Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Félög innan VMSÍ sem felldu samningana
Munu sjálf annast
samningsgerðina
Stærri
skjálfta
beðið
NÚNA mælast 250-300 skjálftar á
sólarhring við Ölkelduháls NNV af
Hveragerði í jarðskjálftahrinunni
sem hófst í Henglinum fyrir viku.
Reiknað er með öflugri skjálftum á
næstu dögum.
Barði Þorkelsson jarðfræðingur á
Veðurstofunni sagði að í gær hefði
virknin verið óbreytt á þessum slóð-
um og stærstu skjálftamir verið
1-1,3 á Richterkvarðanum. „Hrinan
er ennþá í verulegum gangi,“ segir
hann „þótt hún sé nú í öldudal."
Barði spáir að hrinan muni bráð-
lega færast í aukana og stærstu
skjálftarnir mælast upp í 3-4 að
styrkleika á Richter.
-----♦ ♦ «---
Stuttur
sáttafundur
STUTTUR fundur var í gær í kjara-
deilu Rafiðnaðarsambandsins og
Pósts og síma og nýr fundur var
boðaður á þriðjudag.
Atkvæðagreiðsla stendur yfir
meðal rafiðnaðarmanna um að hefja
verkfall hjá P&S 25. þessa mánaðar.
Ýmsir hópar sátu á fundum í hús-
næði ríkissáttasemjara í gær. Þar á
meðal voru samninganefndir Starfs-
mannafélags ríkisstofnana og Fé-
lags viðskipta- og hagfræðinga.
---------» ♦ ♦---
Stolið úr lík-
amsræktar-
stöðvum
TILKYNNING um innbrot í líkams-
ræktarstöð við Frostaskjól barst
lögreglu á fímmtudagsmorgun, en
þar höfðu óprúttnir náungar haft á
brott með hljómtæki að verðmæti
um ein milljón króna.
Einnig var brotist inn í líkams-
ræktarstöð við Suðurströnd og þar
stolið geislaspilurum, hátölurum og
öðrum tækjum, ásamt skiptimynt.
---------♦ ♦ ♦
Reykur í
húsi Morg-
unblaðsins
HÚSVÖRÐUR í húsi Morgunblaðs-
ins tilkynnti um mikinn reyk innan-
dyra um klukkan 5 í fyrrinótt og kom
slökkvilið og lögregla á staðinn.
Þegar að var gáð kom í ljós að
mökkur var í einu herbergi hússins.
Hann var rakinn til vélarbilunar í
vélaverkstæði í prentsmiðju, en ekki
er talið að tjón hafí hlotist af.
„SKÝRSLA Landgræðslu ríkisins
og Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins um aðför okkar íslendinga
að eigin ættjörð var einhver alvar-
legasta viðvörun sem þjóðinni hef-
ur borist um langa hríð,“ sagði
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
íslands, í ávarpi við setningu land-
græðsluráðstefnu sem haldin var
á Akureyri í gær. Var hann að
vísa til skýrslu um mikið jarðvegs-
rof á íslandi sem kynnt var fyrr í
vetur.
Sjálfstæði til lítils
Ráðstefnan, Landgræðsla á
tímamótum, var haldin í tilefni af
90 ára afmæli Landgræðslu ríkis-
ins og til kynningar á nýrri land-
græðsluáætlun. I áætluninni eru
þijú meginmarkmið sett fram. í
ÞAU 12 félög innan Verkamanna-
sambandsins sem felldu nýgerða
kjarasamninga munu að líkindum
öll afturkalla samningsumboð
VMSÍ og sjá um samningsgerðina
upp á eigin spýtur.
Að sögn Aðalsteins Baldursson-
ar, formanns Verkalýðsfélags
Húsavíkur, kom fram á fundi for-
manna félaganna 12 með forystu
VMSÍ í fyrradag að helsta ástæða
þess að samningamir voru felldir
var óánægja fólks með mikla
starfsreynslu, sem fengi í raun
minna út úr samningunum en aðr-
Vígalegar
grágæsir við
Tjörnina
GRÁGÆSIR og aðrir fuglar
við Tjörnina í Reykjavík ættu
ekki að geta kvartað undan
áhugaleysi borgarbúa þessa
dagana, enda streyma börn og
fullorðnir niður að Tjörn til
að gefa þeim brauð að bíta í.
Þessi drengur sást bregða á
leik við tvær grágæsir í gær
þrátt fyrir að þær virðist held-
ur vígalegri á að líta.
fyrsta lagi að stöðva hraðfara jarð-
vegsrof og gróðureyðingu og fyrir-
byggja frekari eyðingu og land-
spjöll. í öðru lagi að endurheimta
gróður og jarðveg í samræmi við
gróðurskilyrði og landnýtingar-
þörf. Og í þriðja lagi að öll landnýt-
ing verði sjálfbær, það er að nýting
rýri ekki landkosti.
Ólafur Ragnar sagði til lítils að
hljóta sjálfstæði ef stjórnleysi og
Hins vegar sagði hann að al-
menn ánægja hefði verið með að
færa hluta af kaupauka inn í greitt
tímakaup.
Róttækt að henda út gömlum
taxtakerfum VMSÍ
Björn Grétar Sveinsson, formað-
ur VMSÍ, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að jafnróttækar aðgerðir
og að henda burt öllum gömlu
taxtakerfum Verkamannasam-
bandsins og byggja upp ný, m.a.
með millifærslu, kæmu misjafn-
lega út í taxtakerfínu og óánægja
væri meðal þeirra sem teldu sig
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra segir að í ljósi mikilla við-
skipta með hlutabréf fyrir áramót
megi búast við að skattaafsláttur
vegna hlutabréfakaupa í fyrra verði
líklega hátt í milljarð króna, en í
fjárlögum hafði verið gert ráð fyrir
650 milljóna króna afslætti. Hann
segir þó að ekki verði hægt að segja
nákvæmlega til um hveijar upphæð-
skammsýni verði til að breyta stór-
um hluta ættjarðarinnar í eyði-
mörk á líftíma okkar kynslóðar og
þeirrar næstu.
Við aldamót er gjarnan spurt
um ætlunarverk
„Vísindamenn telja að um 80%
af landgæðum sem fólust í gróðri
og jarðvegi við landnám hafí síðan
tapast. Og líklega hafí mestar
fá minna út úr þessum breytingum
en aðrir.
Þá sagði hann að upp hefði kom-
ið óánægja sums staðar þar sem
samningarnir voru felldir vegna
„byrjendamistaka" þegar fólk var
sett inn í nýja taxtakerfíð sem
samið var um, en átt hefðu sér
stað atvik sem ekki hefðu átt að
eiga sér stað.
Björn sagði að hann hefði ekki
orðið var við óánægju með að bón-
us var tekinn inn í tímakaupið,
enda hefði það verið eindregin
krafa fólks að það yrði gert og
kröfugerðin því byggst á því.
irnar verða fyrr en í ágúst, þegar
farið hefur verið í gegnum skatt-
framtöl.
Friðrik segir að ekki verði gripið
til sérstakra sparnaðaraðgerða
vegna þessa. „Þetta er engin hörm-
ung, því þessum peningum er vel
varið. Það er gott að vita til þess
að fólk vilji styrkja hlutafélög með
þessum hætti.“
gróðurbreytingar orðið á þeirri öld
sem senn er á enda, tuttugustu
öldinni. Við aldamót er gjarnan
spurt um ætlunarverk og þá enn
frekar þegar nýtt árþúsund gengur
í garð. Við íslendingar verðum líkt
og aðrir að svara fyrir okkur á
slíkum tímamótum. Er nokkurt
verk brýnna en að hefja nýja land-
vöm - að breyta íslandi úr stærstu
eyðimörk álfunnar í það gróður-
land sem fagnaði forfeðrum okkar
á fyrri tíð? Ráðstefna dagsins ber
heitið Landgræðsla á tímamótum
en í raun er það þjóðin öll sem
gengur til móts við þá prófraun
að verðskulda þetta land,“ sagði
Ólafur Ragnar Grímsson.
■ Alvarleg viðvörun/12
Játaði á
sig 19
innbrot
LÖGREGLAN handtók ungan
mann fyrir skömmu vegna inn-
brots í fyrirtæki á Seltjamar-
nesi og upplýsti í kjölfarið
íjöldamörg önnur afbrotamál
af sama meiði.
Pilturinn er sextán ára gam-
all og þegar mál hans voru
rannsökuð kom í ljós að hann
bar ábyrgð á átján öðrum inn-
brotum á sama svæði og hann
var handtekinn á.
Mikið þýfi á heimilinu
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu em það allflest
þau innbrot sem orðið hafa á
þessu svæði seinustu vikur.
íjófurinn ungi játaði þau á
sig, en auk hans höfðu tveir
félagar hans á sama aldri ver-
ið að verki.
I kjölfarið var gerð húsleit
heima hjá honum og fannst
þýfíð úr öllum þessum innbrot-
um á heimili hans. Um mikið
magn varnings var að ræða
sem lögreglan lagði hald á, í
von um að koma honum til
réttra eigenda.
Tveggja ára
barn hætt
komið
LÖGREGLUMENN brugðust
skjótt við þegar tveggja ára
barn veiktist snögglega í
Breiðholti í gær og má ætla
að viðbragðsflýtir þeirra hafí
orðið barninu til lífs.
Málavextir voru þeir að
bamið sem á heimili í Vestur-
bergi lenti í andnauð, eftir að
hafa fengið ABIDEC-Multivít-
amíndropa ásamt mjólk að
drekka.
Skipti engum togum að það
tók að kasta upp og vit þess
fylltust af slími. Nærstaddir
lögreglumenn brugðust fljótt
við og náðu að hreinsa slímið
úr öndunarvegi barnsins, sem
var í kjölfarið flutt á bráða-
móttöku Sjúkrahúss Reykja-
víkur með sjúkrabíl. Því mun
ekki hafa orðið meint af.
54 óku of
hratt
LÖGREGLAN í Reykjavík
kærði 54 ökumenn fyrir of
hraðan akstur seinasta sólar-
hring og voru þar af sjö svipt-
ir ökuréttindum á staðnum.
Þeir ökumenn sem fóru svo
frjálslega með hraðatakmörk-
in óku flestir um 30-40 km
yfír lögbundnum hraða á þeim
götum sem þeir voru stöðvaðir
á, og mældust þeir sem hrað-
ast fóru á 111 kílómetra hraða.
Þeir sem misstu skírteini sín
gera það flestir í um mánaðar
tíma og þurfa að greiða um
18 þúsund krónur í sekt.
Svo virðist vera samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu sem
ökumenn freistist til að auka
hraðann með hækkandi sól og
snjólausum götum, og því
ástæða til að minna á að þótt
aðstæður hafí batnað breytast
lögbundnar hraðatakmarkanir
ekki.
Olafur Ragnar Grímsson forseti Islands í ávarpi á landgræðsluráðstefnu
Brýnt að hefja
nýja landvörn
Morgunblaðið/Golli
Hlutabréfakaup
Hátt í milljarður í
skattaafslátt