ákveðin fagmennska
ryði sér til rúms í íslenskri smá-
söluverslun.
Okkur þykir ómaklegt af tals-
manni VR að gefa til kynna í
útvarpsviðtali að okkar lága
vöruverð sé að hluta til fengið
með því að brjóta á okkar frá-
bæra starfsfóiki. Bónus hefur frá
byijun lagt metnað sinn í að selja
nauðsynjavörur á lægsta verði.
Þessu fylgir að aðrar verslanir
kappkosta að lækka vöruverð
sitt. Sú skoðun er því útbreidd
að íslensk verslun hafi með starfi
sínu átt góðan þátt í að bæta hag
launafólks. Á sama hátt viljum
við áfram vera lifandi vinnustað-
ur fyrir dugmikið fólk sem er til-
búið að láta hendur standa fram
úr ermum.
F.h. Bónuss hf.
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON.
Imiflutningnr á fóstur-
vísuin af norskum kúa-
stofni er varasamur
Frá Sigurði Sigurðarsyni:
ÉG TEL nokkra smithættu geta
stafað af fyrirhuguðum innflutn-
ingi fósturvísa úr kúm frá Nor-
egi. Þá hættu er erfitt eða jafnvel
útilokað að fyrirbyggja að mínum
dómi, þótt varlega sé farið, öllum
þekktum prófum sé beitt og af-
kvæmin einangruð í fyrstu. Það
sem mér finnst varasamt er eink-
um veirusjúkdómur sem er tals-
vert útbreiddur í Noregi og við
höfum kallað „smitandi slímhúð-
arpest“ (BVD/Mucosal desease).
Veiran er af „pestivirus“-flokki.
Tjón sem hún veldur er talsvert,
bæði í nautgripum og sauðfé. Hún
sýkir kýrfóstur í móðurkviði, veld-
ur fósturláti eða vanþrifum í lif-
andi fæddum kálfum, jafnvel fæð-
ast veiklaðir kálfar eða smitberar
sem virðast heilbrigðir. Veiran
veldur svipuðum sjúkdómi í sauð-
fé, þ.e. „Bítlaveiki" (Border-dise-
ase). Smit berst milli þessara teg-
unda við samgang og snertingu.
Veiran finnst einnig í sæði smit-
aðra karldýra.
Vegna fyrri reynslu okkar af
innflutningi þykir mér skylt að
benda á þessa hættu og legg til
að hún verði tekin inn í útreikn-
inga á hagkvæmni væntanlegs
innflutnings hafi það ekki verið
gert. Við því má búast, að veiki
þessi geri usla hér á landi bæði
á nautgripabúum og sauðfjárbú-
um, ef hún berst til Islands. Hing-
að virðist hún ekki hafa borist
ennþá, til þess bendir athugun
sem gerð var í sumar á tank-
mjólk frá 153 búum á Suðurlandi
og hliðstæð athugun sem gerð var
fyrir fáum árum á 100 kúabúum.
Oll sýnin voru neikvæð og laus
við mótefni gegn þessari veiru.
Ekki er mér kunnugt um einkenni
í lömbum eða eldra fé, sem bendi
til þess að veikin hafi komið fyrir
í sauðfé hér á landi heldur.
Reynsla okkar sýnir að smitsjúk-
dómar sem berast í viðkvæma i
stofna geta farið geyst yfir og
valdið verulegu tjóni þótt þeirra
verði lítt vart í löndum þar sem
þeir hafa verið lengi. Ef áformað
er strax í byijun að útrýma ís-
lenskum kúm kann skaðinn að
verða „ásættanlegur" og það
markmið nást fyrr. Þá er eftir
að vita hvaða áhrif þessi veira
kann að hafa á íslenska fjár-
stofna berist hún til landsins og
í sauðfé hér.
SIGURÐUR SIGURÐARSON,
dýralæknir, Keldum.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.