Morgunblaðið - 15.03.1997, Side 44
44 LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-13 frá mánudegi til föstudags
Netfang: elly@mbl.is
Lítið ykkur nær
Á SAMA tíma og Slysa-
vamafélagið stendur fyrir
landssöfnun til styrktar
kaupum á björgunarskip-
um til að auka öryggi sjó-
manna við strendur lands-
ins fá tíu þúsund íslenskir
unglingar leyfi Mennta-
málaráðuneytisins og
skólastjóra sinna til að fá
fn' í einn dag til að safna
fé handa indverskum ungl-
ingum til að greiða fyrir
verknámskennslu þeim til
handa. Prófessor við Há-
skólann leggur þessu lið á
áberandi hátt. Á Indlandi
búa 800 milljónir manna
og mætti ætla að þeir betur
settu í því landi gætu séð
um_ sína.
Eg er búin að fá mig
meira en fullsadda af því
hvemig augum þjóðarinn-
ar er sífellt beint til hjálpar
fólki hinum megin á hnett-
inum. Hvað með eigin
landa? Væri mönnum ekki
hollt að líta sér nær? Hvað-
an hafa þeir helst komið
peningamir sem þjóðin
hefur bmðlað með? Úr
sjávarútveginum.
Krakkar mínir. Þið
skuldið íslenskum sjó-
mönnum það að leggja
ykkar af mörkum til að
tryggja öryggi þeirra á
sjónum. Á hveiju ári missa
böm feður sína og konur
menn sína í sjóslysum.
Finnið þið ekki til með
þeim? Við höfum fyrst og
fremst skyldur við eigin
þjóð.
Rannveig
Tryggvadóttir,
Bjarmalandi 7,108 R.
VELVAKANDA barst eft-
irfamdi klausa: „Ég er
búin að fá svo mikið nóg
af þessum skemmtiþáttum
í sjónvarpinu, aðallega
þeim sem ganga út á það
að niðurlægja fólk, sér-
staklega vil ég taka fram
að þættimir hjá Hemma
Gunn, Gísla Rúnari og Ei-
riki era slæmir með þetta.
Mér finnst að þjóðin þurfi
að fara að skoða skömm
sína, það horfa allir á og
enginn segir neitt. En ég
vil lýsa yfír ánægju minni
yfír þættinum Á elleftu
stundu þar sem rætt var
við Árna Sigfússon og Ellý
í Q4U, það er viðtalsþáttur
sem aðrir mættu taka sér
til eftirbreytni."
Maddý.
Tapað/fundið
Garfield-köttur
fannst
BLÁR Garfield-köttur
fannst á Rauðarárstíg
þriðjudaginn 4. mars. Upp-
lýsingar í síma 553 4328.
A HARÐASPRETTI.
Morgunblaðið/ Kristinn
Morgunblaðið/Haraldur Baldursson
FRÁ íslandsmóti barnaskólasveita um síðustu helgi.
Tvöfaldur
íslenskur sigur
ÍDAG
Víkveiji skrifar..
AÐ uppátæki breskrar auglýs-
ingastofu að greiða leigubíl-
stjórum í Lundúnum fé fyrir að
masa um Siemens-bílasíma við far-
þega ber því vitni hve langt menn
eru reiðubúnir að ganga til að koma
vöru sinni á framfæri.
Víkveiji dagsins sér fyrir sér að
haldi þessi þróun áfram megi búast
við að flugstjórar tali stanslaust um
eiginleika ísskápa eða framúrskar-
andi veitingastaði á áfangastað og
strætisvagnabílstjórar reki áróður
fyrir bleium á meðan farþegar eru
eins og sardínur í dós og eiga sér
engrar undankomu auðið. Það er
nefnilega galdurinn eigi að koma
áróðri á framfæri: að neytandinn
komist ekki undan á meðan upplýs-
ingunum er komið til skila.
Ókosturinn við auglýsingar í
sjónvarpi er sá að áhorfandinn get-
ur brugðið sér frá, slökkt, skipt um
stöð eða horft í aðra átt á meðan
þær líða yfir skjáinn, tilkynningar
í útvarpi má leiða hjá sér með sama
hætti og ekkert neyðir lesandann
til að grandskoða auglýsingar á síð-
um dagblaða eða tímarita.
TILRAUN, sem gerð var í
Bandaríkjunum með að skjóta
auglýsingaramma inn í bíómynd svo
hratt að vitundin næmi ekki þótt
augað sæi, er nánast orðin að þjóð-
sögu. Umræddur rammi sýndi popp
og kók og jókst poppneysla í hléi
um allan helming, en lítið bættist
við kókþorstann, enda hafði hann
verið mikill fyrir. Ekki er laust við
að með þessari aðferð sé komið
aftan að neytandanum og kemur
orðið siðleysi upp í hugann, þótt
vart nái það að gægjast upp úr
undirvitundinni.
Auglýsandinn getur tæplega náð
í neytandann og sett í spennitreyju
þannig að sú hugmynd að bera fé
á leigubílstjóra hlýtur að verð-
skulda ígiidi Nóbelsverðlauna í
samtökum auglýsingafrömuða.
Næst reyna Black og Decker senni-
lega að fá eiginkonur til að tala
máli smíðatóla þeirra við eigin-
menn í svefnrofunum og framleið-
endur fegrunarmeðala eiginmenn
til að hampa verðleikum hinna
ýmsu ilmefna, -vatna og -smyrsla
með slíkum fagurgala að eiginkon-
unum finnist sem hunangi væri
hellt í eyru þeirra. Það hugvits-
bragð gæti meira að segja kannski
bjargað þeim hjónaböndum þar
sem ekkert var orðið eftir til að
tala um.
xxx
ÞRÓTTAKAPPLEIKIR geta
reynt á taugarnar og oftar en
ekki hitnar mönnum í hamsi og
þeim hættir við að brýna raustina
þegar á móti blæs. Um þverbak
keyrði þó á leik KR og ÍA í körfu-
knattleik á Seltjarnarnesi á þriðju-
dag þegar nokkrir áhangendur
gestanna létu fúkyrðin fjúka yfir
dómara og annað kvikt í námunda
við þá. Kona ein var atkvæðamest
og hefði munnsöfnuður hennar einn
og sér komið til kasta kvikmynda-
eftirlitsins hefði hann heyrst í bíó-
mynd. Við hlið Víkverja sat faðir,
sem hafði hætt sér á völlinn með
tvo unga syni sína, og sá hann
margra ára uppeldi fara í súginn
eftir að þeir höfðu komist í návígi
við konuna tungulipru.
skák
Þetta er fimmta árið í röð sem lið
TG leggur land undir fót og keppir
við félög úti á landi. Guðmundur
Arason, fyrrverandi forseti Skák-
sambandsins, gaf farandbikar sem
unglingarnir úr Garðabæ tóku með
sér heim aftur. Þeir sigruðu 10 ‘A-
3 'h í atskákum og 9 ‘A-4 V» í hrað-
skákkeppninni, eða samtals með 20
vinningum gegn átta vinningum
heimamanna.
Skákþing Akureyrar
Skákþingi Akureyrar 1997 er lok-
ið. Keppendur vora alls 32. Átta
Jón Garðar Þröstur
Viðarsson Þórhallsson
tefldu í efsta flokki. Keppt var um
bikar sem Búnaðarbankinn á Akur-
eyri gaf. Gylfí Þórhallsson varð
skákmeistari Akureyrar 1997 og er
þetta í níunda sinn sem hann vinnur
titilinn. Röð efstu manna:
1. Gylfí Þórhallsson 6 v. af 7
2. Þór Valtýsson 5 'A v.
3. -4. Jón Björgvinsson 3'A v.
3.-4. Smári Ólafsson 3 A v.
Flokkur 13-15 ára: 1. Egill Öm Jónsson
8'A v. af 9
2. Jón Áki Jensson 6 'A v.
3. -5. Eggert Gunnarsson, Sigfús Arason
og Sverrir Amarsson 6 v.
Flokkur 10-12 ára:
1. Stefán Bergsson 6 v. af 7
2. Halldór Halldórsson 5 v.
3. Magnús Skúlason 4 v.
Flokkur 9 ára og yngri:
1. Ragnar Heiðar Sigtryggsson 4 v. af 7.
2. Siguróli Magni Sigurðsson 3 v.
3. Ámi Bjöm Gestsson 3 v.
Stúlknaflokkur:
1. Stella Christensen 6'A v. af 7
2. Lilja Sigurðardóttir 4 v.
5. Anna Kristín Þórhallsd. 3'A v.
Hraðskákmót Akureyrar:
1. Gylfí Þórhallsson 11 v. af 13.
2. Smári Ólafsson 10 v.
3. Guðmundur Daðason 9'A v.
4. Haki Jóhannesson 9 v.
5. Ari Friðfinnsson 8 v.
Skákmót öðlinga
Öðlingamótið 1997, ætlað 40 ára
og eldri, hefst þriðjudaginn 18. mars
kl. 19.30 í félagsheimili TR, Faxafeni
12. Umhugsunartíminn er ein og
hálf klukkustund á 30 leiki og síðan
hálftími til að ljúka skákinni. Önnur
umferð er tefld 1. apríl og upp frá
því vikulega á þriðjudagskvöidum þar
til mótinu lýkur þ. 6. maí.
Hraðskákmót og verðlaunaafhending
verður 13. maí. Afar róleg dagskrá,
sem hentar þeim vel sem eru önnum
kafnir, en hafa samt gaman af því
að vera með á skákmóti. Þátttökugjald
er kr. 2.000.
Ólafur Ásgrímsson, alþjóðlegur
skákdómari, er skákstjóri á mótinu,
en hann hefur fóstrað þessi
skemmtilegu mót frá upphafí. Hann
veitir nánari upplýsingar í símum
567 6698 eða 560 6226.
Margeir Pétursson
Alþjóðlegt skákmót,
3.—12. mars 1996:
ÞEIR Jón Garðar Viðarsson og
Þröstur Þórhallsson urðu jafnir og
efstir. Jón Garðar náði sínum fyrsta
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Að þessu sinni lét hann engan bilb-
ug á sér fínna á lokasprettinun og
gerði jafntefli við stórmeistarana Mik-
hail Ivanov, Rússlandi,
og Þröst Þórhallsson.
Skák þeirra Jóns Garðars
og Þrastar í síðustu um-
ferð var hrein úrslitaskák
um efsta sætið.
Árangur Jóns Garð-
ars kemur nokkuð á
óvart enda ekki á hveij-
um degi sem titillaus
skákmaður sigrar á
móti þar sem þrír stór-
meistarar eru á meðal
keppenda. Hann er 34
ára gamall starfsmaður
Búnaðarbanka íslands í
Reykjavík. Hann er
fæddur og uppalinn á
Akureyri, en það athygl-
isverðasta við skákferil Jóns Garðars
er að hann hóf ekki að tefla skák
fyrir alvöru fyrr en hann var kominn
undir tvítugt. Á þeim aldri hafa sum
undrabörnin verið byijuð að dala.
Síðan þá hefur Jón Garðar verið á
stöðugri uppleið. Hann er nú þrett-
ándi stigahæsti skákmaður landsins,
skv. alþjóðlegum stigalista FIDE.
Þröstur Þórhallsson stóð fyrir sínu
að vanda og ekki má gleyma Jóni
Viktori Gunnarssyni, 16 ára, sem
náði frábærum árangri og var hárs-
breidd frá því að ná áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli. En áfanginn
kemur vafalaust innan skamms.
Þetta er þriðja alþjóðlega skák-
mótið sem þeir Jón Garðar og Jón
Viktor tefla á í vetur og ástundunin
er greinilega að skila sér.
Lokastaðan:
1-2. Jón G. Viðarsson og og Þröstur
Þórhallsson 6‘A v. af 9 mögulegum.
3. Igors Rausis, Lettlandi 6 v. 4-6.
Jón Viktor Gunnarsson, Mikhail
Ivanov, Rússl. og Danielsen, Dan-
mörku 5A v.
7. Þorsteinn Þorsteinsson 4A v.
8-9. Bergsteinn Einarsson og Björgvin
Víglundsson 2‘A v.
10. Burden, Bandarikjunum 0 v.
Hraðskákmót Hellis
Hannes Hlífar Stefánsson varð
hraðskákmeistari Hellis 1997 á
mánudagskvöldið. Hannes sigraði
með yfírburðum, en Bragi Þorfínns-
son varð annar. Keppendur vora 32
talsins. Úrslit á mótinu urðu þessi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 13'A v.
2. Bragi Þorfinnsson 10'A v.
3. -6. Gunnar Björnsson, Andri Áss Grét-
arsson, Jón G. Friðjónsson og Sigurður
Áss Grétarsson 9 v.
7.-8. Áskell Öm Kárason og Sveinn
Kristinsson 8'A v.
9.-13. Stefán Þór Siguijónss., Davíð
Kjartanss., Bragi Halldórss., Hjörtur Þór
Daðason og Veturliði Þór Stefánsson 8 v.
14.-15. Arnaldur Loftsson og Guðjón
Heiðar Valgarðsson 7'A v.
Unglingakeppni TG og TV
Unglingalið Taflfélags Garðabæj-
ar fór nýlega til Vestmannaeyja og
tefidi þar við unglingasveit Tafl-
félags Vestmannaeyja. Keppendur
voru á aldrinum 10-17 ára.