Morgunblaðið - 15.03.1997, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYIMDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
>
MYNPBÖNP
V ændiskona
í vanda
Svaka skvísa 2_____________
ked blooded 2)
Spcnnumynd
★ '/2
Framleiðandi: S Entertainment.
Leikstjóri: David Blyth. Handrits-
höfundur: Nicholas Stiliadis. Kvik-
myndataka: Edgar Egger. Tónlist:
Paul J. Zaza. Aðalhlutverk: Karin
Salin, Burt Young og Kristoffer
Ryan Winters. 90 mín. Bandaríkin.
Myndform 1997. Útgáfudagur: 13.
mars. Myndin er bönnuð börnum
innan 16 ára.
Vorubílstjóri reynir að nauðga
vændiskonu, sem er í raun dóttir
hans og misnotaði hann hana í
æskuj en hún sleppur frá honum.
Hann verður frekar ónánægður með
að ná ekki sínu fram og reynir að
myrða hana. En þegar hann virðist
alveg að fara ná henni, kemur
bjargvættur hennar í líki star trek-
kyijandi ökuníðings. Ökuníðingur
þessi og vændiskonan flýja með
kolbijálaðan vörubílstjórann á eftir
sér. Þetta eru fyrstu 6 mínúturnar
í „Svaka skvísu
2“ og virðist hin
ágætasta
skemmtun vera í
vændum, en
dampur myndar-
innar dettur brátt
niður og hver
klisjan á fætur
annarri skýtur
upp kollinum.
Þrátt fyrir það að standast ekki
væntingar mínar er myndin hið
ágætasta myndbandsfóður. Hand-
ritið sér til þess að það er alltaf
eitthvað að gerast og öfugugga-
hátturinn er aldrei langt undan.
Karin Salin er fín sem dálítið
brengluð útgáfa af hættulegu kon-
unni, sem tælir menn til sín og
eyðileggur líf þeirra. Það er nánast
öruggt að þessi óskaplega vel vaxna
stúlka muni fá hlutverk, sem lýtur
að hæfileikum hennar t.d. í
„Strandverðir". Aðrir leikarar
reyna að gera sitt besta með hálf-
asnalegar persónur, en flestir
mennirnir í myndinni virðast vera
barnaníðingar eða skápa-perrar.
Þessi samsuða af gamansamri
vegamynd, erótískri spennumynd
og með smáskammti af fjölskyldu-
drama er ekki góð kvikmynd, en
ég get ekki annað en mælt með
henni, jafnvel fyrir það eitt að sjá
fyrstu mínúturnar af henni.
Ottó Geir Borg
Heiladauð hraustmenni
Bardagakempan 2
(Shootfighter 2)
Bardagamynd *
Framleiðandi: Alan Amiel. Leik-
stjóri: Paul Ziller. Handritshöfund-
ur: Greg Mellot og Pete Shaner.
Kvikmyndataka: Hanian Baer. Tón-
list: K. Alexander Wilkinson. Aðal-
hlutverk: Bolo Yeung og William
Zabka. 83 mín. Bandaríkin. MPD
Worldwide, Myndform 1997. Út-
gáfudagur: 13. mars. Gjömingur-
inn er bannaður börnum
innan 16 ára.
ÉG ÆTLA að byija á gagnrýni
minni með því að leggja áherslu á
að „Bardagakempan 2“ fær ekki
neina stjörnu, vegna þess að hana
er ekki með neinu móti hægt að
kalla kvikmynd, og ætla ég að reyna
að athuga hvað það er sem gerir
þennan slagsmálagjörning að því
sem hann er í ljósi þess að hann er
gefinn út sem kvikmynd.
Reyndar reynir „Kempan" að
setja smá-ramma
í kringum þau
ógrynni af slags-
málum sem eiga
sér stað meðan á
gjömingnum
stendur. Ramm-
inn er á þessa leið.
Sonur lögreglu-
manns er drepinn
í ólöglegri bar-
dagakeppni. Lög-
reglumaðurinn safnar saman flokki
hæfileikraríkra sj álfsvarnarmanna
til þess að hafa hendur í hári mann-
anna, sem standa fyrir þessum bar-
dögum. Þetta er eini vísirinn að
söguþræði í gjörningnum og af þeim
90 mínútum, sem hann tekur eru
um 20 ekki tengdar slagsmálaatrið-
um, þar af er ein 3 mínútna ástars-
ena. 20 mínútur af efni teljast vera
stuttmynd en ekki mynd í fullri
lengd. Samtölin, þegar kempurnar
geta loks stunið upp úr sér orði, eru
svo illa skrifuð að „Leiðarljós" er ljóð-
rænt meistaraverk í samanburði við
þau. Það er reyndar merkilegt að
handritshöfundur hafi komið nálægt
gerð „Kempunnar", en hitt er enn
merkilegra að þeir séu tveir, sem eru
viðriðnir hana. Það er varla hægt að
kalla vöðvabúntin sem koma fram
leikara en hópurinn er settur saman
úr einhveijum þekktum nöfnum úr
sjálfsvamargeiranum og eiga þau
það sameiginlegt að vera verri leikar-
ar en Jean Claude van Damme og
málhaltari en Sylvester Stallone.
Gjörningurinn er þegar öllu er á
botninn hvolft frekar samsuða
óspennandi slagsmálaatriða en kvik-
mynd og er það óvirðing við allar
kvikmyndir, góðar jafnt sem lélegar,
að kalla „Bardagakempuna 2“ eina
slíka.
Ottó Geir Borg
Vitrænar
slímklessur
Prótevs__________________
(Proteus)
Vísindahryllingur
★
Framleiðandi: Metrodome Film.
Leikstjóri: Bob Keen. Handritshöf-
undur: John Brosnan eftir bókinni
„Slimer“ eftir Harry Adam Night.
Kvikmyndataka: Adam Rodgers.
Tónlist: David A. Hughes og John
Murphy. Aðalhlutverk: Tony Barry,
William March, Jenifer Calvert og
Robert Firth. 94 mín. Bandaríkin.
Colombia Tristar Home Video/
Skífan 1997. Útgáfudagur: 5. mars.
Hópur ungra eiturlyfjasmyglara
og tveir lögreglumenn lenda í
stormi á sjó. Þau rekur í björgunar-
báti að olíuborpalli og klifra fegin
upp í hann. Fámennt er um borð
og andrúmsloft þrungið ógnandi
spennu. í stað þess að forða sér
vilja lögreglumennimir komast að
því hvað sé á seyði og verður það
upphafið að miklum hryllingi.
Kunnugleg hryll-
ingsmynd, í anda
annarra hryll-
ingsmynda þar
sem vísindamenn
hafa skapað vit-
ræn slímskrímli,
sem hefja sig yfir
kunnáttu manns-
heilans og taka
að lokum völdin.
Myndin er miðlungs spennandi
og eru flest atriðin sæmilega
heppnuð og heldur því myndin at-
hygli þótt hér sé ekkert nýtt á
ferð. Brellur standast kröfur áhorf-
enda framan af, en skrímslið í lok-
in er jafn sannfærandi og skrímsli
í mynd frá 1925.
Hildur Loftsdóttir
MYIMDBÖIMD SÍÐUSTU VIKU
Geimtrukkarnir
(Space Truckers) k k
Börnin á akrinum
(Children ofthe Corn) k
Powder
(Powder) kk'h
Innrásin
(The Arrival) kk
Umsátrið á
Rubyhryggnum
(The Siege at RubyRidge)
k k
Draumur
sérhverrar konu
(Every Woman’s Dream)
+ +'h
Ríkhaður þriðji
(Richard III) kkk'h
Bleika húsið
(La Casa Rosa) k k
Sunset liðið
(Sunset Park) k'h
í móðurleit
(Flirting with Disaster) kkk
Banvænar hetjur
(Deadly Heroes)
Dauður
(DeadMan) k
Frú Winterbourne
(Mrs. Winterbourne) k k'h
Frankie stjörnuglit
(Frankie Starlight) k k'h
Dagbók morðingja
(Killer: A Journal ofMurder) 'h
Klikkaði prófessorinn
(The Nutty Professor) kkk
Eyðandinn
(Eraser) kk'h
Sporhundar
(Bloodhounds) k
Glæpur aldarinnar
(Crime of the Century)
k k k'h
Ópólitískur gam-
anþáttur um
stj órnmálamenn
Ó, RÁÐHÚS! (Spin City) nýr gam-
anþáttur með bandaríska gaman-
leikaranum Michael J. Fox í aðal-
hlutverki hefur göngu sína á Stöð
2 kl. 20.30 í kvöld. [660] Fox, sem
náði fyrst vinsældum í persónu
Alex P. Keaton í gamanþáttunum
„Family Ties“, hefur verið að beij-
ast fyrir frægð á hvíta tjaldinu
undanfarin ár með misjöfnum ár-
angri í myndum eins og til dæmis
„The Concierge“ og „Greedy",
meðal annarra, en líklega er hann
þó þekktastur fyrir leik sinn í
„Back to the Future" myndunum.
Áð sögn Fox var hann orðinn leið-
ur á óreglulegri vinnu víðs vegar
um heiminn og vildi fá fasta vinnu
til þess að geta verið heima hjá
konu sinni, Tracy Pollan, og þrem-
ur börnum þeirra.
í Ó, ráðhús leikur Fox Mike
Flaherty, aðstoðarborgarstjóra í
New York. Barry Bostwick fer með
hlutverk borgarstjórans og Carla
Guglino leikur blaðamann sem er
jafnframt kærasta Flaherty. Þó að
aðalsögupersónur séu pólitíkusar á
þátturinn ekki að vera pólitískur.
Svipar til Alex í Family Ties.
„Þátturinn er í grundvallaratrið-
um rómantískur gamanþáttur,“
segir David Goldberg hugmynda-
smiður Ó, ráðhús í viðtali við Ent-
ertainment Weekly. Aðstandendur
þáttanna óttast að of pólitískt inni-
hald geti fælt frá bandaríska
áhorfendur. Það hefur t.d. ekki enn
komið fram hvort borgarstjórinn
er demókrati eða repúblikani.
Þeir sem höfðu gaman af Alex
P. Keaton í „Family Ties“ verða
örugglega ánægðir með að vita að
Mike Flaherty svipar í mörgu til
hans. Stærsti munurinn er sá að
í Ó, ráðhús er persóna Fox komin
í valdastöðu.
CARLa Guglino, Michael J. Fox, og Barry Bostwick leika
aðalhlutverkin í Ó, ráðhús.
Toy Story II
gefin út á
myndbandi
WALT Disney fyrirtækið og Pixar
Animation Studios segjast ætla
að gefa framhald teiknimyndar-
innar vinsælu „Toy Story“ beint
út á myndbandi.
Framleiðsla myndarinnar nýt-
ur góðs af tæknivinnu við fyrri
myndina líkt og þegar myndirnar
„Aladdin and the King of Thie-
ves“ og „Honey We Shrunk Our-
selves" voru gerðar en þær fóru
báðar bcint á myndbandamarkað.
„Við getum notast við sömu tölvu-
líkön af persónum úr fyrri mynd-
inni auk sviðsmuna og leikmuna,"
sagði Ralph Guggenheim, fram-
kvæmdastjóri framhaldsmyndar-
innar „Toy Story II“. „Þetta gerir
okkur kleift að búa til myndina á
mun skemmri tíma án þess að það
komi niður á gæðum sögunnar
og teiknivinnunnar."
Tom Hanks og Tim Allen, sem
töluðu fyrir aðalpersónurnar Wo-
ody og Buzz Lightyear, munu
mæta aftur til leiks í framhalds-
myndinni. Ekki hefur verið til-
kynnt um útgáfudag myndarinnar.